Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Page 10
Kirkjubruninn á Möðruvöllúm í marzmánuði 1865. smárúðóttir í gotneskum stíl eru á hvorri hlið og hinn þrettándi allt að einu á stafni yfir dyrum. Ki/kju bekkirnir eru óvenjulega breiðir og bil milli þeirra svo breitt, að auðvelt er að ganga framhjá sitj- andi fólki í bekk. Kirkjuhurðir eru felldar og sömuleiðis þiljur hið neðra, en að ofan slétt plægð- ar þiljur. 5 heilir bitar eru í kirkjunni og hvelfingu þar fyrir ofan n.k. spjaldþiljur^ klædd inn- an á sperrur og hanabita. í hverju spjaldi bronsuð stjarna, sexblaða. Stjörnur þessar eru liðlega 2200 talsins. Upphaflega var kirkjan máluð innan svo sem nú er, nema ljósari viðarmálning og hvítar þilj- ur hið efra. En að utan hefur stíll kirkjunnar spillzt nokkuð við það, að turnþök sem aðalþak eru rauð- máluð. í upphafi var kirkjan bein mt utan, gluggar, hurðir og turn- þök snjóhvít, en aðalþak tjargað. Kirkjan var máluð að nýju innan 1924 og 1957, en að utan 1926 og 1962. Stór kolaofn var lengi í kirkjunní fram til 1954, er hún féikk rafhitun. Er hún var raflýst þá voru 3 forkunnarfagrir Ijósa- hjálmar nær eyðilagðir. Kirkjan á ekki merka gripi í skrúða ,né búnaði, sem á stafar af hinum tíðu brunum á staðnum. Hins vegar á hún gersemar miklar, þar sem eru Summaria, prentuð á Núpufelli 1589—1591 og Guð- brandsbiblía prentuð á Hólum 1584, báðar að öllu heilar. Verði Möðruvellir prestlausir áfram hljóta þessar dýrmætu bækur að verða fluttar á Amtsbókasafnið á Akureyri. Þetta eintak Guðbrands- biblíu héfur eflaust komið í Möðru velli með Benedikt Pálssyni, son- arsyni Guðbrands biskups, en hann var klausturhaldari á Möðruvöll- um 1639—1664. Þangað heíur Summaría- líka komið með Bene- dikt — en mun hafa lent austur í HáU í Fnjóskadal um tíma. Þann- ig er, að Jón Tómasson prests á Hálsi Ólafssonar, var í þjónustu Benedikts, áður hann tók við Hálsi af föður sínum, dáinn þar 1717. Getur séra Jón þess, að Benedikt gæfi sér bókina, er hann var hjá honum (innan á saurblaði). Með yngri hendi stendur svo neðan við greinargerð síra Jóns: Enn nú tilheyrer bókenn Möðruvalla- klausturkirkju“. Summaria var dýr bóik og þegar á 18. öld dýr- Ólafur Daviðsson. mæt. Sennilega er það Hans Schev- ing klausturhaldari, fæddur 1701 á Möðruivöllum, dáinn 1782 í emb- ætti þar, sem fengið hefur bók- ina keypta á Hálsi og gefið kirkj- unni á Möðruvöllum. Áð sönnu hefði verið við hæfi að rekja nér nokkuð sögu kirkju smiðsins, Þorsteins á Skipalóni, og sögu kirkjubyggingarinnar, en það er ólíkt byggingarhraða nútímans, að kirkjan var vígð aðeins einu og hálfu misseri eftir að grund- völlur hennar var lagður (í októ- ber 1865), enda þótt hér væri um stórhýsi að ræða. En ekki mun hafa v^rið hörgull á fé. Pétur amtmaður átti það stór- lyndi að hafna sambykkt sóknar- manna um að breyta Friðriksút- gáfu, amtmannsstofunni, í kirkju. Sumarið 1865 á Möðruvaljarklausí- urskirkja 2500 ríkisdali á vöxtum í Jarðabókasjóði sem er stórfé, en tilboð Þorsteins Daníelssonar í kirkjusmíðina var 1300 ríkisdalir. Þorsteinn á Skipalóni, eða Dan- ielsen á Lóni eins og hann var oft kallaður, varð sjötugur á vígsluári kirkjunnar. Hann lifði t.il 1882, eins og þegar er getið. í ellinni er sagt, að hann riði oft inn að Möðruvöllum, gengi umhverfis kirkjuna og um hana og áliti hvaðeina og hringdi klukkunum sér til unaðar. — Jarðneskar leif- ar þessa merkilega atorkumanns voru svo lagðar í moldu undir kórgafli glæsilegasta stórvirkisins, sem hann hafði reist. — ,,þar sem sólar nýtur fyrst hvern heiðan dag“, eins og faðir minn sagði við leiði þeirra Lónshjóna fyrir 10 árum. III. Lokts skal hér getið í örstuttu ágripi sögu þeirra presta, sem þjónað hafa Möðruvallaklausturs- kirkju hennar hundrað ár. Þinga- prestarnir eru: síra Þórður Þ. Jón- assen, síra Jörgen J. Kröyer og síra Davíð Guðmundsson. Staðar- prastar: síra Jón Þorsteinsson, síra Sigurður Stefánsson og síra Ágúst Sigurðsson. Lang lengstan þjón- ustutíma hafa síra Sigurður 38 ár, og síra Davíð 32 ár, þeir tveir um 70 ár af þeim 100, sem hér um ræðir. Síra Þórður var launsonur Þórð- ar dómistjóra Jónassens og Mar- grétar Stefánsdóttur prests á Sauðanesi Einarssonar. Fæddur á Sauðanesi 23. apríl .1823, ólst þar 1114 TflUiKN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.