Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Page 17

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Page 17
komið upp úr kafinu eftir á, til dæmis hann hefði sent á undan sér hundrað manna flokk til að vera viðbúinn að fagna sér og hrópa húrra, hvar sem hann kom. Höfðinginn fékk mikið lán í Evr- ópu, en eyddi talsverðu aí þvi á beimleiðinni í Frakklandi og víðar til að kaupa geysidýran postulínv borðbúnað, er nota skyldi við krýn ingarathöfn höfðingjans sjálfs. Einnig konungsbíl og fleira svip- að. Sagt var, að lögreglan hefði fjarlægt alla landa hans á mót- tökuístöðunum, svo sem stúdenta, því að vinsældir furstans heima fyrir voru taldar af skornum skammti. En furstinn kvað hafa verið hinn borubrattasti og sagt: „Ef þið ekki eruð mér þægileg- ir, þá bara viðurkenni ég Au»tur- Þýzikaland“. Sagan kann að vera ýkt en hún sýnir vissan hugblæ, sem talsvert hefur borið á, en mun vera að breytast. Við komum heim í Byecher- stræti 40 í Múnchen, hress og glöð eftir Alpaferðalagið og gæddum okkur á hænum, grindarsteiktum á viðarkolaglóð. Þorkell tók sprett við að höggva brenni úti í garð- inum, mæðgurnar búverkuðu, ég hripaði. á blað atburði undanfar- andi daga og setti sumt í vísur. Manni leiðist aldrei við þá hugar- leikfimi. Brátt var orðið dimmt og fuglarnir þagnaðir. Þorkell kom inn úr garðinum og tók að syngja aríur, Agnes lék á blokk- flautu og Helga á sembal. Hús- eigandinn, hressileg ekkja á átt- ræðisaldri, hlustaði á. Hún mundi tvenna tíma. Hús hennar slapp við skemmdir r stríðinu, en í ó- friðarlok sendi borgarstjórnin henni formálalaust átta manns, er skyldu búa í húsi hennar. Sjálf fékk hún eina kompu til umráða. Allt húsnæði varð að gernýta á þeim árum. V. Gekk ég yfir gömlu Rín, geymdi vín í munni. Söng af gleði sála mín, söm er jaínan gæzkan þín, „Karitas" í kirsuberjarunni. Ég sat við Dóná einn sumar- dag og sá hana lygna streyma. Þá kom fram i hugann iíuð lag, TÍMINN- SliNNDDAGSBLAb sem löngum var sungið heima. En brennandi heit var hin suð ræna sól og söngur framandi í hlíðum, hödl eða kirkja á hverjum hól og hunang í glólundi fríðum. Hefurðu komið í Herraey og höllina Lúðvíks skoöað? Þangað sigla mörg fögar fley og ferðamönnum er boðað, að hvergi sé dýrð og dásemd silík, drifin gulii hver stóli og brik. Oft var úr minna moðað. Þú sjálfsagt líka í Fruarey ferð og finnur þar nunnur rjóðar Þær brugga líkjör af beztu gerð og búa til kökur góðar. Klausturkirkjan er forn og fræg, — þú finnur blæ liðins tíma. Landið er fagurt og fégjöldin væg, næst færðu við Salzburg að glíma. Borgin við fellin er blendin á svip, berlega meitluð aldanna grip, — ferðaþjóð fjárhagnum bjargar. Fornbúðagatan er fjölsótt og þröng, forvitni vekja dimm miðalda- Söng, og kjallarahvelfingar margar. Kastali rís á hamri hátt, horfir á borg og fljótið grátt. Séð hafa margt hans sögu- spjöld siðan á miðri Sturluöld. Eftir no.kkurra daga dvöl í Miinchen skyldi halda til Austur- ríkis á nýjan leik. Lestin þýtur áleiðis til Salzborgar 10. ágúst, tveggja tíma ferð í austur frá Munchen. Þorp og skógar virðast þjóta hjá. Við stígum út úr lest- inni í Prien og ökum þaðan í mjög fornfálegum lestarvagni út að fal- legu vatni Herrenchiemsee), þar sem fjöldi skemmtibáta var á sigl- ingu, en sumir s*:gnir áfram eins og reiðhjól. Ferjur ganaa allan f dýragarðinum í Munchen. Lff dýranna er frjálslegt, þótt i dýragarði sé. 1121

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.