Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Blaðsíða 2
Þíjtur í Við viljum sjálfsagt flest búa við frið. En við viljum, að frið- urinn byggist á réttlæti, sem ekki er einungis fólgið i því, að við séum öll jöfn fyrir lög- unum, heldur höfum einnig sem jafnasta aðstöðu í sjálfu iifinu innan þeirra marka, sem hæfi- leikar okkar setja. Við kjósum einnig frelsi einstaklinganna, sem þó verður að vera háð þeim takmörkunum, að þe:r níðist ekki stórlega á þvi, sem þeim er trúað fyrir, og skaði ekki með því samféiagið og sam borgarana og belzt ekki sjálfa sig heldur til þeirra muna, að til mikils vanza eða háska sé þjóðfélaginu. Því getuT borið við, að við rjúfum friðinn á einn eða annan hátt, er okkur finnst hann vera hbfiskjöldur þess, sem er af hinu iiia, að okkar dómi. En mat okkar á því, hvenær friður sé of dýru verði keyþtur, frelsið skert um skör fram eða farið með þjð út í öfgar og réttiætinu svo laklega fullnægt, að ekki megi iengur halda að sér hönduro, getur oltið á ýmsu: Skapgerð okkar og áunnum Mfsviðhorf- um, stöðu okkar i þjóðfélaginu, aldaranda og fordæmi annarra og ldkum til þess, að einhverju verði áorkað með hófiegum fórnum. En þó að slikt mat margra manna kunni að vera svipað, getur þeim sýnzt sitt hverjum um það, hversu við skuli bregðast og hvaða vopn- um eigi að beita. Tíðast er orðs- ins brandi brugðið á taft í ein- hverri mynd. En stundum getur til annars dregið, einnig hér á landi okkar. Við, hér á Vesturiöndum, er- um hreyknir af þjóðféiagshátt- um okkar — lýðræðinu, vel- meguninni, tækninni, menning- unni, Og kannski sjálfumglað- ir um of. Nú bregður að minnsta kosti svo við, að ein- mitt lýðræðislöndin mörg loga í óeirðum. í Bandarikjunum er það sérstaklegs eðlis, að þar er blóðugt kynþáttastríð háð með litlum hvíldum i mörgum skjönum borgum. En þar hafa iika borg- arar, sem eru harkalega á önd- verðum meiði við valdsmenn lands síns, þótt þeir beri hör- undslit guðanna, og stúdentar, sem eru í ósátt við samféiag sitt, átt í höggi við lögreglu. Uppþot af svipuðum toga, sprottin af andúð á miskunnar- lausri styrjöld og ólgu meðal stúdenta hafa orðið viða í Norð- uráifu. í Þýzkalandi hafa stúd- entar beint geiri sínum að þeirri égnun við skoðanamynd- un í landinu, er þeir telja stafa af uppgangi ískyggilegs blaða kóngs. Mest hafa tíðindi orðíð að sinni í Frakklandi, þar sem á að gizka hálf þjóðin sagði ríkisstjórninni hálfgildis strið á hendur á þeirri stundu, er hinn aldni kappi, Dögól, brá sér með flunkurnýtt höfuðfat á toppnum austur í Rúmeníu. til fárra nátta gistingar. Orsakir þess, að slíkir atburð- ir gerast, eru vafalaust marg- ar og sundurleitar. Á yfirborðs- kenndan hátt mun mega segja, að þetta sé uppreisn mannfé- lagshópa og skoðanahópa, sem ýmist telja sér misboðið og mis- munað og ónóg tillit tekið til lífsaðstöðu sinnar, þarfa og skoðana, eða finnst sem siða- boð í mannlegum samskiptum séu freklega brotin. Slikir atburðir vekja geig, þegar þeir birtast í viðh'ka mynd og orðið hefur í Frakk- landi, því að enginn veit, hvaða atburðarás kann af þeim að hljótast. Færri gefa því gaum, að þvilíkar róstur í okkar lof- legu lýðræðislöndum eru vitnis- burður um alvarlega veilu, sera ekki þjáir aðeins franskt stjórn- arfar, heldur gætir miklu við- ar í lýðræðislöndum. Þeim, sem komizt haía tii valda, vissuieg.i á löglegan hátt, þótt stundum styðjist þeir við ísjárverða hag- ræðingu kosningalaga, eða náð þeirri þjóðfélagsaðstöðu ann- arri, sem gerir þá voidugri samiborgurum sínum, hættir til þess að hundsa mannfélags- hópa, sem þeim geðjast ekki að vegna skoðana þeirra eða annarra blæbrigða, og niðast á öðrum vegna eigin hagsmuna. Þeir, sem hafa nokkurra at- kvæða meirihluta á þingi eða atvinnutækin og yfirráðin í fjár málaheiminum í sínum hönd- um, eru oft of minnugir valds síns og of gleymnir á það, að tiIMtssemi þarf að vera eitt af einkennum lýðræðisins, sem hrósar sér af skoðanafrelsi. Skoðanahópar í minnihluta eiga líka sinn rétt. En með vald- níðsiu, þótt ósaknæm sé að lög- um, er andsvarinu boðið heim: Utangarðsmennirnir, hinir hundsuðu skoðanahópar, leit ast við að láta kenna aflsmun- ar á móti þann eina hátt. sem þeim er tiltækur. Þetta er einn helzti aflvaki upphlaupa meðal lýðræðisþjóða. Þetta er ekki ný bóla, held- ur gömul hefð, sem illa geng- ur að breyta. Á þennan hátt hefur löngum verið kvatt til þings á götunni. Forfeður þess fólks, sem nú er uppi á Vestur- löndum, sóttu mannréttindi í greipar konunga og alls konar pótintáta með. samblæstri, kröfugöngum, óeirðum, spell- virkjum og beinni uppreisn. þeg ar bænarskrár og orðræður brugðust. Á sama hátt récti verkalýðurinn hlut sinn. Sja'dn ast var neitt látið laust, tyrr en aflsmunum hafði verið be:tt. Hverri kynslóðinni af anna-ri hefur beinlínis verið kennt að fara þessa leið, þegar langlund- argeð þraut. Með þessum hætti gat fólkið oft knúið fram vilja sinn, er hann fékkst ekki með öðru móti. Nú er það auðvitað fjarri lagi, að nokkur ríkisstjórn í nokkru landi geti gert ölhim til geðs eða eigi að leitast við að gera það. En skjaldborg valdsins hefur oft kallað vá- lega atburði yfir sig og aðra með því að stríða gegn straumi íímans fram í rauðan dauðann. Valdníðsla og ögranir draga lika tíðum á eftir sér slóða, auk þess sem það er skaðsemdar- verk og brot á anda og eðli lýðræðisins að hefnast á ein staklingum og hópum manns söku m skoðana þeirra. óbeft skoðanafrelsi er einn af hyrn- Framhaid á 454. síSu. 434 T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.