Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Page 11

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Page 11
hafði i þessu fangeisi seint á nífcj- ándu öld, sakaður um guðlast, hafði lýst því í bæklingi og held- ur ófagurlega. Súffragetturnar komust að raun um, að allt var þar eins og verið hafði á dögum Ramays þessa. Klefarnir voru Iþröngir og sóðalegir, steingólfið nakið, og hátt uppi litlir gluggar, sem ekki var unnt að opna, og rúð urnar öskugráar af áragömlum ó- 'hreinindum. Á dálítilli hillu voru fangelsisreglurnar, ásamt bænabók og saltkeri með tréspæni í, og vatnskrukka á borðgarmt Rekkj- urnar voru ekki annað en þrjú borð, sem fest voru saman á ok- um. og tágadýna ofan á. Á daginn var þeim slegið upp með brekán- unum, sem þeim fylgdu, og þó að fanginn væri lasburða, gat hann hvergi hallað sér nema á bert gólfið. Kuldinn var mikill í klef- unum á vctrum, en hitasvækja í molluveðri á sumrin. En ekki máttu fangarnir ganga um gólf sér til hita, þótt þeim væri kait á fót- um, því að gæzlukonurnar sögðu, að það truflaði aðra fanga. Maturinn var rúgbrauð og kart- öflur og býtingur með nýrnamör í. borinn fram í pjáturkollum, sem fægðar voru úr múrsteins- dufti, og trésleifar i. Vildi einhver ná læknisfundi, varð hann að gera viðvart klukkan sex að morgni, og í annan tíma var slíku ekki sinnt. Engar bækur fengu konurnar, né skrifföng, og ekki máttu stallsyst- ur þeirra heimsækja þær. Stund úr degi hverjum fengu þær að koma út í fangelsisgarðinn. Voru þær þá látnar ganga fram og aftur með nokkurra skrefa bili og máttu ekki mæla orð frá vörum. Þær, sem brotlegar gerðust. voru settar í einangrunarklefa við enn verri aðbúð. Súffragettunum brá í brún, er þær komu fyrst á þennan stað. Fyrst af öilu voru þær rifnar úr hverri spjör og færðar í fanga- klæði, svarta, dragsíða kjóia með hvítum örvum með breiðum flaug- um og Ijósleitar svuntur með svört um örvum. Sumar konurnar voru vanar auði og allsnægtum, og þær hryllti við þessum flíkum, sem voru oft aUt annað en þrifalegar. Seinna varð þetta eins konar heið- arsbúningur, og súffragetturnar létu gera sér örvarflauga úr tré, jem þær báru í flokkum um göt ur borganna. Þá höfðu þær fengið að reyna, að það, sem þeim var boðið í fangelsunum fysrtu miss- erin, var sem sæludraumur móts við það, er síðar varð. Fyrst í stað voru þær tiltölulega auð9veipir fangar. En fljótt tóku þær að krefjast þess, að mál sín kæmu fyrir kviðdóm og með sig yrði farið sem pólitíska fanga. Þær vitnuðu til þess, að verkfallsleið bogar, sem stjórnarvöldin þorðu yfirleitt ekki lengur að beita mjög hörðu, væru teknir allt öðrum tök- um en þær, enda þótt þeir stæðu fyrir uppþotum, er hefðu í för með sér meiðsli og stórfellt eignatjón. Seinna meir skírskotuðu þær einn- ig til dæmis Úlsterbúa og fylgis- manna þeirra heima í Englandi. er hótuðu beinni uppreisn, þegar horfur voru á, að írland fengi sjálfsákvörðunarrétt, og sættu þó ekki neinum viðurlögum. Kröfum sínum beindu þær til ríkisstjórn- arinnar, sem jafnan svaraði því til ef hún virti þær svars, að ekki stæði í hennar valdi að taka fram fyrir headurnar á dómsvaldinu. Eigi að ?íður töldu þær sig geta sannað, að lögregla og dómarar meðhöndluðu mál þeirra að bein- um fyrirmælum úr stjórnarráðinu. XI. Súffragettunum var fagnað með blómum og gjöfum og samsætum, er þær komu úr fangelsinu, og gengust einkum fyrir veizlunum hin hægMtari kvenréttindasamtök, sem rithöfundurinn Mililcent Faw cett stjórnaði, heimsfræg kona. Hafði þó Iengi verið grunnt á því góða milli samtaka hennar og Emmelínu Pankhurst, og var þetta eitt hið gleggsta merki þess, hve meðferðin á konunum mæltist illa fyrir meðal almennings. Af sama toga mun það hafa verið, að nú var einnig stofnað félag karla, sem hafði kvenréttindi að baráttumáli. Snemma árs 1907 gerðist hvort tveggja samtimis, að auglýst var berum orðum eftiA konum, sem fúsar væru til þess að láta varpa sér í fangelsi, og boðað til kvenna þings, og svo stillt, að það stæði þann dag, er Bretaþing var sett. Á kvennaþinginu voru í for sæti Emmelína Pethick Lawrence, Kristabel og Anna Kenney. Voru á þessu þingi samþykkt mótmæli gegn því, að ríkisstjórnin heimtaði skatt af konum, án þess að veita þeim almenn réttindi. Klukkan þrjú þrammaði síðan kvennaskar inn af stað til þinghússins með mótmælasamþykktina, æpandi her óp dagsins: „Rísið upp, konur!“ En þingbúsið var vel varið þenn an dag. Þangað hafði verið stefnt þúsundum lögreglumanna, sem margir voru ríðandi. Sló fljótt í svarra, er fylkingarnar mættust, og er skemmst af því að segja, að þarna tókst bardagi, sem stóð í fimm klukkustundir. Lögreglu- mennirnir riðu á hröðu brokki beint á mannþröngina og tvístruðu henni, en síðan réðust lögreglu- þjónar á fæti að dreifðum hópn um. Þannig barst Ieikurinn fram og aftur um nágrenni þinghússins, og var ýmist, að konurnar flúðu eða sóttu fram. í einni lot- unni tókst fimmtán þeirra að ryðj- ast inn í fordyri þinghússins, en voru allar handteknar samstundis. Þetta varð eftirminnilegur dag ur. Konur í rifnum klæðum velt- ust fyrir fótum manna og hesta, og Iög.reglumenn létu högg ríða um herðar og axlir þeirra, sem þeir náðu til, og hnén ganga á bakhluta þeirra, ef þröngin var svo mikil, að þær gátu ekki flúið höggin. Þær, sem teknar voru höndum, voru dregnar burtu held- ur ómjúklega, sumar á höndum og fótum — ö<krandi, hrínandi og for mælandi. Sum blöðin gátu ekki að sér gert að hæðast að viðbúnað- inum og viðureigninni, og eitt þeirra nefndi hina ríðandi lög- reglumena Kósakka Lundúna. En hve óvinsamleg nafngift það var vita einungis þeir, sem gera sér grein fyrir því, til hvílíkra hroða- verka Rússakeisari notaði Kósakka sveitir sínar á þessum árum. AIIs urðu fangarnir á milli fimm tíu og sextiu áður en dagur va.r úti, þeirra á meðal var bæði Krista- bel og Sylvía. Rúmum mánuði síðar var hald- ið annað kvennaþing með nýjum róstum og mestu handtökum fram að þeim tíma. Þá var barizt langt fram á nóH og meira að segja kom- ið upp sérstakri hjúkrunarstöð til þess að gera að sárum þeirra, sem mestar ákomur fengu. AIIs urðu það hundrað og þrjá- tíu súffragettur, sem gistu fang- elsin fyrstu þrjá mánuði ársins 1907. T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 443

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.