Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 3
í mörgum löndum er Lappahreinninn tákn iólanna. Heimkynni hans eru í hinum nyrztu löndum þriggja álfa. Þar eru auk Lappahreinsins þrjár aörar hreindýra- tegundir. Á ísiandi hafa hreindýr verið í nær tvær aldir Um aldamótin síðustu lögðu Samar frá Norður-Finnlandl af stað til Alaska með 2000 dýr. Leiðin er 2200 kilómetrar, og þeir komust á tveim árum á leiðarenda með 800 dýr. Út af þeim eru nú miklar hjarðir í Alaska og Kanada. Það heyrast líkt og brestir, þegar hreinn gengur. Þeir koma frá sin í klaufum, er leggst yfir ofurlitið bein við hvert fótmál, sem þeir stíga, Þetta minnir á gitarstrengi. Milli klaufanna á afturfótunum eru klaufkirtlarnir. Frá þeim smitar * kvoða, sem sezt í spor hreindýr- anna. — Þefurinn af henni vísar leið öðrum dýrum, sem orðið hafa viðskiia við hjörðina. Hreinkýrnar, simlurnar, kelfa í maí. Kálfurinn er einn, sjaldan tveir. Þá er oft snjór, en kálfur- inn kemsf á spena jafnskjótt og hann hefur verið karaður. Fitan í mjólkinni er 15—20%. Furðu gegnir, hve eyra hreinkýr- innar og kálfs hennar er næmt. Þótt hundruðum dýra sé tvístrað, og klið- urinn svo mikill, að ekki heyrist mannsins mál, finnur hver kálfur strax móður sína. Fyrir hverjum flokki er stór tarfur. Staða kúnna I flokknum iýtur ströngum reglum og er meðal ann- ars háð stærð hornanna. Skaddist horn á kú, færist hún aftar í flokk. inn. Hornunum beita tarfarnir eln- ungis, þegar þeir berjast innbyrð- is. Gegn rándýrum, sem á þá ráðast, beita þeir framfótunum — ef svo er að þeim kreppt, að þeir geta ekki flúið. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 507

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.