Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 20
 Elísabet og Kristjana, dóttir hennar. fylgzt m.>ð umferðinni úti, Dæði á sjó og landi. Þó að orðtak Þóru væri, samkvæmt hennar brer.n- andi áhuga „vinna, vinna,“ gaf hún sér þó tíma til að líta í btað eða bó-k til þess að geta fylgzt með málefnum líðandi stundar. Hún var orðin fulltíða, þegar hún lærði að skrifa, en hún skrifaði fína og skýra hönd og kunni bæði að orða bréf sín vel og skrifaði rétt. Bréf hennar voru öli jafn skýr og læsi- leg. Hún skrifaði sendibréf allt til dauðadags, þá nærri níræð að aldri, og gaf sér oftast ekki tírna til þeirra hluta fyrr en hún var háttuð og allir aðrir komnir í fasta svefn. — Það skrifaði margt vel, gamla fólkið, þó áð það væri ekki skólagengið Guðmundur, maður Þóru, skrifaði myndarlega og skýra karlmannshönd. Þóra lét sér ekki nægja að vinna upp á þessi barnabörn sín, er hjá henni voru. (Að „vinna upp á“ var að spinna í og prjóna vettlinga, sokika og annað prjón- les.) Hún mundi líka eftir okkur hinum og þeim barnabarnabörn- um, er fædd voru, þegar. hún dó, auk fjölda margra vina og kunn- ingja fjær og nær. Það gegndi f-urðu, hvernig ein manneskja gat unnið allt fram á þennan háa aíd- ur, sem þá var tiltölulega hár, miðað við meðalmannsævi þá og nú. Viljakrafturinn var sterkur og þrekið ákaflega mikið. Það sá ékki á Þóru, þó að hún hefði aúa tíð orðið að vinna hörðum hönd- um og ganga í gegnum mikla lífs- venjubreytingu, sem gekk yfir þjóð ina um síðustu aldamót við auk- in kaup á vmsum neyzluvörum er- lendis frá, flutning fólks úr sveit- um í sjávarþorp, breytt atvinnu- brögð, húsagerð, klæðaburð, mat- aræði og fleira. Af minningu Þóru Jónsdóttur stendur ljómi í hugum ættingja hennar og annarra, er hana muna. Uppi á skansinum, sem áður um getur, myndaðist smáflöt. Þar gerðu þau í Yztahúsinu sér mat- jurtagarð. Hann var að vísu lítill, en ég get þessa hér til að sýna framtak þeirra og fyrirhyggju. Svo var það Ifka einkennandi fyrir Yztahúsið, því að aðrir en þeir, er áttu bújarðir í Hnífsdal þá, Sigurður Guðmundsson með sonum sínum og tengdasonum eftir kappróður, er þeir þreyttu á Siglufirði á sjómannadaginn. 524 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.