Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 12
rfflwmn Helgi Vallýsson: HREINDÝRIN Á VESTURÖRÆFUM mm „Helgi Valtýsson — áhugi hans er samur og jafn, þótt hann sé nú orðinn háaldr- aður. Tlgulegt dýr. 516 I. Hálfrar aldar áhugamál: Mér er senn Hkt farið og stráikn- um, sem spjallaði mjög við sjálf- an sig og rökstuddi það með því, að alitaf væri gaman að tala við skynsaman mann. í liðuga hálfa öld hef ég borið hreindýrin okkar Austfirðinga mjög fyrir brjósti. Mér var það ó- bærileg tiihugsun, að þessi litla, sí- fækkandi, fótfráa glæsihjörð og ör- æfaprýði ætti sennilega að hverfa úr sögunni áður en varði, eins og að stefndi, væri ekkert aðhafzt henni til verndar og bjargar. Furðulítið virtust frændur mín- ir og landar á Fljótsdalshéraði sinna þessari hjörð sinni á Vestur- öræfum og lítið til hennar þekkja að öðru en bragði og bjór, sem einstaka hreindýraskytta aflaði þeim. Og það var hvort tveggja harla gott. — Og þá var sagan öll. Um 25 ára skeið hef ég þulið yfir frændum mínum eystra, hvað þeim bæru að gera til verndar og hagnýtingar á litlu öræfahjörðinni sinni. Með þá í huga, varð- veizlu og kunnáttulega hagnýtingu öræfahjarðar þeirra, sem árlega myndi leggja þeim í hendur millj- ónaverðmæti af afurðum hjarðar- innar, án nokkurs verulegs rekst- urskostnaðar, hef ég unnið að þessu áhugamáili mínu í fullan ald- arfjórðung á þessum vettvangi. Og ég lét ekki hjá líða að lýsa gleði minni, er loks var svo langt kom- ið málinu, að eigi stóð á öðru en samiþykki bænda á Fljótsdalshér- aði að taka opnum örmum við hjarðarauði sínum á Vesturöræf- um, og þurfa ekki einu sinni að þakika allan nauðsynlegan fróðleik um hirðu hjarðar sinnar og haf- nýtingu, sem þeim stóð til boða og beið þeirra árum saman. II. Hrafl úr sögu: Sagan hefst á fyrstu verklegu framkvæmdum mínum á þessum vettvangi, er við félagar siðsumars 1939 lögðum upp í fyrsta rann- sóknarleiðangur okkar af fjórum sumarleiðöngrum um hreindýra- slóðir. En þær voru þá aðallega í Kringilsávrana uppi undir Brúar- jökli í norðausturbrún Vatnajök- uls, en síðar einnig á Vesturöræf- unum. Rannsökuðum við hjörðina mjög gaumgæfilega, fjölda dýra, Mf þeirra og lífsskilyrði og tókum fjölda Ijósmynda. Reyndist hjörð- in íþá aðeins um hundrað dýr alls með kálfum, og var um helming- ur hjarðarinnar tarfar. Að loknum leiðangrinum sendi ég ríkisstjórninni alMtarlega skýrslu um för okkar og athugan- ir allar, og einnig tillögur um, hvað gera bæri og þyrfti til vernd- ar og varðveizlu hjarðarinnar, og meðal annars að nauðsynlegt væri að skipa öræfafróðan og dugleg- an eftirlitsmann með hjörðinni. Með harðfylgi þingmanns Aust- urlands, Eysteins Jónssonar ráð- herra, fékkst lögboðin alger frið- Lokaávarp höfundar til frænda sinna á FEjófsdalshéraöi IÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.