Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Blaðsíða 13
íslenzkt hreindýr, sem or8i8 er bandvant, ef svo má aS orSi komast. un öræíahj a.rðarinnar, og íleiri til- ÍÖgur mlnar fengu framgang á al- þingi þegar um haustið 1939. Og næsta s-umar var eftirlitsmað- ur skipaður, valinkunnur ágætis- maður, öræfafróður og drengur góður. Varð hann samstarfsmaður minn og vinur ævi sína á enda. Tók þá við frændi hans, sömu kost um búinn. Þegar á næstu 2—3 árum sást, að dýrunum hraðfjölgaði, enda voru þetta glæsileg dýr og þroska- mikil. En auðsjáanlega stóð þó tarfafjöldinn hjörðinni fyrir þrif- um á marga vegu. Enda var hann margfaldlega of mikill. Samkvæmt tillögu minni var síðan lögboðin nauðsynleg, árleg fækkun tarfa, og henni haldið á- fram síðan, En aldrei hefur hún þó verið nándarnærri nægileg sök- um hraðfjólgunar hjarðarinnar. III. Framtíðar-áætlunin: Með friðun öræfahjarðarinnar, öruggu eftirliti og nauðsynlegri fækkun tarfa'og fileira, virtist mér heldur en ekki taka að hilla und- ir hugsjónatakmark mitt. og varð ég glaðari en orð fá lýst yfir þess- um árangri starfsemi minnar á vettvangi Vesturöræfa. Tilgangur minn frá óndverðu, og síðan um 25 ára skeið, var að bjarga öræfa- hjörðinni frá bráðri glötun með áeskilegri hjarðmennsku, og leggja síðan ákveðinn stofn smölunar- hæfrar hjarðar (,,taminnar“) í hendur réttmætra eigenda, en það eru frændur mínir og landar, bænd ur Fljótsdaishéraðs. Framtíðaráætlun min var í stuttu máli þessi — og er enn: Að hausti fyrsta árs: Stofnhjörð 2000 dýr fullorðin að meðtöldum 25—30 törfurn. (Hjarðsamar telja einn duglegan tarf nægja 100 siml- um. Lappar kalla sig Sama, simla er hreinkýr!) Fyrstu 2—3 árin slátrað nær öllum kálfum (1000— 1200 að minnsta kosti). Haustkálfa- skinn eru verðmæt til margvís- legs iðnaðar, og kjötið lostæti, ekki sízt til margvíslegs dósaiðnaðar. En verðmætastur siáturpeningur teljast þrevetrir geldingar. Sláturhús, kjötiðnaður, fjöl- bneytt súíun og skinnklæðagerð {feldar og ioðúlpur, svefnpokar og fleira) sprytti upp í Egilsstaða- þorpi („Laga,rvöllum“.) áður en varði, enda eru þar óvenjugóð og TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ fjölbreytt iðnaðarskilyrði. Hefur þessu verið ítarlega lýst í fjölda blaðagreina síðan 1941, en hvorki verið sinnt af stjórnarvöldum né hjarðeigendum sjálfum, — frænd- um mínum á Fljótsdalshéraði. Frumskilyrði hjarðmennsku og framkvæmda á þessum vettvangi eru auðvitað þau, að stofnhjörð sé tamin, það er gerð smölunarhæf. Uim annað er ekki að ræða. Og síð- an í umsjá hjarðmanna. Yrði þar auðvitað að fylgja dæmi Banda- rík'jamanna í Alaska og Dana á Grænlandi og fela lappneskum hjarðmönnum starfið frá upphafi, og þeir síðan kenna landsmönnum. Þannig hafði ég ætiað að leggja „öræfa-auðinn“ í hendur réttra eig enda, frænda minna og landa á Fljótsdalshéraði. IV. Tamning öræfa-hjarðarinnar: Öllu var þessu ráðstafað ræki- lega fyrirfram, ef til kæmi. Meðal annars með samningum við Suður- Múlasýslu um hag'beit í harðinda- vetrum, eftir árstíðum og veður- fari. Myndu þá aldrei endurtaka sig hrakfalla- og hörmungasögurn- ar á Fljótsdalshéraði frá þessum vetri og einnig 1957. Árum saman hafði ég átt ræki- leg og tíð bréfaskipti við bréfavin minn Arne Pleym, Lappafógeta á Finnmörk í Noregi. (Norskur em- bættismaður með lögréttuvald í öllu því, er snertir starf og rétt- indi hjai'ð-Lappa á Finnmörku). Um áratugi höfum við rökrætt ít- anlega um íslenzku hreindýrin og horfur og framtið hreinræktar- mála íslands. Naut ég þar í fyllsta 5 J

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.