Tíminn Sunnudagsblað - 25.08.1968, Síða 18
Davíð Bjíirnssor* rak bókaverzl-
un í 20 ár Hann var seinastur í
hópi ísleMzkra bóksala vestan hafs,
og sennilega þrautseigastur, því
bókasölu rak hann öll heimsstyrj-
aldarárin stðari. Davíð er enn hress
í anda, hátt á áttræðisaldri, og ekki
lílilegur til að láta Elli kerlingu
beygja sig, fyrr en í fulla hnefana.
Hann er mesta snyrtimenni og
hirðusamar á al’ar ísleuzkar minj-
ar, hefur t.d. tek;ð Ijósmyndir af
flestum bvggingum og íbúðarhús-
um íslendinga 1 Winnipeg, búið
þær í smekklegan búning og sent
Landsbókasafni ítlands til varð-
veizlu .
Þótt ís'cndingor væru „fáir, fá-
tækir og smáir“ á fyrstu landnáms
árunum, jeið ekki á löngu, að þeir
vektu athygli og aðdáun sem frá-
bærir námsmenn — og enn er
sömu sögu að segja. Um það efni
fer Þorsteinn Þ. Þorsteinsson svo-
felldum orðum í Vestmönnum ár-
ið 1935:
„ . . . Þótt íslendingar sendu
fátt af börnum sínum fyrstu árin
á alþýðuskólana í Winnipeg, varð
snemma breyting á þessu Kom svo
að þau urðu ekki einungis hlut-
geng þar með börnum annarra
þjóða, heldur sköruðu sum þar
brátt fram úr, oe fóru pá að svara
fullum hálsi fyrir sig, þegar hin
börnin stríddu þeim á þvi, að þau
væru íslendingar. Og í æðri skól-
unum varð orðstír íslenzks náms-
fólks engu minni, en mesta frægð-
in er samt um garð gengin áður
en Jóns Bjarnasonar skóli er reist-
ur (1913) Bar um skeið meira á
ágætiseinkunnum og prófverðlaun-
•um íslenzk"-a unglinga í Winnipeg,
og einnig víð&vegar í Vesturheimi,
en nokkurra annarra þjóða, og
langt fram yfir það, sem hægt var
að ætlast tp af jafnfámennum þjóð
flokki. Og sum árin hlutu íslenzk-
ir nemendnr einir fágætustu náms-
styrki við beztu skóla í Evrópu
fyrir framúrskarandi nám og
próf . . .“
En hann verður því miður að
draga bliku á myndina, og segir:
„ . • En enn sem komið er,
hefur íslenzkum samtökum innan
þjóðar beirrar, ekki orðið eins
mikill beinn styrkur að hæfileik-
um þessavH mörgu og snjöllu lær-
dómsmanna sinna, og íslenzk rækt
hefði óskað, þótt með orðstír sín-
um hafi þeir orðið þjóðflokki sín-
um til nyikil* sóma, og séu nýtir
starfsmenn í þjóðfélagi Kanada og
Bandaríkjanna...“
„ . . Allur porri þeirra manna,
sem flutt hafa frá íslandi til Ame-
ríku, munu bera einlæga rækt í
brjósti til ættjarðar sinnar. Þeir,
sem hjartað hafa á réttum stað,
finna fullkomlega til þess, að þeir
hafa ekki nætt að vera synir hinn-
ar fornu „fjallkonu“, þótt þeir hafi
kosið sér bústað í fjarlægu landL
Þeir vita fullvel, að aðra móður
eiga þeir ekki, í þjóðernislegum
skilningi, og þeir vita, að þeir,
þrátt fyrir allt, eiga henni ótal
hluti upp að unna. Þess vegna
bera þeir sonarrækt i hjörtum sín-
um til 'hennar...“
Þessi sonarlega játning séra
Friðriks J. Bergmann, sem skráð
er fyrir áttatíu árum, er jafnsönn
í dag og á frumbýungsárum fslend
inga í Vesturheimi. Hún lýsir við-
horfi eldri kynslóðarinnar til
heimalandsins, og jafnvel þeir
yngri, sem ekki eru barnfæddir á
íslandi, og aldrei hafa landið aug-
um litið, bera svipaðar tilfinning-
ar í brjósti.
Þetta sé kveðja mín til allra
Vestur-íslendinga, sem ég komst f
snertingu við, í hinum nýju heim-
kjmnum þeírra.
Heimildir:
Almanak Ó.S.Th., Eimreiðin, Dr.
Richard Beck, „Bókmenntaiðja fs-
lendinga í Vesturheimi“, íslenzkt
prentaratai 1830—1930, Að vestan
og heiman, dr. Finnbogi Guð-
mundsson, Saga hiendinga í Vest-
urheimi, dr. Tryggvi J. Oleson,
Sameiningm, Tímarit Þjóðræknisfé
lags fslendinga, Vestmenn, Þor-
steinn Þ. Þorsteinsson. 1
*
642
T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ