Tíminn Sunnudagsblað - 18.05.1969, Blaðsíða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 18.05.1969, Blaðsíða 3
N Margar lífverur afla sér fæðu með skrítnum og kyn- legum hætti. Sætúlípanana má til dæmis taka um það. Þeir standa á höfði, Ijúka upp skeiinni og sparka inn í hana fæðuföngum sínum með fótum sínum tólf. Til er krabbategund, sem lætur sæfífla veiða handa sér i matinn. Krabbi þessi lyftir sæfífii í klóm sér, og þegar fifillinn sveiflar öngum sínum, festist í þeim sitthvað það, er krabba þykir gómsætt. jipiij Óðinshanar geta ekki kafað að neinu ráði. Þeir synda í hringi á grunnu vatni og koma róti á það. Við það berast lirfurnar af botn- inum upp i vatnsborðið, þar sem fuglarnir ná þeim. Slöngur sumar hlykkja á sér halann á þann hátt, að minnir á hreyfingar maðka. Með því ginnir indverska vatnsmokkasían til sín eðlur. Aum ingja eðlurnar ætla að grípa maðk inn. í sömu andrá glennir slangan slungna upp ginið og steypir sér yfir eðluna. Ekki þarf að spyrja að leikslokum. Eðlan fær ekki neinn maðkinn, held- ur gleypir slangan hana. í Indlandshafi er rauður marhnút- ur. Hann hefur beitu, sem líkist maðkl, á þræði ofan á höfðinu. Smáfiskar laðast að honum og ætla að glefsa f beituna. Þá étur mar inúturinn þá. Köngurlóartegund eln spinnur sér ílangt veiðibyrgi í grassverðinum og grefur sér þar undir bú. Síðan fer hún í byrgi sitt og biður þess, aí' fluga komi og setjist á það i granda leysi. Nú kemur flugan, og samstundis heggur köngurlóin, sem leynist i byrginu, vesalings fluguna til dauðs. Siðan dregur hún hana nið- ur i búið, gerir við byrgi sitt og bíður nýrrar bráðar. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 411 wagaSii^PmTT^'-■ ™ "s*1”

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.