Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Page 2

Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Page 2
BREF TIL BJARGAR Við ieggjum diáölítið fé að mörkum til þess að græða upp sanda og örfoka auðnir. Við er- um að rækta barrskóga, sem geta gefið af sér nytjavið, þegar stundir líða. Við erum að feta okkur áfram með. fiskeldi og reynum að auka laxastofninn í ánum. Allt þetta virðist þess eðlis, að sérbver maður ætti að gleðj- ast yfir slíkri viðleitni og leggja henni lið. Þar sýnist ill- kvittni og óviM varla eiga sér leikvang. Eða viljum við ekki öll gera landið okkar betra og fegurra? Svo undarlega bregður þó við, að menn, sem af heilum huga og allri orku hafa helgað sig þvilíkum verkefnum, sæta æ ofan í æ harkalegum árásum, sem jaðra við róg. Nú seinni ár- in hefur sandgrœðslan að vísu verið látin í friði, að ég held, en sú var tíðin, að einnig hún sætti miskunnarlausum and- róðri. Það er alkunna, að líklegra er til árangurs að gróðursetja barrplöntur í kjarrlendi en á bersvæði. Því veldur skjólið og þeir eiginleikar, sem jarðvegur- inn hefur fengið við lauffallið. Nú nýlega hefur það verið gert að árásarefni á skógræktar- menn, að þeir tortimi birki- kjarri vegna barrviðanna. Ég er þess sinnis, að ég tel tvímælalaust, að við eigum að leggja rækt við birkiskóga, því að ekki er völ á sumarfríðari og yndislegri skógargróðri í landi okkar. En ég get með engu móti samsinnt mönnum, sem hallmæla Skógrækt ríkis- ins fyrir þær sakir, að hún ræktar barrskóga, þar sem von er um beztan og skjótastan vöxt. Annað væri auðvitað fásinna og svipað því, ef bóndi, sem á völ á góðu landi til ræktunar, gengi fram hjá því og reyndi í þess stað að erja útskæfur, sem hæpið væri, að nokkurn tíma yrðu tún í lagi. Mér virðast þessir menn grunnfærnir. Birkiskógar eru til prýði og yndisauka, veita skjól og varna uppblæstri. Barr- skógar eru nytjaskógar í öðrum mæli, og þeir eiga að verða okkur til fjárhagslegs ávinnings seinna meir. Á þessu er að nokkru leyti .sami munur og túninu og úthaganum, sem vissulega hefur sína fegurð. Þetta virðist mér þeir, sem deila á Skógrækt ríkisins, ekki hafa gert sér ljóst. Það kann einnig að stafa af takmarkaðri þekkingu á mál- efninu, að þeir saka skógrækt- armenn um að eyða birkiskóg- um. Sannleikurinn er sem sé sá, að Skógrækt ríkisins og skógræktarfélögin hafa eðlilega umfram aila aðra aðila í land- inu stuðlað að verndun birki- skóga, og væri nú bert land, og sjálfsagt örfoka að meira eða minna leyti, þar sem falleg- ir kjarrskógar dafna, ef hennar hefði ekki notið við. Hver, sem vill, getur einnig sannfært sig um það, að skógræktarfélög og skógræktarmenn hafa með góðri liðveizlu Skógræktar rík- isins, komið upp birkilundum, sem hiklaust mun mega nefna birkiskóga 1 fyllingu tímans, víða um land, eins og til dæmis í Þingeyjarsýslu, Eyjafjarðar- sýslu og Skagafirði. Hitt finnst mér tortryggilegt, þegar þeir, sem segjast bera birkiskógana fyrir brjósti, sjá eftir þeim birkiskógum einum, sem notað- ir eru til þess að gróðursetja í barrviði, en minnast ekki á það, sem tortímt er, án þess að neitt komi í staðinn. Víða er þó birkigróður að farast á hin- urn feguretu stöðum landsins sökum átroðnings og illrar um- gengni manna, sem þangað hópast, og annars staðar eiga skógar og kjörr sýnilega mjög í vök að verjast vegna ágangs búfénaðar. Af þvi, sem ég hef nú sagt, má ljóst vera, að mér er annt um birkiskógana, þótt ég telji sjálfsögð búhyggindi, að við ræktum nytjaviði, alveg eins og við græðum sanda og ræktum vatnafiska okkur til hagsbóta. Og mér er ekki einungis annt um þær skógarleifar, sem við eiguim, heldur tel ég, að við eigum að leggja fram aukið fé og aukið starf til þess að koma upp nýjum birkiskógum. Sums staðar lifa enn birkirætur í jörðu, og þar nægir að friða landið, en sums staðar þarf að gróðursetja birkið. Þetta tel ég, að við eigum að gera til þess, að nóg verði af birkiskógi handa þeim, sem þar vilja leita sér hvíidar og unaðar á sumrin, og nóg af skjólgóðu og heppilegu landi á næstu öld handa þeim, sem starfa að ræktun barrskóga. Akureyringar hafa skákað Reykvíkingum við ræktun birkiskóga á nöktu landi. Ég ráðlegg þeim hér syðra, sem ranglega beina geiri að Skóg- rækt ríkisins, að fara að dæmi skógræktarmanna á Akureyri, festa kaup á fjallshlíð í ná- grenninu eða einhverri annarri spildu og rækta þar birkiskóg. Það yrði þeim til meiri ánægju en hnotabitið, og það glæddi skilning þeirra á skógræfct. Skógrækt ríkisins yrði þeim áreiðanlega liðsinnandi við þetta, og skógræktarfélögin myndu reynast þeim traustur bakhjarl. J. H. S18 TÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.