Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Síða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Síða 9
Gunnlaugur J. Gunnlaugsson: Laxárdaíur Ferðaðist um fjöllin víða, fram á dalbrún kom ég þá, við mér blasti byggðin fríða, blómlegt allt var til að sjá. Öllu þó ég ákaft hrósi, augað sem að fyrir ber, fljótið breiða fram að ósi, fegurst perla dalsins er. Unaðslegum eftir sveitum, ána fagrir hólmar skreyta, byggðir fugli og blómareitum, birtu og yl í lífið veita. Fagur söngur fossins prúða, flytur dal í æðra veldi, blikar sól í björtum úða, bakka vökvar gróðurfeldi. Öllu skal nú af þér svipta, unaðslegi fjallasalur, fegurð þinni og frelsi rifta, færa í kaf, þig Laxárdalur. ferðamenn o.g gestir, að orðrómur sé uppi, jafnvel haft eftir ráða miönnum orkuimiálanna, að ráðlegt væri að auika vatnsmegin Þjórsár með vötnum, sem norður fa'Ua, þeim sem tæknilega verður náð til. Og enn vakir imér í huga hið öllum grænna gróðurflæmi undir ArnarfeMi hinu mikla. Ferðamað- ur, er kominn í einurn áfanga norðan frá Kiðagili, hestarnir orðn- ir svangir, þreyttir og sárfættir eft- ir furðulegar vegalengdir Sprengi sands. Hér birtast þeim félögum æðstu óskir — hestarnir jafnvel tölta niður melölduna, stikla létti- lega yfir mýrarsundið heim að toofarústunum í Eyvindaveri. Hefurðu setið á kofaveggjum Ey vindar í tovöldsvalanum, þegar hestarnir bíta grængresið niður með lindunum? Veiztu það, að lind in, sem getið er í upphafi þessa máls, er bæjarlækur þeirra al- kunnu útlaga, Höllu og Fjalla-Ey vindar, en lindin sú býður betri drykk en nokkurn tíma var á bik ar borinn? Stargresið bylgjast i blænum, fuglarnir draga höfuð undir væng, og ungarnir safnast til mæðra sinna: Hin algera, vold- uga þögn öræfalandsins hleðs, að þér, svo þú sofnar, sitjandi uppi við blómum skrýdd veggjarbro*- út- laganna, og nýtur hvíldarinnar ríkulegar en nötokur sæng fær veitt. Eða manstu morgunstundina um árið, þegar hestarnir lágu nið- ur með lindunum — eða varstu máski í jeppanum þínum, sem þá hefur staðið austur á melnum? Sólin er að lyfta sér yfir fann- hvítar hábungur Tungnafeilsjök- uls, breðabungan mMa handan við ána — Hofsjökullinn — glitrar í litskrúði, sem engin orð fá lýst né litir túlkað, en hágnípur Keriing- arfjalla standa voldugan, eiiífan vörð lengst við norðvestur. Þá lyfta fuglarnir 9vanhvítum vængj- um sínum og teygja hálsinn langa, hefja tónana, hljómkviðuna — fegurri, máttugri en annars stað ar hefur heyrzt. Slíkan lofsöng flytja álftirnar hvern kyrrlátan morgun hér í paradís fugtanna, Þjórsárverum. Bak við melöldurnar í norðaustri er sem eilífðin þrumi yfir eyði- mörkinni miklu, Sprengisandi, og sennilega finnst þér ógnarlangt norður í dalina grænu — að minnsta kosti ef þar liggja þín heiimalönd og æskuslóðir. Við vorum lítillega búin að minn ast á Laxá í Þingeyjarsýslu. Veiztu það, að vatnið í Laxá er frjórra en nokkurt vatn annað, sem fellur til sævar á norðurslóðum? Gróð- urinn á bökkunum, hann tekur fram öllum öðrum gróðri, er fyrir finnst hér í norðurbyggðum. Eig- um við að 'hlusta um stund á nið hennar — mjúklátan, mátcugan, friðsælan nið, ólíkan þungum vatnagný annarra faltvatna. Hvar sem til hennar heyrist — upp hjá Arnarvatni, niður um Þverá og Kasthvamim, út um Brúarfossa eða norður um Nes og Knútsstaði. Það væri næsta fróðlegt að gefa sér tóm til að telja saman skáldin og rithöfundana, seim stigið hafa æstou spor sín eða háð ævistarf sitt á bötokum Laxár eða í nágrenni henn ar síðustu sjötíu til hundrað árin — allt frá Arnarvatni til Laxamýr- ar. Heyrðir þú hana Lissýju á Hall- dórsstöðum syngja? Veiztu það, að hún á unglingsárum yfirgaf ætt land sitt »g æskuslóðir við Forth- fjörðinn skozka, giftist fjárbónda norðan úr Laxárdal og var hús- freyja á Halldórsstöðum fast að sjö áratugi? Söngrödd hennar var svo fögur, svo mild og þó svo máttug, að jafnvel héluslegnir dalabændur og fjailferðamenn garnla tímans finna yl fyrir bringu, er þeir minnast söngvanna hennar Lissýjar á Halldórsstöðum. Söngur inn hennar var þrunginn himin- hárri ást til heimalandsins hand- an við höfin miklu. Vorbiær bing Framhald á 838. síðu. Hciðagæsir hefja flug tM ísfands. Verða Þjórsárver sokkin eins og AHantis eiffhvert vwriS, er þaer koma í öræfageiminn íslemka? f ÍUINN SUNNUDAGSBLAÐ 825

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.