Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 2
* A ýmsum nótum „Ég vaknaði glaður og írjáls- I Jnrlir- ari €n °£ wna r fagnandi vor- EFTA-sól inu stökk ég á dyr“, sagði Davíð Stefánsson. Það var víst í maí. Þessu líkt var það með mig hér á dögunum, og hafði hnettinum þó ekki unmizt tími til að velta norðurhvelinu nema hálfa leið inn í langdeg- ið og vorgæzkuna. En sólin, sem skein í heiði, var hreint ekki venjuleg Innnesjasól, held- ur ósvikin EFTA-sól, svo und- ur móðurleg og nærgætin í at- lotum sínum. Þessi hundrað og níutíu pund, sem ég ber utan á beinunum, voru ekki lengur nema rétt mátulegur stjóri til þess að varna því, að ég ryki upp í sjöunda himim með loft- belgjunum. Á svoma morgni eru menn fljótir í brækurnar, og engin hætta á, að þei-r lendi með báða fæturna í sömu skálm- inni, því að h-ugsunin verðnr svo skýr og hreyfingarnar hnit- miðaðar. Og ekki er nema augnabliksverk að raka sig með Gillette Super Silver-rakblaði. Þegar ég kom út, fann ég und- ir eims, að þetta var miklu notalegri góa en ég hef átt að venjast. Og ég sagði við gjafara þessarar óviðjafnaniegu góu eins og Job við Jehóva sinn: „É-g veit, að þú megnar allt og að erngu ráði þinu verður varn- að f-ram að ganga“. Það var ekkert Bella og neyðarbrauð að forstjór- leggóa af stað í 1 miorgunljómann. inn Galvaskir stik- uðu menn um göturnar með bínarðinn upp í loftið eins og hnarreistir her- foringjar í námunda við götu- sópara í Natóstöð. Fínir for- síjórar, embættismenn og iðju- höldar sátu í skrifstofum sínum með uppbrettar ermar, og höfðu verið á fótum þegar hani gól og í allri borginni var ekki ein einasta Bella, sem svo væri forfölluð eftir böllin um helgina, að hún léti undir höf- uð leggjast að koma í bankann sinn eða búðina í stuttpilsinu sínu, hvað þá að nokkrum manni fyndist lengur hóflega snemma komið í skrifstofuna, ef honum vannst ráðrúm til þess að fara úr frakkanum, áður en hann varð að snaka sér í hádegismatinm. Mér er næst að halda, að Svíþjóðarfararnir hefðu verið reiðubúnir til þess að setjast aftur að kjötkötlun- um í Huskvarna, ef ekki hefði verið sótzt eftir þeim úr öllum áttum til þess að metta nýja EFTA-markaðimn íslenzkum varningi. En hann vill hafa dúsuna sína að totta og í hama verðum við að vera dugleg að tyggja, enda er okkar þægðin og gróðinn. Það var eitt Spari- með öðru, að sjóðsbókin ég uppgötvaði 1 undir eins, að min vöruverðið hafði stórlækkað og var orðið alveg við mitt hæfi. Það voru, nota bene, tollarnir, sem höfðu verið lækkaðir. Þessi hugulsemi var ekki lengi að segja til sín. Sparisjóðsbók- in mín, númer 14789, sem alltaf hefur legið á því lúalagi að rýra verðgildi auranna, sem hún átti að geyma —-* raunar alla stund síðan Hitler heitinn gerði drengina sína út af örk- inni með nesti og nýja skó til þess að lappa upp á heiminn, — var orðin dýrmæt eins og Hrappseyj arprent á uppboði hjá Sigurði Benediktssyni. Þetta endar líklega með því, að maður fer að safna svona bók- um, sem þrútna allar á meðan maður sefur. Þetta hafa flelri fundið en ég, að peningarnir voru orðnir drjúgir, því að niðri í gjald- heimtunni í Tryggvagötu var slík ös fólks, sem vildi losna við mesta kúfimn af peninga- eigninni, að til vandræða horfði. Sumir í biðröðinni höfðu meira að segja orð á því, að það yrði að hækka skattana dálítið, ef það gæti heldur stuggað fólki frá. Væri ekki ráðlegt, að skattayfirvöldin settu þá reglu, að persónufrá- dráttur mætti aldrei fara fram úr strætisvagnakostnaði og kirkjugarðsgjaldi? Batamerkin, Urn rnink- sem fylgja hin- • _ __ um fyrstu '”n 09. EFTA-geislum, Margeir eru mörg og eindregin. í Norðanfara fininum við lausn á ævafornum vanda — sem sé hvérnig eiginkonan á að þókn- ast mannimum, kannski eilítið duttlungafullum. En þar ríður mest á að hringja ekki í hann að deginum, nema þá kviknað hafi í húsinu, sem varla kem- ur til. Borgarstjórinn í Reykja- vík hefur gert um það fram- tíðaráætlun, hivernig skal „spara atvinnu“ á yfirráða- svæði hans, því að það er auð- vitað lokamarkið, að enginn þurfi að ge,ra neitt frekar en eilífðannefndirnar, sem fást við þjóðfélagsvandamálin. Stjörnu- spár sýna, að nú eru frábær vaxtarskilyrði fyrir vindhár á minkum, sem koma mun fram hjá Pólarminki og Arktíkkminki og mikið má vera, ef ekki væri óhætt að fara aftur á flot með Pekingendurnar og glerverk- smiðjuna. Raunar ber ekki á nema einn skugga, og það er þetta með Margeir, sem þó hefur misserum saman kostað upp á auglýsingar í Morgunblaðinu í því skyni að glæða kirkjusókn í höfuðstaðnum. En vonandi man himnasmiðurinn honum hugulsemina, þegar mest ligg- ur við. 17» T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.