Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Page 3
Háhyrningurinn er ættingi hinna friðlátu höfrunga. En honum kippir ekkl í kynið. Hann er hið mesta rándýr — tigrisdýr hafsins, sem öðrum sævarbúum stendur af mikil ógn. Ekkert, sem verður á leið hans, er óhult. Norðhvaiur er miklu stærri en háhyrningur. En háhyrning- arnir skirrast ekki við að ráðast á hann, Þeir hópa sig saman, sækja að honum margir samtímis, og þegar hann opnar ginið, rífa þeir úr honum tunguna. Græðgi háhyrninganna er taumlaus. Leifar af þrettán hnísum og þrettán selum hafa fundizt í háhyrnings- maga. Fjórtándi selurinn sat fastur í koki háhyrningsins og hafði kæft hann. Mörgæslr eru frábærir sundfuglar. En jafnvel þeim er um megn að komast undan soltnum háhyrningi. Háhyrningatorfurnar elta bráð sina með fjörutíu kílómetra hraða á klukkustund. í norðurhöfum synda háhyrningarn- ir undir isinn til þeirra stöðva, þar sem selirnir hafast við. Þeir brjóta ísinn með bakinu, lyfta honum upp og hremma svo selina, þegar þeir stinga sér. Árið 1955 lokuðust 180 háhyrningar inni i vök við Grahamsiand. Þar gátu visindamenn gefíð háttum þeirra gaum í heilan mánuð samfleytt. Þeir vöndust mönnunum svo vel, að þeir hreyfðu sig ekkl, þótt þelm væri strokið um snjáldrið. Nokkru eftir 1950 voru háhyrningar í þúsundatali við Suðvesturland. Þar komust þeir upp á lag með að hirða aflann úr netum sjómannanna, auk þess sem þeir eyðilögðu veiðarfærl, er voru margra milijóna króna virði. Þá voru sendar á vettvang flugvélar, sem skutu á háhyrningavöðurnar úr vélbyssum og köstuðu jafnvel - á þá sprengjum. Það mun hafa verið í fyrsta skipti, að loftfiota var teflt gegn hvöiwm, sem sóttu í veiðarfæri sjómanna. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 171

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.