Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Side 10

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Side 10
STRENGJATÖK HÁLFRAR ALDAR Á liðinu hausti var þess minnzt með viðhöfn, að fimmtíu ár voru liðin frá útkomu Barns náttúrunn- ar, fyrstu bókar Halldórs Laxmess. Einmig var þess getið, að minnsta kosti í einu dagblaðanna, að bók Sigurðar Nordals, Fórnar ástir, var fimmtug um sömu mundir. Hins vegar taldi enginn ástæðu til að minnast opinberlega þriðju bók- arinnar, sem átti slíkit afmaeli, og er þó sess hennar í bókmenntasög- unni sízt ómerkari en hinna tvegigja. Á þessu tíðindasama ári í íslenzkum bókmenntum, 1919, beindist mesta athyglin að fyrstu Ijóðabók Davíðs Stefánssonar, Svörtum fjöðrum. En fimmtíu ár- um síðar var hún hið gleymda af- mælisbarn. Þótt menn létu hjá líða að minn- ast Svartra fjaðra á afmælinu, þarf slíkt ekki að stafa af gleymsku eða vanmati. Sá siður að halda upp á afmæli bóka hefur ekki verið iðk- aður hér, enda „í sjálfu sér ab- strakt“, eins og skáld vorf komst að orði í Háskólabíói. En ef menn( ikjósa að minnast slíkra afmæla, cg meira að segja bókar, sem nú væri gleymd, ef ekki kæmi til firaegð höfundar af öðrum bókum, — er í fyllsta mæli ómaklegt að ganga firam hjá Svörtum fjöðrum. Þegar rætt hefur verið um skáld skap Davíðs Stefánssonar í seinni tlð, er stundum vitnað til orða Steins Siteinars, að Davíð væri DAVÍÐ STEFÁNSSON — fyrsfa Ijóðabók hans, Svartar fjaðrir, kom út fyrir hálfri öld, og þar með komst nafn hans á hvers manns varir. skáld deyjandi kynslóðar og mikið vafamál, hvort aðrir gætu skilið kvæði hans og metið til fulls. Þetta má að vísu til sanns vegar færa, Davíð höfðaði framar öllu öðru til samtíðar sinnar. En mjög væri ranglátt, ef ungt fólk drægi af því- líkum ummælum þá ályktun, að Davíð hefði ekkert að bjóða, því skáldskapur hans á fortakslaust erindi við þá, sem slíku vilja sinna. Hitt er jafinvíst, að stærstur hiuti þess, sem unnið er í lisit og bók- menntum, gleymist furðu fljótt, ekki síður það, sem hrífur fastast í svip. Sárafáum auðnast að skapa verk sem lifa, og verður skerfur þeirra manua þó einatt rýr að magni. Davíð var einn hinna út- völdu. Hann kvað eitt sinn í orða- stað Jónasar Hallgrímssonar: Hitt gleður niig, ef geymist vísa ein, — fær griðastað í hjörtum íslendinga, Og oft er eins og leynist Ijúfur ylur í Ijóðinu, sem barnið man og skilur. Líklega er erfitt þeim, sem nú eru ungir, að skilja, hvert var það áhrifamagn, sem Svartar fjaðrir bjuggu yfir, og vkðist hafa átt þá gagnvegi inn í hugi fólks; sem mörg vitni votta. Þetta er síður en svo einstakt um Svartar fjaðrir, en hér sannast áþreifanlega að fæst- ar bækur, fremur en menn, eru ungar nema einu sinni. Tónn þess- ara ljóða, ásláttur þeirra og stíll, er löngu samrunnið íslenzkum ljóð arfi, þess vegna getur reynzt tor- velt að greina þá nýjung sem í þeim fólst á sinni tíð. Sjálft ljóðmál Svartra fjaðra er skáldleg opinberun, hinn sjálf- sagði einfaldleiki þeirra og heið- ríkja. Hér er það orð sem liggur hverjum manni á tungu, en ein- ungis er á færi snillinga að tendra af skáldskap: Sumir eiga sorgir og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimuim uppfyllast má. Nœshi vikur mun Gunnar Stefánsson útvarpsþulur skrifa nokkra bókmcnntaþætti tH birtingar i Sunnudags- blaBimi. Mun hann jöfnwm höndum fjalla um skáld og r ithöfunda og einstakar bækur þelrra, strauma og stefnur 4 eviöl bókmennta og ágrelnlngsefnl, sem uppi eru. Sökum starfs sins *r Gunnar nálega sem heknilisvin ur flestra fslendinga, þótt þau kynni sóu meS þekn Haettl, at hann leggur fátt tH mála frá eigin brjóstl. Hir geta þeir, sem hlueta dagtega 4 rödd hans, kynnet M nokfcuB, sr tiabum Hggur sjólfum 4 hjarta. 17S T 1 M 1 N N — BUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.