Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Side 13

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Side 13
 wy*w'(riWi'<Wl«*«WW' 8:|||l# ■••v.;.: ::v:::-:-:::;. : ■::.':. :V ;v: ' '•:: •'•:•:.••■•': íSípi;?:;:®;;;;! % ' ' -í * ■ ; HllllfMfc: SSxÖíivííí::: ■S.v'. . ...s-. . •• .. „Aldrei gleymist Austurland", segir í kvæðinu. Og FáskrúSsf jörSur er börnum sínum hugstæSur, hvert sem byigjurnar á ævisiónum hafa boriS þau. Hér situr Ágústa Sigbjörnsdóttir f stofu sinni í Ljósheimum hjá málverkinu góSa af bernsku- stöSvunum. Þetta er Vík í FáskrúSsfirSi, æskuheimiliS, og þarna er minning bundin við hvern biett: „Út um stéttar urðu þar einatt skrítnar sögur . . ." Ljósmynd: Tíminn —G£. Túliníusi, því að þá var nú enginn síminn. Svo fylltist allt af fólki heima, og það var reynt að gera öllum eitthvað gott. Skipverjarnir og nótamennirnir fóru flestir strax inn í kaupstað, nema yfirmennirn- ir á skipinu — vélstjórinn, stýri- maðurinn og skipstjórinn. Þeir voru lengur heima. Sarnt fóru nú vélstjórinn og stýrimaðurinn fljót- lega, en skipstjórinn var hjá okk- wr fram undir jól. Hanm fór einu sinni inn að Búðum, því að hamn bjóst við skipsferð. En það skip kom ekki, svo að hann komst ekki heimleiðis fyrr en seint í desembermánuði. Þessi skip stjóri hét Efregaard og var fjarska imdæll maður. Það hélzt kunn- inigsskapur með okkur og honum á eftir, því að elzti bróðir minn, 'Þorsteinn, fór haustið eftir til Stafanigurs og byrjaði þar að lesa umdir sjómannaskóla. — Hvernig stóð á strandinu? — Hann sagði, skipstijórinn, þeg ar pabbi fór að tala um það við hann, hvernig á því hefði stóðið, að hamn hefði sett svona djúpt 1 fjörðinn að hann hefði ætlað að forðast sker, sem heitir Kumlasker og er að norðanverðu í firðinum, milli Skálavikur og Kolfreyjustaðar. En þá setur hann bara allt of djúpt suður fjörðinn, og það er svo einkennilegt, að hann skyldi hitta alveg þanna á skerið, því að það er nú óskaplega mik- ið rúm norður fjörðinn frá Víkur- skeri. En hefði hann lent í sundinu á milli lands og skers, þá hefði hann lent í Hagaklöppunum, sem hefði verið emgu síður hættulegt. Ég efast um, að skipið hefði verið lengi á fioti, ef harnn hefði farið á þessari ferð beint upp á Haga- klappirnar. — Hvað varð svo um skipið? — Svo man ég eftir því, þegar skipið brotnaði. Það kom voðalega vont veður, og skipið brotnaði í spón. Sást hvorki tangur né tetur af þvi. En áður var búið að rífa alit innan úr því, sem nýtilegt var. Það var haldið uppboð, og þar kom margt fólk. Við heima keyptum margt, sem nú væri gaman að eiga, em það tapaðist allt, þegar Víkur- bærinn brann árið 1911. Mamma sagði mér seinna, að þetta hefði verið voðalega erfiður vetur, því að það hefði verið svo fjairskatega margt fólk þarna ailt fram undir hátíðir viðvikjamdi þessu — það hefði farið mikið upp af mat, og það hefði lítið verið hægt að sinna ull- arvinnunni — ekkert komizt af stað með han-a fyrr en eftir hátíð- ir. Það var lika mesta grín í kring- um þetta strand. Ég man eftir því, að það var vinnukona hjá okkur, laglegasta stúlka, sem kölluð var Sigga, og stýrimaðurinn var nú eitthvað svona að kjá framan í hama og vildi vera dálítið stima- mjúkur við hana, en þá sagði hún: „Uss, ég vil ekki sjá stýrimamn, sem stýrir upp á sker alveg við land“. Og þá hætti hann alveg að brosa til hennar, þegar hún kvaldi hann svona. Hann var einmitt við stýrið, þegar skipið rakst á skerið. En auðvitað hefur hann stýrt eft- ir skipun skipstjórans. — Var ekki mikið um Frans- menn í Fáskrúðsfirði i byrjun ald- arinnar? — Þegar þeir voru flestir, þá munu þetta hafa verið allt að átta- tíu skip, heyrði ég, að foreldrar mínir sögðu. Það var líkast skógi að sjá alla þessa siglutoppa. En þegar ég man fyrst eftir mér voru þau flest um fjörutiu. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 181

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.