Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 14
ÞannLg orti Jón ólafsson: Halaklett ég upp komst á ennpá koman þar mig gleður. Þá var bjart og bezta veður. Út um hafið allt ég sá — sá á Papey suður þá, eygði svo í einum svip fjörutíu franskar duggur og fimmtán róðrarskip. Pabbi var góður vinur franSks skipstjóra, sem hét France Bom- Iaire, og þegar von var á honum á vorin, fór pabbi alltaf með kíki upp á klettana fyrir ofan bæinn heima. Hann þekkti skútuna hans, þegar hún kom. Hann var frá Dunkerque, eins og þeir voru margir, þessir frönsku fiskimenn. Þeir klöppuðu hvor öðrum, hann og pabbi, og kysstust á báðar kinn- ar, þegar þeir hittust. Faðir Bom- laires hafði einnig verið skipstjóri, og afi minn þekkt hann, þannig að pabbi og Bomlaire þekktust frá því þeir voru strákar. Marg- ir frönsku skipstjóranna tóku syni sína með sér á sjóinn strax og þeir voru orðnir tólf eða þrett- án ára. Sögðu, að það væri svo ©rfitt fyrir mæður þeirra að ráða við þá„ þegar feðurnir væru á ís- landsmiðum. Einu sinni fór pabbi méð honum suður í LónSbug. Bom- laire sagði, að hann væri alltaf hræddur við suðurströndina, því að þar væru svo miklar grynning- ar — hann þyrði ekki að fara ná- lægt ströndinni. Svo að úr varð, að pabbi fór með honum einn túr. En mömmu var nú ekkert vel við það. Það gekk samt allt vel. — Hvenær ársins komu þeir hingað? — Þeir komu oftast í miðjum marz og höfðu bækistöðvar sínar í Fáskrúðsfirði. Þá kom alltaf franskt herskip, stórt og m.tkið skip, og spítalaskip inn á fjörðinn. Pabbi sagði mór það einu sinni, að veturinn 1882 hefði hann selt Frökkum á herskipinu hvítabjarn- arskinn á fimmtíu krónur. Það var einn morgun, að fólkið á Höfða- húsum, þar sem afi minn bjó, vakn aði við hundgá, og þegar að var gætt, hverju þetta sætti, kom í ljós, að ísbirnir höfðu gengið á land — það var allt samfrosta vet- urinn 1882. Þeir höfðu brotizt inn í hjallinn og voru farnir að gæða sér á hákarli. Pabhi fór á næsta bæ til þess a3 fá lánaða byssu — gamlan afturhlaðning. fsbirnirnir Efregaard skipstjórl, kona hans og dóttir. 182 voru síðan eltir — þelr voru tveir. annar var skotinn í f jörunni, en hinn forðaði sér út á ísinn. Þeir eltu hann, en töldu ekki ráðlegt að fara lengra á eftir honum en út á móits við Skrúð. — Áttu íslendiugar ekki mi'kíl skipti við Frakkana? — Jú, við fengum alltaf brauð og kornvöru hjá þeim og létum í staðinn ullarvöru: prjónles og vett linga og peysur. Svo fengu íslend- ingar hjá þeim flatningsbnífa, línu og sökkur, sem allt kom sér vel. Þeim þótti líka gott að fá nýtt kjöt — en föluðu aldrei raii'ð- hærða stráka eins og sagt var í þjóðsögunum. Einu sinni kom á- höfn Bomlaires heim með tvo poka af kexi, og vildi skipta. Þar sem búið var að láta allt okkar prjón- les áðnr, vildi mamma losna við þá, en þeir létu sig ekki, og þá fór mamma að tína saman peysur og sokka af heimilisfólkinu. >á urðu þeir ánægðir. — En hvernig var það, var ekki stirt um samræður við Frakkana? — Margir töluðu við þá á ein- hverri mállýzku. En Georg Georgs- son læ'knir -sagði, að bræðurriir Jón og Ólafur Finnbogasynir og pabbi hefðu talað ótrúlega góða frönsk-u, þó að ómenntaðir væru. — Þarna voru fleiri en Frakk- ar? — Já, mikil ósköp. Þarna voru einnig Norðmenn, Þjóðverjar og imikið af Færeyingum. Fyrir tutt- iugu árum var ég á leið heim til íslands m-eð Drottningunni frá Kaupman-nahöfn, og auðvitað var komið við í Þórshöfn. Þar vantaði mig nýja mjólk, svo að ég fór upp á bryggju. Þar -á ég hóp af Fær- eyingum, gekk til þeirra og spurði, hvort ekki væri hægt að fá mjólk einhvers staðar. Nei, sö-gðu þei-r — það var allt lokað. Svo spurðu þeir mig, hvort ég væri Dani. Nei, ég sagðist vera íslendingur. Þá kom til mín -gamall maður og spurði mi-g, hvaðan ég væri af ís- landi. Éig sagðist vera af Austfjörð- um. Og hvaðan? Fáskrúðsfirði, sagði ég. Og frá hvaða bæ? Vík. „Nú, ertu þá dóttir hans Sig- björns í Vík“? „Já“, sag-ði ég. „Komdu“, sagði gamli maðúrinn, „ég skal útvega þér mjólk“. Svo fór ég með homum og fékk mjðik- ina. Hann hafði þá verið á.íslands- miðum á yngri árum og dvalizt í Fásíkrúðsfirði og þekkt pa-bba vel. JWár. T 1 H I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.