Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Blaðsíða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Blaðsíða 3
Skarfurimi er alkunnur íslenzkur sjófugl og gnæfir stund- um hátf af skeri, þegar siglt er um Breiðafjörð. Við höfum þó aldrei tamið skarfa til fiskveiða eins og sumar aðrar þjóð- ir. Japanir hafa í þúsundir ára notað skarfa til fiskveiða. Við vesturströnd Noregs er margt um skarfa, og þegar leið liggur framhjá skerjum og klettum er tignarleg sjón að sjá hópa skarfa stinga sér, þegar hættuna ber að. Þeir fljúga í sjónum eins og svartar örvar og stinga sér gjarnan undir bátinn. Skarfurinn getur verið heila mín- útu í kafi. Enginn veit með vlssu, hve lengi Jap- anir hafa tamið skarfa til fiskveiða. Þelr klippa flugfjaðrir fuglanna, svo að þeir getl ekki floglð brott, og stundum eru þeir hafðir f bandi. Þegar dimmir koma margir fiskar, sem halda slg djúpt I vatni á daginn, upp á yfirborðið. Japanir veiða þá með skörfum sínum i skini viðarelds. Japanir bregða bandi um háls skarfs- ins til þess að hann geti ekki rennt veiðinni niður, heldur færi hana hús- bónda sínum. Þannig kemur skarfur- inn aftur til bátsins með fiskinn hálfan í gini. Skarfurinn ver ekki fjaðrir sínar vætu með fitu eins og andfuglar, Þess vegna verður hann að þurrka vængi sína og fiður eftir köfun, og þess vegna má oft sjá hann sveifla rængjum, þar sem hann situr hæst á skerl, kletti eða staur. Skarfurinn hvarf alveg úr Eystra- salti skömmu eftir síðustu aldamót, en nú hefur hann numið sjó að nýju við sænskar strendur, og vitað er um hundrað skarfa samfélag á kletta- ey í Kalmarsundi. Hér er þo ekkl um stærsta ættbálk skarfa að ræða. Á klettaey skarfanna I Kalmarsundi hefur allur trjágróður visnað og dáið, og stórar karfadyngjur eru ( kverk- um dauðra trjáa. Trén þoldu ekkl skarfadritið. Talið er, að tré þoli illa áburð eða saur fugla, sem éta flsk einvörðungu. T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 627

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.