Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Blaðsíða 9
þótt honum væri ekki leikur í hug, þreyttur og í þungu skapi. Hann |ettist á grasigrói'ð barð og fann, íiim leið og hann var setztur, hve igott var að sitja. Þá var tekið í öxl honum og spurt: „Viltu koma í hryggspennu? Við höfum aldrei reynt með okk- tir“. Geir í Nesi var sá, sem spurði. Leifur horfði á fætur Geirs. Hann var í nýjum gúmmístígvél- um. Sjálfur var hann í skældum skinnskóm og réttarskíturinn upp á mið læri. Gúmmísiígvél vovu kjörgripir þeirra ára. Leifur var ekki vígreifur og liikaði við Þrr Geir höfðu aldrei tekizt á, enda hálf sveitin á milli heimila þeirra og kynni fremur lítil. Geir svndist knálegur piltur og var víst vanur tuski. En þeir voru jafnaldrar og álíka stórir, svo að Leifur þóttist varla geta mælzt undan einni bröndóttri. Þeir tóku hryggspennutök, og Geir hóf snerpulega sókn. Stæltir armar hans lögðust fast að síðum Leifs, svo að honum þyngdist um andardrátt, og mátti hann í fyrstu lotu hafa sig allan við að kikna ekki undan átökum Geirs. Leifur þóttist vita, að hann yrði brátt brot- inn á bak aftur, en þráaðist við, tók á því, sem hann átti til, ráð- inn í að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Honum hitnaði í hamsi við þá hugsun að lúta í lægra haldi, liggja fyrir jafnaldra sínum. Ekki skorti áhorfendur að fangi drengjanna. Kunningjar og félagar hvöttu þá óspart. Þeir tóku að mæðast, ofsinn í sókn Geirs dvín- aði heldur, jafntefli sýndist lík- legt. „Jæja, karlinn, hvar er nú allt heljaraflið?“ Þessi orð voru sögð þýðum rómi. Þar var komin Þóra, systir Geirs, ásamt öðrum stelpum. Þóra var ári yngri en Geir, falleg stúlka og mannvænleg. Hún horfði á glímu- kappana blikandi augum og í þeim vottaði fyrir kvíða. Ef til vill hélt hún, að piltarnir kynnu að reiðast. „Skyldi hún, — skyldu þau öll hafa heyrt það, sem Baldi sagði?“ hugsaði Leifur. Geir jókst ekki þróttur við orð systur sinnar, en Leifi hljóp nokk- urt kapp í kinn. Hann beit á jaxl- inn og neytti allrar orku, og næst- um á sarnfi stundu fann hann tök Geirs linast, þar til hann var næst- um máttlaus í fangi hans. Leifur þurfti ekki annað en beygja sig lítið eitt áfram og fleygja Geir á grundina. Hann sá fyrir sér við- urkenningu, jafnvel aðdáun, í svip þeirra, sem á liorfðu, nema ef til vill í bláum augum Þóru. — En þá kom honum annað í hug. Hann sleppti tökunum, steig eitt skref aftur á bak, rétti Geir hönd- ina og sagði „Við Geir erum vist jafnir“. Finnbogi og Leifur ráku féð frá bæjum sínum heim á leið út hlíðina í mildu rökkri, rökkri síð- sumars, sem á sér töfra umfram önnur rökkur. Hálfgagnsætt líkt og það hafi sigið saman úr björtum nóttum sumarsins er það yljað af sóldögum og ilmar af síð- sprottnum blómum. í skuggum þess leynist þó líka hrollur þess vetrar, sem að fer. Þreyta lang- degis sekkur mjúklega í fang þessa rökkurs í leit að langri, hvíl- andi nótt. Þeim liöfðu verið sendir hestar, svo að Leifur sat á Grana, gæð-, ingi, sem faðir hans hafði átt. Féð rakst vel, vissí, hvert halda skyldi, Og nú var Tryggur betri en eng- inn. Hann skaut upp kollinum, þegar þeir voru komnir spölkorrí frá réttinni, liafði hrakizt frá hundaþvögunni eitthvað út í mó en beðið þar eftir húsbónda sínum. T f M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 633

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.