Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Side 10

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Side 10
Margur smalahundurinn ieggur sig fram sem mest hann má og veitir ómetanlega hjálp. Nú þurfti ekki að hvetja Trygg eða segja honum fyrir verkum. Dræg ist kind aftur úr eða tæki sig út ,ór rdcstrinum, var Tryggur þar j&tminn, úrrandi grimmdarlega og gíefsandi. Svo kom hann að göt- unní og leit upp til Leifs, sperrtur með hringaða rófu eins og hann vildi segja: „Ekki reka þeir betur en ég, þessir bannsettir áfloga- •'hundár, sem allt ætla að drepa, rífa og tæta. Það verður eftir af þeim. Fá aldrei vitglóru á við hvolp, en láta eins og úlfar. Svei þeim“. Tryggur snippaði fyrirlit- lega og lyfti fæti utan í þúfu. Týra var liðlétt við reksturinn, en þeim mun stimamýkri við Trygg. Hún vingsaði gljáandi skrokknum og dillaði róf- unni, hverju sinni er fund- , um þeirra bar saman, og vildi sleikja blóðug eyru hans eins og hún vildi segja, að hann mætti ekki vera fúll við sig, ekki gæti hún að því gert, þó að þessir ! ribbaldar létu eins og óðir væru. I Leifur horfði á breitt bak Finn- boga fyrir framan sig. Honum sýndist hann vei ' of stór pg þung- ur fyrir Brún, sem þó var mikill hestur. Það var gott að eiga þennan stóra mann að vini. Þægi- leg þreytutilfinning seytlaði um | taugar Leifs og svefn sótti á, en hann reyndi eftir megni að halda ser vakandi, reyndi að hafa augun á rékstrinum, fylgjast með ferðum Trjggs, horfa á svartan lambhrút, sem þvældist fyrir fótum Brúns. Reksturinn var þögull, nema hvað eitt og eitt lamb jarmaði En jármur réttarinnar söng enn í eyr- um Leifs líkt og þungur niður. Hann vafði löngum faxhárum Grana þétt um vinstri hönd sína, þótti það vissara, ef hann dottaði. . Myndir voru á hvörfum í huga hans, birtust og hurfu: andlit | Þóru, rjótt og hvítt, bláu augun, ! ljósa hárið: andlit móður hans, stór brún augu, dimm af sorg, síð- an faðir hans dó, í sjö vikur, sjö vikur í gær. Svo’sá hann gröfina, dökka mold í grænum gárði. Hann hafði alltaf iimdlð’sting'í^brjósti, ! þegar hánn^sa’. gröfina á í'ak við , kirkjuna, en^nú fann hann engan sting. Það jar’ gott. Hann vafði j faxhárin fástar um höndina, Hon- um ieið vel. Hol rödd Balda góms hófst upp úr jarminum, en hann heyrði ekki orðaskil, og honum var sama. Hann var ekki maður enn þá. Hann ætlaði að reyna að verða maður, helzt eins og faðir hans, sterkur og glaður, ráða fram úr hverjum vanda eins og það væri ekki vandi. Hann ætlaði að hætta að vera sorgbitinn, ætlaði að vera glaður og hughreysta móður sína. Þá sá han föður sinn, og hann brosti til hans kyrru, glettnu brosi, sem hann mundi svo vel. Síðast sá hann ljóst yfirskeggið, um leið og myndin dofnaði og hvarf. Leifur var allt í einu glaðvak- andi, en hann lokaði augunum til að reyna að halda í mynd föður síns. Hún kom ekki aftur. Hann rétti úr sér í hnakknum og fyllti lungun af mildu kvöldlofti, fann lífsþrótt seytla um æðar sínar, vissi, að þessi langi dagur hafði verið góður. Hann reið fram með hliðinni á Brún og sá, að Finnbogi reiddi svarta lambhrútinn. Hann hlaut að hafa gleymt sér góða stund, því að hann hafði ekki orðið þess var, að Finnbogi kippti lambinu upp á hnakknefið. „Hann hefur gefizt upp, sá svarti,“ sagði hann. „Já, hann var orðinn slæptur, greyið“, svaraði Finnbogi. „Ég held hann sé undan henni Grá- kollu — ykkar. Hún er vön að halda sig lengst norður í f jöllum. Þeir voru komnir á Bæjarleitið og sáu heim að 'Hólum. Þar var ljós í glugga. „Við höfum féð á Hólatúninu í nótt eins og vant er,“ sagði Leifur. Finnbogi leit við honum og svar- aði eftir andartaks hik: „Já, það verður fegið að grípa þarniður, áður en það leggst“. Leifur þóttist heyra nýjan hreim í rödd Finnboga, þann sama og þegar hann áður talaði við föður hans. A34 T í M I N N — S UNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.