Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Qupperneq 19

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Qupperneq 19
lygndi með morgunsárinu. Sigur- finnur sagði að veðrið myndi verða sæmilegt. Ég vaknaði hress og ánægður, glaður yfir því að þeir gætu róið og sagði við Sig- urjón að við skyldum klæða okkur og fara austur á Skans og sjá, þegar bátarnir færu út Leiðina. Svona gersamlega var mér úr minni liðið hugarstríðið, sem ég átti í kvöldið áður. Bátarnir streyma út, hver af öðrum, og nú kemur Njállinn. En þegar hann kemur út á Klettsvík- ina, stöðvast hann. Brátt kem- ur Haffrúin, hún hægir hjá Njáln- um, þeir talast við, Haffrúin tekur sveig og allt er tilbúið á Njálnum, Magnús er tilbúinn með kastlín- una, Haffrúin kemur upp að, þá fer Njállinn aðeins í gang, en ekki nema andartak, en nóg til þess, að Magnús hættir við að kasta lín- unni og Haffrúin rennir framhjá og beint inn á Botn. Formaðurinn á Haffrúnni varð þá var vélarbil- uar hjá sér og treystist ekki að gera aðra tilraun. Nú hefur golan slegið Njálnum flötum, þannig að framstefnið vissi beint upp í Urð- irnar. Enn hygg ég, að engum sem á horfði, hafi dottið í hug, að þarna yrði slys. En nú gera þeir á Njálnum það, sem ekki mátti gera. Þeir hala upp flokk- úna, en fyrst hefði þurft að setja út alíkeri aftur af bátnum til þess að fá hann í rétt horf inn Leiðina. Báturinn sker nú áfram upp í vind- inn, lætur ekki að stjórn, er kom- inn að svokölluðu Hringskeri. Þeir taka niður fokkuna, en of seint. Forlögin eru ráðin. Nú fær ekkert bjargað. Og þó. Báturinn fór í róð- ur með línu og því fullt af lcða- belgjum og baujum á dekkinu, með margföldu flotafli hania þeim. Ekkert var hreyft við þessu. Báturinn heldur áfram að síga upp að skerinu, þar til brotið tek- ur hann og kastar honum upp á skerið. Andartak vóg hann þar salt, svo* að ég var farinn að vona að hann hrykki inn af, því að þar var lygna og því hægt að bjarga, en það varð nú ekki. Hann féll út af 1 miskunnarlaust brimlöðrið. Að þessum sorgarleik loknum man ég lofes eftir því, sem kom i huga niinn kvöldið áður, með ekki minni þunga en þá. Hví þurfti þetta að fara svona? Hvers vegna gat ég ekki munað eftir þessu um morguninn, þegar Sigurfinnur kom að kalla og svo ekki fyrr en allt er um garð gengið? Þetta var allt svo ömurlegt. Meðan við stön ’ im þarna enn að horfa á þetta dapurlega sjónarspil brotn- ar stór fleki úr byrðingi bátsins. Hann íckur strax fyrir aðfallinu og n'’?'ankaldanum, sem leið ligg- ur inn Víkina og Leiðina og inn í Bo n. Því held ég, að ef fokkan hefði aldrei verið höluð upp, að ekk'. væri útilokað, að bátinn hefði luca rekið heilu og höldni? inn á E tn. En við skulum ekki vera að vdta þessu frekar fyrir okkur. Við getum séð ýmislegt eftir á, en finn- u'q oftast jafn/ramt, hvað við ork- um ákaflega litlu. Rétt áður en flekinn losnaði, kom loksins bátur, sem var að fara í róður. Hann sér hvað orðið er, kemur þegar á slysstaðinn, rennir nær því upp að skerinu og nær þegar í einn mann á floti, Magnús Runólfsson og héidur þeg- ar með hann í land, þar sem reynt var að lífga hann, en án árangurs. Þarna var maður, sem sýnilega kunni að halda um stýri. Það var Sigurjón Sigurðsson frá Brekku- húsi í Vestmannaeyjum, og bátur- inn, sem hann var á, minnir mig að væri Atlantis. Við verðum svo oft að st ida Ffimhald á bls. í>46. TÍHINN — SUNNUDAGSBLAÐ 643

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.