Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Síða 20
Enn er víða myndarlegur hornabúskapur hjá börnum í sveit, eins og þessl mynd sýnlr. — En flelrl léku sér að hornum en
börn. Bóndi nokkur í uppsveitum Árnessýslu átti fallega sauði á áratugunum eftir aldamótin, og hann safnaði jafnan horn-
um þeirra, er hann felldi þá. Sagt er, að hann hafi átt nokkur hundruð sauðahorna, þegar sauðaeign tókst af í landinu um
1940. Hann hafði það sér til yndis á efri árum að handleika sauðahornln og minntist þá sauðslns, er hornin hafðl borið. — Sum-
Ir bændur voru svo glöggir, að þeir þekktu hverja kind sína áhornunum og gátu dregið féð sundur I myrkrl.
Laxá í
ÁLn mín sem augans tár þú
streymir
um okkar dal frá fjallsins
helgu ró.
Þig fögur sveit i faðmi sínum
geymir
unz fellur himinblá í grænan
sjó.
Við fæddumst inn { fossa þinna
sönginn
og flúðir þínar sáum langan veg.
Við vissum hversu veiðisæl var
stöngin
og varptíðin við hólmann
dásamleg.
Gefist oss lán þinn glæsileik að
verja
og gýgju þinnar hljóma una við.
Frá innsta dal til yztu strandar-
skerja
var einhver himne.sk dýrð í
nánd við þig.
H. J.
Þessi rádýrskálfur fæddist í
Svíþjóð fyrir allmörgum vikum.
Þá var kuldarigning eins og
stundum er um sauðburðinn á
íslandi. Kálfurinn var að því
kominn að krókna.
Konan hér á myndinni fylgd
ist með honum í sjónauka. Hún
sá, að hann var hættur að geta
hrölt á fætur. Þá tók hún til
sinna ráða Kálfurinn var að
'dauða kominn, er hún koni á
vettvang. En hún hafði verið á
námskeiði, þar sem kennd var
lífgun úr dauðadái, og nú beitti
hún kunnáttu sinni. Hún blés
í bókstaflegri merkingu lífs-
anda í rádýrskálfinn. Og nú er
hann heimalningur hjá henni og
drekkur mjólk úr pela, rétt eins
og tíðkast um undanvillinga
hérlendis.
644
T 1 Jtt 1 N N
SUNNUDAGSBLAÐ