Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1971, Side 3

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1971, Side 3
Storkurinn stendur höllum fæti í viðsjálll veröld. Sums staðar er hann með öllu horfinn. Hann er fátíður orðinn í Danmörku. og I Svíþjóð verpti síðasta parið á skánskum bóndabæ árið 1954. Storkurlnn er fugl, sem víða er sárt saknað. Um gervalla Vestur-Evrópu hefur storkum hríðfækkað síð- ustu hundrað árin. Margt getur valdið: Breyting á veður. fari, stórfelld uppþurrkun lands, aukin notkun skotvopna í vetrarheimkynnum storkanna, símalínur og rafmagnsiínur og sjálfsagt fleira. í Suður-Evrópu gerlr storkurinn sér hreiður i trjám, en í Norður-Evrópu oftast I símastólpum og ofan á reyk- háfum. Hreiður storka geta verið nær þrír metrar á hæð og veglð eina smálest, þótt minnl séu að jafn. aðl. Húsbóndinn á storkaheimilinu er karl I krapinu og ver hreiður sitt af mikilli hörku. En heima fyrir eru hjónin hvort öðru næsta ástúðleg. Þau heilsast með hneigingum og láta skella vinalega í neflnu á sér. Á mikium vætusumrum er ekkl fá- títt, að ungar storka I Vestur-Evrópu fái lungnabólgu. Þá er þeim dauðinn vís. Fæðu afla storkar sér I mýrlendl, og þess vegna hefur uppþurrkun lands verið tllræði við þá. Langt nefið er hið mesta þarfaþing. Með þvf veitist fuglinum auðvelt að grípa froska, eðlur og skorkvikindi, og á grynningunum veiða storkar Flsk og krabba. Storkur getur gleypt 48 froska I elnni lotu. Ekki verður storkum skotaskuld úr því að vinna á höggormi. Þeir gleypa síðan höggormana og eru fljótir að melta þá. í Þýzkalandi eru storkar drýgstir við að eyða krabba einum, er þar telst meindýr. Ungarnir eru mjög hraðvaxta. Storka hjón bera daglega heim sex til átta pund af mat, og er það býsna margt og sundurleitt, sem í búið er lagt. Af þessu þrífast ungarnir vel sem dæmin ótvirætt sanna. T f M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 67

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.