Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Síða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Síða 19
Það mun ekiki svo fátítt, að trega og söknuð setji að mönn- um, er þeir taka að reskjast, og minningarnar um vordaga lífs- ins og unað heimastöðvanna gerast áleitnar. Jón Jóhannes- son úr Skáleyjum orti, er hon- um varð hugsað til Breiðafjarð- areyja: Glóir bjart sem glitri tár gullið mangt í hljóði: fjaðrir svartar flogin ár felldu hjartans sjóði. Sjálfslýsingar skálda geta ver ið af ýmsu tagi, og sumar kími- legar. Sigurður Jónsson frá Brún lýsti sjálfum sér á þenn- an hátt: Sumir hafa bakfisk bæði og bein í nefi. En ég er eins og of langt kvæði, ort í kvefi. Annar Húnvetningur, Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum, komst svo að orði, er hann lagði mat á sjálfan sig á efri árum: Frá armaveldi ungmeyjar er ég hrelldur fældur. Nú er eldur æskunnar orðinn heldur kældur. En lengi lifir í gömlum glóð- um, svona undir niðri. Þess vegna getur ýmislegt hreyft sér, þegar svo slæst, þótt lítið kunni á því að bera á ytra borði. Ung stúlka í rakarastofu var að skera hár Jóns Bjarnasonar í Garðsvík á Svalbarðsströnd, og kunni hann því allvel eins og ráða má af þessari vísu: Luktur faðmi fram sinn veg fann ég skærin klifa. Bak við hnakkann heyrði ég hjartans klukku tifa. Það var líka Jón í Garðsvík, sem kvað, þegar ævisaga Krist- manns Guðmundssonar kom út: Kristmann birtir landsins lýð lífsbækurnar sínar. Þessi feikna fengitíð fær á taugar mínar. Maður er nefndur Refur 1 -ndi, og heitir þó raunar Bragi nsson, þegar hann er ekki í s ; !egum tygjum við ljóðadís- ina. Honum varð að orði, er 1 >nn kom þar á dansleik, er ; ' lffjalirnar voru ekki sparað- Dátt er stiginn dansinn hér, drósum sveinar klappa. Margir áfram mjaka sér milli gæsalappa, Taikob Thorarensen mun ekki ti' akanlegur aðdáandi skringi- bi a ;ða þeirra, sem ekki er ótítt, horfði fast í andlit mér: „í sam- bandi við atburð þann, sem ég hef nú sagt þér frá, hefur mér oft dottið í hug þetta fornkveðna, „að guð borgi fyrir hrafninn“, og hvort ekki séu tvær hliðar á þeim orð- um. Ef guð launar þeim, sem gera vel til hrafnsins, mun hann þá ekki etnnig refsa þeim, sem gera hrafninum illt? Ég veit þetta ekki, og þó að þetta sé sjálfsagt ókristi lega hugsáð af mér, finnst mér þ:tta ekki ólMegt. Ðáðir dóu m >:"i þessir fyrir aldur fram. Sá þc i i, sem fastast sótti verkið og vai' !>ar með höfuðhvatamaðurinn að d ápi ósjálfbjarga unga, og þ:5 í gráum leik, en ekki af J -fnd, verður að lifa um langan tíma ósjálfbjarga, þar til dauðinn miskunnar sig yfir hann. Er ékki einhvers staðar skráð: auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“. Hér lauk Jón máli sínu. Viö að sumir 'grípi til, þegar þeir hyggjast hressa ttpp rit- mennsku sína og skáldskap. E’nn tók upp á því að nota alls ekki bókstafi þá, sem sköguðu upp úr eða niður úr línu, og fór þá nokkuð að sneyðast um leyfilegt rittákn. Þetta kallaðist stuttstafaháttúr, og um hann kastaði Jakob Thorarensen fram þessari vísu: Betur, lagsm, þú lúta mátt listarkröfum brýnum: depil hafa engan átt yfir stöfum þínum. Hér á árunum skar Níels Dungal prófessor upp herör gegn kirkjunni og kenningum hennar og þótti nokkuð harð- skeyttur. Ýmsir urðu til þess að malda í móinn, og var margt um þessar yppingar rætt. Féll þá sitthvað í stuðla hjá mönn- um eins og gengur, þótt ekki muni það allt hafa verið af hag leik samið. Öðru máli gegnir um þessa vísu Heiðreks Guð- mundssonar frá Sandi, er víða barst á þeim misserum: Dungal er með harðan haus. honum ber við steininn kalda, segist vera sálarlaus. Sama er mér — og nær aá halda. Gnúpur. í síðasta þætti hafa mistök orðið. í vísu Sigurðar Helgason ar, Þótt ég fari margs á mis, er fiiðarögn, ekki friðarstund, hið rétta. í visu Hallgríms Jónasson ar um myndina framan á tíma ritinu Vöku á að standa. „Jón á Akri er ímynd Krists á krossi“ ekki Jón Pálmason. tókum hesta okkar og héldum heim á leið. Mér fannst saga Jóns heldur raunaleg. Meðan hann sagði hana, báru augu hans og allur svipur vitni þess, að þetta var engin skröksaga. Ekki bað Jón mig fyrir söguna, en mér fannst samt ekki rétt að egja hana né skrifa, meðan hann væri ofar foldu. Nú er þessi sér 'æði TOur minn genginn veg c !rar veraldar fyrir alllöngu. IflMINN — SUNNUDAGSBLAÐ 787

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.