Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Side 21

Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Side 21
Tilraunastjórinn sænski, dr. Gunnar Larsson, me3 nýtt afbrigði berja, orSi® til við kynblöndun akurbers og Alaska-hindbers. Jurtakynbætur - ein af lífsvonum mannkyns JurtaríkiS hefur frá örófi alda verið undirstaða alls annars lífs á jörðinni. Þaðan kémur allt :það, sem aðrar lífverur nærast á, beint eða óbeint. En mennirnir eru fyrir löngu orðnir svo þungir á fóðrun- um, að þeir hefðu ekki getað séð sér farborða, ef þeir hefðu ekki hjálpað jurtunum til þess að gera betur en þeim var í öndverðu fyrir búið úti í náttúrunni — ræktað þær og kynbætt og kallað fram ný afbrigði, sem drukku meiri frjó- efni úr jarðvegi og lofti eða nýttu það betur, er þær náðu, og skiluðu meiri uppskeru. Allar korntegundir, allt græn- meti og öll ávaxtatré eiga ætt að rekja til gróðurs, sem gaf í önd- verðu miklu minni og lakari upp skeru. En mönnum hefur smám saman tekizt að auka og bæta upp skeruna, og þó aldrei jafnört á jafnskömmum tíma og hina síðustu áratúgi. Því fer þó víðs fjarri, að séð sé fyrir endann á því, hve langt má komast á þessari braut, og ein- mitt þessi síðustu ár hafa verið tek in upp vinnubrögð við jurtakynbæt ur, er kunna að valda gagngerðri byltingu á því sviði, þegar stundir líða fram. Það er til dæmis vel hugsandi, að takast megi að búa til korntegundir sem afla sér sjálf ar áburðar úr loftinu að meira eða minna leyti, og rækta ný afbrigði nytjajurta, sem sveppir og önnur sníkjudýr vinna ekki á, svo að hin háskalega notkun eiturefna, er öll um stiendur nú stuggur af, verði þarflaus. Á sama hátt er ekkert lík legra en fram á.sjónarsviðið verði seidd ný afbrigði,. sem þola frost til einhverra muna og ná að þrosk ast í kaldara og áfallasamara lofts fagi en nú er.. Það eru ekki síður þau lönd, þar sem loftslag er í kaldasta lagi, er geta vænzt sér mikillar búbótar af starfi jurtakyn bótamanna. Meðal þess, sem þegar hefur á- unnizt, en þó ekki nema þá að mjög litlu leyti farið að koma að notum í almennum landbúnaði, má nefna: ★ Hveiti og maístegundir, sem skila bæði kjarna og næringarrí'kum stöngli, sem er miklu betra fóður en venjulegur hálmur. ★ Kynblending hveitis og húsapunts, sem gefur upp- skeru þrjú til fjögur ár sam fleytt, án sáningar, og verst sveppum þar að auki. ★ Kartöflutegundir, sem þola verulegt frost, verjast myglu og kláða og fleiri ó- þrifum. ★ Rauðsmára með svo grunnar blómpípur, að hun- ángsflugur geta frjóvgað hann. ★ Baunir og ertur með belgi, sem þroskast allir sam tímis, svo auðvelt er að nota vélar til þess að hirða upp- skeruna. ★ Baðmull með gula og rauða fræloðnu, svo að minna þarf til að kosta við litun. ★ Kynblending sólfylgju og jarðskokka með næringarrík blöð og rótarávexti. Þar að auki er matarolía í fræinu og stönglarnir vel fallnir til þess að fergja þá í plötur. ★ Dvergtegundir af maís og sólfylgju, er þurfa litla vætu og þrífast í vindasöm um lQndum. ★ Tvíkynja hamp með tvö- falt eða jafnþrefalt meira magn bastþráða en aðrar hamptegundir. Það kostar mikla elju, flókna tilraunastarfsemi og mikið fé að koma slíku til leiðar. En þetta er starf, sem mikinn ávöxt gefur, þegar sigur er unninn. Kanada og Banðaríkin vörðu til dæmis um fjórum milljörðum króna til þess að rækta hveitiafbrigði, sem stóð ust ásókn skaðlegra sveppa. Þá fjárhæð fá þeir-tuttugfalda til baka árlega í aukinni uppskeru. Ein ný hveititegund í Sovétríkj- unum, Besotaja 7, hefur aukið svo uppskeruna. að gróðinn nægir til þess að greiða allan kostnað við 689 stórar rannsóknarstofnanir, tilraunastöðvar og efnastofur, sem þjóna sovézkri jarðrækt. í Norrlandi í Svíþjóð á að verja um tuttugu milljónum króna næstu fimm ár til þess eingöngu að kynbæta og gera tilraunir með ræktun berjarunna og berja plantna: Akurber, sólber, hind- ber, rauðber og jarðarber. Land búnaðarháskoli stjórnar tilraun- unum. Þegar hefur fengizt kyn blendingur akurberja og Alaska- hindberja, mjög bragðgóður. Villt rauðber hafa þegar verið ræktuð í sjö ár í tilraunaskyni á sex hekt- örum lands suður á Smálandi, og hafa fengizt um fimm smálest ir af hektara að meðtaltali. Með úrvali og kynbótum gera Svíar vonir um að gera villiber sín að verðmætum íæktunarjurtum. Þannig glima jurtakynbótamenn nú um allar jarðir við óteljandi verkefni, miklu fleiri og flóknari en nokkru sinni fyrr. Reynt er að auka næringargildi kornteg- unda og fá mjöl, sem betra er að baka úr en áður, fá fallegri og bragðbetri ávexti og ljúffeng ara og fjörefnaríkara grænmeti, auka geymsluþol og útrýma ýms um göllum, ?vo sem tilhneigingu aldina og rótarávaxta til að springa. Þett? kallar á alls konar T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 789

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.