Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Side 3

Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Side 3
' i ' Filaskjaldbökurnar á Galapagoseyjum eru fornaldarundur og ekki léttar til gangs, því a3 þær geta aSeins vaggað áfram hálfan sjötta metra á minútu. Þær þræða harðtroðna slóSa milli bithagans á ströndinni og lindanna, sem koma ofan úr f jöllunum. Þessar stóru skjaldbökur á Galapagoseyjum hafa verið ofsóttar öidum saman. Á sextándu öld fylltu sjóræningj- ar skip sín af skjaldbökum, en þær geta lengi lifað matarlausar án þess að megrast að ráði, jafnvel fast að því heilt ár samfleytt. Nú er friðun komin til sögunnar og reynt að bjarga því, sem bjargað verður. Skjaldbökustofnsins er stranglega gætt, og honum fjölgar allfljótt, þvf að hvert kvendýr verp- Ir árlega tíu tit fimmtán eggjum. Fílaskjaldbakan er mikið dýr. Fæt- urnir eru gildlr sem mannslæri, og gömul skjaldbaka vegur sex hundr- uð pund. Hún er nokkuð á annan metra á lengd, og menn vita með fullrl vissu, að hún getur orðið hundrað ára gömul. Menn gera sér vonir um, að fíla- skjaldbakan haldi velli. Árið 1928 var farið með ungar skjaldbökur i dýragarð í Bandarikjunum. eftir þrjátiu ár fæddist fyrsta kynslóðin I umsjá manna — litlir angar, sex- tíu og fimm grömm. Vi8 vatnsbólin er oft margt af skjald bökum. Þær reka hausinn á kaf f vatn og svelgja stórum. Þær drekka /ið ókomnum þorsta næstu vikur. Þeim finnst einnig gott að velta sér í lelr og leðju. Skjaldbökurnar voru auðvelt bráð við þessi vatnsból. Þær voru deydd- ar þúsundum saman. Kjötið var flutt til strandar, þar sem lýsið var soðið úr beztu bitunum. Hitt var látið liggja ónotað. Mörgum skjaldbekutegundum var 1 útrýmt. Leifum skjaldbökuhjarðanna ógnuðu hundar, sem menn komu með til eyjanna. Talið er að ungviðið hafi verið kvistað svo niður, að eitt dýr kæmist upp af tíu þúsundum. T f M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 11 >

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.