Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Blaðsíða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Blaðsíða 8
ið, þegar hann bar þær saman. En til þess að sefa vesalings ráðskon- I una sagði hann, að þetta gæti lík- ; lega blessazt, og við þau orð hýrn- aði líka svo yfir henni,- að hún Ijómaði eins og sól í heiði. Fórnarlambið stóð eins og þvara á miðju gólfi og skoðaði á sér handleggina. Hreykni og angist toguðust á í huga hennar. En María, sem ekki gat slitið hugann frá ráðagerðum sínum, lét móðan mása og sópaði öllum áhyggjum á brott í einni svipan: — Þú ferð í allra fínustu fötin hennar, ég er ekki enn búin að velja þau, sagði hún, og þú færð festi um hálsinn, og hringa látum við líka á þig, ef við getum troð- ið þeim upp á fingurna á þér. Herrann trúr! Anna sló ekki hendinni á móti því, og hún hló svo dátt, að skein í hvitar og sterk- legar tennurnar í munni hennar, og varð þá hálfu iíkari eldhús- ' stelpu en nokkru sinni fyrr. — Og svo veitir ekki af að greiða henni, sagði kapelláninn. Það koni í hlut. Maríu, og hún gekk að því af miklum dugnaði. í Það var þó sannarlega gaman að ! fá að fást við þetta mikla og fall- ega hár. i — Ég bregð mér frá á meðan þið dubbið hana upp, sagði kapel- t láninn, og fór beinustu leið út í | gegnum eldhúsið, smiðnum til | undrunar og gremju, þai^ sem hann stóð undir veggnum á smíða- stofunni með hefla sína og borð. — Hvaða föt eigum við að færa j hana í? spurði frú Dahlgren. María velti vöngum. — Það eru reglulega fínir kjól- ar, sem hanga innst inni i klæða- skápnum, sagði hún. Hennar Náð notaði þá aldrei eftir að hún fór að reskjast, og sumir eru líka svo sérkennilegir. Einn er svona rós- rauður, eða hvað ég á að segja, og eins og allir litir blandist saman, og hann held ég sé fallegastur. Það sést auðvitað hvergi kvenmaí* ur í svona kjól nú á dögum, en um það kærum við okkur kollótt- ar. Fyrst af öllu verð ég þó að ganga frá hárinu á henni, þó að það hafi aldrei fyrr verið greitt, svo að í lagi sé. Hún rakti sundur flétturnar, greiddi hárið vandlega, skipti því fimlega í fallega lokka, sem húh sneri upp af mestu natin. Stúlkan sat grafkyrr eins og köttur, sem strokið er í sífellu. Aldrei fyrr hafði henni liðið svona vel. Og stofuþernan kepptist við að hag- ræða lokkunum sem allra bezt. Svo ióru þær að leita að kjóln- um. Hann var úr þykku, frönsku silki, sem ekki fékkst framar, og litnum á honum var tengd einliver saga, sem flestum var gleymd. Hún var um ungan mann með kramið hjarta, eins og sagt var í þá daga — sjálf var gamla frúin kornung og nýgift. Hann lét hana ráða i, að hún ein gæti lyft hon- um í þær hæðir hamingjunnar, sem hann þóttist eiga rétt á að gista, en hún svaraði honum ekki öðru en því, að monsjör Carbeau skyldi opna augún og loka munninum og taka eftir litnum í kjólnum sin- um á morgun. Þegar hún birtist svo í þessum kjól, stokkroðnaði maðurinn og þakkaði lienni um leið og hann heilsaði henni. ..Fyrir hvað?“ spurði hún. „Fyrir litinn — er þetta ekki 1‘aube du jour et de l’espérance?“ „Þér villist á blæ- brigðum“, svaraði hún, „því að þetta er coucher du soleil d hive Þannig sló hún hann út af lag- inu. Nú var liturinn farinn að fölna, og enginn hefði lengur villzt á honum og morgunroðanum. En leifar gamallar litadýrðar sátu þó eftir í silkinu, Anna kímdi með lokaðan munn, rjóð af hugaræs- ingi. Aldrei liafði hana órað fyrir því, að til væri svona kjóll — að snerta hann, það var eins og dýfa fingrunum niður í bráðið smjör. Svo hengdu þær festi um hvít- an, stinnan hálsinn á henni, og kaldir hlekkirnir kitluðu liana svo, að hún hrökk í kút. í meninu var smeitt glerjungsmynd af karl- manni, en hana létu þær snúa að brjósti Önnu, svo að gullflöturinn, með ágröfnum frönskum vísustúf, sæist allur. Stúlkan var farin að skammast sín fyrir liarðar og vinnulegar hendurnar á sér. En ráð var við öllu — líka missmíðunum á lúk- unum á henni. Hanzkar Hennar Náðar voru að vísu ofþröngir, en ráðskonan átti nokkurn veginn ljósa hanzka, sem náðu henni al- veg upp á úlnliði, og þá sóttu þær handa Önnu. A8 síðustu stungu þær blæ- væng á milli fingranna á henni, og hún dirfðist meira að segja að % blaka honum ögn, komin í fordyri dýrðarinnar. Stúlkan hafði tekið furðulegum stakkaskiptum, svipurinn orðinn allt annar en áður. Hún beit sarn- an vörunum, og augnaráðið vitn- aði í senn um óframfærni og hé- gómadýrð. Hún sneri sér gætilega, óvön svona þröngum fatnaði, og dirfðist að bera fram eina ósk: — Mætti ég ekki, bara snöggv- ast, bregða mér að speglinum og skoða sjálfa mig? sagði hún. Til þess að vita, hvernig þetta fer mér. En stofuþernan var miskunnar- laus, reyndi ekki einu sinni að setja sig i hennar spor, heldur beitti valdi sínu af harðneskju: — Ég held nú síður. Nú er ekki tími til að slóra. Við köllum á kapelláninn. Kapelláninn kom inn án þess að vita, hvílíkum heiftaraugum smið- urinn horfði á eftir honum, og staðnæmdist furðu lostinn í dyr- unum. Hláturinn dó á vörum hans, áður en hann komst yfir þær, og allur gáski vék fyrir næstum guð- rækilegri lotningu: Þetta var eins og þai'na sæti greifadóttir! Silki- kjóllinn, menið og festin um hvít- an hálsinn, blævængurinn — að hugsa sér! Hann tók teiknipappír- inn án þess að mæla orð frá vör- um og yddaði blýantinn einu sinni, svo, að hann væri verðugur þess verkefnis, sem beið lians. — Finnst yður hún ekki orðin skapfellileg eftir allt saman, séra Anneus? sagði María, sem vildi láta hrósa handaverkum sínum. En hann leit bara til hennar ávítunaraugum, hálfundrandi á virðingarleysinu í orðum hennar, og gaf sig svo aftur jafnskjótt á vald töfrum þeirrar hofmennsku, sem hann stóð andspænis. — Ef við — ef við nú sitjum alveg kyrr, sagði hann, þá skyldi ég reyna að leggja mig allan fram: Stúlkan sat hnarreist á stólnum, keik eins og kóngaljós, og starði á hann, varir hennar sem límdar saman í sælli nautn, og það voru aðeins findurgómarnir, sem hún stalst til að hreyfa, rétt til þess að sannfæra sig um, aö það var hún sjálf, sem allt snerist um. Og kapelláninn dró strik sín á^papp- írinn eins létt og fínlega og hann gat og einbeitti sér að því að töfra fram þessa glæstu göfgi, sem hann sá fyrir sér. Þær þorðu varla að hreyfa sig, frú Dahlgren og Maria, 16 T t M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.