Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Page 21

Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Page 21
Klifshagi. Ljósmynd: Óskar Sigvaidason. og verður í mesta máta ófull- komið, því að ég ligg í rúminu, og þetta er það fyrsta, sem ég reyni að gjöra í hálfan mánuð. . hef oft verið nokikuð mikið veik, en nú held ég, að batinn sé að koma. Læknir var sóttur til mín á sumardaginn fyrsta. . . Sumarið heilsaði okkur með hríð, og nálega ófært var um jörðina. Fyrsta sunnudag í sumri var blindhríð, síðan hafa verið góð veður, en engin hláka. Menn eru yfirleitt að verða hey- lausir, og sumir fyrir löngu. Hér er gefinn mikill matur á hverj- um degi, en lieyið fer að vanta með, ef ekki lagast núna. Ég ferðaðist út í Garð í Núpa- sveit á góunni. Mamma hans Einars kom fram eftir og var hérna i viku. (Þóra átti heima í Garði hjá Þorbjörgu, elztu dótt- ur sinni, og manni hennar, Guð- mundi Ingimundarsyni). Svo fór um við með henni aftur og feng- um heldur vont veður, vorum fimm daga í túrnum. Ég hafði samt gaman af þvi. Ég var á sleða, svo að mér leið alltaf vel, og fólkið tók svo ósköp vel á móti okkur. . .“ Maren segir í stuttu máli frá, spuna sínum og prjónaskap fyrir þau hjónin, finnst hún hafa kom- ið þeim upp minni ullarfatnaði en hún hefði viljað, kraftar hennar hafa verið litlir, og hún hefur lát- ið þau hjónin sitja á hakanum. . . „Við höfum prjónað mikið fyrir aðra, karlinn minn er svo góður að prjóna með mér og hjálpa mér með allt, sem ég á erfiðast með, og núna þvær hann alltaf inni hjá okkur og gjörir margt fleira. Fólkið er ökkur samt ósköp hjálplegt. . . Berðu mömmu hjartans kveðju, sárt þykir mér, að geta ekki létt undir byrði hennar. Ég sendi henni. . ., sem ég bið þig að hjálpa henni til að kaupa fyr- ir það, sem henni liggur mest á, ef hún verður lifandi, þegar . þetta kemst til ykkar. Bágt á Guðríður systir, að drengurinn hennar skuli vera svona heilsu- laus. Guð styrki hana til að bera það. Gott þætti mér að fá kaupa- konu, ef þú tímdir að lána mér hana. . . Ég hef heyrt, að Lára frá Presthólum komi norður í vor, hún er góð í sér og aðlað- andi, og ég held, að það væri góð samfylgd. En við þyrftum að vita það áður, svo að við getum tekið á móti henni, hvar sem hún kæmi á land. Nú er ég orðin svo loppin og lúin og bið þig að fyrirgefa riss- ið. Vertu Guði falin, hjartkæra systir mín, ásamt litlu börnun- um þínum. af þinni elskandi systur Marenu. E.S. Bóndi minn biður kærlega að heilsa og segðu Tótu, að hann sé heldur góður við börn. Þau leika sér einhvern tíma saman, ef hún kemur. Enn fer sem áður, að þó að mömmu þyki ákaflega vænt um Marenu systur sína, taki sárt til hennar og vildi mikið fyrir hana gera, þá getur hún ekki orðið við þessar bón hennar. Ekki sent mig frá sér svo unga um (ravegu í hér- að, sem henni finnst vera sér al- f I M I IM N SLINNtDAGSBLAÐ 29

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.