Morgunblaðið - 01.05.2004, Qupperneq 26
Keflavík | Baðstofuhópurinn heldur
í dag, 1. maí, sína árlegu Vorsýn-
ingu í Svarta pakkhúsinu á Hafn-
argötu 2 í Keflavík. Að þessu sinni
sýnir Baðstofuhópurinn málverk,
leirstyttur og glermuni sem hóp-
urinn hefur unnið í vetur.
Í Baðstofuhópnum eru 12 með-
limir þennan veturinn og leiðbein-
andi þeirra í vetur eins og und-
anfarna vetur hefur verið Ingunn
Eydal.
Eru Suðurnesjamenn hvattir til
þess að líta inn hjá Baðstofufólkinu
á laugardaginn og skoða afrakstur
vetrarstarfsins. Sýningin verður
aðeins opin þennan eina dag frá kl.
13–20.
Vorsýning
Baðstofunnar
SUÐURNES
26 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar
Frí smáauglýsing á mbl.is
fiarftu a› selja? Viltu kaupa?
Far›u á mbl.is og panta›u fría smáaugl‡singu sem birtist í allt a› sjö daga.
Smáaugl‡singar eru fríar á smáaugl‡singavef mbl.is til 1. júní n.k.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
23
44
5
0
4/
20
04
Keflavík| Messa eftir Gunnar Þórð-
arson verður meginuppistaðan í vor-
tónleikum Kórs Keflavíkurkirkju á
sunnudag kl. 17. Þetta er í annað
sinn sem Messan er flutt í heild sinni
en hún var frumflutt í Víðistaða-
kirkju í upphafi nýrrar aldar. „Ég
heyri að Messan er í öruggum hönd-
um hér,“ sagði Gunnar Þórðarson
tónskáld á æfingu Messunnar sl.
miðvikudagskvöld.
Það hefur löngum verið ljóst að
Gunnar er ekki við eina fjölina felld-
ur í tónlistarbransanum. Það er
heldur engin nýlunda að verk eftir
hann séu flutt á tónleikum hjá Kór
Keflavíkurkirkju. Ekki alls fyrir
löngu komu Hljómar fram með
kórnum við mikinn fögnuð kirkju-
gesta, enda segir Hákon Leifsson,
kórstjórnandi og organisti, að popp-
menningin í Keflavík sé ekki síður
áberandi í kirkjunni.
Það er hins vegar öllu meiri hátíð-
leiki yfir Messunni, sem hefur verið í
æfingu hjá kórnum síðan fyrir síð-
ustu áramót. „Þetta er mikið og há-
klassískt verk,“ sagði Hákon, „og
það koma rúmlega 60 manns að
flutningi þess.“ Auk kórsins tekur 23
manna kammerhljómsveit, Jón Leifs
Camerata, þátt í flutningnum og ein-
söngvarar eru tveir, þau Jóhann Sig-
urðarson, leikari og barítonsöngvari
og Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópr-
ansöngkona.
„Þetta er alveg ný reynsla sem
gaman er að takast á við,“ sagði
Bylgja Dís. Klassískur söngur er þó
engin nýlunda hjá Bylgju Dís þar
sem hún hefur lokið burtfararprófi
frá Söngskólanum í Reykjavík og
margoft sungið einsöng, bæði innan
og utan kirkjunnar. „Messan hans
Gunnars er hins vegar skemmtilegt
viðbót við reynsluna. Hún er mjög
söngvæn og áheyrileg.“
Ekki í messu á
hverjum sunnudegi
Messan er byggð á klassísku
messuformi hinnar kristnu kirkju,
þar sem skiptast á hefðbundnir
messuliðir og texti eftir séra Sigurð
Helga Guðmundsson, prest í Víði-
staðakirkju. Þegar Gunnar var
spurður um tilurð verksins sagðist
hann einfaldlega hafa verið beðinn
um að semja messu.
„Þannig var að Úlrik Ólason, org-
anisti í Víðistaðakirkju, hafði sam-
band við mig og spurði hvort ég vildi
skrifa messu. Ég verð nú að segja að
það var órafjarri mér, en mér fannst
það spennandi engu að síður.“ Gunn-
ar sagðist hafa þurft að skipta yfir í
annan gír í tónsmíðunum, enda seg-
ist hann vera eins og hver annar Ís-
lendingur, ekki í messu á hverjum
sunnudegi. „Þetta reyndist þó ekk-
ert erfitt og bara mjög skemmtilegt
þegar ég var byrjaður á því.“
Gunnar sagði að frumflutningur
Messunnar í Víðistaðakirkju hefði
að öllum líkindum verið fyrstu tón-
leikar aldarinnar. „Hugmynd Úlriks
og séra Sigurðar Helga var að fagna
nýju árþúsundi með Messunni og
hún var flutt í kirkjunni kl. 13 hinn
1. janúar árið 2000.“ Gunnar sagðist
hafa hug á því að umskrifa Messuna
fyrir orgel, þar sem hún væri mjög
kostnaðarsöm í þessari útfærslu.
Hann bætti þó við að Messan væri í
mjög góðum höndum hjá kór Kefla-
víkurkirkju og stjórnanda hans, Há-
koni Leifssyni.
Hákon sagði mikinn metnað liggja
að baki starfi kórsins. „Í fyrra hóf-
um við að starfrækja söngskóla við
kórinn. Ragnheiður Guðmunds-
dóttir söngkennari kemur hingað
tvisvar í viku og fer yfir söng-
tæknina hjá hverjum og einum. Það
er mikill stuðningur, bæði fyrir
hvern og einn, og ekki síst fyrir kór-
inn sem heild,“ sagði Hákon.
Kór Keflavíkurkirkju flytur
messu eftir Gunnar Þórðarson
Morgunblaðið/Svanhildur EiríksdóttirGunnar Þórðarson á æfingu ásamt Kór Keflavíkurkirkju.
Keflavík | Lögreglan í Keflavík
kærði 25 ökumenn fyrir að spenna
ekki bílbeltin á fimmtudag og jafn-
framt nokkra farþega sem voru í bíl-
unum.
Þá voru fjórir ökumenn kærðir
fyrir að tala í farsíma undir stýri án
handfrjáls búnaðar. Tveir ökumenn
voru kærðir fyrir of hraðan akstur á
Garðbraut og einn fyrir framúrakst-
ur á vegöxl á Reykjanesbraut.
25 ökumenn
án bílbelta
♦♦♦