Morgunblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 55
BLINDRAFÉLAGIÐ, samtök
blindra og sjónskertra á Íslandi, er að
mjög litlu leyti rekið fyrir opinbert fé.
Blindrafélagið hefur byggt starfsemi
sína á frjálsum framlögum. Aðalfjár-
öflunarleið félagsins er happdrætti.
Nú um mánaðamótin apríl/maí fá öll
heimili og fyrirtæki í landinu sendan
happdrættismiða í pósti.
Það er von félagsins að landsmenn
taki happdrættinu vel og kaupi miða
til styrktar starfseminni, segir í
fréttatilkynningu.
Margir vinningar eru í boði, VW
Golf 1,6i Comfortline, sjálfskiptur frá
Heklu. Ferðavinningar frá Heims-
ferðum að eigin vali fyrir tvo eða
fleiri. Einnig eru vinningar hótelgist-
ing á einhverju Fosshótelanna fyrir
tvo, ásamt morgunverði auk kvöld-
verðar.
Miðinn kostar 1.000 kr. og verður
dregið í vorhappdrætti Blindrafélags-
ins 11. júní nk. Miðana er einnig hægt
að kaupa á skrifstofu Blindrafélagsins
að Hamrahlíð 17. Skrifstofa Blindra-
félagsins er opin frá kl. 9–16 alla virka
daga.
Vorhappdrætti
Blindrafélagsins
AÐ UNDANFÖRNU hafa staðið yfir
endurbætur á húsnæði Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur við Sól-
vallagötu. Nokkur fyrirtæki lögðu
nefndinni lið við breytingarnar og í
fréttatilkynningu þakkar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
fyrirtækjunum kærlega fyrir hjálp-
ina, sem og öðrum sem lagt hafa
nefndinni lið. Á myndinn eru frá
vinstri: Elvar Þorkelsson frá Micro-
soft Íslandi, Hildur G. Eyþórsdóttir
formaður Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur, Margrét Dóra Ragn-
arsdóttir tölvunarfræðingur, Hrafn-
hildur B. Sigurðardóttir frá Lands-
banka Íslands, Óli Jón Ingólfsson frá
Sjóvá-Almennum, Margrét Dóra
Ragnarsdóttir frá Mæðrastyrks-
nefnd og Gunnar Hámundarson frá
Landsbanka Íslands.
Á myndina vantar Hjálmar Gísla-
son og Tómas Ragnar Bernharðsson
tölvumenn.
Bætt aðstaða mæðrastyrksnefndar
1. apríl síðastliðinn hófst flug tvisv-
ar á dag til beggja áfangastaða fé-
lagsins og jókst farþegafjöldinn þá
verulega. Á þessu ári áætlar Ice-
land Express að flytja um 270 þús-
und farþega,“ segir m.a. í frétt frá
félaginu.
Halldóra Viðarsdóttir, starfsmað-
ur Iceland Express á Keflavíkur-
flugvelli, afhenti Úlfari gjafabréf
fyrir tvo í ferð með Iceland Ex-
press af þessu tilefni.
TVÖ hundruð þúsundasti farþeginn
með Iceland Express fór með vél
félagsins til Lundúna fimmtudaginn
29. mars. Farþeginn var Úlfar Hin-
riksson íþróttakennari og var hann
á leið til Lundúna ásamt vinafólki
til að sækja tónleika með Duran
Duran.
„Um síðustu áramót hafði Ice-
land Express flutt rúmlega 136
þúsund farþega, en félagið hóf flug-
starfsemi í lok febrúar 2003. Hinn
Tvö hundruð
þúsund farþegar
SAMKVÆMT árlegri könnun rann-
sóknafyrirtækisins JD Power og
bílablaðsins What Car? kemur fram
að einungis Lexus stendur Skoda
framar hvað varðar ánægju við-
skiptavina með bíla sína. Ekki er
nema áratugur síðan Skoda þótti
ekki mjög góður bíll og því hefur
ansi margt breyst á skömmum
tíma, segir í fréttatilkynningu.
Í tilefni þessarar niðurstöðu fá
allir sem koma í heimsókn í Heklu
á laugardaginn 1. maí, akandi á
Skoda, gæðaís frá Emmess og
ókeypis þvott á bílinn sinn. Allar
Skoda-bifreiðarnar verða til sýnis,
meðal annars Skoda Octavia sem
unnið hefur sinn flokk í JD Power
þrjú ár í röð. Opið verður í sýning-
arsölum nýrra bíla í Heklu frá
klukkan 12.00 til 16.00.
Skoda í 2. sæti
í gæða- og
ánægjukönn-
un JD Power
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.