Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. JANÚAR 2003 BANDARÍSKA dagblaðið New York Times hefur valið sjö bestu bækur ársins að mati gagnrýn- enda blaðsins og er ævisaga Anth- ony Blunts þar efst á blaði. Bók- in, sem nefnist Anthony Blunt: his lives eftir Miröndu Carter, nær að mati blaðsins þeim óvenjulega ár- angri að vera áhugaverðari en maðurinn sjálfur. Blunt var í þrjá áratugi einn helsti listfræð- ingur Breta, safn- vörður mál- verkasafns drottningar og einn helsti fræði- maður síns tíma. Blunt var einnig njósnari Sovét- manna í ein tutt- ugu ár og þó að bresku leyniþjón- ustunni væri kunnugt um þennan starfa hans strax á sjötta áratugnum og drottningunni sjálfri aðeins tíu árum síðar hélt Blunt öllum sín- um embættum þar til Margret Thatcher, þáverandi forsætisráð- herra Breta, opinberaði málið 1979. Carter þykir takast vel að draga fram mynd af Blunt, kost- um hans og göllum. Atonement eftir Bretann Ian McEwan fær einnig góða dóma hjá New York Times, sem segir lesendur mega vara sig þegar þeim finnist McEwan vera farinn að mildast. En bókin sé í raun þrí- skipt og hver nýr hluti opni les- andanum nýja sýn á þá atburði sem þar er sagt frá. Bad Blood eftir bókmennta- gagnrýnandann Lornu Sage sem lést á síðasta ári segir sögu henn- ar, frá bernskuárum í velsku þorpi og stjórnlausu uppeldi sem varpar á skemmtilegan hátt ljósi á breska stéttakerfið. Middlesex eftir Jeffrey Eug- enides þykir þá hefjast allveru- lega á forvitnilegan, grófgerðan og jafnframt kröftuglegan máta, en sögumaðurinn líkir í fyrstu lín- um verksins eftir Ilíonskviðu Hómers, þar sem hann kallar á gyðju sína að syngja – í þessu til- felli um gen sín. Sagan er epísk að öllu leyti í anda, magni og skipu- lagningu, en Eugenides byggir söguþráð sinn á genetískri þeoríu, þannig að ef Hómer er fjarskyldur forfaðir er Darwin það líka. Paris 1919: Six months that changed the world eftir Margaret MacMillan rekur sögu friðarviðræðnanna í París árið 1919 í kjölfar heimsstyrjald- arinnar fyrri og hvernig þeir samningar sem þar voru gerðir eiga sinn þátt í pólitískum sem og þjóðfélagslegum deilum í Austur- Evrópu, Balkanlöndunum og Tyrklandi. Fjögur evrópsk heimsveldi féllu á árum styrjald- arinnar og kínverska heimsveldið hafði hrunið aðeins nokkrum ár- um áður. Aldrei áður höfðu svo margir frá jafnmörgum löndum borið vandamál sín fram á einni friðarráðstefnu. Auk þessara verka nefnir New York Times einnig bækurnar Roscoe eftir William Kennedy, sem er sjöunda verkið í Albany seríu höfundar, og Seeing in the dark eftir Timothy Ferris sem lofsyngur áhugamenn um stjörnuskoðun, himingeiminn og líf á öðrum plánetum. ERLENDAR BÆKUR Bækur ársins að mati New York Times Ian McEwan Jeffrey Eugenides Anthony Blunt I„Sama ár (1974) kom út eftir hann (Hein-rich Böll) stutt skáldsaga sem olli miklu fjaðrafoki: Die verlorene Ehre der Katharina Blum (Ærumissir Katrínar Blum, þýðing lesin upp í útvarp 1976): ung stúlka verður ást- fangin af ungum manni á kjötkveðjuhátíð og skýtur yfir hann skjólshúsi; hann er eftirlýstur af lögreglunni sem „hryðjuverkamaður“ og það verður til þess að Katrín, unga stúlkan, er hundelt af gulu pressunni og kölluð öllum illum nöfnum svo sem „brúður morðingjans“ ellegar „ástmey ræningjans“; á skömmum tíma er hún rúin æru og myrðir í örvæntingu sinni að- gangsharðan blaðaljósmyndara. Ekki fer hjá því að lesandanum verði hugsað til Bölls sjálfs.“ IIÆrumissir Katrínar Blum átti stóran þátt íað breyta hugsun manna um hlutverk og eðli æsifréttamennsku og þrátt fyrir að þessari tegund fréttamennsku hafi í vissum skilningi vaxið fiskur um hrygg var meðvitund hins al- menna borgara vakin og aðrir fjölmiðlar gættu virðingar sinnar. Þannig hafa skapast skil á milli hinnar gulu pressu og annarra fjölmiðla; þeir fyrrnefndu eru tæpast marktækir en hinir leggja mikið í sölurnar til að gæta trúverðug- leika síns. Á stundum verður varkárnin slík að jaðrar við hræðslu en betra er þó að stíga var- lega til jarðar en að saklausir kremjist undir fætinum hugsunarlaust. III Aðvörun Heinrichs Bölls fyrir 28 árum erþörf áminning til okkar sem lifum í skugga hryðjuverkanna í New York hinn 11. september 2001. Óttinn við yfirvofandi hryðjuverk hefur leyst úr læðingi gríðarlega öflug eftirlitskerfi um heim allan þar sem fylgst er grannt með öllum hræringum stórra hópa fólks þannig að heims- sýn Georges Orwells um Stóra bróður er nánast eins og vögguvísa í samanburði. Aldrei hefur upplýsingaöflun verið meiri og aldrei hafa jafn- margir fylgst með jafnmörgum og nú. Vafalaust finnast haldgóðar réttlætingar á öllu þessu eft- irliti en óhætt er að gera ráð fyrir að líf ein- hverra saklausra borgara verði aldrei samt aftur eftir að hafa lent óvitandi í neti eftirlitskerfisins. Hvort örlög þeirra verða jafn dramatísk og saga Katrínar Blum er ómögulegt að segja til um og kannski tómt mál að áminna Stóra bróður um að viðhafa aðgát í nærveru sálar. „Margir listfræðingar telja að hinn hefð- bundni táknheimur kristninnar sé hruninn, hann sé eins og fornminjar grafnar í rústum. Með list sinni hefur Leifur Breiðfjörð afsannað þetta. Snilligáfa hans blæs anda í kalt glerið.“ Svo mælir Pétur Pétursson guðfræðiprófessor í grein sinni um kirkjulistaverk Leifs Breiðfjörð og þann innblástur sem listamaðurinn fær af trúarsannfæringu sinni. IV Sá listamaður er sannarlega öfundsverðursem nýtur þess að trúarsannfæring hans blæs honum anda í brjóst og úr verða djúpstæð og marktæk listaverk. Á tímum efnishyggju og jafnvel tómhyggju reynist mörgum listamann- inum erfitt að finna sér andlega fótfestu og sköp- unin snýst þá gjarnan upp í tilviljanakennt and- óf eða tilþrifalitlar undirtektir við það sem hæst ber á líðandi stund. Á slíkum tímum verður trúarsannfæring fremur álitin flótti frá raun- veruleikanum en áskorun. NEÐANMÁLS H LJÓMSVEITIN kóteletta sendi frá sér plötuna „er kona“ á nýliðnu ári. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur fær- andi, né heldur að góðir vinir okkar hjónanna komu frá út- löndum síðasta sumar og færðu okkur plötuna að gjöf. Nú þykir ekki fínn siður að biðja um ábyrgð- arskírteini þegar maður rífur utan af pökkunum sínum en ég skal viðurkenna að ég var uggandi um feng minn þegar ég sá innihaldið. Er eitthvað gott að segja um listamenn sem kenna sig við kótelettur? Vinir okkar hafa líka um árabil búið í Mið-Evrópu sem er varla þekkt fyrir framfara- sinnað tónlistarlíf. Síðast en ekki síst eru þeir fluggreint fólk og ég hef alltaf verið á þeirri skoð- un að greind og tónlistarsmekkur fari illa saman. Ótti minn var vitaskuld staðfestur þegar vinirnir kvöddu og ég setti geisladiskinn í tækið. Platan var þjóðleg, sveitó og þykistuleg, eitthvað sem karl faðir minn hefði getað keypt sér, en hann náði sér aldrei eftir áralanga dvöl í Þýskalandi. Og ekki voru textarnir til að veikja mig í van- trúnni. Í laginu „Dráttarvél“ er að finna þessar línur: Á hæðinni hef ég skitið hulinn í mjúkum smára, á staðnum þar sem þú hnýttir þér fléttur um arma og háls. Ekki beint „Ferðalok“ þó að hugsunin sé ef- laust sú sama. Það skal því engan undra að kótelettan hafi lent uppi í hillu þar sem hún sat allt fram á gaml- ársdag þegar ég sá mér til undrunar í áramóta- blaði Moggans að „kona“ með kótelettu er að mati tveggja hljómplötugagnrýnenda Morgun- blaðsins besta plata ársins. Semsé. Nú þegar ég hlusta á kótelettu í sjötta eða sjöunda skipti verð- ur mér hugsað til áramótauppgjörs fjölmiðlanna, þeirrar bókhaldshyggju, að færa tónlist og kvik- myndir síðasta árs í debet og kredit. Stundum þarf að ýta við manni, segja manni að hlutir séu nógu góðir til þess að maður doki við og sýni þeim óskipta athygli. Eftir fjölmörg ár á ég síðan eftir að taka kótel- ettu úr hillunni, sýna börnunum og segja: „Ég var þar þegar þetta allt byrjaði, ég bara vissi ekki af því.“ FJÖLMIÐLAR „Hulinn í mjúkum smára“ Nú verður mér hugsað til ára- mótauppgjörs fjölmiðlanna, þeirrar bókhaldshyggju, að færa tónlist og kvikmyndir síðasta árs í debet og kredit. G U Ð N I E L Í S S O N TVENNS konar breytingum hefur bíórýnir mestar áhyggj- ur af. Annars vegar til- raunum til að auka hasarinn á kostnað lógíkurinnar. Þessi hneigð kemur skýrast og bagalegast fram þegar Fróði stendur skyndilega augliti til auglitis við hringvom með hringinn dinglandi framan á sér. Þetta gerðist aldrei í bók- inni. Af hverju ekki? Af því að það var mikilvægt að Sauron hefði ekki grænan grun um hvar hringurinn væri. Undir engum kring- umstæðum mátti renna upp fyrir honum að hann væri á leiðinni til Mordor enda hefði hann ellegar aldrei komist þangað. Sauron var nefni- lega ekkert lamb að leika sér við. Bíórýnir er núna orðinn dauðhræddur um frekari breytingar á þessu grund- vallaratriði í þriðju myndinni. Í bókinni sá Fróði aldrei hringvom nema úr fjarska fyrr en hann var kominn inn í sjálfa Dómsdyngjuna. Múrinn.is Gott skaup Ekki var skaupið í ár verra en í fyrra og greinilegt að snilldarlega hefur til tekist við að rífa upp þennan vinsæl- asta skemmtiþátt lands- manna. Það spillti svo ekki gleði okkar Kremlunga að fá á okkur skot úr grínmask- ínunni. Ekki var heldur verra að láta okkur syngja framan við ráðhúsið eitt besta popp- lag síðasta árs. Kreml.is þakkar fyrir sig. Kreml.is Hrútur í upphafi árs Aðstæður og umhverfi er eitthvað sem þér ber að taka með jafnaðargeði og sér í lagi jákvæðu hugarfari. Þú ættir að horfa betur í kring- um þig þessa dagana og taka á móti því sem að hönd- um þínum ber að öllu leyti og fyrir alla muni af heilum hug. Ekki láta þér detta í hug að neita innra með þér að njóta stundarinnar af því að hún er ekki eins og þú hefðir kosið að hún væri. Framtíð stjörnu hrútsins er sannarlega björt þar sem þú nýtur þín betur en áður. Þú kemst á toppinn ef þú kýst að gera slíkt fyrri hluta árs þegar draumur þinn er annars vegar. spámaður.is Morgunblaðið/Golli Áramótaheit Það messar enginn við Sauron

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.