Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. JANÚAR 2003 5 sú algengasta er að afmarka upphaf og endi ákveðinna tímaskeiða. Við búum til mynstrið tikk-takk eins og Kermode bendir á: „Allt sem hefst með tikk ber í sér vitneskjuna um yfirvof- andi og óumflýjanlegt takk, þrátt fyrir að heim- urinn sé að upplagi klukkulaus staður.“ Við tímamót (afmæli, áramót o.fl.) svífur andi saknaðar og trega yfir vötnum, tímamót eru að vissu leyti dauði. Heimsendaspár hafa enda löngum tengst fyrirfram ákveðnum tímamót- um, eins og Frank Kermode rekur í bók sinni. Þar minnir hann á að árið 1000 e. Kr. hafi gefið hugboð um dómsdag og hið sama þekkja þeir sem muna aldamótin 2000 – með öllum þeim hörmungum sem þeim tímamótum áttu að fylgja. Mætti halda því fram, líkt og Kermode gerir, að grundvallartímaskiptingar mann- skepnunnar, eins tilviljanakenndar og þær nú eru, séu í raun mótaðar til þess að taka á sig þungbæran dauðakvíða okkar og allar hugsan- legar vonir. Þannig verður mannkynssagan eins konar dagatal mannlegs kvíða. En fyrst heimurinn fórst ekki árið 1000 og heldur ekki árið 2000 finnur kvíði okkar sér ann- an farveg. Eða er ekki sífellt verið að vara okkur við endalokum aðskiljanlegustu fyrirbæra? Hið vestræna veldi á að vera að niðurlotum komið, ósonlagið, regnskógarnir, fjórflokkakerfið, full- veldishugtakið, hrein náttúra, guð, höfundurinn og jafnvel Sagan. Um þetta er rætt fram og aft- ur, en ef við gætum ekki að okkur getur tilfinn- ingin orðið raunveruleikanum marktækari. Á það benti John Barth einmitt í grein sinni um þrotabókmenntir, „Literature of Exhaustion“ árið 1967, en hann sagði engu máli skipta hvort skáldsagan lifi af formtilraunir samtímans – hrun skáldsögunnar geti einfaldlega orðið að menningarlegri staðreynd ef nógu margir höf- undar óttast slíkt hrun. Hið sama gildi um ótt- ann við að vestræn menning sé á hverfanda hveli. Ef nógu margir hafi slíkt á tilfinningunni muni það gerast. Viðbrögð yfirvalda í New York við hryðju- verkaárásunum í hitteðfyrra kölluðust að vissu leyti á við þessa hugmynd. Fólk var hvatt til þess að halda áfram daglegum störfum sínum í kjölfar harmleiksins í stað þess að draga sig inn í skel. Ástæðan var einföld; hræðsla borgarbúa við truflað borgarlíf er í sjálfri sér truflun á borgarlífinu. Hugarfarið ræður úrslitum. Heimasmíðaðar veraldir Á öllum sviðum óttast menn endalok. Eða er kannski hægt að gera því skóna að þeir óski sér endaloka? Í sumum tilfellum virðist það ekki fjarri lagi. Kermode hefur sína skýringu á þess- ari tilhneigingu. Hann bendir á að einn helsti kostur tímamóta og endaloka sé sá að þau geri okkur kleift að átta okkur á hræringum og inn- taki ákveðinna skeiða. Það sé varla hægt í miðjum klíðum, frá okkar óskilgreinda stað í miðjunni, og þess vegna verði að ná einhverjum áfanga til þess að öðlast yfirsýn yfir það sem gerst hefur. Áður er nefnd sú leið að binda sífellt enda á tímabil, til þess að ná yfirsýn, en ef hún bregst er önnur leið fær: Að búa til frá grunni veraldir þar sem allt hefur samhljóm og merkingu. Und- ir þann hatt falla skáldsögur, kvikmyndir og önnur listaverk þar sem minnstu smáatriði í upphafi verks geta haft merkingu sem afhjúpuð er þegar á líður, eða stuðlað að rökréttum sögu- lokum. Við slíku er aftur tæplega hægt að búast í lífinu sjálfu þar sem of margt er tilviljun og ekkert er ákveðið fyrirfram. Heimsmyndabygging af þessum toga hlýtur að gera hlutskipti mannsins þolanlegra en ella. Ef hann getur skapað sér heim þar sem allt hef- ur tilgang og leiðir að röklegum lokum er nokk- uð unnið í baráttunni við meint merkingarleysi hans eigin lífs. Skáldsagan hefur af þessum sökum upphaf, endi og röklega framvindu. Oftast. Og það er, vel á minnst, endirinn sem öllu ræður. Fléttan fylgir mynstrinu tikk-takk, frá sköpun til slita, og til þess að saga gangi upp þarf hún að við- halda lifandi eftirvæntingu eftir takk. Samband lesanda við bókina byggist á væntingum hans og mætti sögunnar til þess að koma honum sífellt á óvart – saga sem heldur áfallalaust áfram að fyrirsjáanlegum endi er nær goðsögu en skáld- sögu, svo vitnað sé enn í Kermode. Því djarfari hvörf, sem kollvarpa væntingum okkar, því bet- ur speglar verkið kynni okkar af veruleikanum. En hver sem fléttan kann að vera er lesanda/ áhorfanda varla rótt fyrr en hann hefur fengið kröfu sína um sögulok uppfyllta. Endirinn er markmið, eins og einmitt felst í hugtakinu sjálfu á ýmsum tungumálum. Endirinn ljær hverju at- riði nýja merkingu, sé það lesið í samhengi heildarinnar. Í sakamálasögum kemur iðulega í ljós í lokin hver hinn seki er og breytist þá við- horf lesandans til persóna um leið og skilningur hans á atburðum skerpist. Í sumum verkum kemur í ljós á síðustu metrunum að aðalpersón- an er eitthvað annað en lesandinn hélt, kannski morðingi, kannski hundur, kannski framliðin manneskja: ... „já og nú veit ég það, núna veit ég það, því er í raun þannig varið, ég er ÞINN AFTURGENGNI SONUR“ er t.d. letrað á lokasíðu Svefnhjólsins eftir Gyrði Elíasson. Tilbrigði af þessum toga hafa og skilað fersk- um straumum inn í kvikmyndagerð; nú um stundir eru mjög í tísku kvikmyndir þar sem endirinn bætir spánnýrri vídd í það sem áhorf- endur hafa þegar meðtekið (Fight Club, The Sixth Sense o.fl.). Allt er óskapnaður Það skal eftir sem áður haft í huga að skáld- sögur eru ekki lífið, eins og Sartre sagði, en þær eru á einhvern hátt eins og lífið. Þess vegna eru fyrirvaralaus endalok skáldverka jafnvel í betra samræmi við veruleikann en undirbyggð sögu- lok, þegar allt kemur til alls. Lífinu getur lokið hvenær sem er og þess vegna eru endasleppar sögur kannski sannari en aðrar bækur. Dæmi um þetta er skáldsagan Ameríka eftir Kafka, sem víða hefur verið gefin út þrátt fyrir að vera aðeins hálfkarað verk. Síðasta efnisgrein bók- arinnar hefst á orðunum: „Fyrsta daginn var ekið yfir hátt fjall.“ Í vændum er allt annað en niðurlag, sögumaður er í miðju kafi að lýsa fyrsta degi lestarferðar, en þá – skyndilega – sleppir frásögninni. Hún er enda-laus. Höfund- urinn átti víst í erfiðleikum með að ljúka sögunni og hvarf frá henni í þessu ástandi. Svo dó hann. Það hafa verið örlög margra bóka gegnum tíðina að enda (eða hefja) líf sitt hálfkláraðar. Menn eru alltaf að deyja, þar með taldir höf- undar, og þeir deyja stundum frá óloknum verk- um sínum. Hins vegar er ekki algengt að slíkar bækur rati í útgáfu því krafan um heildstæða byggingu hefur löngum verið ofarlega í huga út- gefenda. Á tímum póstmódernískrar endur- skoðunar á viðteknum venjum virðist hins vegar sem fleira sé leyfilegt en áður; óhefðbundin bygging (meðvituð eða ómeðvituð) vekur at- hygli og er gjaldgeng í flórunni. Póstmódernisminn nýtir uppbrot módern- ismans á útveggjum skáldskaparins til þess að reisa nýjar borgir. Afnám greinamerkjasetn- ingar, fjarvera ríms, rof upphafs, miðju og end- is, allt verður að nothæfum múrsteinum í fram- kvæmdaáætlun nýrra tíma. Það er ekki alls kostar rétt að frásögnin sé horfin úr samtíma- verkum og höfundurinn er langt í frá dauður. Þvert á móti eru þessi fyrirbæri sýnilegri en oft áður og þar með líflegri. Innviðir skáldverka eru augljósir, blekkingarnar játaðar og samræðan við hefðina meðvituð. Á tímum póstmódernisma, segja spekingarn- ir, upplifir einstaklingurinn sig í miðju sögunn- ar, í miðju safninu, og getur unnið úr því sem í kringum hann er að vild. Kannski er minningin um upphafið týnd og fyrirboði endalokanna óljós, eins og Kermode leggur til, og kannski snýst samtímaskáldskapur um að fara með for- tíð og framtíð sem sérstaka útgáfu samtíðarinn- ar. Í þessu samhengi mætti taka ótalmörg dæmi um menningarfyrirbæri sem fjalla um fortíð, tímaflakk, framtíðarspár og fleira, út frá augna- bliki samtímans. „Í miðjunni leitum við að full- komnun tímans, að upphafi, miðju og endi í sam- ræmi,“ sagði Kermode og segir enn. Kannski er betra að orða þetta þannig að í upplausninni sé allt hægt. Í heimsslitum, í hruni viðtekinna gilda, opnast möguleikar á nýjum samsetning- um, rétt eins og segir í Gunnlaðar sögu á nýárs- nótt þegar öll grafhýsi opnast og dauðir rísa upp: „Allt er óskapnaður. Tíminn mælir ekki. Hvergi er upphaf né endir. Konungurinn þarf að deyja til þess að endurfæðast“ og „allt fórnar sér í samruna við andstæðu sína til að kveikja nýtt líf úr dauða sínum“. Þannig er ástandið kannski nú á þröskuldi nýársins, á tiltölulega nýbyrjuðu árþúsundi, að þrot endalokanna fæða af sér ferska sýn. „Þá fyrst skilst manni að and- stæðurnar eru ekki líf og dauði heldur líf og ótti. Hví skyldu menn óttast einsemd dauðans? Sú einsemd varir aðeins þá örskotsstund áður en hnitbjörgin opnast og hvel hverfist á ný,“ segir ennfremur í Gunnlaðar sögu með vísan til trú- arinnar á líf eftir dauðann. Það er sú trú sem óneitanlega kemur í veg fyrir að við förum yfir um – í öllu falli vissan um að jörðin muni halda áfram að snúast eftir okkar dag. Heimavinna og heilablæðing Að lokum þetta: Italo Calvino skrifaði árið 1985 fimm fyrirlestra sem hann hugðist halda við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Þeir báru undirtitilinn „Sex minnispunktar fyrir næsta árþúsund“ og fjölluðu um bókmenntaleg gildi sem hann taldi nauðsynlegt veganesti inn í þriðja árþúsundið. Sjötti kaflinn átti að fjalla um samræmi og hugðist Calvino skrifa hann vest- anhafs. En skömmu áður en að ferðinni kom lést höfundurinn af völdum heilablæðingar. Enda- lokin voru óvænt, rétt eins og í sögunum tíu í bók hans Ef ferðalangur á vetrarnóttu. Þess má að auki geta að áttundi fyrirlesturinn átti, að sögn eftirlifandi eiginkonu hans, að heita „Að hefja og enda (skáldsögur)“ en handritið að kafl- anum hefur ekki fundist. Aðeins minnispunktar. Þrátt fyrir formtilraunir sínar hélt Calvino þó þegar allt kom til alls í gömlu hefðina um sögu- lok og köttinn sem setur upp á sig stýri. Títt- nefndri bók, Ef ferðalangur á vetrarnóttu, lýkur nefnilega á því að Lesandinn og vinkona hans Ludmilla ná fullkomlega saman og gifta sig. Samstundis gleymir lesandinn vonbrigðum sín- um yfir að hafa ekki fengið að klára neina af sög- unum tíu og uppgötvar að saga Lesandans og Lesynjunnar var sú sem skipti mestu máli. Og til þess að hnykkja enn frekar á því að bókinni sé að ljúka lætur Calvino aðalpersónuna klára bókina sem hinn raunverulegi lesandi hef- ur í hendi sér á sömu stundu. Þar sem hjónin liggja í rúmi sínu spyr Ludmilla sinn heittelsk- aða Lesanda hvort hann ætli ekki að slökkva á náttlampanum og hann svarar: „Augnablik. Ég er rétt að klára Ef ferðalangur á vetrarnóttu eftir Italo Calvino.“ Taktfesta fyrri tíma hefur gengið til. Línu- legur lestur er truflaður með tilkomu völund- artexta (e. hypertext) og óumbeðnu flæði upp- lýsinga úr öllum áttum. Náttúruleg framvinda lífsins er trufluð með læknisfræðilegum aðgerð- um, endurlífgunum, tæknifrjóvgunum og öðrum inngripum. Það er varla skrýtið að skálduð verk sem spretta úr slíkri áttvillu haldi sig ekki við hefðbundna framvindu. Úrvinnslu og framandgervingu endaloka mun áreiðanlega verða fram haldið, bygging verka mun áfram toguð og teygð til þess að rannsaka enn betur eðli þeirra og innviði. En þótt viðhorf til upphafs og endaloka hafi breyst er þráin enn fyrir hendi. Þrá eftir því að komast á leiðarenda, fræðast um afdrif, skynja samhengið í byggingu verksins, byggingu heimsins. Við þörfnumst þess enn að sögum í bókum og bíómyndum ljúki. Sem þær og gera flestar. Geri þær það hins vegar ekki eftir hefð- bundnum leiðum, höfum við alltént meiri skiln- ing á því hvað það táknar. Við vitum að lífinu getur lokið fyrirvaralaust og skáldskapurinn speglar ekki lífið almennilega nema hann bjóði af og til upp á óvænt eða ófullkomin endalok. Heimildir Barth, John: „The Literature of Exhaustion“ í The Atl- antic, ágúst 1967. Beckett, Samuel: Sögur, leikrit, ljóð. Svart á hvítu, Reykjavík, 1987. Calvino, Italo: Lezioni americane. Arnoldo Mondadori Editore, Milano, 1993. Calvino, Italo: Se una notte d’inverno un viaggiatore (nefnd í texta Ef ferðalangur á vetrarnóttu). Arnoldo Mondadori Editore, Milano, 1994. (Lausl. þýð. tilv. SÞ.) Gyrðir Elíasson: Svefnhjólið. Mál og menning, Reykjavík, 1990. Kafka, Franz: Ameríka. Mál og menning, Reykjavík, 1998. Kermode, Frank: The Sense of an Ending: Studies in the Theory of Fiction. Oxford University Press. London, Ox- ford, New York, 1973. Svava Jakobsdóttir: Gunnlaðar saga. Uglan, Reykjavík, 1990. Morgunblaðið/Ómar „Við tímamót (afmæli, áramót o.fl.) svífur andi söknuðar og trega yfir vötnum, tímamót eru að vissu leyti dauði.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.