Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Qupperneq 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. JANÚAR 2003
J
ÓHANNESARGUÐSPJALL hefst
þannig: „Í upphafi var Orðið, og
Orðið var hjá Guði, og Orðið var
Guð.“ Þetta orð varð hljóð og bók-
stafir. Kristnir menn lesa það sem
spámenn hafa séð og vitni hafa sagt
frá og menn hafa fundið snertingu
almættisins í predikun, tónlist og
söng. Í upphafi var orðið og það var hjá Guði
og það varð einnig litur og form.
Þannig snertir opinberun Guðs okkur í
skynjuninni og þannig tekur hann á sig mynd
til þess að minna okkur á hver hann er. Hold-
tekningin, það að orðið varð hold í Jesú Kristi,
að Guð varð maður, er opinberunin sem kristin
trú hvílir á. Guð elskar mennina og þess vegna
opinberaðist hann. Guð tekur á sig mynd og
myndin verður bæði til í efni og í hugskoti þess
sem tekur við orðinu sem er efni og tákn. Jes-
ús er nálægur í brauðinu og víninu sem helgað
er við útdeilingu altarissakramentisins. Hann
er einnig nálægur í vatninu sem ausið er yfir
höfuð barnsins í skírninni þegar það er tekið
inn í söfnuð Krists og helgað fyrir trúna á
hann. Kristur kenndi að hann væri einnig í
þeirri mynd sem birtist þar sem fólk þjáist og
er einmana, þar sem fólk á ekki í sig og á og
þar sem fólk er í fangelsi, þar sem fólk er af-
myndað af fíkn og fátækt.
Guð er þó alltaf eitthvað annað en það efni
sem hann snertir við hverju sinni og þess
vegna er tilhneiging í öllum eingyðistrúar-
brögðum að hafna helgimyndum. Sú trú og til-
beiðsla sem Guði einum tilheyrir getur svo
auðveldlega snúist upp í skurðgoðadýrkun. Í
gyðingdómi og meðal múslima er bannað að
gera myndir af Guði. Myndir af spámönnum,
englum og postulum eru ekki í guðshúsum
þeirra. Svo er einnig um þá kirkjudeild mót-
mælenda innan kristninnar sem kennir sig við
Jóhann Kalvín og þær trúarhreyfingar sem
sprottnar eru af þeim meiði eins og hvíta-
sunnuhreyfingin. Þar eru hvorki altaristöflur
né kristsmyndir. Margir mótmælendur gengu
hart fram í að tortíma helgimyndum og
líkneskjum á 16. öld. Þeir gagnrýndu fyrst og
fremst það fyrirkomulag að vald kirkjunnar
væri sprottið af umráðum hennar yfir sakra-
mentinu. Hlutdeild táknsins, þ.e. efnanna
brauðs og víns, í fórnarverki Krists var tengd
valdi kirkjunnar yfir veraldlegum gæðum. Af
þessu sést hve guðfræðin getur verið nákomin
trúarlegri list.
Í frumkristni blossaði upp tortryggni í garð
helgimynda og myndbrjótar geystust fram og
eyðilögðu fögur listaverk. En staðreyndin er
sú að efnið er ekki af hinu illa samkvæmt
kristninni. Kristur var maður sem lifði og dó
og við eigum lýsingar af honum og þær lifna í
huga okkar og Kristur starfar í okkur þegar
við sinnum kalli hans í þeim heimi sem hann
vill reisa við og gera dýrðlegan.
Birtan sem berst frá hugsun
Þau eru merkileg fræðin sem fjalla um hlut-
deild myndanna í því sem þær vísa til. Þar er
vitnað til kenninga Platóns um frummyndirnar
og hugmyndir Aristótelesar um formgerð
hugsunar og reynsluheiminn. Frummyndirnar
eru, líkt og hugsanir Guðs um sjálfan sig,
heiminn og það sem í honum er, fullkomnar og
óumbreytanlegar. Þegar við speglum okkur í
augliti íkonamyndanna sjáum við inn í þann
handanheim. Langt er frá þeim myndum yfir í
óhlutbundna list nútímans. En ef viðleitnin er
sönn þá er margt líkt með nútímanum og hinni
fögru og þroskuðu list frá Bysans. En margt
hefur gerst á þeirri leið í reynsluheimi mann-
kyns sem snertir merkingu og notkun tákna.
Í listfræðinni mætast guðfræði og fagur-
fræði og menn reyna að átta sig á tengslum
tákna og reynslu mannsins – heimi trúarinnar
og heimi táknanna sem spretta úr hefðinni og
viðleitni mannsins til að skynja og skilja sjálf-
an sig sem hluta af heild. Guðbergur Bergsson
rithöfundur kemst skemmtilega að orði þegar
hann bregður sér í gervi guðfræðings og ritar
pistil í skrá yfir sýninguna Kyrr birta – heilög
birta sem hann setti upp í Gerðarsafni í Kópa-
vogi í nóvember sl. Þar tengir hann nútíma
abstraktverk við sköpunarsöguna:
Þegar skaparinn sagði í upphafi: Verði ljós!
þá ákvað hann ekki hvernig ljósið ætti að vera.
Líklega er það óákvörðun hans og frjálsræði
ljóssins að þakka að myndverk breytist í aug-
um okkar eftir því hvernig birtan skín á það.
Hún gefur efninu margvíslegan sjónræna eig-
inleika. Og birtan getur borist frá hugsun, hún
getur líka borist frá sól dagsins, rafmagni og
kertaljósi; en oftast notar þó málarinn birtu
náttúrunnar með hliðsjón af eigin uppljómun,
flæði tilfinninganna.1
Í steindum gluggum hefur þjónusta mynd-
listarinnar við kirkjuna náð hvað hæst. Þar
verður náðargáfa listamannsins leitendum og
trúuðum sífelld uppspretta aðdáunar, gleði og
uppljómunar. Glerið er fast efni, áþreifanlegt
efni, en hleypir ljósinu í gegnum sig eins og
ekkert sé. Glerið hefur verið skilið sem tákn
heilagrar ritningar sem opinberar dýrð Guðs
og vernd gegn hinu illa. Birtan í helgidóminum
táknar lifandi orð Guðs og nærveru Krists.
Heilagri þrenningu hefur verið líkt við ljósið í
náttúrunni með því að sólin táknar Guð föður
almáttugan skapara, ljósið Krist, sem fæðist í
heiminn, og geislarnir heilagan anda sem upp-
lýsir hvern mann.
Um það bil sem gotnesk glerlistaverk í dóm-
kirkjum miðalda eru að ná hátindi sínum skrif-
ar munkur eða prestur upp á íslensku hómilíu
(þ.e. predikun) um himnaför Maríu Guðsmóð-
ur. Hómilían ber þess merki að höfundurinn
hefur þekkt hvernig guðfræði holdtekningar-
innar beitir listinni fyrir sig. Guð er sólin og
ljósið hreint og skírt og þetta ljós fer eins og
góðir englar Guðs, ósnert af mennskunni,
gegnum hvítt gler. Það er litur glersins sem
skapar myndina og myndin af Kristi helgar
listaverkið eins og orðin um Krist og orð
Krists gera Biblíuna að helgri bók. Kristur er
guðlegur, sannur Guð, eins og ljósið er hreint
og tært, en um leið er hann sannur maður af
holdi og blóði. María hlaut að búa yfir hrein-
leik ljóssins, kærleika og syndleysi fyrst hún
var valin makleg móðir Guðs. Hómilíubókin
talar til nútímans frá þeim tíma sem íslensk
tunga varð til sem ritmál í þjónustu trúarinn-
ar.
Svo hafði María hreinlífi slíkt sem englar og
alla manndýrð að aukahlut. Því mátti hún mak-
lega vera móðir Guðs, að hún hafði hreinlífi,
sem Guðs englar og mannlegt eðli, svo að guð-
dómurinn mátti taka af hennar holdi mann-
dóminn, svo sem hann hafði skapað fyr önd-
verðu, að maður skyldi frá manni getast. En
geislinn skín í gegnum glerið og hefir bæði
birtu sólskins og líkneski af glerinu. Svo hefir
og Drottinn vor, Jesús Kristur, bæði guðdóm
af Guði, en manndóm af Maríu.2
Glugginn í Glerárkirkju
Glerárkirkja hefur eignast nútíma listaverk
úr steindu gleri sem mun setja sterkan svip á
kirkjurýmið og magna tilfinningu safnaðarins
fyrir því að hann sé staddur á heilögum stað.
Glerlistaverkið á vesturveggnum sem blasir
við kirkjugestum, mætir manni nánast eins og
þruma úr heiðskíru lofti þegar komið er að
kirkjunni þegar dimmt er úti en ljós inni. Plan-
ið fyrir framan kirkjuna er vítt og breitt og
veggirnir sem mæta gestum eru eins og opinn
faðmur. Sólin í miðju myndarinnar verður þá
sól upprisunnar og það er eins og hún skíni úr
sjálfri kirkjunni frá austri. Þannig kallar þetta
verk söfnuðinn til guðsþjónustu og leiðir hann
inn í messuna.
Verkið opnar kirkjurýmið á sérstakan hátt
fyrir ljósinu að ofan um leið og það dregur
kirkjugesti inn í atburði sem litir og form þyrla
upp fyrir augum áhorfenda eins og hvirfilvind-
ur fari um. Hefðbundin form og tákn eru sífellt
brotin upp og raðað saman upp á nýtt þannig
að kirkjugestir eru staddir í hrynjandi sem til-
heyrir annarri vídd. Myndin er á stöðugri
hreyfingu vegna áhrifa frá utanaðkomandi
krafti. Táknin hverfa þó ekki en það er eins og
sá veruleiki sem þau vísa til beri þau ofurliði.
Sólin skín í miðju verksins en hún er umvafin
þyrnikórónu. Tærir litir skerpast við leik ljóss-
ins sem breytist í sífellu eftir því sem á daginn
líður.
Þessi mynd er nútímalistaverk, sem eins og
svo mörg listaverk, sem Leifur hefur gert fyrir
kirkjur, gefur táknheimi kristninnar nýtt líf.
Margir listfræðingar telja að hinn hefðbundni
táknheimur kristninnar sé hruninn, hann sé
eins og fornminjar grafnar í rústum. Með list
sinni hefur Leifur Breiðfjörð afsannað þetta.
Snilligáfa hans blæs anda í kalt glerið.
Myndin er reyndar í fjórum hlutum, klofin
af óhagganlegu krossmarki sem tilheyrir
steinsteyptum veggnum. Krossinn verður
raunverulegur þegar við greinum verurnar
sem standa sitt hvorum megin við hann og við
erum minnt á frásögn guðspjallanna af kross-
festingunni á Golgata. María, móðir Jesú, og
lærisveinninn Jóhannes standa til vinstri, en
til hægri má greina verur sem vísa til róm-
versku hermannanna sem stóðu vörð við af-
töku Jesú. Við sjáum glitta í vopn þeirra.
Kannske er þarna hjálmur, skjöldur og spjótið
sem stungið var í síðu Jesú.
Efri hluti myndarinnar til hægri er í björt-
um litum enda segir Lúkas guðspjallamaður
að sól hafi verið á lofti þegar Jesú var kross-
festur en um hádegisbil segir hann „missti sól-
in birtu sinnar og það varð myrkur um allt
land til nóns“. Fortjald musterisins rifnaði
sundur í miðju og Jesús kallaði hárri röddu:
„Faðir í þínar hendur fel ég anda minn. Og er
hann hafði þetta mælt, gaf hann upp andann.“
(Lúk. 23.46.)
Í efri hluta myndarinnar til vinstri eru lit-
irnir dekkri og þar má greina eldingu og ef vel
er að gáð má heyra þrumurnar og finna jörð-
ina skjálfa og björgin klofna (Matt. 27.51.) Í
Jóhannesarguðspjalli kemur fram að það síð-
asta sem Jesús sagði áður en hann gaf upp
andann var: „Það er fullkomnað.“ (Jh. 19.30.)
Og við spyrjum hvað átti hann við? Hvað var
fullkomnað?
Í Jóhannesarguðspjalli er einnig sagt frá því
er Pílatus yfirheyrði Jesú og hann spurði og
við með honum: „Hvað er sannleikur?“
Pílatus vissi ekki að hann stóð frammi fyrir
sannleikanum.
Myndin og ýtrustu sannindi
Einn fremsti guðfræðingur sem uppi var á
öldinni sem leið, Paul Tillich, segir á einum
stað að öll sönn list fáist á einn eða annan hátt
við það að miðla og túlka það sem hann nefnir
endanlegan veruleika eða sannleika (ultimate
concern, ultimate reality). Þessi veruleiki full-
komnast aldrei í neinu sérstöku sem við sjáum
eða þreifum á, heldur er hann eins og óhagg-
anleg staðreynd á bak við það allt saman sem
er hér og nú og hægt er að þreifa á. Þetta upp-
lifir trúaður maður ekki bara sem möguleika
heldur sem staðreynd, veruleika trúarinnar,
sem maðurinn er sífellt að leita að en fær aldr-
ei höndlað af hyggjuviti einu saman.
Listamenn, sem eru heiðarlegir og sannir í
list sinni, geta fengið hugboð um þennan sann-
leika vegna þess að þeir falla ekki í þá freistni
að falsa eða gera málamiðlanir. Hugtakið synd
er stundum hægt að nota þegar maður stendur
frammi fyrir trúarlegri list sem er fölsun eða
málamiðlun vegna þess að hún er skurðgoða-
dýrkun. Þá er myndin dýrkuð en ekki það sem
hún miðlar eða túlkar. Aðdáunin, lofgjörðin,
beinist að listamanninum sjálfum og hann
verður einhvers konar goð vegna náðargáfu
sinnar.
Hvað er þá eiginlega átt við þegar talað er
um leit mannsins að endanlegum sannleika?
Það sem við er átt er að hann stendur frammi
fyrir ósvöruðum spurningum um réttlætið,
þjáninguna og dauðann. Það er eins og okkur
sé áskapað að pæla í þessum hlutum þótt þeir
gangi ekki upp í lífi okkar dags daglega. Við
erum sífellt að leita og spyrja um meininguna
með lífinu og hún er að miklu leyti fólgin í
svörum við spurningunum um þessi þrjú atriði.
Þar sem armar krossins mætast
Sennilega á almættið einhvern aðgang að
dulvitund listamanna sem nemur skilaboð sem
aðrir fá ekki. Sannir listamenn eru á sérstakan
hátt þátttakendur í hinu eilífa sköpunarverki
sem alltaf er að eiga sér stað. Kristin trú gefur
svör við áðurnefndum spurningum og þau hafa
verið myndgerð í kirkjunni frá upphafi vega,
túlkuð margvíslega á stílfærðu táknmáli og í
staðfærðum frásögum.
Listaverkið á vesturvegg Glerárkirkju er
LISTIN, KIRKJA
Glerlistaverkið eftir Leif Breiðfjörð á austurgafli Glerárkirkju á Akureyri sem gefið var af Kvenfé
E F T I R P É T U R P É T U R S S O N
Í desember var opnuð sýningin Sigur lífsins
eftir Leif Breiðfjörð í Glerárkirkju á Akureyri. Í
þessari grein er fjallað um nýtt glerverk Leifs í
kirkjunni og samspil listar, kirkju og trúar.