Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. JANÚAR 2003 9 samsett úr tveimur frásögum sem teflt er sam- an og þannig myndast sú magnaða spenna sem berst til okkar með ljósinu. Hér er ekki lítið lagt undir. Á dramatískan hátt er verið að túlka sköpun og frelsun heimsins í einni mynd. Byggt er á þeim atburðum Biblíunnar þar sem Guð opinberar kærleika sinn til mannanna. Annars vegar er það krossfestingin á Golgata þar sem Jesús Kristur sonur Guðs, boðberi kærleika og friðar, er líflátinn á kvalafullan hátt. Hins vegar er um að ræða mynd af sól- arupprás. Sólin er komin upp og miðja hennar er þar sem armar krossins mætast. Þessi mynd minnir mig á aðra mynd sem ég á í hugskoti mínu. Norðan við kirkjuna í Skál- holti hefur verið settur útikross að gömlum sið. Standi maður steinsnar vestar má á föstu- inngangi sjá sólina koma upp við eldfjallið Heklu sem kúrir sakleysislega undir skýinu sem oft hylur tind þess. Í nokkrar mínútur ber miðju krossins við sólina og þá kemur manni Golgata síst í hug. Ljósið verður þessa stuttu stund birtingarform skapara himins og jarðar. Við erum nálægt atburðunum sem myndin lýsir – við erum í myndinni, við erum ímynd Guðs. Sólarupprásin er birtingarform sköpun- ar Guðs, sem opinberaði það í syni sínum að hann er kærleikur. Þetta sýndi hann vottunum á Golgata og vottunum við gröf Krists á páska- dagsmorgun. Í sólarupprás á páskadagsmorgun að aflokn- um hvíldardegi gyðinga, á fyrsta degi nýrrar viku, kom í ljós að gröfin var tóm. Það var fullkomnað. Kærleikur Guðs hafði sigrað vegna lífs, dauða og upprisu Guðs sonar. Kristur er því svarið við dýpstu og stærstu spurningum mannsins, spurningum um þjáninguna, rétt- lætið og dauðann. Þetta magnaða listaverk, gæti sem best borið heitið sköpun og end- urlausn, en það er heiti á kennslubók í trú- fræði sem notuð var um áraraðir við guðfræði- deild Háskóla Íslands. Þessi mynd gæti einnig borið heitið Sigur lífsins, sem er yfirskrift sýningar Leifs Breið- fjörð í anddyri Glerárkirkju, kirkjunnar sem opnuð var um leið og nýi glugginn var tekin í notkun.3 Þar voru fimmtán myndir til sýnis unnar í vatnslitum og pastel. Sigurboginn, hringlaga eggform og kvadrófóíl formin eru notuð sem umgjörð. Það síðastnefnda er eins konar fjórblöðungur eða blómakróna sem vís- ar, eins og hringformið, til fullkomleikans. Kvadrófóil formið er mjög algengt í kirkju- list, ekki síst í dómkirkjum miðalda. Það skír- skotar til jafnvægis og samræmis bæði í ljósi fagurfræði og sálfræði. Sálkönnuðurinn frægi, Carl Gustav Jung, hélt því fram að ferningin, quaternity, væri frumlægara og sterkara trúartákn en þrenningin sem skortir skírskot- un í höfuðáttirnar fjórar og frumefnin fjögur eins og krosstáknið gerir til dæmis. Verurnar í myndunum á sýningunni eru í sama stíl og í glermyndinni, englar, dýrlingar og biblíulegar persónur – tengiliðir mannsins við æðri heima, sendiboðar Guðs. Í þessum myndum eru fuglar. Dúfan er tákn heilags anda, en getur einnig táknað hinn leitandi og frjálsa huga mannsins. Örnin flýgur fugla hæst og hefur því yfirsýn. Hann er tákn Jóhannesar guðspjallamanns. Í myndunum má sjá glímuna við sköpunar- stefið, t.d. þar sem sjónarhornið er frá öðrum hnetti á eyjuna Solaris í hringlaga úthafinu. Hér vísar Leifur til þekktrar kvikmyndar eftir Rússann Andrei Tarkovsky með þessu nafni. Höfuð Leifs Í myndum Leifs Breiðfjörð má oft greina fyrirbæri sem hann kallar hausinn eða kallinn. Þetta er einfalt og stílgert mannshöfuð, sem kannske er tákn um manninn sem slíkan eða mennskuna. Hausinn er yfirþyrmandi í stórum glerverkum sem er t.d. að finna í Þjóðarbók- hlöðunni og í flugstöðinni í Keflavík, sem kennd er við Leif Eiríksson og hann er einnig til sem glerskúlptúr í minni gerð. Þessi haus veit upp og starir oft blindum augum inn í óendanleikann. Yfirleitt eru haus- arnir með lokaðan munninn eða hann er aðeins opin upp á gátt, en nefið er stórt og skagar fram. Það er engu líkara en að hann sé að þefa af óendanleikanum, hinum endalega veruleika sem öll sönn list reynir komast í tæri við, ef trúa má Paul Tillich sem áður er nefndur. Ég held að þessi haus sé í raun og veru tákn listamannsins sjálfs og að hann samsami sig stundum þessum hausi. Stíll og form steinda gluggans á vesturgafli Glerárkirkju svipar um margt til annarra mynda sem Leifur hefur gert fyrir kirkjur. Hann notar hefðbundin tákn án þess að vera háður þeim og hann brýtur þau upp hvenær sem honum sýnist til að opna fyrir nýrri sköp- un. Hann er alltaf tilbúinn að ryðja úr vegi því sem hindrar nýja uppbyggingu. Í því skyni teflir hann fram andstæðum í formum, litum og ljósi. Það óvænta er alltaf að verða til í þessum myndum. Á máli guðfræð- innar segjum við að kraftur Guðs brjóti hlekki, fyrirgefi og frelsi. Hann leysir manninn frá of- urvaldi syndarinnar og hefðarinnar ef hún er aðeins dauður bókstafur. Það er mikið af karisma í þessum myndum, mikil gleði, lofgjörð og dýrðarsöngur. Sjálft verkið er eins og í leiðslu. Það er næstum eins og undir taki englasöngur í litadýrðinni og hreyfanleika formanna. Þannig fyllast verkin anda sem blæs þangað sem hann vill. Þetta einkennir einnig þau glerlistaverk sem Leifur hefur gert tillögu að í fjóra glugga kirkjuskipsins. En þar eru einnig verk sem af stafar blæ íhugunar og kyrrðar, t.d. mynd- irnar af auganu og fiskinum sem kallast á yfir kirkjurýmið og geta táknað nærveru Guðs og kirkjuna. Stundum má greina kímni í kirkjulist Leifs og það þarf ekki að vera goðgá í trúar- legri list þar sem lofgjörð og gleði eru annars vegar. Myndin af fiskinum með helga menn í maganum er dæmi um þetta. Stórfiskurinn syndir tignarlega í loftinu að því er virðist yfir yfirborði vatnsins eða textans því öldurnar geta einnig skírskotað til ólæsilegra orða á blaði. Fiskur sem er laus við vatnið er tákn um mikið frelsi – allavega er það vísbending um kraftaverk. Fiskurinn – kirkjan og vatnið – textinn kallast á eins og í allri góðri guðfræði. Það kirkjulistaverk úr gleri sem skýrast talar á máli íhugunar og bænar er myndin í kapellu kvennadeildar Landspítalans. Heilög kyrrð einkennir verkið sem og trúarleg alvara sam- fara sterkri von. Þannig slær list Leifs á marga strengi trúarlífsins. Markmið listamannsins er hvorki að auglýsa tákn og merki né endurtaka ákveðna játningu. Hér eru það tilfinningarnar sem lýsa upp myndverkið – tilfinningar sem frelsandi kær- leikur Guðs hefur vakið – Guðs sem lætur sér annt um sköpun sína og manninn þar með tal- inn. Paul Tillich hefur sett fram kenningu um fimm formgerðir í myndlist sem tengja má við mismunandi trúarafstöðu og trúarreynslu.4 Þau verk Leifs sem hér eru sérstaklega til um- ræðu falla öll undir expressionisma vegna þess að þau vísa til veruleika bak við það sem mynd- in sýnir. Trúin sem þar finnur farveg er fyrst og fremst hrifning og leiðsla – ecstatic og spiritúal. Myndirnar grípa áhorfandann og hrífa hann með sér inn í annan heim sem er laus við takmarkanir og hindranir þessa heims. Sem stílform er expressionisminn andsvar við raunsæisstefnu og hughyggju í myndlist. Raunsæisstefnan (realism) er að mati express- ionista of jarðbundin – of bundin við þá hluti og þau tákn sem notuð eru í myndefninu sjálfu til að geta opinberað handanveruleikann. Hún hneigist stundum til bölsýni og fer því á mis við vonina sem er grundvöllur trúarinnar. Hughyggjan (idealism) er aftur á móti í eðli sínu bjartsýn á möguleika mannsins til að ná fullkomnun og fundvís á æðri markmið og leið- ir. Þessi stefna gefur manninum og athöfnum hans því gjarnan guðlegar eigindir. En það er einmitt þetta sem getur komið í veg fyrir að sannleikurinn nái að brjótast fram og sigra illu öflin, öfl myrkursins. Það sem hindrar hughyggjuna í að miðla sannleikanum á trúverðugan hátt er, að margra mati, að hún kemst ekki lengra en að fegra það sem fyrir er og birtir þess vegna falska mynd af veruleikanum. Frelsandi sann- indi verða ekki leyst úr læðingi innan vébanda hughyggjunnar segja expressionistar. Frelsandi kærleikur Hvað er það sem leysir sannindin um frels- andi kærleika úr læðingi í þessum myndum og gerir þær trúverðugar sem listaverk? Leifur Breiðfjörð svarar því aldrei beint. Ég hef um- gengist hann í nokkur ár og hef ekki fengið svar, þótt ég viti að hann sé allur af vilja gerð- ur að leysa úr þessari þraut. Leifur er ekki beinlínis karismatísk persóna og ekki líklegur til að falla í trans á trúar- samkomum. Þeir sem ekki þekkja hann vel gætu haldið að áhugi hans væri takmarkaður við efnisleg fyrirbæri. Hann virðist bundinn við handverkið og tæknilega útfærslu og hefði, eins og forfeður hans, ábyggilega orðið góður uppfinningamaður. Stundum minnir höfuðið í myndum hans á kafara eða geimfara. Leifur hefði ábyggilega orðið góður landkönnuður. Það er eins og náðargáfa listamannsins hafi farið beint í fingur hans. Ég hef séð andann koma yfir hann og þá sést það bara á því hvernig hann hreyfir hendurnar. Leifur var í Skálholti að bíða eftir fólki sem vildi fá eiginhandaráritun hans á listverkabók hans með myndum úr Opinberunarbókinni. Andinn féll einnig yfir hann þar sem hann var með blað og blýant á djasstónleikum í Skál- holtskirkju vorið 2000. Á ótrúlegum hraða teiknaði hann hugmyndir sínar að nýjum lista- verkum. Það er sama hve oft maður spyr og hvernig maður spyr um raunverulegt inntak verka hans. Hann brosir sínu ljúfa og milda brosi og víkur sér glaðlega undan og breytir um um- ræðuefni, og víkur talinu gjarnan að einhverju sem hann veit að viðmælandinn hefur áhuga á. Eiginkona hans og náinn samstarfsmaður til margra ára, Sigríður Jóhannsdóttir sem einnig er kirkjulistamaður, hefur heldur ekki gefið skýr svör um þetta. En hún sagði mér frá atviki sem ég held að sé lykillinn að svarinu við spurningunni. Leifur var spurður í þaula af væntanlegum kaupanda verks um endanlega merkingu þess og hann færðist undan eins og vanalega, en sá fyrri gaf ekki eftir og varð ágengur. Leifur svaraði hon- um loks, svolítíð pirraður: „Æ, það má Guð vita.“ Listaverk Leifs lifna og fá merkingu fyrir trú þeirra sem njóta þeirra í kirkjunni. Hefð- bundnu sálmarnir eru ef til vill ekki alveg í sama takti og þessi listaverk, en í nýju sálma- bókinni eru lofsöngvar sem taka undir með þessum myndum. Þau skírskota sérstaklega til lofgjörðarinnar í upphafi messunnar. Í messunni, 8. desember, þar sem söfnuður- inn tók á móti nýja listaverkinu og þakkaði listamanninum var sunginn lofgjörðarsálmur eftir Sigurbjörn Einarsson sem vel á við and- ann í kirkjulist Leifs. Eftirfarandi vers flytur sama boðskap og glerlistaverið umrædda og er yfirskriftin Sigur lífsins: Vakna, lifna, lífið kallar, ljóssins ríki frelsarans, bróðurfórnin brúað hefur bilið milli Guðs og manns. Opna hjartað, elska, þjóna anda, vilja, kærleik hans. Listaverkið í glugganum og myndirnar á sýningunni lifna við þegar presturinn tónar eftirfarandi lofgjörð í upphafi þakkargjörðar- innar þegar kemur að altarissakramentinu: Sannlega er það maklegt og réttvíst, skyldugt og mjög hjálpsamlegt, að vér alla daga og á öllum stöðum lofum þig og þökkum þér, þú heilagi Drottinn, almáttugi faðir og eilífi Guð fyrir Jesú Krist Drottin vorn. Og þegar söfnuðurinn rís úr sætum og syng- ur Sanctus (heilagur) þá taka englarnir og postularnir undir: Heilagur, heilagur, heilagur ert þú, Drottinn, Guð allsherjar. Himnarnir og jörðin eru full af dýrð þinni. Hósíanna í upphæðum. Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins. Í krossmarkinu miðju er þyrnikórónan, eina táknið fyrir utan spjótið sem í raun minnir á þjáningar Jesú. En fyrir áhrif sólarinnar um- myndast þyrnikóróna þjáningarinnar í lífsins kórónu, sem minnst er á í Opinberunarbók Jó- hannesar. Það er þessi kóróna sem átt er við þegar fermingarbörnin fá blessun með orð- unum: „Vertu trú allt til dauða og Guð mun gefa þér lífsins kórónu.“ Kristur er ekki lengur á þessum krossi og hann er ekki í gröfinni heldur. Hann er hér meðal okkar, hér í kirkjunni og í hjörtum þeirra sem trúa. Og í messunni erum við ímynd – í mynd – hans. Heimildir 1 Guðbergur Bergsson 2002: Kyrr birta – heilög birta. Listasafn Kópavogs. S. 74. 2 Íslensk Hómilíubók. Fornar stólræður. Hið íslenska bókmenntafélag. Reykjavík 1993. S. 8–9. 3 Laugardaginn 7. desember 2002. Daginn eftir var glugginn helgaður af biskupi Íslands, Herra Karli Sig- urbjörnssyni, við hátíðarmessu að viðstöddu fjöl- menni. Þá var tíu ára vígsluafmæli kirkjunnar og við það tækifæri var ný kapella tekin í notkun. 4 Paul Tillich 1960: „Art and Ulitimate Reality.“ Cross Currents. A Quarterly Review. Vol X,1 AN OG TRÚIN élaginu Baldursbrá. Sköpun. Ein af myndum Leifs Breiðfjörð á sýningunni Sigur lífsins. Höfundur er prófessor í kennimannlegri guðfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.