Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.2003, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.2003, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 11. JANÚAR 2003 9 þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar losa foreldrarnir sig einfaldlega við þá, eins og sést í þriðju myndinni þar sem þau hafa verið vistuð á geðveikrahæli vegna stöðugra martraða. Syndir feðranna eru alltaf í sjónmáli sem sést best af því að unglingarnir súpa seyðið af morði foreldranna á Freddy Krueger og brengluð fjöl- skyldumynstur eru í miðdepli eins og í hníf- stungumyndum almennt. En það má velta því fyr- ir sér hvort Freddy sé persónugervingur þessara brengluðu fjölskyldumynstra, með hliðsjón af því að hann sundraði fjölskyldum í lifanda lífi, heldur því áfram eftir dauða sinn og skýtur alltaf upp kollinum þar sem eitthvað amar að fjölskyldulíf- inu. Foreldrarnir í myndunum standa fyrir utan heim barna sinna, nema þá helst þegar þeir standa í vegi fyrir hetjunum, með þá ætlun í huga að vernda börn sín en enda óvart með því að lið- sinna óvættinum Freddy á einhvern hátt. Ung- lingarnir ásamt skrímslinu og síðustu stúlkunni lifa eiginlega í öðrum heimi heldur en fullorðna fólkið eða gamla samfélagið eins og Vera Dika kýs að kalla það, sem venju samkvæmt stendur hjálp- arvana frammi fyrir ógninni. Þó má ekki gleyma því að morðingjar hnífstungumynda koma yfir- leitt aftan úr fortíðinni eins og áður hefur komið fram en það gerir að verkum að þeir verða aldrei hluti af unga samfélaginu, eins og Dika segir. Í Nightmare on Elmstreet myndunum eru ungmennin (að síðustu stúlkunni frátalinni) veik- ar persónur sem sést með þeim táknræna hætti að Freddy drepur krakkana í gegnum veikleika þeirra og bókstaflega gleypir sálir þeirra, en Dika kveður þær vera staðlaðar persónur sem gegna því hlutverki að láta drepa sig. Hún segir að ung- lingar hnífstungu-mynda séu aðlaðandi, orkufull- ir og hraustlegir og séu því mælikvarði á það sem telst vera eðlilegt gagnstætt afskræmdum og bil- uðum morðingjanum. Sú lýsing á þó ekki við í öll- um tilvikum um ungmenni Nightmare on Elm- street myndanna, en í númer þrjú og fimm eru þau ýmist taugaveikluð, þunglynd, ofsóknaróð og haldin sjálfstortímingarhvöt í kjölfars áfalla og eiga því kannski meira sammerkt með sjúkum morðingjanum heldur en ungmennum þeim sem Dika lýsir. Hvað sem því líður eru unglingar hnífstungu- mynda almennt sýndir sem kynferðisleg viðföng og eru Nightmare on Elmstreet myndirnar þar engin undantekning, en kynlíf í myndunum eða kynórar leiða oftast nær til dauða og eru hníf- stungumyndir oft uppfullar af slíkum atriðum. Yf- irleitt gerist það með þeim hætti að í þann mund sem ástarfundur ungu elskendanna rennur upp birtist morðinginn óvænt og reiðir (bit)vopn sitt til höggs og ungmennin sem eru reiðubúin til að taka á móti elskhuga sínum eru í staðinn sund- urrist eða stungin til dauða. Við það má bæta að í Nightmare on Elmstreet myndunum er unglingunum ekki aðeins refsað fyrir að stunda kynlíf eða að láta sig dreyma um það heldur einnig fyrir allt það sem kann að brjóta í bága við gildi feðraveldisins, s.s. sjón- varpsgláp, hreyfingarleysi og notkun ólöglegra fíkniefna. En einnig má líta á Freddy sem útvörð íhaldssamra afla sem refsar krökkunum þegar þau fara út af hinni beinu braut, enda er hann sí- fellt að innræta þeim einhver félagsleg gildi áður en hann drepur þau, s.s. að lærdómur sé hollur og að börn eigi að hlýða foreldrum sínum. En út frá kenningum James B. Twitchells mætti færa rök fyrir því að Nightmare on Elmstreet myndirnar sýni ungum áhorfendunum muninn á réttri og rangri hegðun, einkum þeirri er lýtur að kynlífi, og refsingarnar sem liggja við því að fara út fyrir leyfileg mörk. Draumameistarinn Það sem styður þá kenningu að kynlíf sé ban- vænt í Nightmare on Elmstreet myndunum er að síðasta stúlkan lifir af í ljósi þess að vera hrein mey. Hún er yfirleitt kynferðislega óvirk gagn- stætt frjálslyndum vinum sínum og kemur sér hvað eftir annað undan því að stunda kynlíf. Sem dæmi um það má nefna að Nancy lætur kærasta sinn sofa í öðru herbergi í fyrstu myndinni á með- an vinir þeirra stunda villt kynlíf í sama húsi. Kynlífsbindindið verður Nancy og kærastanum til lífs því sömu nótt er vinkona þeirra myrt af Freddy á hroðafenginn hátt og kærasti hennar skömmu síðar. Þá tákngerist kynferðislegur hreinleiki síðustu stúlkunnar í þriðju, fjórðu og fimmtu myndinni í þeim dulræna hæfileika til að hafa stjórn á eigin draumum og geta dregið aðra inn í þá, ekki ósvip- að og Freddy getur gert. Sá sem býr yfir þessum undramætti hlýtur nafnbótina draumameistarinn og í þessum þremur myndum er hann sá eini sem stendur Freddy jafnfætis og getur ráðið niðurlög- um hans. En fræðikonan Carol J. Clover segir í grein sinni „Her body, himself“ að hin uppsafnaða kynferðisspenna síðustu stúlkunnar nýtist henni í baráttunni við morðingjann. Samkvæmt Dika er síðasta stúlkan yfirleitt kynnt snemma til sögunnar í hnífstungumynd- unum og sker sig frá vinahópnum með ýmsum hætti. En glöggir áhorfendur koma fljótt auga á hana. Hún veitir t.d. minnstu hættumerkjum at- hygli á meðan vinir hennar eru ónæmir á þau. Hún er líka gáfuð og einstaklega úrræðagóð þeg- ar hún stendur loks frammi fyrir morðingjanum. Að mati Clover er mesti töggurinn þó í Nancy úr fyrstu Nightmare on Elmstreet samanborið við aðrar kvenhetjur, sem vitandi það að Freddy muni heimsækja hana leggur gildrur fyrir hann víðsvegar um hús móður sinnar. Þegar Freddy birtist fær hann það óþvegið og lýkur viðuregin þeirra með því að Nancy kveikir í honum. En slík útsjónarsemi hefur gjarnan verið talin til karl- legra eiginleika og því hafa margir fræðimenn bent á að síðasta stúlkan sé karlleg persóna. Clov- er telur nafngift kvenhetjanna m.a. styðja þá full- yrðingu, sbr. nöfn Marti úr Hell Night (1981), Switch úr The Texas Chainsaw Massacre 2 (1986) og Laurie úr Halloween . Margir fræðimenn, þ.á m. Clover, telja að af þessum og fleiri sökum séu síðasta stúlkan og morðinginn að mörgu leyti hliðstæður, hvort sem það er til marks um neikvæða stöðu kvenna innan hnífstungumynda eða jákvæða þróun á þessari kvenpersónu almennt. Að mati Clover má þó helst sjá þessa hliðstæðu af hlutverkaskiptum morðingjans og síðustu stúlkunnar sem verða þegar hún veitir honum mótspyrnu undir lokin. En það gerist gjarnan þegar síðasta stúlkan hefur læst sig inni eða kemst ekki út af einhverjum öðr- um ástæðum. Hún er því nauðbeygð til að snúa vörn í sókn og leggja til atlögu gegn morðingj- anum. Í því samhengi mætti t.d. nefna lokabar- daga sjöttu Nightmare on Elmstreet myndarinn- ar, þar sem Maggie er orðin innilokuð og kemst að því sér til mikillar skelfingar að hún er dóttirin sem var tekin frá Freddy í barnæsku. Skyldleik- inn með morðingjanum verður varla meiri. Í sama atriði tekur dóttirin hlutverk föðurins sér á herðar og ristir hann á hol með hans eigin morð- vopni, krumlunni, og þar með rennur hlutverk síðustu stúlkunnar fullkomlega saman við hlut- verk morðingjans. Vinsældir myndanna raktar Nightmare on Elmstreet myndirnar urðu óhemju vinsælar eins og sagði í upphafi og hafa ýmsar kenningar verið settar fram til að útskýra þær. Ian Conrich segir þær m.a. stafa af tækni- brellunum sem hafi sífellt orðið fyrirferðarmeiri eftir því sem leið á seríuna. Að hans mati ein- kenndist umræðan í kringum myndirnar sífellt meira um tæknibrellurnar einkum í tengslum við persónu Freddys Krueger, en þegar hann birtist á hvíta tjaldinu máttu áhorfendur búast við sann- kallaðri flugeldasýningu. Conrich bendir líka á að New Line Cinema sem framleiddi Nightmare on Elmstreet myndirnar hafi strax markaðssett krakkavarning þeim tengdum. Eitt af því sem sett var á markað fyrir börn var eftirlíking af hanska Freddys með til- heyrandi gervihnífum sem fáanlegur var í öllum helstu leikfangaverslunum Bandaríkjanna. Leik- fangið náði útbreiddum vinsældum og á hrekkja- vökudag árið 1988 mátti sjá börn á öllum aldri í gervi Freddys, kannski ekki ósvipað íslenskum börnum uppábúnum sem morðingja Scream (1996) af sama tilefni. Slagorð auglýsingaherferð- arinnar í kringum hanskann var: „þú getur líka orðið bastarður þúsund geðsjúklinga“, en í smáa letrinu stóð: „varúð: notist ekki í ofbeldisfullum tilgangi“ og líka „öruggt leikfang“. Conrich segir að börn hafi getað hringt í til- tekið símanúmer í Bandaríkjunum þar sem hægt var að hlusta á Freddy segja hryllingssögur og barnabók var hönnuð eftir fyrstu myndinni. Að sama skapi var Freddydúkka framleidd af hinu virta Matchbox-fyrirtæki í Bretlandi handa þriggja ára börnum og upp úr. Væri togað í spotta aftan á baki hennar heyrðist ýmist sagt: „dreymi þig vel“, „varaðu þig, Freddy er kominn aftur“ eða „verum vinir“. Dúkkurnar gengu út eins og heitar lummur. Til samanburðar má geta að allt ætlaði um koll að keyra þegar McDonald́s lét eft- irlíkingar af persónum Batman Returns (1992) fylgja barnaboxunum því myndin og persónur hennar þóttu of drungalegar og ofbeldisfullar og því alls ekki við hæfi barna! Svo lesendum sé fyllilega ljóst hversu árang- ursrík markaðsherferð New Line Cinema var bendir Conrich máli sínu til stuðnings á að lítil, sársjúk stúlka sem lá fyrir dauðanum hafi átt sér þá ósk heitasta að hitta Freddy Krueger og átti þá ekki við leikarann heldur hinn raunverulega Freddy. Robert Englund, sá sem lék barnamorð- ingjann, varð við beiðni aðstandenda hennar og mætti í fullum skrúða á líknardeild barnaspítal- ans þar sem hún lá. Litla stúlkan gat því sagt skil- ið við tilveruna sátt í bragði því hún hafði loks fengið að hitta átrúnaðargoðið sitt, ófreskju sem þreifst á því að slátra börnum og unglingum. Samkvæmt Veru Dika náðu hnífstungumyndir miklum vinsældum seint á áttunda áratugnum og í byrjun þess níunda vegna samfélagslegra um- róta í Bandaríkjunum, sem voru þá að sleikja sár- in eftir Víetnamstríðið, slæmt efnahagsástand og auk þess höfðu bandarískir þegnar verið teknir gíslingu í Íran. Þegar Reagan tók við forsetaemb- ættinu 1980 reyndi stjórn hans að stappa stálinu í bandarísku þjóðina með afturhvarfi til hefð- bundnari gilda í tenglsum við fjölskyldu, heimili og kristna trú. Áhersla var lögð á lífsgæðakapp- hlaupið og ákveðna þjóðfélagslega árásargirni, sem endurspeglaðist m.a. í pönkinu. Á þessum póstmóderníska tíma náði hnífstungumyndin ótrúlegum vinsældum, en eins og kom fram í upp- hafi telfdi hún saman efniviði eldri og nýrri mynda og var því táknræn fyrir þann hugmynda- lega hrærigraut sem hafði verið borin á borð fyrir almenning. Dika segir að bardagi morðingjans og síðustu stúlkunnar endurspegli helst þessi átök gamalla og nýrra gilda og því hafi þær höfðað sterklega til áhorfenda. M.ö.o. sýna myndirnar að ný lífsvið- horf þurfi til að komast af, s.s. fyrrnefndan sjálfs- aga, skýr markmið og árásargjarnt viðhorf, sem eru sömu gildi og bandaríska stjórnin innrætti þegnum sínum um svipað leyti. Myndirnar hafi útskýrt fyrir áhorfendum viss menningarleg átök sem áttu sér stað í bandarísku þjóðfélagi, sem minnir aftur á kenningar James B.Twitchells sem telur hryllingsmyndir búa yfir ákveðnu fræðslu- gildi. Loks má nefna að þær skýringar sem hér hafa verið nefndar til að útskýra vinsældir Nightmare on Elmstreet myndanna, þ.e. að þær stafi af tæknibrellum, markaðssetningu eða samfélags- legu umróti, eru í sjálfu sér engu betri en aðrar þótt það sé skemmtilegt að skoða þær. Það má al- veg eins velta því fyrir sér hvort vinsældir mynd- anna hafi einfaldlega ekki verið eðlilegt framhald á góðu gengi hnífstungumyndarinnar almennt, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur um heim all- an. A.m.k. hafi þær ekki sungið sitt síðasta því nú er von á þeirri áttundu og mun hún víst heita Freddy vs. Jason þar sem samnefndar persónur etja saman kappi. Greinilegt er að enn er eft- irspurn eftir Nightmare on Elmstreet myndun- um og kannski má því vænta þess að íslensk börn sjáist uppábúin sem illmennið Freddy Krueger á næstu hrekkjavöku. Höfundur er bókmenntafræðingur. EFNINN Freddy birtist í ýmsum gervum, t.d. sem matsveinn. Hér brýst Freddy út úr líkama fórnarlambsins með fyrirsjáanlegum afleiðingum. Í þessu atriði drepur drepur Freddy fórnarlambið með þeim orðum að lærdómur sé hollur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.