Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.2003, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.2003, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. JANÚAR 2003 M ARGAR stelpur,“ sagði dóttir mín á þriðja ári fyrir framan tvískiptan baðherbergisskápinn eitt kvöldið. „Ég vil sjá margar stelpur“. Ég opnaði þess vegna speglahurðirnar (sem minna á tvo fiðrildavængi) þannig að þær nálg- uðust hvor aðra – hjarirnar eru nefnilega fyrir miðju. Síðan tók ég hana í fangið, við hölluðum við okkur fram og stelpan litla sá sjálfa sig í tví- riti, síðan í fjórriti og loks í áttfaldri mynd þegar ég dró vængina alveg að vöngum hennar. Hún skríkti. Mér varð aftur á móti hugsað til fleygra orða Marshalls McLuhan The medium is the message. Þau má skilja (og misskilja) með ýms- um hætti. Sjálfur freistast ég til að túlka þau þannig að fjölmiðlar samtímans spegli ekki veru- leikann heldur sjálfa sig. Það er ekki þar með sagt að ég trúi á slíka kenningu. Fjölmiðlar eru auðvitað stöðugt að færa okkur myndir, hljóð og orð sem eiga upptök sín úti í hinum margbrotna veruleika. Á hinn bóginn verða þeir af og til uppteknir af sínu eigin hlutverki við miðlun veruleikans (dæmi: sjón- varpsútsendingar frá ráðhúsi Reykjavíkur kvöldið sem framtíð R-listans „hékk á bláþræði“) og mótun hans (dæmi: mat fjölmiðla á eigin frammistöðu í tengslum við mál Árna Johnsen). Og ef veruleikinn lætur á sér standa þá búa fjöl- miðlar hann bara til (dæmi: íslensk glanstímarit hafa skapað glansheim ríka og fræga fólksins á Íslandi). voru viðtöl við fjölmiðlafólk: Ingva Hrafn Jóns- son á Útvarpi Sögu og Sigríði Arnardóttur á Skjá einum. Í síðustu viku, þegar ég brá mér út í búð og sá mynd af Gísla Marteini og eiginkonu hans á forsíðu Mannlífs, fannst mér síðan að kenningin um fiðrildaspegilinn hefði verið endanlega stað- fest. Nú vantar bara að Jón Ólafsson fái ritstjóra Mannlífs í sinn frábæra þátt. (Ég gleymdi mér reyndar þarna í búðinni við að skoða umrædda forsíðu Mannlífs. Þar voru margar efnisfyrirsagnir og það tók mig stund- arkorn að átta mig á hver þeirra átti við bros- mildu hjónin í skjannahvítu skyrtunum á forsíðu- myndinni. Á skyrtubrjósti mannsins mátti lesa: „Bróðir minn misnotaði mig“, á hægri skyrtu- ermi konunnar stóð: „Fór í aðgerð við flogaveiki“ en þar fyrir neðan: „Brúðkaup til sölu“. Þessum ratleik, sem útlitshönnuður tímaritsins hafði vafalítið skipulagt í smáatriðum, lauk ekki fyrr en neðst á forsíðunni með fyrirsögninni: „HREIN OG BEIN“. Þá loksins þótti mér að orð og mynd pössuðu saman.) En þetta var útúrdúr. Allra skýrasta dæmið um þá spegilþörf fjölmiðlanna sem hér hefur ver- ið reifuð eru fjölmiðlapistlarnir sem birtast með reglulegu millibili í öllum prentmiðlum sem vilja láta taka mark á sér. Við lestur þeirra þykir manni sem að vængir fiðrildisins séu við það að leggjast saman. Nú vantar bara að í einhverjum þeirra sé fjallað um efni og eðli fjölmiðlapistla. Þá sannaðist endanlega hið fornkveðna: Fjöl- miðlar segja sig sjálfir. Að auki kemur fyrir að fjölmiðlar gleymi sér skríkjandi fyrir framan eigin spegilmynd. Ég tók til dæmis eftir því á haustdögum að nokkra laug- ardaga í röð var einn af þremur viðmælendum í viðtalsþætti Gísla Marteins Baldurssonar í Sjón- varpinu einhver annar starfsmaður Ríkisút- varpsins (m.a. sjónvarpsþáttastjórnandinn Jón Ólafsson). Það vakti með svipuðum hætti athygli mína þegar tvö af fjórum viðtölum sem Magasín- útgáfa DV sló upp á forsíðu um miðjan janúar FJÖLMIÐLAR FIÐRILDASPEGILLINN A l l r a s k ý r a s t a d æ m i ð u m þ á s p e g i l þ ö r f f j ö l - m i ð l a n n a s e m h é r h e f - u r v e r i ð r e i f u ð e r u f j ö l m i ð l a p i s t l a r n i r s e m b i r t a s t m e ð r e g l u - l e g u m i l l i b i l i í ö l l u m p r e n t m i ð l u m s e m v i l j a l á t a t a k a m a r k á s é r . V i ð l e s t u r þ e i r r a þ y k i r m a n n i s e m a ð v æ n g i r f i ð r i l d i s i n s s é u v i ð þ a ð a ð l e g g j a s t s a m a n . J Ó N K A R L H E L G A S O N raun til þess að skapa þessum fyr- irtækjum tækifæri til þess að hafa höfuðstöðvar sínar nálægt mið- bænum. [...] Ein velheppnuð menningarnótt á ári hefur lítil áhrif á rekstur fyrir- tækja í miðbænum – ekki frekar en að ein þjóðhátíð á ári hefur gert Herjólfsdal í Vestmannaeyjum að ið- andi verslunarmiðstöð. Miðbærinn er í vanda og ef fram fer sem horfir, þar sem engin raunveruleg úrræði virðast koma frá meirihlutanum, þá mun miðbærinn verða að því „draugabæli“ sem Kornelíus kaup- maður talar um. Til þess að miðbær- inn þrífist þarf hann fólk og til þess að fólk sæki í miðbæinn þarf versl- anir og fyrirtæki. Á meðan stjórn- völd í Reykjavík nenna ekki að glíma við þetta viðfangsefni af alvöru þá dregur úr líkunum á því að nokkru sinni verði hægt að snúa þessari þróun við. Þórlindur Kjartansson Deiglan www.deiglan.com Í SÍÐUSTU borgarstjórnarkosningum lagði Sjálfstæðisflokkurinn mikla áherslu á uppbyggingu miðbæjarins og varaði við þeim vanda sem versl- unar- og fyrirtækjaeigendur á því svæði þurfa að glíma við. Meirihlut- inn í R-listanum bendir hins vegar á Menningarnótt sem dæmi um hversu vel gangi að halda lífi í þessum gamla kjarna höfuðborgarinnar. Þegar skyndibitakeðjan McDonald’s hætti rekstri í miðbæ höfuðborgar- innar skömmu fyrir áramót vakti það ekki mikla athygli. Þó má fullyrða að sú staðreynd að þessi frægasta skyndibitakeðja heims sjái sér ekki fært að reka lítið útibú í Austurstræti segi meira en mörg orð um þá þró- un sem á sér stað í miðborginni. [...] Ljóst er að forsenda blómlegs lífs í miðbænum er ekki síst að nokkur hópur fólks sæki þangað sín dag- legu störf og það er í raun dapurlegt að sjá að á síðasta áratugi þegar vegur þjónustufyrirtækja, s.s. eins og fjármálastofnanna, hefur farið sí- vaxandi, hefur ekki verið gerð til- Morgunblaðið/Golli Kuldi. „DRAUGABÆLI“ Í BORG I Enn ber höfundarhugtakið á góma í umræðumum bókmenntir. Nú í doktorsriti Ármanns Jak- obssonar um Morkinskinnu sem hann skoðar sem heildstætt bókmenntaverk, samið í kringum árið 1220 af höfundi með, að því er virðist, sterka sjálfs- vitund og mikinn áhuga á því hvernig sögur eru sagðar. Þótt Ármann bendi ekki á holdgerving höf- undarins, eins og fræðimenn stunduðu lengi vel með misjöfnum árangri, þá er þetta merkileg nið- urstaða. Hún sýnir að íslensk sagnaritun á miðöld- um var annað og meira en hugsunarlaus end- urritun eða skrásetning á munnmælum og eldri textum. Í viðtali í Lesbók í dag bendir Ármann samt sem áður á að menn séu almennt sammála um að höfundar miðalda hafi fyrst og fremst verið safnarar, þeir settu saman sögur úr eldri sögum. II Í gagnrýni sem birtist í Lesbók fyrir viku héltGísli Sigurðsson því fram að erfitt væri að segja til um hvenær sú Morkinskinna sem við þekkjum í dag væri saman sett vegna þess að „textar voru í stöðugri mótun og endurvinnslu í skrifarastofum miðalda.“ Þar sem handritið sem við styðjumst nú við er frá 1280 þá sé vafasamt að líta svo á að það sé samhljóða þeirri Morkinskinnu sem Ármann sem skapast milli þess sem skrifar hana og þess sem les hana. Höfundurinn tilheyrir verkinu en honum tilheyrir einungis bók, þögult safn ófrjórra orða – ómerkilegasti hlutur í heimi. Höfundur sem upp- lifir þessa vöntun telur sér trú um að verkinu sé ólokið og hann heldur að með svolitlu átaki, nokkr- um vel vörðum stundum, geti hann lokið því. Hann tekur því aftur til starfa. En verkið sem hann vill klára upp á eigin spýtur reynist engan endi ætla að taka; endirinn er tálmynd vinnu hans. Á endanum ber höfundurinn ekki kennsl á verkið. Það umlykur fjarveru hans eins og hin ópersónulega og nafn- lausa staðfesting sem það er – og ekkert annað. Þetta er átt við þegar sagt er að höfundurinn, sem klárar ekki verk sitt fyrr en hann deyr, þekki aldrei verk sitt. Það ætti kannski að snúa þessari at- hugasemd við, því er höfundurinn ekki dauður um leið og verkið verður til? Hann fær stundum hug- boð um það sjálfur, þá tilfinningu að vera sífellt undarlega verklaus. IV Blanchot vildi með öðrum orðum halda þvífram að verk yrði ekki til fyrr en höfundurinn hefði sleppt af því hendinni og einhver annar kæmi að því í skapandi athöfn eins og lestri eða túlkun. segir að hafi verið sett saman um 1220. Hér er ekki ætlunin að skerast í deilur um uppruna Mork- inskinnu. Þær eru aftur á móti ákaflega skemmti- legar í ljósi þeirra hugmynda sem fræðimenn hafa gert sér um höfunda nútímans. IIIMaurice Blanchot, sem var franskur bók-menntafræðingur og rithöfundur, sendi frá sér áhrifamikla bók er heitir L’Espace littéraire eða Rými bókmenntanna árið 1955. Í henni er að finna þessa röksemdafærslu: Höfundur skrifar bók og bók getur aldrei verið neitt annað en takmark- aður heimur í innri fullkomleika sínum. Bók er því aldrei kláruð eða ókláruð, hún getur ekki verið full- klárað verk, hún getur heldur ekki verið verk í framkvæmd, hún getur aðeins verið. Og vegna þess að bók getur ekki haft neinn endi eða orðið full- klárað verk þá getur hún heldur ekki byrjað, hún á sér ekkert upphaf, hún er aðeins framhald eða end- urtekning. Þegar höfundur setur punktinn fyrir aft- an síðustu setninguna hefur hann klárað bók en ekki verk, og næst þegar hann stingur niður penna heldur hann áfram að skrifa þessa bók, oft af meira innsæi en stundum í dauflegri endurtekningu. Bók höfundarins verður ekki að verki fyrr en í nándinni NEÐANMÁLS FYRSTA skáldsaga bandaríska rithöfundarins DBC Pierre, Vernon God Little, fær góða dóma hjá gagn- rýnanda Guardi- an sem líkir kald- hæðnum húmor Pierre við fyrstu þætti Southpark- teiknimyndaserí- unnar. Sagan segir frá 15 ára Texasbúa Vernon Little og hefst í kjölfar þess að besti vinur Vern- ons hefur í eiturlyfjavímu myrt fjölda menntaskólanema og framið svo sjálfsmorð. Í Vernon God Little tekur Pierre á mál- efnum á borð við dauðarefsingu, fjöldamorð, vald fjölmiðla og það þjóðfélag sem sífellt leitar að blórabögglum. Að mati Guardian sýnir bókin fátækari þjóðfélags- hópa Texas og þau vandamál sem þeir takast á við á einkar raunhæfan en jafnframt fyndinn hátt. Hustvedt tekst á við hugmyndir BÓK Siri Hustvedt What I Loved, eða Það sem ég elskaði, er eins konar skáldsaga hugmynda. Þar tekst höfundurinn á við hug- myndir á borð við hversu mikið af því sem við skynjum er per- sónulegt og hversu miklu af því við deilum með öðrum, hversu mikið á sér fastan punkt í tilver- unni og hversu mikið er líklegt til að breytast. Söguna skrifar höfundur um margt líkt og gagn- rýnandi en hún metur, skoðar og túlkar í skrifum sínum. What I Loved gerist að miklu leyti með- al persóna sem eyða miklum hluta tíma síns í listagalleríum SoHo-hverfisins í New York og eru svo uppteknir af því að túlka líf sitt að lítill tími virðist vera eftir fyrir þá að lifa því. Ævisaga Beethovens HARVARD-prófessorinn og Beethoven-fræðingurinn Lewis Lockwood hefur sent frá sér ævi- sögu tónskáldsins Ludwigs van Beethovens, sem nefnist Beet- hoven – The Mus- ic and the Life, eða Beethoven – tónlist hans og ævi. Bókin er ít- arleg og tekur bæði á ævisögu tónskáldsins, þjóðfélags- aðstæðum á þeim tíma sem og rannsóknum á tónlist hans, en Lockwood hefur eytt miklum tíma í rannsóknir sínar. Að mati New York Times er erfitt að finna verk sem fjallar um ævi skáldsins á jafnítarlegan hátt. Óðir Hórasar SAFNRITIÐ Horace – the Odes: New Translations by Contemp- orary Poets, eða Hóras – Óðir: Nýjar þýðingar eftir samtíma- skáld fær afbragðs dóma hjá Daily Telegraph, sem segir þá hugmynd J.D. McClatchy, rit- stjóra bókarinnar, að fá hóp skálda til að þýða Hóras á ný verulega góða. En samsafn óða Hórasar, líkt og biblían, hefur lengi vel verið þýtt af nefndum. Að mati blaðsins er hæfni skálds- ins við að beita fyrir sig orðum með litlum blæbrigðamun hins vegar slík að það þarf á stundum næmt eyra til að nema muninn. Aðferð McClatchy að nota ólíkar þýðingar skáldanna í einni bók er til þess besta lausnin að mati gagnrýnandans sem segir verkið færa lesendur jafnnærri skrifum Hórasar sjálfs og hægt sé. ERLENDAR BÆKUR Kaldhæðin kómedía DBC Pierre Lewis Lockwood

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.