Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.2003, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. FEBRÚAR 2003 15
sem ekki eru lengur okkar í pappírsverkum
Andrew Child, söknuður eftir mannlegri ná-
lægð í verkum Birgis Snæbjörns og í mann-
auðum málverkum Miles Henderson Smith, en
verk Tom Merry aðskilja sig frá hinum með því
að í þeim birtist einmitt sterk mannleg nálægð.
Sýningin er að vissu leyti góð svo langt sem
hún nær, mér finnst hún að einhverju leyti vera
afturhvarf til liðinna tíma, þegar það var sjálf-
sagt að það sem listamenn gerðu var að búa til
hluti/myndir og sýna í þar til gerðum sýning-
arsölum og kveikja með þeim ýmsar tilfinn-
ingar hjá áhorfendum. Á einhvern hátt finnst
mér hér vera sniðgengin sú þróun sem átt hef-
ur sér stað innan myndlistar á síðustu áratug-
um og spurningum um stöðu og stað myndlist-
arinnar í samfélaginu ekki vera svarað. Þrátt
fyrir að ekkert sé út á verkin að setja sem slík
sakna ég dirfsku, áræðis og áhættu á sýning-
unni í heild. Hér stekkur enginn án fallhlífar en
þurfa listamenn ekki stundum að gera það?
Áræði er frekar að finna í einstökum verkum,
eins og málverkum Birgis Snæbjörns.
Náttúrusýnir
Ingimars Waage má nú sjá í Galleríi Skugga
við Hverfisgötu. Hann sýnir þar olíumálverk af
íslensku landslagi. Afturhvarf til fortíðar fyrir
módernisma er ekki nýtt af nálinni í málaralist,
meðfram hinu póstmóderníska tímabili í listum
kom fram stefna sem kennd var við nýklassík
þar sem listamenn sóttu í málarahefðir fyrri
alda og blönduðu myndefnið gjarnan nú-
tímamótífum samkvæmt blöndunaraðferðum
póstmódernista sem gjarnan settu margar stíl-
tegundir saman í eitt verk. Ég myndi þó frekar
skilgreina málverk Ingimars Waage út frá
hreinni málaragleði og vissri fegurðarþrá.
Myndum á sýningunni má gróflega skipta í
þrennt. Miðstórar myndir með brúnleitum lit-
um eru ágætlega unnar. Þær eru tiltölulega
óraunverulegar, eins og annars heims, en það
er ekki alveg ljóst hver sá heimur er. Þær
minna á skráningu ferðamanna fyrri alda á ís-
lensku landslagi, þannig eru brúnleitir litir
ríkjandi, litir sem eiga meira skylt við gulnun
pappírs með aldrinum en landslagið sjálft.
Ástæðuna fyrir þessu litavali þyrfti listamað-
urinn kannski að skilgreina nánar fyrir sjálfum
sér og öðrum, en þeirri spurningu er ekki svar-
að á sýningunni. Texti í sýningarskrá hefði get-
að hjálpað áhorfendum hér en textinn sem
Hannes Lárusson birtir á einblöðungi er hroð-
virknislega unninn og sýningunni varla til
framdráttar.
Síðan eru það smærri myndir sem eru í litum
nær raunveruleikanum, þær eru yfirhöfuð vel
gerðar og ná að vera fallegar án þess að vera
sætar. Loks eins konar eldfjallainnsetning í
kjallaraherbergi, einnig þar eru smærri mynd-
ir vel unnar en þær stærri eru óöruggari. Ingi-
mar kemur hér fram með nýja landslagssýn, í
kjölfar Georgs Guðna, Húberts Nóa og fleiri.
Hann á þó án efa eftir að móta sér ákveðnari
stefnu.
THEN er nafn á hópi sex karlkyns lista-
manna af evrópskum uppruna. Markmið hóps-
ins er að sýna, gefa út og ræða málefni sem við-
koma samtímalistum og lífinu, eins og stendur í
formála bæklings með sýningum þeirra. Þeir
gefa then margræða merkingu, það vísar til
menningararfsins, listasögunnar og þeirrar
byrði sem hún er listamönnum í dag, sérstak-
lega málurum, þeir segja then fjalla um mis-
munandi tíma, sýn, hugsun og tilfinningar,
fjalla um breytingar. Þeir leggja áherslu á
meginland Evrópu sem sögulega uppsprettu
listrænna framkvæmda fram á þennan dag.
Sýningin á Kjarvalsstöðum er í nokkuð góðu
samræmi við þessar yfirlýsingar hópsins.
Fimm listamannanna vinna með málverk á
einn eða annan hátt.
Ljóshærðir hjúkrunarfræðingar hafa verið
meginmyndefni olíumálverka Birgis Snæ-
björns Birgissonar á síðastliðnum árum. Frá
því að mála fyrst og fremst hjúkrunarkonur
hefur Birgir fært sig yfir í líkamshluta, tól og
tæki. Í þeim myndum færist viðfangsefnið nær
áhorfandanum, færist frá því að vera að ein-
hverju leyti skráning á ákveðnu fyrirbæri í
samfélaginu yfir í að snerta áhorfandann beint
og skapa tilfinningalega spennu. Líkaminn,
sársauki, snerting, hinn vélræni þáttur verða í
aðalhlutverki og einnig það hvernig samfélagið
og við öll reynum sífellt að breiða yfir sársauk-
ann. Birgir sýnir mæta vel hvernig afmarkað
viðfangsefni getur stækkað og dýpkað eftir því
sem unnið er lengur með það.
Gísli Bergmann er einnig íslenskur þótt ekki
hafi hann alist upp hér á landi en hann fluttist
með foreldrum sínum til Ástralíu þegar hann
var ungur að aldri. Viðfangsefni Gísla í mál-
verkum þeim sem hann sýnir hér eru minn-
ingar. Gísli vinnur í meginatriðum fígúratíft en
þó er sterkur óhlutbundinn strengur í mynd-
unum. Titlar myndanna kveikja ímyndunarafl
áhorfandans og fá hann til að túlka myndefnið á
ákveðinn hátt, lesa mannsmyndir, fjöll og hús
úr oft óljósum formum. Sumar myndanna eru
unnar í nokkrum lögum, þannig er stundum
eins og málað hafi verið yfir hluta myndar, það
sem ekki sést segir þá kannski meira en hitt.
Málaralistin er uppspretta verka
Andrew Child sýnir lítil útskorin verk úr
pappa, unnin upp úr landslagsmálverkum frá
átjándu öld, til dæmis útskorinn trjálund. Þessi
verk eru afar fallega unnin og merkilegt hvað
hugsun upprunalega verksins, að sýna mynd af
náttúrunni sem dásamlegri paradís, skilar sér.
Hér sameinast óður til málaralistar fyrri alda
nútímalegri hugsun listamanna sem leita fanga
jafnt í listasögunni sem annars staðar.
Myndefni þýskfædda listamannsins Stefan
Bottenberg og hins enska Miles Henderson
Smith eru bæði af byggingarlegum toga þótt
ólík séu. Verk Bottenberg eru fínleg að gerð en
hann bæði málar og saumar út. Viðfangsefni
hans eru fyrirbærið einbýlishús, garðkofi,
blokk og fleira í þeim dúr. Hann einangrar
myndefnið og aðskilur það frá umhverfi sínu en
notar um leið aðferðir og myndefni sem tengj-
ast þeirri alþýðumenningu sem er ríkjandi í
löndum Norður-Evrópu. Nálgun hans er fyrst
og fremst við útlit og yfirborð en þegar áhorf-
andinn skoðar verkin vakna tilfinningar sem er
ekki lengur á valdi listamannsins að stjórna.
Miles Henderson Smith sýnir bæði málverk
og pappamódel, í verkum sínum notar hann
form raunverulegra bygginga og byggir á hug-
myndum um borgarskipulag en þó sýna verk
hans ekki raunverulega staði heldur hugmynd-
ir um staði. Hann notar stærðarhlutföll
skemmtilega í verkum sínum, bæði í þorpinu á
gólfi Kjarvalsstaða og í módeli í Gryfju ASÍ.
Minningar eru einnig viðfangsefni
Tom Merry sýnir verk úr ýmsum efnum,
mestmegnis byggð á fjölbreyttri mannlífsflóru
og sterku ímyndunarafli en sjálfur vísar hann í
bókmenntir og þá sér í lagi töfraraunsæi sem
eina uppsprettu verka sinna. Verk hans eru
dulúðug og dálítið óhugguleg, þau vísa sterkt í
súrrealisma og einnig detta mér í hug þeir fjöl-
mörgu listamenn sem sóttu í frumstæða list á
fyrri hluta tuttugustu aldar. Hann hefur sterka
sýn á viðfangsefni sín og skapar eftirminnileg-
ar fígúrur sem minna á fjölbreytni mannlífsins,
leyndardóma mannfólksins og mismunandi
menningarsvæða.
Í ágætis bæklingi sem unninn er með sýning-
unni fjallar heimspekingurinn Jonathan
Dronsfield um sýninguna og stað listaverk-
anna, hvað, hver og hvar hann er. Mér virðist
hann leggja áherslu á þá staðreynd að á yf-
irborðinu vísi verkin á sýningunni til ákveðins
raunveruleika, vísi til minninga, atburða, staða.
En í raun séu verkin aðeins þau sjálf, atburð-
urinn, staðurinn sem vísað er til verði til í huga
áhorfandans þegar hann mætir verkinu, stað-
inn sé að finna í listaverkinu sjálfu, ekki utan
þess. Hann heldur því fram að listaverkið skapi
staðinn, að einhverju leyti a.m.k., kannski sem
mótvægi við þær hugmyndir sem hafa verið of-
arlega á baugi síðustu áratugi, að listaverkið sé
aðeins til í samhengi við umhverfi sitt.
Þessi hugmynd gengur þó mjög vel upp á
sýningunni á Kjarvalsstöðum sem er lifandi,
fjölbreytt og vel heppnuð, verkin vega hvert
annað upp ef eitthvað er. Þessi tilfinning, að
listamaðurinn gefi eitthvað í skyn sem áhorf-
andinn lýkur svo við, er þar sterkt til staðar.
Sýningin í ASÍ er síður heppnuð. Nafngiftin,
nýleg kynni, bendir til að hér hafi kannski verið
vonast til að skapa eitthvað nýtt, kannski á
grundvelli sýningarinnar á Kjarvalsstöðum eða
í samspili við umhverfið. En verkin í Ásmund-
arsal ná sér ekki alveg á strik, þau bæta litlu
við. Í Gryfju tekst þó að skapa fallega heild.
Þrátt fyrir jákvæða upplifun af sýningunni
er ekki laust við að mér finnist einhver konar
nostalgíu gæta í verkum þessara listamanna,
að minnsta kosti þegar þeir sýna saman. Hér er
kannski efnistökum um að kenna en þegar sýn-
ingin er skoðuð er líkast því að við búum í
ótæknivæddum heimi, að myndum Birgis Snæ-
björns undanskildum, en á þessari sýningu eru
það þau verk sem sterkast kallast á við samtím-
ann. Þetta er atriði sem ekki er áberandi þegar
verk hvers og eins þeirra eru skoðuð út af fyrir
sig en þegar þau koma saman vekur það spurn-
ingar. Það er yfir sýningunni einhver saknaðar-
tilfinning eftir liðnum tíma. Í málverkum Gísla
Bergmann, í tómleika húsanna sem Stefan
Bottenberg birtir, þrá eftir draumum fortíðar
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir
Til 2. mars. Sýningin er opin alla daga
vikunnar frá kl. 10–17.
THEN 4, MINNI FORMA
BLÖNDUÐ TÆKNI, ANDREW CHILD, BIRGIR SNÆ-
BJÖRN BIRGISSON, GÍSLI BERGMANN, MILES HEND-
ERSON SMITH, STEFAN BOTTENBERG OG TOM
MERRY
Eitt landslagsverka Ingimars Waage
.
Frá sýningunni then 5 ... nýleg kynni.
Ragna Sigurðardóttir
AÐ STÖKKVA –
MEÐ EÐA ÁN FALLHLÍFAR?
Listasafn ASÍ, Ásmundarsalur við
Freyjugötu
Til 16. febrúar. Sýningin er opin frá kl.
13–17 alla daga nema mánudaga.
THEN 5, NÝLEG KYNNI
SAMI HÓPUR OG Á KJARVALSSTÖÐUM
Gallerí Skuggi við Hverfisgötu
Til 16. febrúar. Sýningin er opin frá kl.
13–17 alla daga nema mánudaga.
MÁLVERK, INGIMAR WAAGE
Frá sýningunni then 4 ... minni form.
MYNDLIST
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Smáverk 36
listamanna. Til 9.2.
Gallerí Skuggi: Ingimar Waage. Til
16.2.
Gerðarsafn: Franskar og belgískar
teiknimyndir fyrr og nú. Til 23.2.
Gerðuberg: Ljósmyndasýning frá Bau-
haus. Til 23.2.
Hafnarborg: Akvarell Ísland 2003. Til
17.2.
Hallgrímskirkja: Aðalheiður Valgeirs-
dóttir. Til 1.3.
Hús málaranna, Eiðistorgi: Samsýning
sjö málara. Til 2.3.
i8, Klapparstíg 33: Haraldur Jónsson.
Undir stiganum: Jón Sæmundur Auð-
arson. Til 8.3.
Listasafn Akureyrar: Aftökur og út-
rýmingar. Til 9.3.
Listasafn ASÍ: Alþjóðleg samsýning sex
listamanna: then, hluti 5. Til 16.2.
Listasafn Borgarness: Hubert Dobr-
zaniecki. Til 26.2.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Ragna Róbertsdóttir,
Mike Bidlo og Claude Rutault. Til 16.3.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmund-
arsafn: Sýningaröðin Kúlan – Tumi
Magnússon. Til 16.2.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Diane
Neumaier og Christos Chrissopoulos.
Til 9.3.
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir:
then, hluti 4 – minni form. Til 2.3.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And-
litsmyndir og afstraksjónir. Til 30.3.
Mokkakaffi: Friðrik Tryggvason. Til
15.2.
Norræna húsið: Senja Vellonen. Til 9.2.
Ungir norrænir hönnuðir. Til 2.3.
Nýlistasafnið: Hlynur Hallsson, Finnur
Arnar Arnarson og Jessica Jackson
Hutchins. Til 23.2.
Þjóðmenningarhúsið: Íslandsmynd í
mótun – áfangar í kortagerð. Handritin.
Landafundir. Skáld mánaðarins: Þór-
arinn Eldjárn.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Borgarleikhúsið: Myrkir músíkdagar:
Spunahópur Síbyl Urbancic – Voces
spontane. Kl. 14.
Ráðhús Reykjavíkur: Stórsveit Reykja-
víkur og Lasse Lindgren. Kl. 16.
Íslenska óperan: Macbeth, lau. 19.
Sunnudagur
Salurinn, Kópavogi: KaSa-hópurinn.
Tónleikaspjall: Karólína Eiríksdóttir.
Kl. 16.
Tónleikahúsið Ýmir: Myrkir mús-
íkdagar: Hljómeyki. Kl. 20.
Mánudagur
Seltjarnarneskirkja: Myrkir mús-
íkdagar: Blásarasveit Reykjavíkur. Kl.
20.
Þriðjudagur
Íslenska óperan: Hulda Björk Garð-
arsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir og
Iwona Ösp Jagla. Kl. 12.15.
Miðvikudagur
Salurinn, Kópavogi: Myrkir mús-
íkdagar: Raftónleikar. Kl. 20.
Ýmir: Una Sveinbjarnardóttir, og Anna
Guðný Guðmundsd. Kl. 20:30.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja: Myrkir músíkdagar:
Eyþór Jónsson orgel. Kl. 20.
Háskólabíó: SÍ. Einleikarar: Judith
Ingólfsson, Bryndís Halla Gylfadóttir
og Vovka Ashkenazy. Stj. Thomas Kalb.
Kl. 19:30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Með fullri reisn, lau. Jón
Oddur og Jón Bjarni, sun. Með fulla
vasa af grjóti, sun. Allir á svið, frums.
fös. Rakstur, lau., fös. Karíus og Baktus,
sun. Veislan, fös.
Borgarleikhúsið: Stígvélaði kötturinn,
frums. lau. Sól og Máni, lau., fös. Sölu-
maður deyr, sun. Honk! sun. Kvetch,
sun. Maðurinn sem hélt að konan hans
væri hattur, lau., fim. Rómeó og Júlía,
fös.
Iðnó: Beyglur, lau., fös. Hin smyrjandi
jómfrú, sun.
Nasa: Sellófon, lau., fim., fös.
Nemendaleikhúsið, Sölvhólsgötu:
Tattú, lau.
Möguleikhúsið: Snuðra og Tuðra, fös.
Prumpuhóllinn, mið.
Leikfélag Kópavogs: Hljómsveitin, sun.
Leikfélag Akureyrar: Hversdagslegt
kraftaverk, lau., sun., fös.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U