Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.04.2003, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 26.04.2003, Qupperneq 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. APRÍL 2003 Í LÍFINU er stundum tími til að segja og líka tími til að þegja. Nú er kuldinn kominn og fallega vetrarbirtan. Svo nú er tími til að segja. Sestu því niður, kæri lesandi, og gefðu þér tíma til að lesa … Einu sinni var eyja norður í höfum. Ótrúlegt og ungt land sem myndaðist á síðustu fjórum mínútum ef litið er á sögu Jarðarinnar sem 24 klukkutíma. Land gert af vatni, vindi, lofti og óspjallaðri náttúru. Einstakt land í heiminum. Þetta skildu víkingarnir sem vildu búa þar til að njóta landsins og frelsisins sem það bauð upp á. Á þeim tíu öldum sem liðnar eru síðan þetta land byggðist hefur ekkert náð að út- rýma Íslendingum eða eiginleikum þeirra. Hvort sem um var að ræða eldgos, jarð- skálfta, hungursneyð, kulda, sjúkdóma, eða trúarstríð lifðu Íslendingar í landi sínu sem … Íslendingar! En það hefur ekki tekið nema tíu ár af pen- ingum, alþjóðavæðingu og ferðaþjónustu til að eyðileggja sál landsins. Skrýtin framtíð Hvað er í gangi hér á landi? Ætlum við að segja …: „Bless, Ísland! Þú varst land eitt. Þú varst hreint, ósnert. Þú varst fallegt og óspjallað eins og fyrsti dagur heimsins. Þú varst landið mitt. En nú er allt búið. Bless, Ís- land …“? Hingað og ekki lengra! Já, tími er kominn til að opna augun og tala hreint út. Leggjum við meira á okkur til að vernda bíla, jeppa, ferðamenn og peninga en landið, líf okkar og framtíð barnanna okkar? Bless, Ísland? Verðurðu „bara“ land, bragðlaust og litlaust, eins og hvaða land sem er í Evrópu? Jón Sigurðsson snýr sér í gröf sinni. Í gegnum aldirnar skópu víkingarnir sér líf á Íslandi, aðlöguðust landinu og urðu því Ís- lendingar. En nú er dagskipunin sú að laga landið að fólkinu og tíðarandanum, að breyta reglum og gildismati og skora skynsemina á hólm. Einungis til þess að gleðjast yfir eigin ágæti og hreykja sér hátt. Til hvers? Til að upphefja vald mannsins og brjóst kvennanna? Vá! Framför? Blöðin eru fyllt með hneykslisfréttum, slys- um og ljósmyndum af skemmtistöðunum til að fylla póstkassana – og tóman hugann? Er Ís- land ekki lengur öðruvísi? Er sál þjóðarinnar sofandi? Hingað og ekki lengra! Framhaldslíf eyjar Hættur slíks þjóðfélags voru mikið ræddar í Evrópu í kringum 1980. Franski lýðfræðingurinn Alfred Sauvy, ráð- gjafi forseta og ráðherra, talaði mikið um „laxisme“ þ.e. þá stefnu að allt megi og engar reglur gildi. Ekki má lengur segja „nei“ eða „má ekki“. Er þetta það sem koma skal á Ís- landi? Í lagi með Sálinni hans Jóns mins segir: „Ég er bara ég, þú ert bara þú …“ Já, svona er lífið. En lífið í dag er því miður öðruvísi: „Ég er svo mikið ég, þú ert bara þú …“ Er í tísku að sjá ekki, virða ekki? Má ekki segja „má ekki“? Ég er ég. Það eitt skiptir máli. Nú eru komin til landsins þau systkin óþolinmæði, fyrirlitning, ofbeldi og eigingirni, þau eru orð- in íslenskir ríkisborgarar? Hungursneyð og drepsóttir voru hvorki verri né hættulegri. Eigingirni getur drepið eyju. Og fólk. Ætlum við að verða hrædd? Segjum „Nei“ öll sam- taka. Umferðin er gott dæmi, talað hefur verið um að vegirnir séu of þröngir, bílarnir hættu- legir og einnig veðrið, árnar og hálkan. Þegar maður vill ekki sjá réttu ástæðuna er einfalt að finna afsökun. Er líka í tísku að keyra hraðar og hraðar án þess að hugsa? Hver þorir að segja sannleikann? „Bara ökumenn eru hættulegir!“ Spurningin er: „Hraðann eða lífið? Eigingirni eða samábyrgð?“ Vissulega vitum við að 95% af slysum er hægt að forð- Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fólksbílahimnaríki í Þórsmörk? Viljum við það? BLESS, ÍSLAND? HING- AÐ OG EKKI LENGRA! E F T I R H E N R I A . P R A D I N Er komið að því að kveðja það Ísland sem við höfum þekkt? Hreint og fallegt og óspjallað. Í þessari grein eru landsmenn hvattir til að leiða hugann að verndun íslenskrar náttúru.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.