Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.2003, Side 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 2003
R
IGNINGARSUDDI og Banka-
strætið sundurtætt. Í útlendum
borgum göngum við sums staðar
á fornminjunum, á Íslandi er
stöðugt verið að skapa, og end-
urskapa. Hér má ekkert verða of
lúið, of markað af mannlífi og
menningu, ekkert vera endan-
legt, ekkert verða klassískt. Iss, íslensk eldfjöll
eru ekkert á við eldfjöllin í einstaklingunum. Allt-
af að, lúsiðnir, og þegar ekkert sérstakt liggur
fyrir, er málið bara að tæta upp gamalt drasl og
byrja að skapa upp á nýtt.
Sigur Rós – ekki heiglum hent að ná þeimsaman í viðtal, alltaf að – lúsiðnir, alltaf aðskapa. Jú, „vilt’ ekki bara hitta okkurniðrá Kaffitári klukkan fimm,“ segir
Kjartan í símann, – ég mæli mér mót við hann og
Georg. Jónsi er einhvers staðar í burtu og Orri
kemur ekki, „við Goggi erum vanir að vera bara
tveir í viðtölum, annars verður þetta allt of flók-
ið,“ segir Kjartan. Ég læt mér það auðvitað lynda,
þakklát fyrir að ná þeim þó stundarkorn þessa ör-
fáu daga sem þeir eru hér heima. Ég sekk mér
niður í bunkann á skrifborðinu, gömul viðtöl og
greinar um Sigur Rós, ýmislegt sem getur verið
þarft að rifja upp og skoða áður en það verður
tímabært að leggja af stað í viðtalið. Kannski að
maður taki saman svolítinn hliðarpistil um það.
Þannig er Sigur Rós – einu sinni ung og efni-leg – núna ein besta hljómsveit í heim-inum. Hvernig fara þeir að þessu? Hvaðankemur orkan til að skapa? Hvaðan kemur
innblásturinn? Og hvaða augum lítur þessi hljóm-
sveit sjálfa sig í dag, eftir nær tíu ára samfellda
sigurgöngu?
Ég vind mér inn úr rigningunni í Bankastræt-
inu, inni situr Orri með dóttur sína, greinilega
óviðbúinn komu minni. Kjartan og Georg koma
stundvíslega; Orri verður auðvitað með í viðtal-
inu.
„Við vorum bara táningar þegar við byrjuð-
um,“ segir Goggi. „Við vorum – hvað – sautján,
átján og nítján, eitthvað svoleiðis.“ „Við höfum
fullorðnast með Sigur Rós,“ segir Kjartan, „þetta
er búið að vera lífið manns meira og minna allan
þennan tíma, og meira síðustu árin, eiginlega al-
gjörlega frá 1999.“ „Við höfum lært mikið af
þessu, kynnst fólki og farið út um allar trissur,
sem hefur verið mjög hollt,“ segir Georg. Þegar
ég spyr þá um innblásturinn fer hann að flissa og
nefnir náttúruna og sauðkindina – jú, með ímynd-
unaraflinu má svosem hugsa sér Starálf sem ein-
hvers konar villuráfandi vegalamb, en svarið er
nærtækara. „Það er svo margt, ætli það sé ekki
bara það sem innspírerar flest fólk, svipaðir hlutir
eins og umhverfið og uppruninn, og svo fáum við
líka innblástur hver af öðrum,“ „það getur þess-
vegna eitthvað sprottið af því að horfa á góða bíó-
mynd,“ bætir Kjartan við. Það er tómt mál að tala
um það hvort Sigur Rósar-menn eyði miklum
tíma saman utan vinnunnar; þeir eru einfaldlega
alltaf að vinna, það eru kannski þrír dagar á ári í
frí, segja þeir og þá eru þeir ekki saman. En þeir
gefa sér þó tíma til að hlusta á tónlist, eða hvað?
Ég sá til Kjartans og Jónsa á tónleikum á Kirkju-
listahátíð á dögunum. „Ætli við hlustum ekki bara
á hvað sem er,“ segir Kjartan, og Georg segist
gjarnan hlusta á gott popp. „Ég hlusta annars
rosalega lítið á krefjandi músík,“ segir Kjartan,
„... og hef ekki gert í nokkur ár. Bara meika það
ekki. Og bara það að setjast niður til að hlusta á
plötu, ég hef ekki gert það mjög lengi. Ég set
kannski eitthvað mellow á fóninn þegar ég vaska
upp.“ Orri hefur ekki verið hávær í þessu viðtali,
eitthvað annað en kaffimaskínan sem malar stöð-
sveit sem hefur selt plötur í hátt í milljón eintök-
um og haldið tónleika úti um allar jarðir hljóti að
vera orðin sterkefnuð á ævintýrinu. „Tja, það er
nú það. Við viljum að túrarnir okkar séu mjög
flottir. Við erum með visual dæmi og allar græjur
sem við þurfum. Við erum ekki með neinar mála-
miðlanir í svoleiðis hlutum. Þetta er rosalega
dýrt. Auk þess erum við alltaf með strengjaleik-
ara, og það er margt fleira í gangi.
Við töpum á þessu ef eitthvað er, komumkannski út á sléttu þegar upp er staðið.Hlutirnir ganga mikið þannig fyrir sighjá okkur,“ segir Kjartan og Georg
ítrekar að þeir séu þegar allt kemur til alls og búið
að greiða allan kostnað, láglaunamenn. Orri nefn-
ir líka stúdíóið þeirra í Mosfellsbænum, sem hann
segir þá hafa lagt mikið í. Stúdíó Sigur Rósar er í
gömlu sundlauginni í Álafosskvosinni, og þar er
vinnustaður þeirra hér heima. „En það er líka frá-
bært að hafa þannig aðstöðu til að vinna í.“
„Svo verður bara að koma í ljós hvernig við eig-
um eftir að þróast í tónlistinni,“ segir Kjartan,
„það er gaman núna, en gæti svosem alveg verið
að maður nennti þessu ekki eftir fimm ár, og þá
kannski vill maður leita eitthvert annað í mús-
íkinni. Við leyfum þessu bara að þróast og erum
ekki með neina sérstaka framtíðarsýn.“ „Við höf-
um aldrei gert nein plön og aldrei ætlað okkur
neitt sérstakt,“ segir Georg og segir að þannig
muni þeir halda áfram. „Það er í rauninni ekkert
flókið við þetta,“ segir Orri, „það er bara gaman
fylgir annríkinu. „Það kemur fyrir að við erum að
búa til lög, eða æfa okkur í sándtékkinu fyrir tón-
leika.“ Kjartan segir að nýja platan endurspegli á
margan hátt hvað þetta hafi verið annasamur tími
fyrir Sigur Rós. „Platan er rosalega hevví á köfl-
um,“ og þeir Georg spekúlera sposkir í því hvort
næsta plata eigi ekki bara að vera glansandi popp.
„Ég held að platan endurspegli hvernig okkur
hefur liðið þennan tíma, mikil keyrsla, mikil vinna
og víða farið. Við vorum nú síðast í Japan – höfum
farið þangað þrisvar – þrisvar hringinn í kringum
jörðina. Það væri gaman að komast einhvern tíma
til Afríku, og svo á Suðurskautslandið og Ástralíu,
þá er þetta komið hjá okkur.“
Þótt þeir Orri, Kjartan og Georg kunni þvíaugljóslega vel að ferðast um heiminn ogspila, er draumurinn um meira næði til aðsemja ofarlega á blaði. „Við þurfum meira
rými, og það getur orðið frústrerandi,“ segir
Kjartan. „Auðvitað vill maður bara vera skapandi
og búa til músík. En það er líka margt annað sem
fylgir þessu, eins og það að þurfa alltaf að vera á
fundum, eða í símanum – og í viðtölum.“ Georg
tekur undir þetta og segir að þeir muni vinna að
því í framtíðinni að hafa meiri tíma fyrir sig og
hljómsveitina, semja músík – semsagt – hafa það
skemmtilegt. En Orri skýtur því að að það sé líka
vissulega gaman að ferðast og spila. „En auðvitað
fylgir þessu líka alls kyns bissness vitleysa, samn-
ingagerð og svoleiðis,“ segir Kjartan.
Maður gæti auðveldlega trúað því að hljóm-
ugt. „Ég hlusta bara á hitt og þetta. Þessa dagana
er ég að hlusta á íslenska tónlist, nýju Botnleðju-
plötuna og Mínus,“ segir Orri og hallar sér fram
meðan dóttirin prílar upp um hálsinn á honum.
Það hefur ýmsum þótt erfitt að skilgreinatónlist Sigur Rósar. Síðrokk, lýrískt rokk,minimalískt rokk, fólk hefur verið duglegtvið að finna upp nýjar skilgreiningar,
sennilega vegna þess hve tónninn í þessu eðal-
bandi er nýr og öðruvísi. En hafa þessar skil-
greiningar eitthvað að segja? „Mér hefur alltaf
þótt þessar skilgreiningar asnalegar,“ segir
Kjartan en viðurkennir þó að það geti verið gott
að grípa til þeirra til að lýsa tónlist almennt. „Ég
held að skilgreiningarnar séu fundnar upp af
blaðamönnum fyrir blaðamenn,“ bætir Georg við.
„Þetta er bara rokk. Annars er það erfiðast fyrir
okkur að skilgreina eigin músík, manni getur liðið
á ýmsan hátt í tónlistinni, til dæmis verið í algjör-
um rokkfíling þótt viðkomandi lag sé kannski
ekkert rokk,“ segir Kjartan. Georg segir að það
sé ekki þeirra verk að greina eigin tónlist. „Ég
held að það sé ekkert hollt fyrir okkur að analýs-
era um of það sem við erum að gera. Það er ekki
gott fyrir þá sem eru í skapandi starfi, þá er hætt-
an á því að tilfinningin fari úr því.“ Kjartan segir
það hafa verið mikla heppni hvað hljómsveitinni
hafi tekist að vinna að ólíkum hlutum, og það ger-
ir skilgreiningarnar enn erfiðari. „Ég nefni bara
Hrafnagaldur Óðins og sándtrakkið að Hlemmi
sem ólíka hluti. Það getur verið að þetta haldi
okkur fyrir utan hefðbundnar skilgreiningar.
Annars erum við vissulega settir á hillu með
ákveðnum böndum – ætli það séu ekki um tíu
hljómsveitir.“ Georg segir að það geti þó verið
vandi líka, stundum lesi þeir í einhverju blaði að
þeim sé líkt tónlistarlega við ákveðnar hljóm-
sveitir, í einhverju öðru blaði geti það svo verið
einhverjar allt aðrar. Í DJ blaðinu hafi þeir til
dæmis verið kallaðir elektrónískt band. „Það
virðist vera að persónulegur smekkur ráði mestu
um það hvernig fólk vill skilgreina okkur. En við
erum bara venjulegir íslenskir sveitastrákar og
spilum okkar sveitatónlist ... neinei ... og þó, erum
við ekki öll ættuð úr einhverri sveit?“
Það sem hefur einkennt umfjöllun fjölmiðlaum Sigur Rós, ekki síst erlendis, eru há-stemmd og litrík lýsingarorð um tónlisthennar, – eins og guð gráti gulltárum úr
himnaríki og síðasta stórhljómsveit 20. aldarinn-
ar. „Maður pælir ekkert í þessu, ég les þetta ekki
einu sinni,“ segir Kjartan, „svona greinar eru
bara svo leiðinlegar, þetta er mest fyndið.“ „Já,
ekki síst að sjá stafsetningarvillurnar í nöfnunum
okkar!“ segir Georg. „ Ægitis bryjun, Jón Bor,
Karton Suzinson, – ætli ég sé ekki sá eini sem er
alltaf réttur.“
Annað sem oft ber á góma í umfjöllun um
hljómsveitina er það hve auðveldlega tónlistin tal-
ar til ólíkra hópa fólks, og fólks sem kemur úr
mjög ólíku tónlistarumhverfi, ungra og eldri. Það
virðist vera einhver tilfinningaþrunginn galdur í
tónlistinni sem höfðar mjög persónulega til fólks.
„Þetta er eitthvað sem við getum ekki útskýrt og
pælum voða lítið í,“ segir Georg. „Þegar við erum
að semja er það oftast þannig að einhver byrjar á
einhverju og svo hleðst utan á það smám saman,“
segir Orri. „Þannig hefur þetta alltaf verið. Við
gerum þetta allir saman og erum ekkert mikið að
velta því fyrir okkur hvernig það gerist, en ef það
vantar einhvern okkar þá virkar þetta ekki,“ seg-
ir Kjartan.
Sigur Rósar-menn viðurkenna fúslega að
ferðalögin og flakkið sem fylgir vinnu þeirra setji
ákveðið mark á tónlistina þeirra. „Jú,“ segir Orri,
og bendir á praktískustu hlið þess, tímaleysið sem
„VIÐ HÖFUM ALDREI Æ
OKKUR NEITT SÉRSTA
Georg Hólm, Orri Páll Dýrason með dóttur sína og Kjartan S
Hljómsveitin Sigur Rós hefur farið sigurför um heiminn
á síðustu árum. „Mikil vinna“ segja þeir Georg,
Kjartan og Orri, en „það er bara svo gaman að búa til
músík.“ BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR hitti þessa þrjá á
kaffihúsi til að spjalla um tónlistina og hljómsveitina
sem hefur aldrei gert sér nein plön.
Hljómsveitin Sigur Rós var stofnuð undir nafninu Victory Rose í desem-
ber 1994. Stofnendur voru þeir Jón Þór Birgisson, gítarleikari og söngv-
ari, og Ágúst Ævar Gunnarsson trommuleikari. Nafngiftina fengu þeir
af Sigurrós systur Jóns Þórs, sem fæddist skömmu áður en hljómsveitin
var stofnuð. Þegar þeir Jón Þór og Ágúst Ævar fóru í stúdíó með sitt
fyrsta lag, Fljúgðu, bættist þriðji maðurinn í hópinn, Georg Hólm bassa-
leikari. Þeir fóru fljótt að vinna að stórri plötu, en vinnan gekk hægt; –
bæði þurftu þeir tíma til að móta stíl sinn og stefnu og höfðu að auki
ekki mikla peninga milli handanna til að kaupa stúdíótíma. Haustið 1997
kom loks fyrsta plata Sigur Rósar út hjá Smekkleysu. Platan hét Von,
fékk prýðis viðtökur. Fjórði maðurinn, Kjartan Sveinsson, bættist við,
maður sem spilaði á allt mögulegt, en átti eftir að setja svip sinn á sveit-
ina sem hljómborðsleikari. Strax var farið að vinna að næstu plötu,
Ágætis byrjun, sem Smekkleysa gaf út sumarið 1999, en í millitíðinni
var Von endurútgefin mikið endurunnin og með einu nýju lagi, undir
nafninu Von-brigði.
Haustið 1999 hófst samstarf Sigur Rósar við Steindór Andersen
kvæðamann, eftir að sjónvarpskonan Eva María Jónsdóttir leiddi þá Jón
Þór og Steindór saman í þætti sínum Stutt í spunann. Jónsi fékk mikinn
áhuga á að vinna meira með kvæðamönnum og sótti um styrk til borg-
arinnar til þessháttar verkefnis, en var synjað.
Ágætis byrjun fékk frábæra dóma og Sigur Rós fór í tónleikaferð um
landið. Þá var Ágúst hættur, en Orri Páll Dýrason tekinn til við trommu-
sláttinn. Smekkleysa gekkst fyrir því að semja við enska útgáfufyr-
irtækið Fat Cat um útgáfu á Sigur Rós þar í landi, og smáskífan Svefn-
-g-Englar kom út þar í september 1999. Það var strax ljóst að Sigur Rós
ætti erindi á enskan markað, því í vikunni áður en platan kom út, valdi
tónlistartímaritið New Musical Express hana smáskífu vikunnar. Það
var kominn tími til að s
ferð til Danmerkur og E
ur Rósar voru á einn ve
mikilli velgengni. Það j
hita upp fyrir bresku ro
byrjun kom út ytra og h
helmingurinn vestanha
vorið 2001. Árið 2001 v
með í för voru Steindór
2000 vann Sigur Rós tv
sonar, Engla alheimsin
Jóns Múla Árnasonar v
þrjú lög Ágætis byrjuna
Sky. Árið 2002 lögðu Si
saman krafta sína að fr
Hrafnagaldur Óðins, fr
þá um vorið. Fyrir það
Hilmar tilnefnd til Tónl
hefur Sigur Rós hlotið a
ingar, þar á meðal Íslen
Ein af tíu bestu hljóm
sveitum fyrr og síðar ...
kom út í október í fyrra
dag hafa á fimmta hund
hefur Sigur Rós enn ve
og nú síðast í Japan. Nú
með tónlist við heimilda
inni heitið á Hróarskeld