Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.2003, Síða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 2003
OPNAÐ hefur verið nýtt listasafn í Reykjavík.
Það er einkasafn Péturs Arasonar viðskipta-
manns og safnara og konu hans Rögnu Róberts-
dóttur, myndlistarkonu og safnara sömuleiðis. Í
um fjóra áratugi hafa Pétur og Ragna safnað
myndlist, mestmegnis samtímaverkum, eftir
bæði erlenda og innlenda myndlistarmenn. Þau
hjónin ráku einnig sýningarsalinn Aðra hæð í
samvinnu við Ingólf Arnarson myndlistarmann
um sjö ára skeið á tíunda áratugnum en þar á
undan rak Pétur Gallerí Krók. Önnur hæð var til
húsa á heimili Péturs og Rögnu og þar var kynnt-
ur fjöldi erlendra listamanna sem hvorki hafa
sýnt verk sín hér á landi fyrr eða síðar. Safn Pét-
urs og Rögnu var svo sýnt að miklu leyti í Gerð-
arsafni í Kópavogi árið 2000, á dagskrá Reykja-
víkur menningarborgar og kom umfang þess og
fjöldi verka og listamanna þá án efa mörgum á
óvart.
Nú hefur Reykjavíkurborg orðið til þess að al-
menningur fær að njóta þessarar fjölbreyttu
listaverkaeignar með þeim hjónum en eins og
nokkuð hefur verið skrifað um í dagblöðum veitti
menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar safn-
inu veigamikinn styrk. Almenningi og listamönn-
um er augljóslega mikill fengur að þessu safni og
hreint frábært að nú skuli verk svo margra
áhrifamikilla listamanna frá tímabilinu 1960 og
fram á okkar daga vera öllum aðgengileg að stað-
aldri hér á landi í fyrsta sinn.
Safnið á um 300 verk og á sýningunni sem nú
hangir uppi eru verk eftir um 50 listamenn, ís-
lenska og erlenda. Meginkjarninn er fastasýning
þar sem hægt verður að ganga að vissum verkum
vísum. Í bígerð er að eitt rými á safninu verði
notað til að kynna unga og upprennandi íslenska
listamenn og einnig eru fyrirhugaðar kynningar
á erlendum listamönnum og verkum þeirra í eigu
safnsins.
Fjölbreytt samspil
Strax þegar komið er inn á fyrstu hæð á Safni
tekur á móti gestum fjölbreytt samspil íslenskra
og erlendra myndlistarmanna, samspil splunku-
nýrra verka og annarra sem eru eldri, en söfnun
Péturs hófst á sjöunda áratugnum. Það er nýtt
verk eftir Ólaf Elíasson sem mætir sjónum þegar
inn er komið, verk sem byggir á einföldum lög-
málum birtu og gegnsæis. Þegar sólin nær að
skína á þetta verk endurvarpar það smáum regn-
bogum inn eftir öllum veggjum í rýminu. Vegg-
málverk Lawrence Weiner sem hefst á orðunum
Dagljósið (eins og það er) er skemmtilega öðru-
vísi nálgun við þessi einföldu náttúrulögmál.
Strax hér kemur fram hvernig eldri og yngri, er-
lend og íslensk verk ná að skapa nýja heild, þema
sem endurtekur sig á missterkan og ólíkan hátt í
öllum rýmum og á öllum hæðum safnsins. Á
fyrstu hæð er einnig eitt umfangsmesta verk
Safns, gólfverk Richards Longs úr fjörugrjóti.
Það myndar dulúðuga heild með nokkrum af
betri verkum listakonunnar Roni Horn, óvenju-
legum fuglamyndum.
Þegar gengið er upp stigann á aðra hæð berst
bæði þungur niður og klingjandi hljómur til
eyrna. Það er sameiginlegt verk þeirra Finnboga
Péturssonar og Rögnu Róbertsdóttur sem send-
ir frá sér ókennilegan rytmískan nið, hljóðverk
Finnboga og sjónræn útfærsla þess mynda and-
svar við þögulan hraunferning Rögnu og samtal
myndast þarna á milli.
Hinn klingjandi hljómur berst svo frá einu
uppáhaldsverka minna í þessu safni, eftir Céleste
Boursier-Mougenot, verk án titils. Hér er um að
ræða bláa buslulaug með uppblásnum veggjum,
hálffyllta af vatni. Á yfirborðinu sigla hvítar blá-
mynstraðar postulínskálar og diskar, skella stöð-
ugt saman með þessum létta, klingjandi hljóm.
Á annarri hæð er einnig lítið rými sem að öll-
um líkindum verður notað undir sýningar inn-
lendra, upprennandi listamanna þegar fram líða
stundir. Nú er þar að finna verk eftir Hrafnkel
Sigurðsson, Hrein Friðfinnsson og Gabríelu
Friðriksdóttur og það er afar skemmtilegt að sjá
hvernig þessi verk vinna saman til að skapa eitt-
hvað nýtt. Það er augljóst að mikil vinna liggur
að baki uppsetningu þeirra verka sem er að sjá í
safninu en hún hefur tekist afar vel og þetta litla
rými er gott dæmi um það. Á annarri hæð er
einnig fjöldi verka í stærri sölunum tveimur. Það
eru margvísleg verk sem hér koma saman, m.a.
eftir bresku listakonuna Söruh Lucas. Ekki má
gleyma sterku myndbandi eftir Roman Signer,
verk með einfaldri og áhrifamikilli skírskotun til
þess ástands sem ríkir í heiminum og á heimilum
í dag.
Á efstu hæð safnsins má til dæmis sjá verk eft-
ir konseptlistamanninn Stanley Brouwn sem var
frumkvöðull á sínu sviði, nýgeómetríu eftir Ger-
wald Rockensschaub, skúlptúr eftir Richard
Tuttle og fleiri. Þá eru ótalin verk á öllum hæðum
eftir listamenn á borð við Carl Andre, Donald
Judd, Peter Fischli og David Weiss, Ben Vautier,
Dieter Roth, Daniel Buren, Hamish Fulton,
Bernd og Hilla Becher, Ilya Kabakov, Joep van
Lieshout, Adrian Schiess og marga fleiri. Að
ógleymdum íslensku listamönnunum Sigurði og
Kristjáni Guðmundssonum, Ingólfi Arnarsyni,
Birgi Andréssyni, Hrafnkeli Sigurðssyni, Magn-
úsi Pálssyni, Herði Ágústssyni, Daníel Magnús-
syni, Særúnu Stefánsdóttur og Kristni Harðar-
syni, auk þeirra sem áður voru nefndir.
Í safninu liggja frammi nánari upplýsingar um
alla þá listamenn sem kynntir eru og fyrirhugað
er að leggja áherslu á almenningsfræðslu.
Einkasafn
Safn Péturs og Rögnu er einkasafn og hefur
því að sjálfsögðu sérhæft sig að nokkru leyti, það
segir sig sjálft að safnari hefur ekki jafnan áhuga
á öllu sem fram kemur innan myndlistarinnar á
hverjum tíma og safn þar sem einfaldlega öllu
ægði saman, sem hefði það markmið eitt að gefa
sýnishorn af öllu sem væri að gerast á hverjum
tíma, væri síður áhugavert.
Í Safni er í flestum tilfellum um heimsþekkta
listamenn að ræða sem flestir hafa verið braut-
ryðjendur á sínu sviði. Verkin sem safnið á eftir
hvern og einn eru misstór að umfangi enda dett-
ur varla nokkrum í hug að einkasafnari uppi á Ís-
landi festi kaup á lykilverkum í eigu einhverra
frægustu listamanna í heimi. Langt er þó í frá að
hér sé eingöngu um minniháttar verk og fjölfeldi
að ræða, fjölbreytnin er þvert á móti afar mikil.
Sviðið sem safnið nær yfir er afar breitt, allt frá
naumhyggju og hugmyndalist sem einkenndi
listheiminn að miklu leyti á sjöunda og áttunda
áratugnum, til nýrri verka listamanna eins og
Söruh Lucas, Gabríelu Friðriksdóttur og Jyrki
Parantainen sem seint verða kennd við naum-
hyggju.
Styrkur sá sem Reykjavíkurborg veitir nær
ekki til listaverkakaupa fyrir safnið. Safnið hefur
heldur ekki verið byggt upp á styrkjum heldur
hreinu einstaklingsframtaki í fjóra áratugi og á
án efa eftir að vaxa að umfangi þrátt fyrir þetta.
Ekki má gleyma því að Reykjavíkurborg hefur
þarna tryggt sér aðgang að safninu til sýninga í
salarkynnum sínum, en um það snýst hluti samn-
ingsins. Strax um næstu helgi opnar einmitt sýn-
ing á alþjóðlegri samtímalist í Hafnarhúsi sem að
hluta til byggist á verkum úr eigu Péturs Ara-
sonar.
Safnarar á Íslandi eru vægast sagt fáir og safn
Péturs og Rögnu sannarlega einstakt. Frum-
kvöðull var líklega Ragnar í Smára, en lista-
verkasafn hans er nú uppistaðan í listasafni ASÍ.
Hluti af því safni er sýndur að staðaldri í sýning-
arsalnum við Freyjugötu og er skipt um verk
ársfjórðungslega, en í húsnæðinu eru einnig sýn-
ingar á samtímalist.
Hjónin Þorvaldur Guðmundsson og Ingibjörg
kona hans komu sér upp merku safni á íslenskri
myndlist. Hluta þess má sjá á Hótel Holti, en fyr-
ir fáeinum árum var gerður vörslusamningur við
Gerðarsafn í Kópavogi um safn þeirra. Árið 2002
var haldin umfangsmikil sýning á þessum verk-
um í Gerðarsafni og vakti hún mikla athygli. Í
þessu safni eru um 1000 verk.
Sverrir Sigurðsson og kona hans Ingibjörg
Guðmundsdóttir komu sér einnig upp stóru safni
sem var gefið Háskóla Íslands og er nú uppi-
staðan í Listasafni Háskólans. Árið 1999, á ní-
ræðisafmæli Sverris, var einnig stofnaður sjóður
upp á 10 miljónir til rannsóknarstarfa á íslenskri
myndlist. Safnið er til sýnis á um 20 stöðum inn-
an háskólans. Meginuppistaða þess eru verk
Þorvaldar Skúlasonar. Safnið kaupir ný verk í
litlum mæli og telur nú um 700 verk.
Þá má loks geta hjónanna Sverris Magnússon-
ar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur sem á 75 ára
afmæli Hafnarfjarðarbæjar gáfu bænum hús-
eign sína að Strandgötu 37 ásamt listaverkagjöf
og bókasafni. Samkvæmt gjafabréfi skyldi hús-
næðið notað til að reka listasafn, fyrir listsýn-
ingar, tónleikahald og menningarstarfsemi. Þar
er nú að sjálfsögðu hin vel kunna Hafnarborg í
dag.
Af þessu má sjá að það eru örfáir einstaklingar
sem safnað hafa íslenskri myndlist í gegnum tíð-
ina. Framtak Péturs er í þessu ljósi með ólík-
indum og enginn hefur komið upp jafn fjöl-
breyttu safni erlendrar samtímalistar og Pétur
og Ragna.
Samtímalist í heimahúsum
Í Safni má sjá hversu vel samtímalist og list frá
síðustu áratugum fer á veggjum í húsakynnum af
heimilisstærð með venjulegri lofthæð og hversu
lítið rými þarf til að koma fyrir spennandi verk-
um. Án efa er það viðhorf algengt hjá almenningi
að samtímalist sé eitthvað sem einungis eigi
heima á safni en því fer auðvitað fjarri. Hér í
þessum litlu en margbreytilegu húskynnum þar
sem skipast á lítil herbergi og stærri salir kemur
þetta sérstaklega vel fram. Í sýningarsölum af
þessu tagi skapast innilegra og afslappaðra and-
rúmsloft en á stóru safni.
Ef Safn gæti nú orðið til þess að fleiri Íslend-
ingar myndu finna hjá sér áhugann til að kynna
sér og festa kaup á verkum íslenskra samtíma-
listamanna væri tilgangi þess meira en náð. Fyr-
ir þá sem hugsa list sem fjárfestingu, sem hún er
auðvitað löngu orðin, má benda á fjölda íslenskra
listamanna sem hafa fest sig svo kirfilega í sessi
bæði hérlendis og erlendis að vitað er að verk
þeirra munu einungis koma til með að hækka í
verði í framtíðinni.
Ég vona að sem allra flestir eigi eftir að njóta
Safns og verka þess í því afslappaða og lifandi
andrúmslofti sem þar ríkir.
Listsköpun við Laugaveg
Á annarri hæð: Flatt verk í forgrunni eftir
Adriean Schiess, verkið Pressure eftir Sarah
Lucas í horni, gólfverkið Pair eftir Roni Horn. Þar
má einnig sjá verk Ingólfs Arnarsonar, Hreins
Friðfinnssonar og Jyrki Parantainen.
Á fyrstu hæð Safnsins blasir verk Ólafs Elíassonar við vegfarendum.
Ragna Sigurðardóttir
MYNDLIST
Safn, Laugavegi 37
Safn er opið frá kl. 14–18, miðvikudaga til sunnudaga.
SAMTÍMALIST
EGYPTAR eru ósáttir þessa
dagana við þá meðferð sem
brjóstmynd af egypsku drottn-
ingunni Nef-
ertiti hefur
hlotið hjá
safn-
yfirvöldum í
egypska
safninu í
Berlín, þar
sem brjóst-
myndin hef-
ur verið
geymd í rúm
80 ár.
Brjóst-
myndin, sem
er rúmlega
3.300 ára gömul og með þekkt-
ustu egypsku fornminjunum,
fékk nefnilega nýlega nýtt hlut-
verk sem hluti af konsept-
listaverki ungverska lista-
mannadúósins Litlu Varsjár. Var
verkið þannig uppbyggt að
brjóstmyndin var látin síga nið-
ur á herðar höfuðlausrar brons-
styttu af fáklæddri konu, en
skrásetning á viðburðinum er
framlag Ungverja til Fen-
eyjatvíæringsins sem nú stendur
yfir.
Dieter Wildung, forstjóri
safnsins, varði verkið með því að
kalla það „óð samtímalistar til
Nefertiti“, en í Kaíró er verkið
sagt móðgun jafnt við menning-
ararfleifð Egypta sem íslamskt
siðferði.
500 Turner-verk
„fundin“
HUNDRUÐ ómetanlegra verka
eftir breska listamanninn Joseph
Mallord WilliamTurner hafa
fundist í kjölfar þess að sérfræð-
ingar Tate-safnsins hófu vinnu
við að skrásetja öll verk þessa
þekkta listamanns fyrir gerð
vefsvæðis tileinkaðs honum.
Um 500 verk fundust í heild, á
þeim fjórtán mánuðum sem
skrásetningin stóð yfir, og fund-
ust verkin víða á einkaheimilum
– sums staðar höfðu þau jafnvel
verið geymd inni í skáp eða uppi
á hálofti og gleymst þar.
„Þetta voru oft fjölskyldu-
dýrgripir, en eigendurnir áttuðu
sig ekki á að Turner merkti ekki
öll verk sín,“ sagði talsmaður
verkefnsisins við fréttavef BBC.
Vefsvæðið Turner Worldwide,
sem finna má á slóðinni
www.tate.org.uk, geymir upp-
lýsingar um ein 2.300 verk lista-
mannsins víða um heim, auk
þeirra 30.000 sem eru í eigu
Tate-safnsins, og er í flestum til-
fellum að finna tölvumyndir í
hárri upplausn af verkum lista-
mannsins. Meðal þeirra verka
sem þar er að finna má nefna áð-
ur ósýnd verk frá einkasöfnum á
Írlandi og í Skotlandi. Einar 400
myndir til viðbótar, sem eign-
aðar eru listamanninum, eru þá í
athugun hjá sérfræðingum Tate
og kunna að bætast við vefinn á
næstunni, en aðstandendur hans
vonast til að vefurinn reynist
einkasöfnurum og smærri gall-
eríum hvatning til að láta skrá
verk sín þar.
ERLENT
Konseptverkið
Nefertiti
Rain, Steam, and Speed The Great
Western Railway eftir Turner.
Nefertiti.