Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.2003, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 30. ÁGÚST 2003 3
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
3 4 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R
EFNI
Á
RIÐ 1999 kom út bók sem
heitir Property and
Freedom (Eignir og
frelsi) eftir Richard Pip-
es. Höfundur er Banda-
ríkjamaður, prófessor í
sagnfræði við Harvard
háskóla og hefur m.a. rit-
að merkar bækur um sögu Rússlands.
Pipes hefur viðað að sér miklum fróðleik
um þróun eignarréttar og tengsl hans við
samfélagsgerð og stjórnskipan. Frá fyrstu
tíð hafa veiðimenn og safnarar helgað sér
staði og hlunnindi. Frumstætt eignarhald af
því tagi á sér sögu sem er eldri en mann-
kynið því mörg dýr merkja svæði til yf-
irráða. Með akuryrkju, verslun og borga-
myndun þróaðist eignarréttur og var
bundinn í lög. Fornir lagatextar sem þekktir
eru allt frá tímum Hammurabi (um 1750 f.
Kr) snúast að miklu leyti um eignarrétt og
viðurlög við brotum gegn honum. Jarð-
neskar eigur hafa frá fyrstu tíð verið und-
irstaða velmegunar, gagnlegrar iðju og frið-
samlegrar samvinnu. Sá skilningur að eignir
styðji við sjálfstæði manna og sjálfsvirðingu
er líka afgamall. Hans sér stað í ritum Arist-
ótelesar frá fjórðu öld f. Kr. og í Hávamálum
þar sem segir:
Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Blóðugt er hjarta
þeim er biðja skal
sér í mál hvert matar.
Mestur hluti af bók Pipes fjallar um
hvernig þróun eignarréttar í Evrópu varð
hornsteinn réttarríkis, almennra borg-
araréttinda og síðar lýðræðis. Á hámið-
öldum naut borgarastétt í mörgum Evr-
ópulöndum eignarréttar sem var óháður
geðþóttavaldi landeigenda og aðals. Í krafti
þessa höfðu borgarbúar samningsrétt, versl-
unar- og ferðafrelsi. Þeir voru undanþegnir
kvaðavinnu og herskyldu og aðalsmenn gátu
ekki refsað þeim án dóms og laga eins og al-
þýðu sveitanna. „Stadtluft macht frei“
(„borgarloftið frelsar“) sögðu Þjóðverjar á
miðöldum og það voru orð að sönnu, því
borgarbúar nutu frelsis langt umfram
sveitamenn og ánauðarbóndi sem bjó í eitt
ár og einn dag innan borgarmarka var upp
frá því frjáls maður. Hafi samkomulag léns-
herra við landseta verið frækorn stjórn-
arskrárfestu og stjórnlaga í ríkjum nú-
tímans þá voru réttindi borgara á miðöldum
vísir að einstaklingshyggju, mannréttindum
og réttarríki á seinni öldum.
Þegar aukin miðstýring og einveldi kom-
ust í tísku í Vestur-Evrópu á sextándu og
sautjándu öld reyndu kóngar að eigna sér
lönd og fjármuni þegnanna. Jafnvel var látið
svo heita að heilu þjóðirnar væru beinlínis
eign konungs. Þessar nýjungar rákust á
sterka hefð fyrir eignarrétti, frelsi og sjálf-
stjórn borgarbúa. Þróun réttarríkis og borg-
arlegra samfélagshátta var komin hvað
lengst á Englandi og þar lyktaði stjórn-
málaátökum sautjándu aldar svo að komið
var á vísi að þingræði, borgaraleg réttindi
treystust í sessi og stór hluti þjóðarinnar
fékk notið þeirra. Hinum megin í álfunni,
austur í Rússlandi, þróuðust mál á allt annan
veg. Frá því Svíar stofnuðu Garðaríki á ní-
undu öld var eignarréttur kaupahéðna þar
skilgreindur og varinn af lögum en í
Moskvuríkinu var vald þjóðhöfðingja algert
bæði yfir fólki og fé. Þegar Ívan mikli sam-
einaði Rússland í eitt ríki seint á fimmtándu
öld var komið á sömu skipan í Garðaríki og í
Moskvu, þar sem stórfurstinn átti þegna
sína og hafði nær ótakmarkað vald bæði yfir
löndum þeirra og lausum aurum.
Þeir sem vörðu sjálfstæðan eignarrétt
borgara vestast í Evrópu höfðu betur í glím-
unni við kónga sem kröfðust alræðis og að-
alsmenn sem vildu ótakmörkuð yfirráð yfir
lægri stéttum. En í stað þess að bændur og
sveitamenn í Rússlandi fengju smám saman
hluta af þeim rétti sem borgarar höfðu notið
varð staða borgarbúa eins og ánauðarbænda
og sveitafólk glataði því litla sjálfstæði sem
það hafði og varð eins og hverjir aðrir þræl-
ar. Þarna álítur Pipes að sé upphafið að póli-
tískri ógæfu Rússa.
Merkasti heimspekingur Englendinga á
sautjándu öld var John Locke (1632-1704).
Hann varð manna fyrstur til að skilja þær
breytingar á eignarrétti sem fylgdu auknum
viðskiptum og eflingu borgarastéttar. Í bók
sinni, Ritgerð um ríkisvald, notar Locke
hugtökin eign og eignaréttur yfir hvaðeina
sem einstaklingur getur með réttu kallað
sitt eigið, þ. á m. líf sitt og hvers kyns rétt-
indi. Locke áleit að eignarréttur sé eldri en
ríkisvald og hann sé ekki skapaður af yf-
irvöldum, heldur séu yfirvöld sett á fót til að
verja eignir og réttindi borgaranna. Sam-
kvæmt skilningi hans er eignarréttur líka
nátengdur frelsi manna, því ráði hver og
einn sjálfur hvað hann gerir við uppskeru af
akri sínum vegna þess að hann á akurinn, þá
hlýtur sá sem á sjálfan sig eins að ráða
hvernig hann ráðstafar lífi sínu. Þessar hug-
myndir eru hluti af burðarvirkjum ein-
staklingshyggju og frjálslyndis sem hefur
mótað samfélög Vesturlanda undanfarnar
aldir og andmæli gegn þeim eru grunntónn-
inn í málflutningi þeirra sem vilja kollvarpa
borgaralegri samfélagsskipan.
Ég hygg að ekki sé á neinn hallað þó sagt
sé að Jean Jacques Rousseau (1712-1778)
hafi átt mestan þátt í að snúa almennings-
álitinu gegn eignarrétti. Hugmyndir hans
um að séreign sé þrándur í götu fagurs
mannlífs náðu útbreiðslu næstum heilli öld
áður en Marx og Engels skrifuðu Kommún-
istaávarpið. Stjórnmál nútímans búa enn að
arfinum frá Locke og Rousseau. Annars
vegar eru borgaraflokkar sem fylgja Locke
og verja rétt einstaklinga til að komast yfir
eignir og ráðstafa þeim að vild. Hins vegar
eru eftirmenn Rousseau á vinstrivæng
stjórnmálanna. (Vinstriflokkar í lýðræð-
isríkjum nútímans sækja mun meira til
Rousseau en til Karls Marx.) Lýðræðis- og
velferðarsamfélög nútímans eru einhvers
konar málamiðlun milli þessara flokka. Stór
hluti allra verðmæta er í einkaeign og yf-
irvöld verja rétt einstaklinga yfir eignum
sínum. Eignarréttur er þó takmarkaður í
vaxandi mæli bæði af skattheimtu, sem hirð-
ir víða helftina af því sem fólk aflar sér, og
reglum um hvað menn mega gera við eignir
sínar (t.d. hvernig þeir mega gera upp göm-
ul hús, með hvaða skilmálum þeir mega
kaupa og selja hluti eða í hvaða vistarverum
þeim leyfist að nota reyktóbak).
Undir lok bókar sinnar veltir Pipes því
fyrir sér hvernig eignarrétti, frelsi og for-
ræði manna yfir eigin lífi reiði af þegar ríkið
ber í vaxandi mæli ábyrgð á velferð og af-
komu almennings og skiptir sér meira og
meira af því hvernig menn ráðstafa fé sínu.
Um leið og hann skýrir þennan vanda og
bendir á leiðir til að treysta eignarrétt al-
mennra borgara varar hann við einföldum
lausnum og segir að öfgafull frjálshyggja,
sem ætlar ríkinu ekki að sjá um neitt, sé litlu
nær því að vera raunhæfur kostur en komm-
únismi þar sem ríkið sér um allt (bls. 284).
Pipes lýkur umræðunni svo á orðum sem má
þýða eitthvað á þessa leið (á bls. 291): „Þorri
borgara í ríkjum nútímans hefur enga hug-
mynd um hverju þeir mega þakka frelsi sitt
og velsæld. Þeir vita ekki að þessi lífsgæði
eru afsprengi réttindabaráttu sem hefur
staðið lengi og einkum snúist um rétt manna
yfir eignum sínum. Það er því varla von að
almenningur geri sér mikla grein fyrir því
hvaða áhrif skerðing á eignarétti mun hafa á
líf fólks þegar til langs tíma er litið.“
HALUR ER
HEIMA HVER
RABB
A T L I H A R Ð A R S O N
http://this.is/atli
KRISTJÁN JÓNSSON
DÓMURINN
Þegar leikur lífsins dvín
og lýkur sorg og mæðum,
í svölulíki sálin mín
svífur þá að hæðum.
Fullur þá af felmtri’ eg er
og fátt mér veit til bjargar,
brot eru stór á baki mér
og brennivínssyndir margar.
Þótt séu brot til sekta nóg
og syndir margháttaðar,
í himnaríki held ég þó
þeir holi mér einhversstaðar.
Ölæðis því afbrot mín
öll sá fyrir bætti,
í Kana’ er sneri vatni’ í vín
og veigum lýði kætti.
Kristján Jónsson Fjallaskáld (1842-1869) lést ungur, sennilega af drykkju en
ljóð hans höfðu náð miklum vinsældum.
Niels
Finsen
hlaut nóbelsverðlaunin í læknisfræði
árið 1903 fyrir tilraunir með ljóslækn-
ingar. Jón Ólafur Ísberg rekur sögu
Finsens sem var af íslensku bergi brot-
inn og virtist kannski fremur ólíklegur
til afreka í vísindum þegar hann sat á
skólabekk í Lærða skólanum.
Sveinn Einarsson
hefur átt langan og gifturíkan feril
í leikhúsum landsmanna. Súsanna
Svavarsdóttir ræddi við Svein um
leikhúslífið.
Woody Allen
er á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þessa
dagana þar sem nýjasta mynd hans Any-
thing Else er sýnd. Hann er þar ásamt eig-
inkonu sinni Soon-Yi en samband hans við
hana og fyrri konur sínar hefur orðið Allen
óþrjótandi umfjöllunarefni. Þröstur Helga-
son skoðar hvernig Allen segir frá sam-
böndum sínum.
Peter
Singer
er sagður einn umdeildasti heimspekingur
samtímans en hann hefur haft afskipti af um-
hverfismálum í heimalandi sínu, Ástralíu.
Gunnar Sigvaldason og Sigríður Þorgeirs-
dóttir segja frá heimspeki hans en Singer
heldur fyrirlestur í Háskóla Íslands 6. sept.
FORSÍÐUMYNDIN
er af hluta af málverki eftir Eyjólf Einarsson er nefnist Biðstöð (2002, olía á
striga, 160x200cm). Myndin er á sýningu Eyjólfs sem verður opnuð á Kjar-
valsstöðum í dag.