Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2003, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2003, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 2003 13 B RESKI rithöfundurinn Nicholas Shakespeare fæddist í Worces- ter í Englandi 1957 og er af dipl- ómötum kominn. Æskuheimili hans stóð því í mörgum löndum; Marokkó, Kambódíu, Brasilíu, Argentínu og Perú, svo nokkur séu nefnd. Skólagöngu hans lauk í Englandi, við Winchester College og Há- skólann í Cambridge þar sem hann las ensku. Hann vann hjá breska sjónvarpinu, BBC, frá 1980 til 1984 og gerði þar heimildarmyndir. Reyndar hefur hann gert stöku mynd eftir að hann hóf rithöfundarferilinn og 2001 fékk hann BAFTA-verðlaunin í þeim flokki sem snýr að listum fyrir mynd sem hann gerði um Dirk Bog- arde. Árin 1984 til 1986 var hann aðstoðarbók- menntaritstjóri The Times og síðar bókmennta- ritstjóri Daily Telegraph og Sunday Telegraph, en hefur helgað sig eigin skrifum frá 1991. Hann prófaði þó margt fleira en sjónvarpsvinnu og rit- stjórn, starfaði t.d. í eitt ár sem gaucho, eða kú- reki í Argentínu og sat á hesti átta tíma á dag. Meðan hann vann fyrir BBC gerði hann heimildarmynd um kónga sem hrakist höfðu úr valdastóli og aðra sem voru kóngar í eigin hug- arheimi. Við undirbúning hennar kynntist hann rithöfundinum Bruce Chatwin, en ævisaga hans um þann þekkta en skammlífa höfund kom út 1999, sexhundruð blaðsíðna rit sem þykir afar vel unnið og samið og var fljótlega þýtt á helstu þjóðtungur: „Ég hitti hann 12. janúar 1982. Ég gekk inn í íbúð hans í Lundúnum og sá reiðhjól upp við vegg og bók eftir Flaubert á gólfinu. Mér fannst hann helst líkjast pólskum flótta- manni: í víðum buxum, mitt á milli þess að vera ljóshærður og gráhærður, tággrannur og and- litsdrættirnir jafn hnífskarpir og það sem hann sagði. Ég hafði ímyndað mér að hann væri frem- ur þögull en hann talaði og talaði, allt frá fyrstu mínútu. Ég var að gera heimildarmynd um kónga í útlegð og mig vantaði símanúmerið hjá Frakkanum sem fullyrti að hann væri konungur í Patagóníu. Hann lét mig ekki bara hafa það, heldur bauðst líka til að koma mér í samband við konunginn á Krít, manninn sem hefði hug á að verða æðsti maður Azteka og gítarleikara frá Boston sem segðist vera guð.“ Svo komst Nicholas Shakespeare að orði um fyrsta fund þeirra í viðtali við spænska blaðið El País fyrir tveimur árum. Og Bruce Chatwin gerði fleira fyrir hann, hann las yfir uppkastið að fyrstu skáldsögu Shakespeares og bað hann um að til- einka sér bókina í staðinn. Bruce Chatwin lést 1989, skömmu áður en bókin kom út, en það var bókin Sýn Elenu Silves, The Vision of Elena Sil- ves. Hún gerist í Perú, á sjöunda og níunda ára- tug síðustu aldar, og má með hóflegri einföldun segja að hún sé pólitísk ástarsaga. Nicholas Shakespeare var ekki ókunnur í Perú, þar sem hann ólst að hluta til upp í höfuðborginni, Lima. Seint á níunda áratugnum las hann frétt í blaði; ungur drengur með tösku í hendi hafði gengið inn á Hótel Crillon í Lima og þegar hann hafði tekið nokkur hikandi skref inn í ríkmann- legan móttökusalinn sprakk hann í loft upp. Önnur óhugnanleg atvik höfðu átt sér stað; dauðir hundar höfðu hangið niður úr ljósastaur- um í Lima og asni hafði verið sprengdur í tætlur á markaði í Andesfjöllum. En það var atvikið með drenginn sem kveikti áhuga Shakespeares; hver hafði sent hann? Og hann gerðist rann- sóknarblaðamaður og flakkaði um Perú með það í huga að afla sér efnis í skáldsögu og leita að manninum sem talinn var leiðtogi maóista- samtakanna Skínandi stígs, sem hófu vopnaða baráttu 1980, og var af fylgismönnum sínum nefndur Forseti Gonzalo. Sá var meðal annars þekktur fyrir að veita aldrei viðtöl og koma aldr- ei fram opinberlega. Ýmsir aðrir blaðamenn höfðu reynt að hafa uppi á honum og goldið fyrir það með lífi sínu; Skínandi stígur var búinn að drepa yfir fjörutíu blaðamenn þegar Forseti Gonzalo, öðru nafni Abimael Guzmán, var hand- tekinn 1992. Nicholas Shakespeare slapp lifandi frá leitinni og skrifaði að flakki loknu greinina Leitað að Guzmán, sem birtist í tímaritinu Granta 1988 og hlaut mikið lof. En hann hafði líka áttað sig á því að hann yrði að skálda meira en minna í sögunni sem hann vann að því heim- ildir um Skínandi stíg voru ekki auðfengnar. Margir þeir drættir sem hann gaf Guzmán í skáldsögunni Sýn Elenu Silves (1989), reyndust þó fara furðu nærri ýmsu sem í ljós kom þegar hann var handtekinn 1992. Fyrir þessa fyrstu skáldsögu sína vann hann bókmenntaverðlaun- in sem kennd eru við Somerset Maugham. Næsta skáldsaga hans, Sá er flýgur hátt, The High Flyer, kom út 1993, en hún gerist að stærstum hluta í ímyndaðri borg nyrst í Afríku, gegnt Gíbraltar. Aðalpersónan er breskur sendiherra sem hefur verið lækkaður í tign í ut- anríkisþjónustunni eftir ástarævintýri með sér yngri konu og er sendur á þennan útnára í stað Lissabon eins og hann hafði dreymt um. Á leið- inni til þessarar ímynduðu borgar, Abyla, er vegabréfinu hans stolið af apa á Gíbraltar og fleiri hremmingar bíða. Dansarinn á efri hæðinni, The Dancer Up- stairs, sem nýverið kom út á íslensku, var fyrst gefin út 1995. Hún gerist aðallega í Perú og leit- in að leiðtoga maóistanna, Abimael Guzmán, er leiðarþráður bókarinnar, en samt fjallar hún þegar grannt er skoðað um ýmislegt annað fremur. Hún getur staðið undir ýmsum nöfnum; ástarsaga, pólitísk saga, leynilögreglusaga og saga af sálarlífi lögreglumanns. John Malkovich ákvað að gera kvikmynd eftir þessari skáldsögu og var hún frumsýnd í upphafi þessa árs. Mynd- in hefur fengið góðar viðtökur og ekki spillir fyr- ir að þar er einn fremsti leikari Spánverja, Jav- ier Bardem, í aðalhlutverki. Þess má geta að þekktasti rithöfundur Perúmanna, Mario Varg- as Llosa, sagði um höfund Dansarans á efri hæðinni: „Ég get ekki ímyndað mér annan er- lendan samtímahöfund sem þorir að takast á við stjórnmálaflækjuna í landi mínu af jafnmiklu hugrekki og greind. Og sem stendur sig jafnvel og raun ber vitni.“ Næsta skáldsaga Nicholasar Shakespeare, Snowleg, verður gefin út í Englandi í janúar á næsta ári. Höfundur segir hana vera einhvers konar ástarsögu og hún gerist í Leipzig á tímum kalda stríðsins. Nafnið Snowleg er reyndar sprottið af íslenska kvenmannsnafninu Snjó- laug, því þannig stafsetur enska aðalpersónan nafn stúlku sem hann kynnist. Nicholas Shake- speare er ekki með öllu ókunnur Íslandi því kan- adísk eiginkona hans er af vestur-íslenskum ættum og Ísland var meðal viðkomustaða á brúðkaupsferðalaginu... Nicholas Shakespeare tekur þátt í pallborðs- umræðum um enskar heimsbókmenntir í Nor- ræna húsinu á mánudag kl. 15 og les úr verk- um sínum í Iðnó á miðvikudag kl. 20. Rithöfundur með æv- intýralegan bakgrunn Höfundur er tónlistarmaður og þýðandi Dansarans á efri hæðinni eftir Nicholas Shakespeare. Dansarinn á efri hæðinni nefnist nýjasta skáldsaga Nicholas Shakespeares sem kom- in er út í íslenskri þýðingu. Breski rithöfundurinn Nicholas Shakespeare hefur starfað sem bókmenntaritstjóri, þáttagerð- armaður í sjónvarpi, rannsókn- arblaðamaður og ævisöguritari. Hér er greint frá ferli hans. E f t i r Tó m a s R . E i n a r s s o n JUDITH Hermann er þýskt bókmenntaund- ur, eða svo má skilja á allri umfjölluninni og hástemmdu lofinu sem hún hefur fengið frá því hún sendi frá sér sína fyrstu bók árið 1998. Bókin heitir Sumarhús, seinna og kom út í ís- lenskri þýðingu árið 2001. Hinn alræmdi þýski bókmenntagagnrýnandi Marcel Reich-Ranicki komst svo að orði í umfjöllun um bókina í sjón- varpsþætti sínum að „þýski bókaheimurinn hefur eignast nýtt íkon“ með Hermann. Þar sem Reich-Ranicki lætur sjaldan jákvætt orð falla um þýska höfunda þá var eftir þessu tek- ið. Bókin tók að seljast í bílförmum og Her- mann hafði varla undan að fara í viðtöl og sitja fyrir á forsíðum tímarita. Djarfari og óheftari Fljótlega var farið að tala um Judith Her- mann sem eins konar táknmynd nýrrar kyn- slóðar rithöfunda í Þýskalandi. Henni til- heyrðu höfundar sem voru flestir innan við þrítugt og komu fram á tíunda áratugnum. Rit- háttur þeirra var annar en flaggskipanna gömlu, Günter Grass, Peter Handke, Christu Wolf og Patrick Süskind – djarfari og óheftari, hversdagslegri, samfélagslegri og samtíma- legri, fortíðin og söguúrvinnslan hafði horfið í bakgrunninn, eins og Hermann komst að orði í viðtali við Lesbók á síðasta ári. Þau fjalla um það hvernig er að vera ungur í Þýskalandi samtímans sem er auðvitað markaðsdrifið, hnattvætt, fjölþjóðlegt og poppmenningar- legra en margir vilja viðurkenna. Bókmenntir hinnar ungu kynslóðar hafa raunar verið kenndar við popp sem vísar ef til vill til þess að hún vílar ekki fyrir sér að segja sögu, ólíkt eldri kynslóðum þýskra höfunda sem hafa ver- ið uppteknar af ómöguleika frásagnarinnar og fagurfræðilegum spurningum nútímans. Ekki austur-þýsk Judith Hermann er fædd árið 1970 í Vestur- Berlín þar sem hún ólst upp og bjó allt fram að falli múrsins árið 1989 að hún flutti í eystri hluta borgarinnar. Eins og hún rakti í fyrr- nefndu viðtali hafa margir gagnrýnendur fjallað um hana sem austur-þýskan rithöfund og þóst sjá einkenni á sögum hennar sem tengdust þeim uppruna hennar. Fyrst í stað segist Hermann ekki hafa gert neitt til þess að leiðrétta þennan misskilning enda hefði henni þótt hann skemmtilegur og varpa skýru ljósi á að það væri hreint ekki mikill munur á því hvernig fólk frá Vestur- og Austur-Þýskalandi skrifar. Og þótt hún sé farin að vekja athygli á því að hún sé alls ekki fædd og uppalin í Aust- ur-Berlín þá eru bókmenntafræðingar enn að lesa hana sem slíkan höfund eins og sjá mátti í viðtali við Martin Hielscher hér í Lesbók á síð- asta ári. Hielscher sagði – og hafði vitanlega rétt fyrir sér í lýsingu sinni á ólíkum dráttum í þýskum bókmenntum þótt hann gæti sér ekki endilega rétt til um ástæðu þeirra: „Hjá þessum höfundum kveður við allt ann- an tón, þeir höfðu alist upp í Austur-Evrópu, og komu úr allt öðru umhverfi en hin markaðs- væddu ungmenni Vestur-Þýskalands. Þessir höfundar skrifa út frá annarri pólitískri og samfélagslegri reynslu og hafa jafnvel gagn- rýnt höfunda á borð við Kracht fyrir að vera léttvægir og spilltir. Í verkum austur-þýskra höfunda er enn að finna sterka tilhneigingu til að glíma við fagurfræðileg vandamál í anda hefðarinnar, en þau færð inn í pólitískt og and- ófskenndara samhengi. Margir þessara höf- unda á borð við Judith Hermann, Ingo Schulze og Thomas Brussig eru að mínu mati með sterkustu samtímahöfundum Þýskalands. Þannig er það ekki síst áhugavert við þróunina í þýskum bókmenntum undanfarinna ára, að þar birtast andstæðar nálganir við samfélag samtímans, vegna gífurlega ólíks bakgrunns höfundanna.“ Ekkert nema draugar Í Sumarhús, seinna fjallar Hermann meðal annars um líf ungs fólks í Berlín á tíunda ára- tugnum en sögupersónur hennar fara víðar. Það skiptir hins vegar ekki máli hvert enda fjalla sögurnar meira um ákveðna upplifun á lífinu og tillfinningu fyrir því hvernig persónur lifa því, eins og Hermann orðaði það í fyrr- nefndu viðtali. Hermann lætur sögupersónurnar í sinni nýjustu bók Nichts als Gespenster, eða Ekkert nema draugar, flakka víða um heim og meðal annars til Íslands. Bókin er smásagnasafn, eins og Sumarhús, seinna, og í sögunni Kald- blár segir frá þeim Írenu, Jónínu, Jónasi og Magnúsi og lífi þeirra í Reykjavík. Judith Hermann tekur þátt í pallborðsum- ræðum um innblásturinn í Norræna húsinu á þriðjudag kl. 15 og les úr verkum sínum í Iðnó á miðvikudag kl. 20. Þýskt bókmenntaundur E f t i r Þ r ö s t H e l g a s o n throstur@mbl.is „Þýski bókaheimurinn hefur eignast nýtt íkon,“ sagði Reich-Ranicki um Hermann. Þýski rithöfundurinn Judith Her- mann tilheyrir kynslóð ungra höf- unda sem hafa endurnýjað sagna- hefð Þýskalands á síðustu árum að margra mati. Hin nýja kynslóð er djarfari, samfélagslegri og samtímalegri en fyrri kynslóðir. Úr Sumarhús, seinna LISTAMAÐURINN er raunverulega mjög lítill. Áreiðanlega þrem höfðum lægri en Marie. Hann er frægur, í Berlín þekkja hann að minnsta kosti allir, hann gerir listaverk í tölvu, hann hefur skrifað tvær bækur, á nóttunni talar hann stundum í útvarpið. Listamaðurinn er ljótur í ofanálag. Hann er með mjög lítinn lágstéttarhaus, hann er afar dökkur, ýmsir segja að hann hafi spænskt blóð í æðum. Varirnar á honum eru ótrúlega þunnar. Ekki fyr- ir hendi. Augun í honum eru hins vegar falleg, bleksvört og stór, yfirleitt heldur hann höndinni þannig fyrir andlitinu þegar hann talar að þessi augu eru það eina sem sést. Listamaðurinn er skelfilega til fara. Hann gengur í rifnum gallabuxum – barnastærð, heldur Marie – alltaf í grænum jakka, alltaf í íþróttaskóm. Um vinstri úlnliðinn er bundið svart leðurband. Ýmsir segja að listamaðurinn sé þrátt fyrir allt ótrúlega gáfaður. (Úr sögunni Camera Obscura)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.