Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.2003, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. SEPTEMBER 2003 15
Morgunblaðið/Jim Smart
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Melkorka Þ. Huldudóttir
SÝNINGU Hönnu Christel Sig-
urkarlsdóttur og Melkorku Þ.
Huldudóttur Old but useful (Gam-
alt en gagnlegt) í Listasafni Árnes-
inga og sýningu á verkum úr safn-
eigninni valin af Birnu
Kristjánsdóttur safnstjóra lýkur á
morgun.
„Birna
hafði sam-
band við okk-
ur Hönnu og
bað okkur að vinna sýningu fyrir
Listasafn Árnesinga út frá verkum
í safneigninni. Verkefnið er styrkt
af Menningarborgarsjóði og hug-
mynd Birnu var að fá unga lista-
menn til að miðla sinni sýn á eldri
listaverk,“ segir Melkorka. Að
sögn Hönnu og Melkorku völdu
þær tvö málverk úr safneigninni til
að vinna út frá, annað eftir Sigurð
Einarsson og hitt eftir Ruth Han-
sen. Aðspurðar hvað stýrt hefði
valinu segir Hanna að þær hafi að-
allega hrifist af litunum í verk-
unum, auk þess sem þeim þótti
verkin skemmtilega dramatísk.
„Verkið okkar er innsetning sem
lýsir þeim tilfinningum sem kvikn-
uðu hjá okkur þegar við horfðum á
málverkin tvö,“ segir Hanna.
Auk þess að vinna verk fyrir
safnið hafa Hanna og Melkorka
séð um safnfræðslu fyrir grunn-
skólabörn í Hveragerði í sumar.
„Eins og ég lýsti því fyrir krökk-
unum þá ætluðum við að athuga
hvort við gætum leyft þeim að fara
inn í verkið okkar. Við erum út-
skrifaðar úr fjöltækni frá Listahá-
skóla Íslands og þar unnum við
myndbandsverk og innsetningar
einmitt út frá þessari hugmynd,“
segir Melkorka.
Eins og þúsund brjóst horfi á
mann
Sýningin Gamalt en gagnlegt er í
tveimur sölum safnsins. „Í bjartari
salnum komum við fyrir þúsund
bleikum blöðrum sem kallast á við
bleika litinn í málverkunum,“ seg-
ir Melkorka. „Blöðrurnar eru afar
kvenlegar þar sem formin á þeim
minna á brjóst,“ segir Hanna. „Ef
maður leggst á gólfið og horfir
upp á blöðrurnar þá er eins og þús-
und brjóst séu að horfa á mann,“
segir Melkorka og hlær. „Þegar
við uppgötvuðum það fannst okkur
það alveg frábært því annað mál-
verkið sem við unnum út frá heitir
Við brúsapallinn og þar má sjá
konu sem stendur við brúsapall
umkringd mjólkurbrúsum. En sjá
má augljós tengsl milli brjósta og
mjólkur,“ segir Hanna.
Í leiðsögn sinni um safnið með
skólakrökkunum segjast Hanna og
Melkorka hafa viljað sýna fram á
að nútímamyndlist geti falist í
fleiru en bara málningarlist. „Við
reyndum t.d. að sýna þeim hvernig
myndbandsverkið er eins og mál-
verk, nema hvað það hreyfist og er
með hljóði. Í hinum salnum sem við
sýndum í og var miklu dimmari,
vörpuðum við skyggnimyndum
upp á stóran vegg og prufuðum að
mála með ljósum í stað lita,“ segir
Melkorka. „Innar í salnum á gólf-
inu vorum við með tvö sjónvörp og
sængur ofan á sem mynduðu eins
og helli eða þoku sem kallast á við
þokustemninguna í málverkunum.
Í sjónvörpunum mátti sjá mynd-
band af fótum að busla í mjólk-
urbaði, en það sést í raun ekki
hvað þetta er því þetta er mjög ab-
strakt,“ segir Hanna.
Kynslóðarbil brúuð
„Mér finnst þetta mjög gott
framtak hjá Birnu að tengja hefð-
ina svona nútímalistsköpun. Því
miður er fólk oft dálítið hrætt við
nútímamyndlist, sem er kannski
eðlilegt ef það er ekki vant henni,“
segir Hanna. „Það er auðvitað frá-
bært að fá tækifæri til að vinna
með verk eldri listamanna og geta
um leið kynnt þau fyrir ungum
krökkum. Með þessu er í raun ver-
ið að brúa bilið milli nokkurra kyn-
slóða,“ segir Melkorka. „Það var
líka afar gaman að tala við krakk-
ana um nútímamyndlist sökum
þess hvað þau eru móttækileg fyr-
ir henni og áhugasöm,“ segir
Hanna.
Listasafn Árnesinga er opið í
dag og á morgun milli kl. 13.30 og
18 og er aðgangur að sýningunum
ókeypis. Þess má geta að á morgun
verður Melkorka með leiðsögn um
safnið kl. 15.
Hefðin tengd
nútímalistsköpun
STIKLA
Sýning í Lista-
safni Árnesinga
Næsta v ika
Laugardagur
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús kl. 16 Þrjár
sýningar: Húsateikningar og
líkön. Sýningin er í tilefni
þess að tíu ár eru liðin frá
stofnun
bygging-
arlist-
ardeildar við
Listasafn
Reykjavíkur. Í
safni deild-
arinnar eru
varðveitt söfn
teikninga eftir ýmsa af merk-
ustu frumherjum íslenskar
byggingarlistar á 20. öld. -
Tuttugu og fimm listamenn
sem ýmist kenna sig við al-
þýðulist eða samtímalist
leiða saman hesta sína. í
samstarfi við Safnasafnið á
Svalbarðsströnd við Eyja-
fjörð. – Innsetning hjónanna
Bryndísar Snæbjörnsdóttur
og Marks Wilsons. Saman
hafa þau unnið verk þar
sem byggt er á samkennd
einstaklingsins við umhverfi
sitt, menningu og sögu.
Í tengslum við sýningarnar
verður fyrirlestra- og
fræðsludagskrá sem sjá má
m.a. á slóðinni www.lista-
safnreykjavikur.is.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús kl. 17 Lista-
mannaspjall Bryndísar Snæ-
björnsdóttur og Mark Wilson
um sýninguna Vögguvísur.
Nýlistasafnið kl. 17
Grasrót 2003. Grasrótarsýn-
ingar hafi verið haldnar allt
frá upphafi Nýlistasafnsins
sem hóf starfsemi sína fyrir
réttum 25 árum. Á Grasrót
2003 sýna listamenn sem
hafa lokið BA-námi í mynd-
list. Arndís Gísladóttir, Bald-
ur G. Bragason, Birgir Örn
Thoroddsen, Birta Guðjóns-
dóttir, Bryndís E. Hjálm-
arsdóttir, Bryndís Ragn-
arsdóttir, Elín Helena
Evertsdóttir, Hanna Christel
Sigurkarlsdóttir, Hrund Jó-
hannesdóttir, Huginn Þór
Arason, Hugleikur Dagsson,
Magnús Árnason og Re-
bekka Ragnarsdóttir.
Handverk og hönnun kl.
15 Opnun sýningar sem
kölluð er: Box – ílát – öskjur.
Sýningin er haldin í kjölfar
samkeppi sem fjölmargir
tóku þátt í. Dómnefnd valdi
Marinósdóttir og Mona
Sandström.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús kl. 14 Sýning-
arstjóraspjall Níels
Hafsteins um sýninguna
Yfir bjartsýnisbrúna - sam-
sýning alþýðulistar og sam-
tímalistar.
Listsafn Reykjavíkur
-Kjarvalsstaðir kl. 15
Leiðsögn um sýningar Eyjólfs
Einarssonar og Sæmundar
Valdimarssonar.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús kl. 14 Lab Loki
sýnir „Baulaðu nú...“ Dagur
í lífi Kristínar Jósefínu Páls.
Þriðjudagur
Salurinn kl. 20 Tríó Nord-
ica 10 ára – Brahms veisla:
Píanótríó í c-moll op. 101
og tríó í H-dúr op. 8, Píanó-
tríó eftir Þórð Magnússon,
(frumflutningur á Íslandi) og
verk eftir Piazzolla.Tríóð er
skipað Auði Hafsteinsdóttur,
Bryndísi Höllu Gylfadóttur
og Monu Sandström.
Ýmir kl. 20 Jón Svavar
Jósefsson bassbaríton heldur
styrktartónleika.
Fimmtudagur
Háskólabíó kl. 19.30
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Einleikari:
Víkingur
Heiðar
Ólafsson pí-
anó. Hljóm-
sveitarstjóri
Olari Elts.
Flutt verður
verk eftir
Magnus
Lindberg:
Feria; Píanókonsert eftir Jón
Nordal og Sergej Prokofíev
nr. 1 og Sinfónía nr. 3 eftir
Erkki-Sven Tüür.
Föstudagur
Salurinn kl. 20 Íslensk
sönglög og óperuaríur. Sig-
rún Hjálm-
týsdóttir,
sópran,
Gunnar
Guðbjörns-
son, tenór,
Kristinn
Sigmunds-
son, bassi
og Jónas
Ingimundarson, píanó.
Efnisskráin er mjög fjöl-
breytt. Þar má finna vinsæl
kvartettlög fyrri ára í útsetn-
ingum Carls Billich, Magn-
úsar Ingimarssonar o.fl., og
svo nýrri útsetningar fyrir
kvartettinn eftir Bjarna Þór
Jónatansson. M.a. verða
fluttar nokkrar nýjar útsetn-
ingar á lögum Jóns Múla
Árnasonar.
Söngkvartettinn Út í vorið
var stofnaður haustið 1992
af þeim Ásgeiri Böðvarssyni,
Einari Clausen, Halldóri
Torfasyni og Þorvaldi Frið-
rikssyni. Snemma árs 1993
kom píanóleikarinn Bjarni
Þór Jónatansson til liðs við
kvartettinn. Daníel Þor-
steinsson píanóleikari og
harmonikuleikari kemur
einnig fram með kvart-
ettinum á þessum tónleikum.
Sunnudagur
Bústaðakirkja kl. 20
Kammermúsíkklúbburinn.
Eþos-kvartettinn flytur
Strengjakvartett nr. 2 eftir
Jón Ás-
geirsson,
Strengja-
kvartett í
c-moll eftir
Mozart og
Kvintett fyrir
í A-dúr op.
81 eftir
Antonín
Dvorák. Eþos-kvartettinn
skipa Auður Hafsteinsdóttir,
Greta Guðnadóttir, Guð-
mundur Kristmundsson og
Bryndís Halla Gylfadóttir.
Auk þess leika Þórunn Ósk
úr innsendum munum. Valdir
voru hlutir fá tuttugu og sjö
aðilum. Á sýningunni eru
verk úr: leir, postulíni, tré,
tágum, pappír, flóka, roði
og ýmsu öðru.
Sýningin stendur frá 20.
september til 12. október
2003 í Aðalstræti 12. Opið
alla daga frá kl. 13.00 til
17.00 nema mánudaga.
Kaffi Sólon kl. 16 Að
þessu sinni er það mynd-
listakonan Claudia Mru-
golski,sem mun opna sýn-
ingu. Claudia, sem málar
undir nafninu Mobile, mun
sýna olíuverk, sem eru
blanda af ævintýraheimi og
litaskrúð - svolítið í anda
Klee. Sýningunni lýkur17.
október.Þetta er 7. sýning
Mobile.
Gallerí Tukt, Hinu húsinu
kl 16Sara Elísa Þórðardóttir
myndlistarnemi opnar mál-
verkasýningu. Þetta mun
vera fyrsta sýning Söru Elísu
sem stundað hefur myndlist-
arnám við Fjölbrautarskól-
ann í Breiðholti síðastliðið
ár. Sara Elísa flutti heim til
Íslands frá Edinborg í Skot-
landi fyrir ári. Þar bjó hún í
þrjú ár og stundaði meðal
annars efnafræðinám við
háskóla þar í borg. Sara
mun sýna málverk tengd vél-
um og orku með örfáum
undantekningum. Yfirskrift
sýningarinnar er Afl og
Orka. Sýningin jafnfram
sölusýning.
Borgarhólsskóli kl. 17
Söngkvartettinn Út í vorið
heldur tónleika.
MYNDLIST
Gallerí Dvergur, Grund-
arstíg: Elín Hansdóttir. Til
4.10.
Gallerí Hlemmur: Val-
gerður Guðlaugsdóttir: Inn-
setning. Til 28.9.
Gallerí Kambur, Rang-
árvallasýslu: Hulda Vil-
hjálmsdóttir. Til 5.10.
Gallerí Skuggi: Kristinn
Pálmason. Til 21.9.
Galleríi Sævars Karls:
Svanborg Matthíasdóttir. Til
27.9.
Gerðarsafn: Þrjár einka-
sýningar. Helgi Hjaltalín Eyj-
ólfsson, Katrín Þorvaldsdóttir
og Olga Bergmann. Til 5.10.
Gerðuberg: Breiðholt fyrr
og nú. Ljósmyndasýningin
Brýr á þjóðvegi 1. Til 21.9.
Hafnarborg: Bernd og
Jutta Lohmann. Kristbergur
Pétursson. Ingiríður Óðins-
dóttir. Teikningar hafnfirskra
barna. Til 13.10.
Hallgrímskirkja: Gunnar
Örn. Til 1.12.
Ketilhús, Akureyri: Einar
Hákonarson. Til 5. okt.
Kling og bang gallerí,
Laugavegi 23: Nína
Magnúsdóttir. Til 28.9.
i8, Klapparstíg 33: Roni
Horn. Undir stiganum: Hlyn-
ur Hallsson. Til 13.9.
Íslensk grafík: Berglind
Björnsdóttir. Til 28. sept.
Listasafni ASÍ: Ásmund-
arsalur og Gryfja, Inga Jóns-
dóttir. Til 21.9. Arinstofa,
Kristin Pétursson. Til 12.10.
Listasafn Akureyrar: Þjóð
í mótun: Ísland og Íslend-
ingar fyrri alda. Vestursalur:
Erla S. Haraldsdóttir og Bo
Melin. Til 2.11.
Listasafn Borgarness:
Snjólaug Guðmundsdóttir. Til
8.10.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Júlíana
Sveinsdóttir. 26.10.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Stefán Geir Karls-
son. Til 19.10.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Ásmundur
Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Erró – stríð. Til
3.1. Samsýning alþýðulistar
og samtímalistar. Í samstarfi
við Safnasafnið. Úr bygging-
arlistarsafni. Innsetning Bryn-
dísar Snæbjörnsdóttur og
Mark Wilson. Til 2.11.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Eyjólfur
Einarsson. Sæmundur Valdi-
marsson myndhöggvari. Til
12.10. List án landamæra:
Sigrún Huld Hrafnsdóttir og
Þórey Rut Jóhannesdóttir. Til
28.9.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Meistarar
formsins – Úr högg-
myndasögu 20 aldar. Til
28.9.
Mokkakaffi: Bjarni Bern-
harður. Til 15. okt.
Norræna húsið: Skart-
gripir norsku listakonunnar
Liv Blåvarp. Til 19. okt. And-
dyri: Sari Maarit Cedergren.
Til 12.10.
Nýlistasafnið: Grasrót
2003. Til 12.10.
Safn – Laugavegi 37: Op-
ið mið-sun, kl. 14–18. Til
sýnis á þremur hæðum ís-
lensk og alþjóðleg samtíma-
listaverk.
Skaftfell, Seyðisfirði: Ein-
ar Valur. Til 26. september.
Slunkaríki, Ísafirði: Hjört-
ur Hjartarson. Til 28.9.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir.
Skáld mánaðarins - Jón
Helgason.
Upplýsingamiðstöð mynd-
listar: www.umm.is undir
Fréttir.
LEIKHÚS
Þjóðleikhúsið:
Dýrin í Hálsaskógi, sun.,
sun. Með fulla vasa af grjóti
lau. Allir á svið, fös.
Litla svið: Pabbastrákur,
frums. föstudag, lau. fim.
Smíðaverkstæði: Veislan,
fös. fim.
Borgarleikhúsið: Lína
Langsokkur, lau. sun. Öfugu
megin upp í, fös. fim.
Grease, sun. mán.
Iðnó: Sellofon, fim. sun.fim.
Loftkastalinn: Erling, lau.
Tjarnarbíó: Ráðalausir
menn, fim. fös.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Vinur minn Heimsendir, lau.
fim.
SUNNUDAGINN 21. september kl. 14.00 verður dagskrá í
Þjóðmenningarhúsinu, þar sem ljóð Jóns Helgasonar verða
sungin og lesin, auk þess sem lesið verður úr nokkrum bréfum
hans. Fram koma m.a. Þórunn Björnsdóttir og Skólakór Kárs-
ness, Kór Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar og Bergþór Pálsson söngvari.
Jón Helgason er skáld mánaðarins í Þjóðmenningarhúsinu.
Skáld mánaðarins er samvinnuverkefni Þjómenningarhúss,
Skólavefjarins ehf. og Landsbókasafns Íslands – háskóla-
bókasafns sem setur upp sýninguna í bókasal Þjóðmenning-
arhúss. Þar eru til sýnis nokkur verk með ljóðum Jóns og þýð-
ingum, og sýnishorn af störfum hans sem fræðimanns.
Ljósmyndir frá lífi hans og starfi prýða sýninguna. Á Skóla-
vefnum er kynning á verkum Jóns og útskýringar á ljóðum
hans. www.skolavefurinn.is/ljodskald
Sýningar í Þjóðmenningarhúsi eru opnar milli 11 og 17 alla
daga. Ókeypis aðgangur er á sunnudögum.
Þjóðmenningarhús
Jón Helgason skáld mánaðarins