Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.2003, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.2003, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. OKTÓBER 2003 FJÖLMIÐLAR NEÐANMÁLS PAUL Coelho, höfundur Alkem- istans, sendi nýlega frá sér bók- ina Ellefu mínútur, eða Eleven minutes eins og heiti hennar hef- ur verið þýtt á ensku. Í formála bókarinnar biður höfund- urinn lesendur sína afsökunar á að takast að þessu sinni á við hið ljóta og alvarlega mál- efni sem mannsal er. Sagan segir frá Maríu, fallegri mey úr inn- sveitum Brasilíu er hleypst á brott til Ríó þar sem hún er plöt- uð til þess að fara til Genfar sem „dansari“ og er þangað er komið leiðist hún út í vændi. Saga Mar- íu er þó ekki eingöngu glæpaaf- hjúpun heldur býr hún að hætti Coelhos yfir sama ríka frásagn- armátanum og fyrri verk. Þann- ig má t.d. um margt líkja kynn- um Maríu af Sviss við fjársjóðsleit Santiagos í Alkem- istanum, en í gegnum kynlífsiðn- aðinn uppgötvar María hið sanna mannlega eðli og nær að bjarga sálu sinni. Andað í vatni SMÁSAGNASAFN JULIE Orr- inger How to Breath Underwat- er, eða Hvernig á að anda í vatni, þykir sérlega áhugaverð frum- raun sem erfitt er að leggja frá sér. Ólíkt þeim fjölda kvenna- bókmennta í dag sem skrifaðar eru í stíl Beðmála í borginni þá kýs Orringer að kafa dýpra. Þannig fjalla sögur hennar um jafn ólík mál og litla stúlku sem verður vitni að óhugnanlegu slysi á þakkargjörðardag og of feita listakonu sem berst við að skilgreina sjálfa sig í skugga fegurðar ungrar frænku sinni. Sögur Orringer þykja búa yfir tilfinningalegri dýpt er hæfir viðfangsefninu ásamt ríkulegri lýsingu smáatriða. Siðferði ofbeldis RITHÖFUNDURINN William T. Vollmann leitast við að veita kerfisbundna skýringu á notkun ofbeldis í nýjasta verki sínu Ris- ing Up and Rising Down, sem er eins konar hugleiðing um sið- ferði ofbeldis. Verkið verður gefið út í sjö bindum, en þar má finna sögu ofbeldisviðburða, samtímarannsóknir, ritgerðir, gröf, ljósmyndir og teikningar í leit höfundarins að svari við spurningu sem leitað hefur á marga í gegnum aldirnar: Undir hvaða kringumstæðum er of- beldi réttlætanlegt? Vollmann, sem er byssuáhugamaður, segist sjálfur hafa ætlað sér að búa til einfaldan siðferðisreikni þar sem skýrt væri hvenær dráp væri réttlætanlegt. Said látinn EDWARD W. Said, prófessor í ensku og bókmenntum við Col- umbia háskólann, lést nýlega. Said var meðal helstu sérfræð- inga í mál- efnum Mið- austurlanda og birtust skrif hans í dagblöðum víða um heim. Hann var auk þess höfundur tíu ritverka m.a. Blaming the Victims, Power, Politics and Culture og The World, the Text and the Critic, sem hann var til- nefndur til verðlauna banda- rískra bókmenntagagnrýnenda fyrir. ERLENDAR BÆKUR Ellefu mínútur Coelhos Paul Coelho Edward W. Said M EÐ raflýsingu sveitanna upp úr miðri síðustu öld var flestum draugum úthýst og stökkt á brott. Sumum tókst að dyljast í skúmaskotum og hrella landsmenn áfram með dularfullum hljóðum um miðjar nætur, skrölti og hringli, og mæla fleygar setningar í myrkrinu sem urðu efni í sögur og ljóð. Aðrir eru endanlega komnir yfir móðuna miklu og eina jarðsam- band þeirra er í gegnum Lífsaugað, fyrrver- andi útvarpsþátt en núverandi sjónvarpsefni á Stöð tvö. Lífsaugað hóf göngu sína í sjónvarpi sl. mið- vikudag. Hafði þáttarins verið beðið með nokk- urri óþreyju enda búið að byggja upp mikla auglýsingaspennu fyrir frumsýningarkvöldið. Þetta var ekki bein útsending eins og ég hafði vænst, heldur mjög mikið unninn og klipptur þáttur sem samanstóð af skyggnilýsingu og viðtölum að henni lokinni ásamt auglýsingum. Í upphafi birtist miðillinn, hinn frægi Þórhall- ur Guðmundsson, og lýsti uppbyggingu þátt- arins. Sagðist hann vona að áhorfendur hefðu gaman af tiltækinu enda þátturinn kynntur og efnisflokkaður sem skemmtun hjá Stöð 2. Til- gangur þáttarins var sá, að sögn miðilsins, að sanna að líf sé eftir þetta líf. Hófst nú sýn- ingin; miðillinn stóð á upphækkuðum palli, átt- hyrndum og blálýstum. Áhorfendur sátu hring- inn í kringum hann og á bak við þá voru bláleitir veggir með dularfullum ljósbrigðum. Skyggnilýsingin hófst og fljótlega komst mið- illinn í samband við ömmu og afa sem voru bæði farin á hinar eilífu veiðilendur. Gömlu hjónin höfðu nokkrar áhyggjur af einum gesti í salnum, myndarlegri konu á besta aldri, og vildu að ráðagerðum varðandi sumarbústað í Borgarfirði yrði frestað um hríð. Einnig vildu þau að konan reyndi að hugsa aðeins minna um aðra og meira um sjálfa sig. Þá kom Nonni í gegn, miðillinn flutti þau skilaboð að hann væri sáttur og liði vel. Þriðji og síðasti gest- urinn að handan var Anna, lágvaxin, gömul kona með fallegt hár. Skilaboð hennar voru þau að eitthvað ætti eftir að ganga vel, við- komandi ætti að hlusta á rödd hjartans, slaka á, gæta að mataræðinu og ekki narta milli mála heldur fara frekar út að ganga. Gestir í sal tóku þessum jarðbundnu og hverdagslegu skilaboðum fagnandi og í viðtölunum á eftir voru orð miðilsins túlkuð betur og tengd við raunverulega atburði og jafnvel ljósmyndir. Ekki náðu fleiri sambandi umrætt kvöld og hafa eflaust margir farið vonsviknir heim úr sjónvarpssal. Í samtíma þar sem efnishyggja og trúleysi eru ráðandi grípur fólk oft ýmis hálmstrá. Vís- indin afgreiða dauðann sem endanlegan en trúarbrögðin reyna að sefa óttann við dauðann með von um framhaldslíf og endurfæðingu, og raddir að handan sanna þann góða boðskap. Á útvarpsstöðinni Bylgjunni hljómaði djúp, hlý og dularfull rödd Þórhalls eins og véfrétt og honum tókst að vefja viðmælendum um fingur sér. Í sjónvarpinu er hann langt frá því að vera aðlaðandi, hvað þá sannfærandi. Þáttagerðin sjálf bætti ekki úr skák enda hálfgerð hráka- smíð; grafíkin, settið, klippingarnar, kynning- arstefið, lógóið, tónlistin; allt var þetta ótrú- lega púkalegt. Í lokin sátu Þórhallur og Guðrún Möller á átthyrndu og upplýstu gólfinu með bláa skjámynd í baksýn og ræddu hvað þessi fyrsti þáttur hefði verið magnaður og sal- urinn frábær. Þórhallur endaði þáttinn á fleyg- um orðum myrkfælnasta Íslendingsins frá því Grettir glímdi við drauginn Glám: Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Mér er hins vegar alveg stórlega til efs að þarna hafi nokkrar „sálir“ verið viðstaddar og sennilega hefur verið hleg- ið að þessu brölti okkar í handanheimum. SKILABOÐ AÐ HANDAN Í lokin sátu Þórhallur og Guð- rún Möller á átthyrndu og upp- lýstu gólfinu með bláa skjá- mynd í baksýn og ræddu hvað þessi fyrsti þáttur hefði verið magnaður og salurinn frábær S T E I N U N N I N G A Ó T TA R S D Ó T T I R BÓK Vicente Verdú, Stíll heimsins. Lífið í skáldskaparkapítalismanum (El estilo del mundo. La vida en el capi- talismo de ficción, Anagrama, Barcelona, 2003), er rannsókn á til- verunni í skálduðum veruleika, veru- leika sem keðjur og stórfyrirtæki framleiða stöðugt og endur- framleiða, þau dikta upp tilveru- grundvöll og lífssýn sem lagar sig að því sem fyrir er. Bókin er uppfull af staðreyndum og tölfræði sem sum hver er sláandi. „Fjölbreytnin er ekki það sem ein- kennir heim okkar,“ segir höfundur í upphafi bókar, „fjölbreytni hefur allt- af verið fyrir hendi. Það sem setur mark sitt á heiminn er tilhneiging til útjöfnunar …“ Verdú nefnir að mannkynið drekkur á hverri klukku- stund milljón lítra af kóki um allan heim; þúsund milljónir manna eru á enskunámskeiði á þessari stundu á meðan einungis níu Bandaríkjamenn leggja stund á arabískunám; þrjátíu þúsund McDonaldsstaðir í 120 lönd- um afgreiða 45 milljónir við- skiptavina á dag, gjarnan um Big Mac, sem á Indlandi nefnist Mah- araja Mac, í Frakklandi má fá niç- oise-salat með honum, fetaostur fylgir í Grikklandi, steiktan kjúkling má fá í Singapúr, karrýkjúkling í Bretlandi og kosher-máltíð á McDon- alds í Ísrael. Og í Japan, þar sem eru 3.500 McDonaldsstaðir, stendur meirihluti barna í þeirri trú að Big Mac sé uppfinning japanskrar matargerðarlistar. […] Því kapítalisminn hefur ekki lengur aðeins áhuga á að selja og græða peninga heldur leitast hann við að skáldgera sjálfan sig, þýða veru- leikann yfir í léttari veruleika; varan – hver sem hún er – er ekki aðeins vara heldur lífsviðhorf eða fulltrúi þess. Líf- ið sjálft (hvað er það? Lífið er fast orðasamband, skrifaði rithöfund- urinn Juan José Millás) er orðið æðsta viðfang, trúin, ættjörðin eða byltingin fylla það ekki lengur, það má fylla af myndskeiðum og skáld- skap kapítalismans. Vicente Verdú vitnar: „Eftir því sem áhorfandinn virðir meira fyrir sér … ríkjandi myndskeið, því minna skilur hann í eigin tilvist og eigin þrám. Frá þess- ari stundu verður hann aðskilinn frá lífi sínu.“ (Guy Dobord, 2000.) Hermann Stefánsson Kistan www.visir.is/kistan Morgunblaðið/Ásdís „... heitt eins og helvíti, sætt eins og syndin og svart eins og nóttin.“ SKÁLDSKAPAR- KAPÍTALISMI I Í ævisögu Viðars um Stephan G. Stephansson erdregin upp mynd af stórbrotnum manni sem var allt í senn örbirgðarmaður, fjósakarl, virkur róttækl- ingur, andófsmaður, mannúðarsinni, hugsuður og stórskáld. Stephani var fátt óviðkomandi. Hann var óþreytandi við að stinga á kýlum samfélagsins og virðist að mörgu leyti hafa verið óvenjulega fram- sýnn. Í óprentuðum hugleiðingum um tungumál og þjóðerni sem varðveittar eru í Landsbókasafni Ís- lands - Háskólabókasafni mælir Stephan gegn hug- myndum sem honum hafa þótt lýsa misskilningi. Þetta eru punktar á litlum blöðum fyrir fund um þjóðernismál í Markerville þar sem Stephan bjó síð- ustu æviár sín. IIFyrsta bábiljan sem hann mælir gegn er þessi:„Kanada verður aldrei þjóðarheild, nema ein ein- asta tunga sé töluð í landinu.“ Hugmyndin hljómar kunnuglega og má reyndar telja eina af grunn- hugmyndum íslenskrar sjálfstæðishugsjónar síðustu alda. En Stephan er ekki sammála og segir: „Þjóð- ræknin föðurlandsástin, tekur ekki á þeim þolinmóð einum saman. Þær eiga sterkari rót, þá, að í landinu er heimili manns, hans sjálfs og als sem honum er annast um. Það er hans land, fyrst og fremst, af því hagur hans og framtíð, er öll við það bundin. Hér verður hann og hans að komast af. Þjóðrækni hvílir á heimiliseigninni, ekki tungutakinu.“ Og Stephan nefnir dæmi máli sínu til stuðnings um að þrjár til fjórar tungur séu talaðar í Sviss og tvær í Belgíu og mállýskur séu fjölmargar í sumum löndum. III Eftirfarandi bábilja þykir Stephani þó einna al-heimskust. „Íslenzku kenslan stendur fyrir ensk- unni og gerir börnin útúrskotin.“ Og ádrepa hans gæti að sumu leyti átt við í dag: „Sá maður verður út- úrskotnastur sem ekki hefir kynnst nema einu heim- ili, ekki lesið nema eina bók og þekkir ekki til nema eins máls. Að öðru jöfnu, er sá maður nokkru færari, sem komið hefir í tvær sveitir, lesið tvö hefti úr mann- kynssögunni, og getur mælt með sínum málefnum, á tveimur tungum, hann getur ögn víðar verið heima en hinn, og það er nú þessi mentun, sem allir stæra, að útibyggja einræningshættinum, að eiga sem fæsta tóma kofana, að vera fær um sem flest. Sú þjóð, sem ekki vill vita af nema einni tungu, gerir sig útúr- skotna, tæpir sér á tvær öfgar, hrokann sem heldur að sín þjóð sé allur heimurinn, sem nokkurs er verð- ur, eða vesaldóminn, sem telur sér trú um, að alt hjá sér sé bágast og bjálfalegast. Bezti vegurinn til læra og skilja sína eigin tungu og sína þjóð, er að hafa eitt- hvað til samanburðar. Skorturinn á því, er það að vera útúrskotinn. Kunnátta í íslenzku skerpir skiln- ing manns á enskunni. Eg hefi tekið eftir því, að þau börn á skólum, sem verst gengur við enskt mál, eru ekki þau, sem koma frá heimilum þar sem íslenzka, eður önnur mál en enska, eru töluð daglega í heima- húsum. Það eru hin, sem lengst vefst tunga um tönn, og skólarnir eiga erfiðast með að leiðrétta, sem koma úr þeim heimahögum þar sem enskan ein er töluð, en illa, hvort sem heldur er af erlendu fólki, eða því sem sjálft er enskt, en mælir þó á mállýzku, það stendur fyrir enskunni.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.