Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.2003, Page 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. OKTÓBER 2003
I.
Ó
hætt er að halda því fram
að viss skil verði í okkar
bókmenntasögu á árun-
um upp úr 1970, og e.t.v.
einkum veturinn 1974–
75; að þá hafi að minnsta
kosti orðið merkjanlegur
blæbrigðamunur, og skýr
afstöðumunur í bókmenntum milli nýrra höfunda
og þeirra eldri. Um þær mundir tekur ný kynslóð
höfunda að kveðja sér hljóðs svo eftir var tekið
og var þarna komin með nokkrum fyrirgangi
fyrsta kynslóð þeirra skálda sem fæddust eftir
stofnun lýðveldisins Íslands 1944. Bókmenntir
fengu léttara yfirbragð en áður þótti hæfa, hirðu-
leysislegra að sumra mati, jafnvel skelmislegra,
að því er aðrir töldu. Jóhann Hjálmarsson, sem
þá var gagnrýnandi við Morgunblaðið, talaði um
„fyndnu kynslóðina“.
Árið 1975 var ár Listaskáldanna vondu, sam-
fylkingar ungskálda – og nestorsins Guðbergs
Bergssonar – sem tókst að fylla Háskólabíó af
ljóðþyrstum áheyrendum og fara því næst um
landið líkt og vinsæl danshljómsveit og fylla
hvert húsið af öðru. Þetta var í takt við tímana.
Skáldin vildu yrkja beint til alþýðunnar og alþýð-
una þyrsti í skáldskap. Ólafur Haukur Símonar-
son orti „ljóð handa fólki sem aldrei les ljóð“ rétt
eins og þýska skáldið Hans Magnus Ensensber-
ger. Það lá eitthvað í tímanum, uppreisnarkyn-
slóðin var samkvæmt öllum sólarmerkjum að
mannast.
Þeir sem þarna voru innanborðs voru ýmist
búnir að gefa út eina bók eða í þann veginn að
gefa út sína fyrstu bók. Hrafn Gunnlaugsson gaf
sína fyrstu bók út haustið 1973, Pétur Gunnars-
son gaf út sína fyrstu bók 1973 og jafnframt einu
ljóðabókina sína, en las þarna úr fyrstu drögum
sínum að svonnefndum Öndrum, sem urðu fjórar
skáldsögur áður en yfir lauk. Birgir Svan fleytti
ljóðabókinni Hraðfryst ljóð framan í lesendur
1975 og kom svo með Nætursöltuð ljóð í kjölfar-
ið. Pétur Gunnarsson hafði sent frá sér tíma-
mótaverk til vegsömunar léttleikanum þegar ár-
ið 1973. Guðbergur var þarna að kynna ljóð sín
tileinkuð Flateyjar-Frey, sem komu út sem heild
1977. Og Sigurður Pálsson, sem átti víst ekki
minnstan þátt í þessari almennu velgengni, gaf
út fyrstu ljóðabók sína 1975.
Leikritun okkar fór ekki varhluta af því sem
var á seyði í tímanum og árið 1975 komu tvö leik-
skáld fram sem kröfðu áhorfendur um annars
konar athygli en forverar þeirra höfðu gert.
Þessi leikskáld voru Böðvar Guðmundsson og
Kjartan Ragnarsson. Böðvar skrifaði fyrir Al-
þýðuleikhúsið, en Kjartan var innanbúðarmaður
hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hafði þegar komið
fram sem einkar áhugaverður leikstjóri.
II.
Það er alls ekki einfalt mál að fjalla um Kjart-
an Ragnarsson sem leikskáld svo vel sé. Í fyrsta
lagi hefur hann verið óvenju afkastamikið leik-
skáld og sent frá sér safn ólíkra leikrita, þó að
heldur hafi dregið úr afköstum hans við frum-
smíðar hin seinni ár. Í öðru lagi beitir hann
óvenju fjölbreytilegum meðölum að því er varðar
stíl og framsetningu. Í þriðja lagi eru skelfilega
fá leikrita hans gefin út, eða aðeins tæpur fjórð-
ungur þeirra, þ.e. Týnda teskeiðin, Dampskipið
Ísland og Gleðispilið. Einnig leikgerðir hans úr
bókum Einars Kárasonar.
Í fjórða lagi er oftar en ekki óvanalega langur
vegur frá texta handritsins til fullfrágenginnar
sýningar, en Kjartan hefur allajafna sviðsett eða
leikstýrt verkum sínum. Þannig verður merking
verka hans ekki ráðin nema að litlum hluta af
leikhandritunum einum og sér. Merkingin verð-
ur fyrst að fullu ljós í tilbúinni leiksýningu í leik-
stjórn höfundar. Hann hefur enda oft áréttað að
hann semji leiksýningar en ekki leikrit.
„Leikhúsið er víðara tjáningarform umhverfis
og andrúmslofts en tungumálið eitt. Það er sam-
spil myndmáls, tóna, orða og allra tiltækra ráða
til að skerpa og ydda.“ [Leikhús á líðandi stund,
Yrkja, bl. 148, Rvík 1990.] Það er því e.t.v. ekki
alls kostar rétt að kalla Kjartan Ragnarsson leik-
ritahöfund. Hann er leikskáld í víðtækustu merk-
ingu þess orðs. Hann yrkir á leiksviðið, tíma þess
og rúm. Verk hans eru langt frá því að vera öll í
væn verk Kjartans eru fremur en lesvæn. Bygg-
ingin er epísk að hætti Bertolts Brecht og söngv-
um er skotið inn á milli atriða. Leikurinn gerist á
einum degi, Peysufatadegi Verslunarskólanem-
enda árið 1937. Heimsstyrjöldin er skammt und-
an, það vita áhorfendur og heimskreppan hefur
litað tíðarandann. Við fylgjumst með unga fólk-
inu undirbúa hátíðina, stúlkurnar þurfa að klæð-
ast peysufötum, en piltarnir kjól og hvítu með
pípuhatt. Sumir eiga sín föt, aðrir fá þau sér-
saumuð og enn aðrir þurfa að fá fötin lánuð.
Fyrri hluta verksins er hverju og einu þeirra lýst
og hvernig þeim gengur undirbúningurinn. Jafn-
framt fylgjumst við með hvernig þetta unga fólk
er eins og að máta pólitískar hugmyndir, sjá
hvernig þær henti þeim. Í seinni hlutanum eru
allir komnir í sitt fínasta púss og hátíðin hefst.
En jafnframt því að menn eru komnir í fötin má
segja að þeir séu komnir í hinar aðfengnu póli-
tísku hugmyndir sem þeir hafa verið að máta, þó
að undir niðri séu þeir einfaldlega í íslenskum ull-
arnærfötum. Það verða auðvitað árekstrar,
stefnunum lýstur saman.
Enn kom Kjartan með innlegg í umræðu dags-
ins í næsta leikriti, Jóa (1981), sem var samið í til-
efni af alþjóðaári fatlaðra og kannski eitt af fáum
leikritum sem eru samin af þess háttar hvöt sem
nær því að verða gott leikrit, gott samtíma-
drama. Það vekur áleitnar spurningar sem
brunnu á vörum fjölmargra á þessum árum þeg-
ar krafa dagsins var að bæði hjónin ynnu utan
heimilisins og ættu hvort sinn starfsframa, án
þess að samfélagið væri reiðubúið að mæta þörf-
um slíkra sambúðarhátta. Hvað átti að verða um
börnin, hvað með þá sem voru vinnandi fólki háð-
ir um stöðuga nærveru, eins og t.a.m. fatlaðir eða
aldraðir?
Verkið hefur stíft raunsæislegt yfirbragð og
voru sum atriðin eins og klippt út úr gráum
hversdagsleikanum ef ég man rétt. En hinn
hversdagslegi stíll er rofinn nokkrum sinnum,
með því að atburðarásin færist inn í hugarheim
titilpersónunnar. Líkt og í Ofvitanum klýfur
Kjartan aðalpersónuna í tvennt. Jói, sá fatlaði, á
sér innri mann, dúkkuna sína Súpermann, sem
hann getur spjallað við á allt annan hátt en þá
sem eru í kringum hann. Brýnasta spurning
verksins er sígild: Á ég að gæta bróður míns?
Skilnaður (1982) er viss formtilraun sem þó er
ekki eingöngu sjálfrar sín vegna, en að því er
þetta atriði varðar þá er hér á ferð eðlilegt fram-
hald af þeirri stílbrigðatilraun sem sjá mátti í
Jóa. Formið á leikritinu Skilnaði skilar allri
merkingu leiksins. Verkið er samið fyrir Iðnó og
með það í huga að brjóta upp hefðbundið form
þess leikhúss. Konunni, Kristínu, er fleygt út í
óreiðu og það er undirstrikað að nokkru með
formi sviðsetningarinnar, hún er nánast um-
og viss léttleiki hélt innreið sína í íslenskt bók-
menntalíf. Þessi léttleiki varð að vísu óbærilegur
þegar fram liðu stundir, en það er önnur saga.
Kjartan Ragnarsson er leikskáld léttleikans á
þessum árum, en í kjölfar Saumastofunnar komu
Blessað barnalán og Týnda teskeiðin, hvort
tveggja gamanleikir, háðádeiluverk með sam-
félagslega skírskotun.
Í kjölfar velgengni Saumastofunnar sendi
Kjartan frá sér ærslaleik eða farsa, Blessað
barnalán (1977). Framvindan, fléttan byggist á
fáeinum orðum sem kjaftagleið kona missir óvart
út úr sér. Það er aðalsmerki farsans, allt byggist
á einfaldri lygi, þeim mun einfaldari sem lygin er,
því betra. Konan er einmana og þykir hún afskipt
og lýgur því til að hún sé dáin. Börnin hennar láta
sig auðvitað ekki vanta öllu lengur á heimilið úr
því gamla konan er „farin“. Sviðsetning Kjartans
á þessu verki var miðjusett. Inngangar til hliða,
að ofan og aftan (megininngangur), þó svo að
unnið væri með gamaldags flekaleikmynd, sem
ef til vill var ein síðasta alveg raunsæislega stofu-
leikmyndin í íslensku leikriti.
Eitt besta leikrit Kjartans frá fyrstu árunum
er Týnda teskeiðin (1977), a.m.k. að því er varðar
byggingu, og er það hagleikssmíð. Textinn er lip-
ur þó að hann sé hvorki djúpur bókmenntalegur
texti né heldur trúverðugur talmálstexti að öllu
leyti. Textinn geldur þess reyndar nokkuð að at-
burðarásin er ströng, framvindan er alráð á
kostnað persónusköpunar. En þegar grannt er
skoðað kemur í ljós að svo til hvert orð vísar inn-
ar í verkið, gefur í skyn og eykur þar með ánægju
áhorfandans þegar atburðurinn verður. Týnda
teskeiðin er háðádeila, býsna snörp á sínum tíma,
einhver sagði að þetta væri eins og hráki framan
í samfélagið. Þarna er fjallað um tvöfalt siðgæði
og samsekt alls samfélagsins.
Næsta frumsamda leikrit Kjartans var Snjór
(1980), drama að hætti Ibsens gamla, býsna vel
samið. Þetta er þríhyrningsleikur um ást og
valdabaráttu sem gerist í litlu plássi austur á
fjörðum um hávetur. Þarna er fjallað um líf í ná-
vist dauðans en ekki í skugga hans. Þarna eru
bornar upp brýnar spurningar af heimspekileg-
um og siðferðilegum toga. Hvað gefur lífinu
gildi? Hvers virði er það? Hvers virði er frægð og
frami? Hvaða möguleika á maðurinn andspænis
því sem virðist honum sterkara? Hvaða gildi hef-
ur það fyrir manninn að sigra? Að sigra heiminn,
sjálfan sig, dauðann. Í innsta kjarna þessa leik-
rits er fólgin gagnrýni á hugsunarhátt hins
sterka, en reyndar eru örlög alls samfélagsins
leikskáldinu hugleikin hér líka, sem oftast, og
birtist sú hugsun í þeirri ógn sem þorpinu stend-
ur af yfirvofandi snjóflóði. Ofvitinn, leikgerð á
samnefndri endurminningabók eftir Þórberg
Þórðarson, með nokkrum söngvum við kvæði eft-
ir sama kom næst frá hendi Kjartans. Þegar
þessi sviðsuppfærsla kom fram þótti mikið ný-
mæli að henni. Einkum tvennt kom þar til. Í
fyrsta lagi hafði aldrei verið reynt að búa til leik-
rit úr hinum stílföstu, persónulegu bókum Þór-
bergs og höfðu menn í mörg undangengin ár
naumast borið við að færa prósa í leikform nema
hann væri eftir Halldór Laxness. Í öðru lagi – og
það var mikilvægara – þá var sú snjalla lausn að
kljúfa aðalpersónuna, Þórberg sjálfan, í tvennt; í
Þórberg yngri, sem í leikritinu heitir einfaldlega
Þórbergur, og Þórberg eldri, sem í leikritinu er
nefndur Meistarinn, en hann er í senn innri mað-
ur síns yngra sjálfs og sögumaður sem persónur
leiksins aðrar en Þórbergur yngri sjá ekki. Þess-
ari aðferð hafði oft verið beitt í kvikmyndahand-
ritum, en sjaldnar og ef til vill aldrei á leiksviði,
en í raun – eftir á að hyggja – gerir Kjartan ekki
annað en skilja sögumanninn frá efninu og hold-
gera hann uppi á leiksviðinu. Þar með varð til ný
vídd í þessa frásögn, óvænt dramatísk spenna
milli hinnar tvíeinu aðalpersónu innbyrðis. Til
þess að íslenskir áhorfendur „keyptu“ þetta leik-
rit upp úr endurminningum nýlátins skálds með
mikla og eftirminnilega persónutöfra var um
tvennt að velja, annaðhvort að reyna ekki að líkja
eftir háttum og útliti Þórbergs eða endurskapa
myndina af honum á trúverðugan hátt. Seinni
kosturinn var valinn og reyndar væri óréttlátt að
minnast á þetta sviðsverk án þess að nefna leik-
arana tvo, þá Jón Hjartarson sem lék Þórberg
eldri og Emil Gunnar Guðmundsson sem lék
Þórberg yngri. Ofvitinn er þroskasaga, frásögn
fullorðins manns af sínu unga sjálfi, unglingspilti
sem þráði að menntast, þroskast og verða að
manni. Þórbergur ungi hafði kynnst harðneskju
hinnar íslensku lífsbaráttu og þráði lausn frá
þeirri skelfingu, þráði upplýsingu og upphafn-
ingu andans.
Kjartan var enn í nálægri fortíð í næsta verki,
sem samið var fyrir Nemendaleikhúsið. Peysu-
fatadagurinn 1937 (1981) heitir það. Þetta er ein-
falt verk að byggingu, en ákaflega heillandi. Hér
er e.t.v. skýrasta dæmið um það hversu leiksviðs-
textanum; og oftar en ekki er ómögulegt að ráða
af textanum einum hvað fullklárað sviðsverkið
inniheldur. Einungis með því að ráða í sviðsetn-
ingaraðferðir Kjartans, stílbrögð, myndvísi og
áherslur í leiktúlkun verður unnt að meta verk
þessa höfundar að verðleikum, og þarf til þess
víðtækari rannsókn en hér er unnt að gera skil.
Þar sem Kjartani tekst best upp skapar hann
samspil atburða á leiksviðinu sem geta verið
hlaðnir af merkingu og vísunum í hliðstæður.
Hann smíðar skáldlegar líkingar í samspilinu á
leiksviðinu, í notkun rýmisins, í byggingu verka
sinna, en þessi skáldskapur birtist ekki nema að
hluta til í leiktextanum sjálfum. Af þessum sök-
um hefur leikskáldið Kjartan Ragnarsson oft-
sinnis vafist fyrir gagnrýnendum því þeir eru
flestir og hafa lengi verið bókmenntagagnrýn-
endur sem sjá ekki langt út fyrir sína fræðigrein.
III.
Fyrsta leikrit Kjartans var Saumastofan
(1975), kabarettættað verk með söngvum sem
urðu jafnframt innlegg í baráttu þá sem tengdist
Kvennafrídeginum það haust, en
upphaf Kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna
markaðist af árinu 1975. Það hefur stundum
gerst að leikhúsin hafa hlýtt kalli stofnana á borð
við Sameinuðu þjóðirnar og boðið upp á leiksýn-
ingar sem innlegg í umræðu þá sem stofnunin
vekur. Saumastofan er í aðra röndina þannig
verk. Önnur íslensk leikrit sem þannig eru til
komin eru t.d. Óvitar Guðrúnar Helgadóttur,
sem var samið að beiðni Þjóðleikhússins í tilefni
af alþjóðaári barnsins 1979, og Jói Kjartans
Ragnarssonar, sem var samið sem framlag til al-
þjóðaárs fatlaðra, 1981. Kjartan var með hóp
leikara og til stóð að sýna forn-grískan gaman-
leik, Þingkonurnar eftir Aristófanes, enda var sá
höfundur í tísku á þeim árum og hafði t.a.m. sýn-
ing Þjóðleikhússins á Lýsiströtu hrist upp í um-
ræðunni um kvenréttindi á Íslandi. Hins vegar
gerðist það að sögn að þýðingu leiksins seinkaði
og Kjartan brá á það ráð að semja sitt eigið verk
fyrir leikhópinn. Úr því varð Saumastofan.
Kjartan hafði áður samið einhverja smáþætti, sk.
sketsa, og söngva við ýmis tækifæri fyrir leiksvið
og sjónvarp; og hann hafði verið í þeim hópi
ungra leikara innan Leikfélags Reykjavíkur sem
nefndist Litla leikfélagið og starfaði í Tjarnarbæ.
Þar hafði verið unnið í sk. hópvinnu, leikararnir
sömdu verkin sameiginlega. Út úr þessum hópi
komu a.m.k. fjórir leikritahöfundar, þau Guðrún
Ásmundsdóttir, Jón Hjartarson, Þórunn Sigurð-
ardóttir og Kjartan. Svokölluð hópvinna við að
skapa leiksýningu var ekki óalgeng á 8. áratugn-
um og nægir að benda á Einu sinni á jólanótt,
Frísir kalla, Ínúk og Grænjaxla sem dæmi um
slíkt.
Saumastofan var þannig samin handa
ákveðnum leikurum, nokkuð sem var til þess
tíma afar fátítt. Verkið er smíðað eins og rammi
utan um kabarettdagskrá. Í rammanum eru sex
saumakonur sem vinna við að sauma karlmanna-
buxur og þar eru þrír ólíkir karlmenn, þ.e. for-
stjórinn, dæmigerð karlremba, verkstjórinn sem
er afar kvenlegur hommi (e.t.v. fyrsti homminn á
íslensku leiksviði) og uppurðarlítill unglings-
strákur sem er sendill. Í rammanum skyggn-
umst við inn á vinnustaðinn, kynnumst persón-
unum og daglegu lífi þar á staðnum. Þegar verkið
gerist er hins vegar óvenjulegur dagur, því elsti
vinnukrafturinn, hún Sigga gamla að norðan,
hefur átt 70 ára afmæli daginn áður en einungis
tveir mættu til veislunnar. Hún hefur því tekið
veisluföngin með sér í vinnuna og býður upp á
veislu þar. Það tekur þó dálítinn tíma að fá allar
til að vera með, því sumar vilja ekki missa bónus,
ekki missa af pening fyrir þakrennum eða þul.
(Umþenkingar um vinnuþrælkun, yfirvinnu,
bónus og óhefta efnishyggju voru áberandi í tím-
anum, sjá m.a. leikrit Birgis Sigurðssonar.) Loks
er þó veislunni slegið upp og þar verður það
smám saman úr að hver kvennanna segir frá sínu
lífi þannig að þær leika sögurnar. Þarna eru því
fjölmörg stutt atriði, leikir innan í leikritinu, en
allt fær kabarettblæ vegna þess að persónurnar
bregða sér í margvísleg hlutverk og nota einföld
gervi, og atriðin eru skreytt með söngvum sem
Kjartan samdi sjálfur. Urðu margir þessara
söngva afar vinsælir enda voru þeir eins og hrifs-
aðir út úr því andrúmslofti sem ríkti í tímanum.
Aðeins fáeinum dögum eftir frumsýningu verks-
ins gerðist sá einstæði atburður að konur, hvar
sem þær stóðu, hvort sem þær unnu heima eða
úti, lögðu niður vinnu í einn dag. Kvennafrídag-
urinn.
Þessari sýningu og þessu leikriti fylgdi ferskur
blær, viss léttleiki þar sem alvarlegt erindi um
þjóðfélagsmein bjó undir. Það var nefnilega ekki
laust við að fram til þess tíma hefðu menn tekið
leikritaskrif eilítið hátíðlega. Og sú krafa um al-
vöru og mikilsverðan boðskap reyndist ýmsum
höfundum ákaflega önug. Ég nefni Jökul Jak-
obsson og ekki síst Jónas Árnason í því sam-
bandi. Mér finnst reyndar allt að því hægt að
segja að viss vatnaskil hafi átt sér stað í íslenskri
bókmenntasögu kringum árið 1975, eða væri
kannski þægilegra að miða við búsetuársafmæl-
isárið 1974. En 1975 voru t.a.m. Listaskáldin
vondu á ferð, sem svo voru nefnd, og hin svo-
nefnda „fyndna kynslóð“ lét á sér kræla. Þessari
kynslóð fylgdi að minnsta kosti enginn hátíðleiki
E F T I R Á R N A I B S E N
Kjartan Ragnarsson er
vafalítið eitt af afkasta-
mestu og fremstu leik-
skáldum þjóðarinnar.
Hér er fjallað um feril
Kjartans sem hefur verið
afar fjölbreyttur.
Grandavegur 7 í l
ALVARA LÉT