Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.2003, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. OKTÓBER 2003 15
Morgunblaðið/Jim Smart
Nicole Vala Cariglia.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITáhugamanna heldur fyrstutónleika starfsársins kl. 17 ámorgun í Seltjarnarneskirkju.
Þar með hefst 14. starfsár hljómsveit-
arinnar. Flutt verða þrjú verk:
Myrkvi eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur, Rococo-tilbrigðin eftir Tsjaík-
ovskíj og 7. sinfónía Síbelíusar. Nic-
ole Vala Cariglia sellóleikari leikur
einleik í verki Tsjaíkovskíjs. Stjórn-
andi, að þessu sinni er Óliver Kentish.
Hvernig kom það til að þú lékir
með hljómsveitinni?
„Óliver var fyrsti kennari minn á
selló. Þá var ég sex ára gömul og bjó
á Akureyri. Ég
var nemandi
hans í fimm eða
sex ár en leiðir
skildi er hann
fluttist til
Reykjavíkur. Hann hafði samband við
mig í vor og bauð mér að leika með
hljómsveitinni nú í haust. Það er
gaman að mæta kennara sínum eftir
svo langan tíma, algerlega á nýjan
hátt.“
Af hverju varð Tsjaíkovskíj fyrir
valinu?
„Ætli Óliver hafi ekki fundist rétt
að láta sinn gamla nemanda leika
verk sem reyndi virkilega á og það
tókst. En við völdum þetta þó í sam-
einingu. Mér finnst mjög gaman að
spila með stjórnanda sem þekkir mig
vel og veit hvernig ég spila. Hann
kennir mér líka í leiðinni.
Stykkið er algjör fingurbrjótur en
á sama tíma mjög skemmtilegt.
Tsjaíkovskíj samdi þetta verk fyrir
sellista sem hann vann með, Fitzen-
hagen að nafni. Hann „lagaði verkið
til“ með samþykki tónskáldsins og lék
það víða. Síðan hefur það verið eitt af
aðalstykkjunum sem sellistar glíma
við. Það ber þess merki að Tsjaík-
ovskíj hafði miklar mætur á Mozart,
því það er mjög Mozart-legt. Rococo-
tímabilið var á 18. öld og nokkur
fyrstu verk Mozarts tilheyra þessu
tímabili. Arkitektúr þessa tímabils
einkenndist af miklu flúri og skrauti.
Þannig er verkið einnig, mikið af
flúri og öll tilbrigði notuð til að gera
það snúnara. Um leið og verkið er
rómantískt og Tsjaíkovskíj-legt er
það fínlegt og Mozart-legt, í senn
virðulegt, fínlegt og heillandi. Í þessu
verki fá áheyrendur að sjá flug-
eldasýningu á selló. Það kunna þeir
vel að meta.“
Af hverju valdir þú að leika á selló?
„Ég var í forskólanum á Akureyri.
Einhverju sinni er ég var að horfa á
Stundina okkar í Sjónvarpinu léku
þær systur Judith og Miriam Ingólfs-
son á fiðlu og selló. Það var engum
blöðum um það að fletta … þarna var
það sem ég vildi, verða sellóleikari.
Eftir það varð ekki aftur snúið. Það
komu náttúrlega tímabil á unglings-
árunum sem mér þótti ekki eins
skemmtilegt að æfa mig, en þau tíma-
bil voru aldrei langvarandi. Eitt ár
bætti ég við mig klarínett, til að prófa
annað hljóðfæri en sneri mér aftur að
sellóinu mínu að fullu.
Að menntaskólaárunum á Akureyri
loknum fluttist ég til Boston og hóf
nám í New England Conservatory of
Music. Þaðan útskrifaðist ég með
mastersgráðu, heiðurseinkunn. Ég
lék reglulega eftir það með Fílharm-
óníuhljómsveitinni í Boston og Boston
Modern Orchestra Project, en þar
eru einvörðungu leikin verk sem sam-
in eru eftir 1950. Ég kom heim í fyrra
og lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands
í nokkra mánuði. Svo ákvað ég að
prófa að koma heim í einn vetur og
sjá til hvernig það gengur. Nú er ég
að kenna í Tónlistarskólanum í Hafn-
arfirði og hef leikið mikið með Árna
Heimi Ingólfssyni píanóleikara. Við
höfum haldið tónleika víða, m.a. í Sig-
urjónssafni og einnig fórum við til
Frakklands í sumar. Við munum
halda samstarfi okkar áfram, en það
er aldrei að vita hvað manni dettur
annað í hug. Allar dyr eru opnar.“
Þú ert með mörg járn í eldinum.
Eru stundir fyrir áhugamál?
„Já, ég reyni að hlúa að þeim,
svona í köstum. Eitt aðaláhugamál
mitt er jóga. Það hjálpar mikið uppá
andlegu hliðina. Muna að anda rétt
þegar ég verð stressuð. Heldur mér í
jafnvægi og ég sé lífið og hlutina í
stærra samhengi. Ekki síst held ég
líkamanum í góðu ásigkomulagi en
það er hljóðfæraleikaranum nauðsyn-
legt. Rétt áður en ég fer á sviðið nota
ég jóga til að koma mér í rétt hugar-
ástand, en þegar ég er að spila er
hugurinn allur í tónlistinni.“
Með jóga kemst ég í rétt hugarástand
STIKLA
Sinfóníutónleikar
í Seltjarnar-
neskirkju
Næsta v ika
Laugardagur
Verslunin Te og kaffi,
Laugavegi 27 kl. 15 Hörður
Gunnarsson les úr nýrri ljóða-
bók sinni, Týndur á meðal
orða.
Gallerí Kling og Bang,
Laugavegi 23 kl. 16 Birgir
Andrésson, Sigurður Sveinn
Halldórsson og Hlynur Sig-
urbergsson opna sýninguna
„Alcofountain“.
Opið fimmtudaga til sunnu-
daga kl. 14–18.
Gallerí Hlemmur kl. 17
Sænski listamaðurinn Jon
Brunberg opnar sýningu sína
sem fjallar um stríð. Opið
fimmtudaga til sunnudaga kl.
14–18.
Hús málaranna, Eiðistorgi
kl. 14 Björn Birnir opnar mál-
verkasýningu. Opið fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 14–18.
Ráðhús Reykjavíkur kl. 14
Myndlistarsýning í tilefni Al-
þjóðlega geðheilbrigðisdags-
ins 10. október.
Listacafé, Listhúsinu,
Laugardal Davíð Art Sig-
urðsson sýnir olíumálverk sem
hann hefur unnið á sl. 12 mán-
uðum. Sýninguna nefnir hann
Hulduheima, en náttúra Ís-
lands er innblástur listamanns-
ins. Davíð Art hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tek-
ið þátt í samsýningum. Sýn-
ingin stendur út október.
Víðistaðakirkja kl. 17
Karlakórinn Þrestir flytur nýja
söngdagskrá, m.a. þjóðlög,
klassísk verk og nýrómantísk
verk frá Ameríku, Svíþjóð,
Finnlandi og Frakklandi auk ís-
lenskra sönglaga.
Sunnudagur
Salurinn kl. 20 Erling Blön-
dal Bengts-
son, selló, og
Nina Kavt-
aradze, pí-
anó, flytja
Sónötu í A-
dúr op. 69
eftir Beetho-
ven, Sónötu í
g-moll op.
65 eftir
Chopin, Elegíu op. 24 eftir
Fauré og Sónötu í d-moll op.
40 eftir Schostakovich. Verkin
eru hvert um sig meistaraverk
þess tíma sem þau eru samin
á, og af höfundum úr fremstu
röð sögunnar.
Hafnarborg kl. 20 Karla-
kórinn Þrestir flytur nýja söng-
dagskrá m.a. þjóðlög, klassísk
verk og nýrómantísk verk frá
Ameríku, Svíþjóð, Finnlandi
og Frakklandi auk íslenskra
sönglaga.
Nýlistasafnið kl. 15 Hanna
Christel Sigurkarlsdóttir mynd-
listarmaður verður með leið-
sögn um sýninguna Grasrót
2003. Þar gefur að líta verk 13
ungra listamanna.
Borgarbókasafn Reykja-
víkur, Tryggvagötu 15 kl.
15 Á sunnudögum eru barna-
dagar í safninu. Danska fjöl-
skyldumyndin Krummarnir
verður sýnd á fyrstu hæð
safnsins. Aðgangur er ókeyp-
is.
Þriðjudagur
Salurinn kl. 20 Söngkvartett-
inn Rúdolf: Sigrún Þorgeirs-
dóttir, sópran, Soffía Stef-
ánsdóttir, alt, Skarphéðinn Þór
Hjartarson, tenór, og Þór Ás-
geirsson bassi. Fluttar verða
dægurperlur frá 20. öld eftir
Bítlana, Ólaf Gauk, Sigfús
Halldórsson, Magnús Eiríksson
og Spilverk þjóðanna. Söng-
kvartettinn Rúdolf hefur starfað
saman óslitið í tíu ár og heldur
nú upp á afmælið sitt með út-
gáfutónleikum.
Listasafn Íslands kl.
12.10–12.40 Rakel Péturs-
dóttir verður með leiðsögn um
sýninguna Vefur lands og lita –
yfirlitssýning á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur.
Miðvikudagur
Listaháskóli Íslands, Skip-
holti 1, kl.
12.30 David
Walters, ljósa-
hönnuður frá
Ástralíu, fjallar
um samvinnu
leikara og ljósa-
hönnuða. Á 25
ára leikhúsferli
sínum hefur Dav-
id Walters unnið við öll helstu
leikhús í Ástralíu. Á Íslandi hef-
ur David einnig unnið fyrir öll
helstu leikhúsin.
Fimmtudagur
Háskólabíó kl. 19.30 Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Stjórn-
andi er Rumon Gamba. Ein-
leikari er Truls Mörk. Flutt
verður verk eftir Ralph Vaug-
han Williams, Fantasía um stef
eftir Thomas Tallis. Hafliði Hall-
grímsson: Sellókonsert og Lud-
wig van Beethoven, Sinfónía
nr. 2.
Tilkynningar, sem birtast
eiga á þessari síðu, þurfa að
berast í síðasta lagi kl. 11 ár-
degis á fimmtudögum. menn-
ing@mbl.is. Sjá einnig mbl.is/
staður og stund.
Nina Kavtaradze
David
Walters
Hörður Gunnarsson
MYNDLIST
Gallerí Dvergur, Grund-
arstíg: Elín Hansdóttir. Til
4. okt.
Gallerí Fold, Rauð-
arárstíg: Pétur Gautur.
Ljósafold: Jóna Þorvalds-
dóttir. Til 5. okt.
Gallerí Hlemmur: Jon
Brunberg. Til 26. okt.
Gallerí Kambur, Rang-
árvallasýslu: Hulda Vil-
hjálmsdóttir. Til 5. okt.
Gallerí Skuggi: Guðrún
Öyahals. Til 12. okt.
Gallerí Sævars Karls:
Svanborg Matthíasdóttir. Til
8. okt.
Gerðarsafn: Helgi Hjalta-
lín Eyjólfsson, Katrín Þor-
valdsdóttir og Olga Berg-
mann. Til 5. okt.
Gerðuberg: Yfirlitssýning
á verkum Koggu sl. 30 ár.
Til 16. nóv.
Hafnarborg: Bernd og
Jutta Lohmann. Kristbergur
Pétursson. Ingiríður Óðins-
dóttir. Teikningar hafn-
firskra barna. Til 13. okt.
Hallgrímskirkja: Gunnar
Örn. Til 1. des.
Hús málaranna, Eið-
istorgi: Björn Birnir. Til 19.
okt.
i8, Klapparstíg 33: Guð-
rún Einarsdóttir. Undir stig-
anum: Tomas Lemarquis. Til
1. nóv.
Gallerí Kling og Bang,
Laugavegi 23 Birgir
Andrésson, Sigurður Sveinn
Halldórsson og Hlynur Sig-
urbergsson. Til 26. okt.
Ketilhús, Akureyri: Einar
Hákonarson. Til 5. okt.
Listasafn Akureyrar:
Þjóð í mótun. Vestursalur:
Erla S. Haraldsdóttir og Bo
Melin. Til 2. nóv.
Listasafni ASÍ: Arinstofa,
Kristinn Pétursson. Til 12.
okt.
Listasafn ASÍ: Einar Gari-
baldi Eiríksson og Bruno
Muzzolini. Til 12. okt.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Júlíana
Sveinsdóttir. Sara Björns-
dóttir og Spessi. Til 26. okt.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Stefán Geir Karls-
son. Til 19. okt.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Ásmund-
ur Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhúsi: Erró – stríð.
Til 3.1. Samsýning alþýðu-
listar og samtímalistar, í
samstarfi við Safnasafnið.
Úr byggingarlistarsafni.
Innsetning Bryndísar Snæ-
björnsdóttur og Mark Wil-
son. Til 2. nóv.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Eyjólfur
Einarsson. Sæmundur
Valdimarsson myndhöggv-
ari. Til 12. okt. List án
landamæra: Sigurður Þór
Elíasson, Gísli Steindór
Þórðarson og Simun
Poulsen. Til 12. okt.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur: Magnús Ólafsson
ljósmyndari. Til 1. des.
Mokkakaffi: Bjarni Bern-
harður. Til 15. okt.
Norræna húsið: Skart-
gripir norsku listakonunnar
Liv Blåvarp. Til 19. okt.
Anddyri: Sari Maarit Ced-
ergren. Til 12. okt.
Nýlistasafnið: Grasrót
2003. Til 12. okt.
Ráðhús Reykjavíkur:
Myndlistarsýning í tilefni
Alþjóða geðheilbrigð-
isdagsins 10. okt. Til 12.
okt.
Safn – Laugavegi 37:
Opið mið–sun, kl. 14–18.
Til sýnis á þremur hæðum
íslensk og alþjóðleg sam-
tímalistaverk.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Sirra Sigrún Sigurðardóttir
og Erling T. V. Klingenberg.
Til 10. okt.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðar-
ins – Jón Helgason.
Þjóðarbókhlaða: Humar
eða frægð: Smekkleysa í
16 ár. Til 23. nóv.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www. umm. is
undir Fréttir.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Dýrin í
Hálsaskógi, sun. Með fulla
vasa af grjóti, fös. Allir á
svið, lau. Pabbastrákur, lau.
, fös. Veislan, sun.
Borgarleikhúsið, LR Lína
Langsokkur, lau. , sun. Öf-
ugum megin upp í, lau.,
fös. Íslenski dansflokk-
urinn: Þrjú dansverk: The
Matche, Symnbosis, Party,
frums. fim.
Loftkastalinn: Erling, fim.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Vinur minn heimsendir, fös.
Kontrabassaleikarinn,
frums. lau. Þrið.
Iðnó: Tenórsöngvarinn,
frums. sun. Fim., fös.
Ólafía, frums. mið.
Tjarnarbíó: Ráðalausir
menn, lau.
Möguleikhúsið: Tveir
menn og kassi, sun.
Prumpuhóllinn, sun.
LEIKHÚSIÐ í Kirkjunni frum-
sýnir leikritið Ólafía eftir Guð-
rúnu Ásmundsdóttir í Fríkirkj-
unni í Reykjavík kl. 20 á
miðvikudag. Í hléi ganga leik-
arar og sýningargestir yfir í
Iðnó og horfa á seinni helming
sögunnar.
Leikritið segir sögu Ólafíu
Jóhannsdóttur og er ávöxtur
margra ára starfs og rann-
sókna Guðrúnar. Hún aflaði
sér fanga á Íslandi og Noregi
þar sem hún nálgaðist hinn lif-
andi veruleik um Guðshetjuna
Ólafíu. Ólafía bjó í Noregi í 17
ár og vann afrekin sín meðal
hinna fátækustu, götufólks,
vændiskvenna, róna og sýfil-
issjúkra. Að áliti margra trú-
fræðinga má líkja Ólafíu við
Hallgrím Pétursson og sr. Frið-
rik Friðriksson, af sumum er
hún kölluð Móðir Theresa
Norðursins, og þeir eru til sem
hafa sagt að ættu Norðmenn
dýrlinga væri Ólafía fremst
meðal þeirra. Í miðborg Ósló-
ar, við Brugatan, getur að líta
minnisvarða með brjóstmynd
af konu með skotthúfu og í
peysufötum. Undir myndinni
stendur Ólafía Jóhannsdóttir.
Fædd á Íslandi 1864 d. 1924.
Vinur hinna ógæfusömu.
Leikendur eru 11. Í aðal-
hlutverki Ólafíu er Edda Björg-
vinsdóttir. Ólafíu sem barn
leikur Rakel Mjöll Leifsdóttir.
Ólafíu sem ungling leikur
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir.
Einar Benediktsson er leikinn
af Þresti Leó Gunnarssyni en
Einar 14 ára er leikinn af Guð-
mundi Óskari Guðmundssyni.
Vinur hinna
ógæfusömu
Þjóðminjasafn/Sigfús Einarsson
Ólafía Jóhannsdóttir, ásamt fóstru
sinni og móðursystur, Þorbjörgu
Sveinsdóttur ljósmóður.
ÍSLENSKIR leikstjórar munu kynna norræn
leikskáld sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá
þeim á fimmtudagskvöldum kl. 20 í Norræna
húsinu í vetur. Hver leikstjóri velur sér eitt leik-
skáld og fær til liðs við sig tvo leikara til að
leiklesa úr völdu verki skáldsins.
Vigdís Finnbogadóttir, leikstjóri og fyrrver-
andi forseti Íslands, ríður á vaðið nk. fimmtu-
dagskvöld og kynnir sænska rithöfundinn og
leikskáldið Per Olov Enquist. Hann var hér á
Bókmenntahátíðinni í Reykjavík í september.
Vigdís mun fá leikarana Ragnheiði Steindórs-
dóttur og Þorstein Gunnarsson til að leiklesa úr verkinu Líf ána-
maðkanna undir leikstjórn Hallmars Sigurðssonar.
Dramatík í Norræna húsinu
Vigdís
Finnbogadóttir