Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.2003, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.2003, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. DESEMBER 2003 RITHÖFUNDURINN Harry Mulisch leitar einhverra góðra eiginleika í Adolf Hitler í nýjustu skáldsögu sinni Sigfried, en sjálf- ur er Mulisch son- ur austurrísks bankamanns sem átti í samstarfi við nasistana og konu sem var sú eina í sinni fjöl- skyldu til að lifa af helförina. Mul- isch ólst hins veg- ar sjálfur upp í Hollandi og hef- ur notað skrif sín til að skoða heimsstyrjöldina síðari frá mis- munandi sjónarhorni. Í Sigfried vinnur hann til að mynda með ástir Hitlers og Evu Braun, sem hann lætur ala son einræðisherr- ans. Lítið fer þó fyrir ástinni í sögunni sem dregur fram jafn dökka mynd og fyrri verk Mul- isch. Draugasaga með húmor BÓK Peter Straub, Lost Boy, Lost Girl, eða Týndur drengur, týnd stúlka, er draugasaga með húmor að mati gagnrýnanda breska dagblaðsins Guardian. Straub, sem þekktur er fyrir bækur á borð við Ghost Story, sem þykir eins konar nútíma- klassík innan þessa efnisflokks, hefur hér frásögina á andláti. Sögupersónan Tim Underhill, sem aðdáendur sagna Straub ættu að kannast við, snýr aftur til heimabæjar síns eftir að mág- kona hans fremur sjálfsmorð. Viku síðar hverfur sonur henn- ar, Mark, og flest bendir til að ekki sé allt með felldu. Ævi Yeats ANNAÐ hefti ævisögu írska skáldsins William Butler Yeats eftir Oxford-fræðimanninn R. F. Foster hlýtur góða dóma hjá gagnrýnanda New York Times sem segir hana veita sál- fræðilega og sagnfræðilega innsýn í ævi Yeats og jafn- framt nálgast skáldið á gagn- rýnan hátt, en fáir höfundar hafa notað sína eigin ævi, tilfinn- ingar og hugsanir jafn sterklega í eigin skrifum og Yeats. Bæði bindi verksins W.B. Yeats – A Life eru einar 1.400 síður að lengd sem kann að fæla flesta ut- an dyggustu aðdáendur skálds- ins frá lesningunni. Slíkt er þó ástæðulaust að mati blaðsins sem segir skrif Fosters skörp og ritstílinn skemmtilegan. Stóri ljóti úlfurinn NÝJASTA bók spennusagnahöf- undarins James Patterson skaust beint í annað sæti met- sölulista New York Times sína fyrstu viku á lista. Bókin sem nefnist The Big Bad Wolf, eða Stóri ljóti úlf- urinn segir frá al- ríkislögreglu- manninum Alex Cross og baráttu hans við fífl- djarfa mannræningja. Fólki er rænt víðs vegar um Bandaríkin um hábjartan dag án þess að nokkuð spyrjist frekar til þess og kemst Alex að því að ekki er verið að ræna þessum ein- staklingum lausnargjaldsins vegna, heldur ganga þeir kaup- um og sölum fyrir tilstilli meist- arakrimmans sem gengur undir nafninu Wolf. ERLENDAR BÆKUR Á vit fortíðar Harry Mulisch William Butler Yeats James Patterson F jölmiðlaæfing í þremur hlutum: 1. Horfðu á heilan sjónvarpsfrétta- tíma án þess að hafa hljóðið á og reyndu að geta þér til um efni sér- hverrar fréttar með hliðsjón af myndefninu einu. 2. Hlustaðu á heilan sjónvarpsfréttatíma án þess að sjá myndina og reyndu að gera þér í hugarlund hvað sé að birtast á skjánum. 3. Horfðu á heilan fréttatíma í sjónvarpinu með hljóðinu á og gaumgæfðu samspil mynda og frá- sagnar. Við hvern þátt æfingarinnar máttu hafa eftirfarandi í huga: 1. Fyrir margt löngu heyrði ég reyndan, banda- rískan fréttamann færa rök fyrir því að það skipti takmörkuðu máli hvaða texti væri lesinn með sjónvarpsfréttamyndum: skilaboð mynd- efnisins hefðu margfalt vægi á við skilaboð textans og ef þetta tvennt stangaðist á sætu myndrænu skilaboðin ein eftir í huga áhorf- andans. Máli sínu til stuðnings vitnaði frétta- maðurinn til gagnrýninnar fréttar sem hann hefði eitt sinn birt um Ronald Reagan en hann var þá að bjóða sig í annað sinn fram til forseta í Bandaríkjunum. Fréttamaðurinn átti von á að kosningastjóri forsetans hefði samband og kvartaði en það var öðru nær. Kosningastjór- inn hringdi að vísu í fréttamanninn og þakkaði fyrir þriggja mínútna ókeypis auglýsingu á frambjóðandanum (Reagan var mestan hluta tímans í mynd að veifa bandarískum hermönn- um, leika golf og faðma eiginkonu sína). Það mátti einu gilda um hvað texti fréttarinnar fjallaði, sagði kosningastjórinn: Hin mynd- rænu skilaboð voru ótvíræð: Reagan væri glaðbeittur og hraustlegur forseti, fullur sjálfstrausts og lífsorku. 2. Flestir landsmenn hafa væntanlega orðið fyrir þeirri reynslu að hlusta á fréttir Sjónvarpsins eða Stöðvar 2 úr útvarpstæki. Sumar þessara frétta hljóma nákvæmlega eins og hefðbundn- ar útvarpsfréttir (t.d. rödd fréttamanns og rödd viðmælanda hans), aðrar eru líkt og út- varpsleikrit með áhrifshljóðum (t.d. flugvéla- dynur, sprengingar & hróp og köll í bakgrunni frásagnar fréttamanns), og svo eru loks þær fréttir sem byggjast að svo miklu leyti á mynd- efninu að útvarpshlustandinn má hafa sig allan við að skilja hvað gengur á (t.d. ef fréttamaður segir: „Selurinn í Húsdýragarðinum þakkaði fyrir athygli viðstaddra með viðeigandi hætti …“ – í bakgrunni heyrast skvamphljóð og hlátur). Í ljósi sögunnar af Ronald Reagan er vel hugsanlegt að skynjun áheyrenda/áhorf- enda á sömu fréttum í útvarpi og sjónvarpi geti verið gjörólík. 3. Um leið og maður fer að velta fyrir sér samleik mynda og fréttatexta í sjónvarpi kemur á dag- inn að tjáningarmöguleikar myndarinnar eru í senn fjölbreyttir og takmakaðir. Margar frétt- ir eru þannig gerðar að myndefnið kemur af sjálfu sér (t.d. viðtal við einstakling um tiltekið mál) og til þess fallið að auka áhrifamátt frétta- textans (t.d. myndir af vettvangi slyss sem er efni fréttar). En þær eru líka margar frétt- irnar þar sem umfjöllunarefnið er fremur óhlutbundið. Það er hægara sagt en gert að myndskreyta fréttir um verðbólguspár, álykt- anir félagasamtaka og sjálfsmorðstíðni. Á þessu sviði hafa að vísu skapast vissar hefðir, eins konar „myndaklisjur“, sem gefa ósjálfrátt til kynna hvert viðfangsefnið er. Fréttir um tölfræði sem snertir íslensku þjóðina eru til dæmis oft skreyttar með myndum af fólki að ganga óeðlilega hægt niður Bankastræti. Fréttir af vettvangi EFTA eru iðulega skreyttar með myndum af ákveðinni byggingu í erlendri stórborg – við sjáum upp eftir hús- inu, fánastangir fyrir framan það, nærmynd af innganginum, bíla aka frá hægri til vinstri (ef fréttin er óþægileg sjást andlitin ekki). Og svo eru það allar þessar alþjóðlegu fréttir sem sýna karlmenn í jakkafötum, koma út úr bif- reiðum, takast í hendur, sitja hvorn í sínum stólnum og ræðast við. Tilgangur æfingarinnar er að skerpa vitund manns fyrir því hvernig sú heimsmynd sem birt- ist í sjónvarpsfréttum er samsett. Gefur frétta- tími kvöldsins sannfærandi mynd af því sem gerðist í veröldinni undanfarnar klukkustundir? Hvað situr eftir? Bros ráðamanna? FJÖLMIÐLAR BROS RONALDS REAGANS Gefur fréttatími kvöldsins sannfærandi mynd af því sem gerðist í veröldinni undanfarn- ar klukkustundir? Hvað situr eftir? Bros ráðamanna? J Ó N K A R L H E L G A S O N ÞVERT á móti skal litið svo á að þátttaka í þjóðmálaumræðu kunni að vera rökrétt framhald af köllunarhlutverki kirkjunnar, ekki síst andlegu leiðsögninni sem ekki verður stunduð án mikils návígis við hið lifaða líf, m.a. þjóðlífið. Í þessu sambandi skiptir einnig miklu máli hver hinn skil- greindi viðtakandi predikunarinnar er eða hvaða tilhöfðun henni er ætluð. Sé predikuninni beint að hinum einstaka kirkjugesti eða áheyranda er aðeins stigsmunur á henni og sálgæslunni. Í slík- um tilvikum er eðlilegt að áhersla sé lögð á kærleika og fyrirgefandi náð Guðs. Sé tilhöfðun predikunarinnar aftur á móti al- menn og henni beint að stórum lítt af- mörkuðum hópi, eins og t.d. á sér stað í útvarpspredikunum, virðist eðlilegt að réttlæti Guðs skipi ekki óæðri sess í pre- dikuninni en kærleikur hans. Þá er jafn- framt nær óhjákvæmilegt að predikunin öðlist gagnrýninn félagslegan brodd þótt hún snúist ekki endilega um þröngt af- markað þjóðfélagslegt málefni og því síður pólitík. Loks ber að geta þess að þátttaka í umræðunni kann að skapa kirkjunni trúverðugleika í augum margra sem ekki taka þátt í starfi hennar eða deila forsendum hennar að öðru leyti. Í því sambandi vil ég m.a. benda á við- brögð margra við félagslegum eða jafn- vel pólitískum predikunarstíl sem nokkrir prestar hafa tileinkað sér upp á síðkastið. Segja margir að predikun af því tagi hafi að sínum skilningi fært kirkjuna nær hinu lifaða lífi venjulegs fólks og gert boðun hennar raunhæfari og marktækari en ella. […] Á hinn bóginn hefur verið á það bent að einstaklingi sem gerir sér far um að ganga út frá kirkjulegum eða guð- fræðilegum forsendum í þjóðmála- umræðu sinni og jafnvel þjóðmálabar- áttu séu lítil ef nokkur takmörk sett. Hann verður þó aðeins að gera sér ljóst að hann talar í eigin nafni. Hann verður og að eiga þá víðsýni til að bera að það ógni honum ekki að aðrir komist að ann- arri niðurstöðu út frá sömu eða svipuðum forsendum. Þá hlýtur það að teljast óhjá- kvæmilegt að guðfræðingar og kirkjufólk viðurkenni að það hefur ekki túlkunar- forskot á sviði þjóðmála og getur ekki gert kröfu til þess að það flytji hið rétta „svar“ í tilteknu félagslegu álitamáli – ekki einu sinni hið eina rétta trúarlega, kirkjulega eða guðfræðilega „svar“. Með öðrum orðum er ekki mögulegt að nota „sjónarhól eilífðarinnar“ sem skálkaskjól til að ganga á svig við leikreglur lýðræðis og jafnréttis. Hjalti Hugason Kistan www.visir.is/kistan Morgunblaðið/Ásdís Dularfullt tákn í Esjunni. KIRKJAN OG UMRÆÐAN IHöfundurinn situr við, hokinn í herðum með höf-uðið fullt af bókum sem aðrir hafa skrifað, oftast í erlendum borgum enda Reykjavík ekki staður fyrir skriftir eftir því sem eldri höfundar hafa reynt. Allir fóru þeir eitthvert annað, ef ekki út þá út á land, þá altént út úr þessari borg sem er ekki annað en sam- hengislausar tilvitnanir í borg. Hann hafði sjálfur reynt Klaustur en fljótlega horfið á braut. Í raun keyrði hann bara í gegn, leist ekki á það og vissi raunar ekki hvort það væri bær, bara keyrði og hélt þetta væri yfirgefin þyrping. Kannski var það Gerði, vissi það ekki fyrir víst, stoppaði síðan þarna ein- hvers staðar í fásinni sléttunnar og fékk sér ham- borgara sem var stærri en flestir slíkir og fransk- arnar flóðu yfir með þykkri slettu af sósu – þarna voru líka menn með sundlaugarbotna. IINæst hitti ég höfundinn á kúbanska barnum viðCarrer Francesc Giner. Hann var að lesa bók um sögu Barselónu eftir Robert Hughes. Hann sagð- ist vera að missa trúna á borginni og Katalónum við lesturinn; þeir væru með hönnun og útlit á heil- anum en hugsuðu minna um innihald og varan- legri gildi. Mér sýnist þjóðareðlið endurspeglast ágætlega í bakkelsinu, sagði hann, það lítur ákaf- lega vel út en bragðast þeim mun verr. Þetta er að vissu leyti rétt hjá honum, maldaði ég í móinn, það getur verið erfitt að finna gott bakkelsi í Barselónu en góður arkitektúr er þar nánast á hverju götu- horni. IIIHöfundurinn var ekki sannfærður og nefnditil sögunnar arkitekt að nafni Ricardo Bofill sem Hughes gagnrýnir harðlega í bók sinni. Bofill átti, að því er virtist, einkennilegan feril að baki. Hann hafði teiknað nokkur hús sem talin voru ónýt fáeinum árum eftir að þau voru reist. Íbúðarhús sem hann teiknaði í úthverfi borgarinnar var til dæmis óíbúðarhæft frá upphafi; þakið lak, lyftur biluðu og rafmagn og pípulagnir voru aldrei í lagi auk þess sem klæðningin utan á húsinu hrundi af smámsaman; þurfti að strengja net utan um bygg- inguna til að koma í veg fyrir slys á fólki þegar steinflísarnar féllu. En Katalónarnir voru hrifnir af byggingunni vegna þess að hún var hönnuð sam- kvæmt einhverri sósíalteóríu í lok valdatíma Francos. Þeir voru líka ánægðir með Bofill vegna þess að hann vakti athygli í útlöndum, það hrærði þjóðernistaugina. Frakkar sáu myndir af bygg- ingum hans í tímaritum um arkitektúr og virtist þær merkilegt framlag til byggingarlistar en mynd- irnar sýndu vitanlega ekki að byggingarnar voru ónothæfar og Bofill fékk úthlutað stórum verkefnum rétt utan Parísar og í Montpellier. Af sömu ástæðu eru byggingar eftir hann í Bandaríkjunum. IV Robert Hughes telur upphefð Bofills gott dæmium samtímaástandið, sagði höfundurinn al- varlegur, þar sem fólk er í litlum tengslum við veru- leikann en yfirborð hlutanna, útlit þeirra og ímynd, skipti meira máli en inntak þeirra, hvað þá nota- gildi. Ég sá að það þýddi lítið annað en að sam- sinna þessu. Ég þekkti reyndar lítið til Bofills, vissi að hann væri arkitektinn að nýrri flugstöðvar- byggingu í Barselónu og hún hefði verið gagnrýnd harðlega fyrir mikið glervirki sem hefði valdið trufl- unum í ratsjá þeirra sem stjórna flugumferð um völlinn. Jú, sennilega eru Katalónar samtíminn holdtekinn. NEÐANMÁLS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.