Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.2003, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.2003, Blaðsíða 5
þýðingu er lokið. Ég hef alltaf fullþýtt sög- urnar áður en ég hef farið með þær til útgef- enda. Ég er með þeim ósköpum fæddur að geta ekki unnið verk eftir pöntun, og þannig hefur þetta nú komið til. Ég hef oft verið beð- inn um að þýða ákveðnar bækur, en því miður kann ég ekki að vinna þannig.“ Stunda ekki ratleiki fyrir bókmenntafræðinga Hótelsumar er skrifuð sem dagbók manns sem kemur aftur á æskuslóðir. Hann er ný- skilinn og rótlaus. Sögusviðið er smábær úti á landi, minnir á Sauðárkrók þar sem þú ólst sjálfur upp … „Já, það er nú best að taka það fram að þessi litla bók er ekki uppgjörssaga. Kannski hafa menn tekið hana sem slíka, en þannig sé ég hana ekki, og það var heldur ekki mark- miðið að leiða neitt þannig í ljós. Mér finnst andrúmsloft skáldsagna alltaf vera að minnsta kosti jafn mikilvægt og sagan sjálf. Þess vegna legg ég mikið upp úr lýsingum á stað- háttum til dæmis. Það er rétt hjá þér að sögu- sviðið er að grunni til Sauðárkrókur. En bókin er ekki um skilnað, eins og hún hefur verið kynnt. Þeir sem lesa hana með þau gleraugu verða óhjákvæmilega fyrir sárum vonbrigð- um. Það vill raunar svo til að sögumaður hefur gengið í gegnum þá reynslu, en hér er engin „stúdía“ á ferðinni um þessa hlið mannlífsins. Hitt er svo annað mál að þeir sem hafa skilið þekkja þá einkennilegu lömunartilfinningu sem getur gripið hugann og sálina lengi á eft- ir, og að því leyti er bókin raunsæisleg – ég reyndi að ná rödd manns sem er eins og hálfur út úr heiminum, magnvana og ferðast eins og rekald gegnum hversdagsleika sem stundum er ofurseldur blekkingum hugans. Lesendum hins vegar hættir oft til að rugla saman höf- undi og rödd sögumanns, og halda þá að höf- undur sé alveg að geispa golunni!“ Eitt af einkennum verka þinna er samtal við aðra höfunda, önnur verk, jafnvel þín eigin. Þetta er áberandi í Hótelsumri, þar sem sjá má tengsl við verk eins og Útlendinginn, og svo ekki síður tengingar við þínar eldri sögur eins og Svefnhjólið. Þetta truflar ekkert nýja lesendur sem þekkja ekki það sem á undan er komið, en þarna eru alls kyns tengingar og vísanir fyrir þá sem þekkja eldri verkin. „Enginn gagnrýnenda hefur nú tekið eftir þessari tengingu við Útlendinginn. Reyndar sá ég ekki sjálfur fyrr en eftir á þessi tengsl, þetta með Hótel Algeirsborg og fleira, enda stunda ég ekki að búa til ratleiki fyrir bók- menntafræðinga. Með því að nefna þessa sam- svörun og „dulvituðu“ vísun er ég auðvitað ekki að segja að það geri mína bók neitt merkilegri en efni standa til, ég er alls ekki að reyna að færa hana úr millivigt upp í þunga- vigt með því að nefna þetta. Mér dettur ekki í hug að bera mig saman við stórhöfund eins og Camus, mér fannst bara einkennilegt að sjóuðu fólki skyldi yfirsjást þetta. En þegar ritdómarar vita jafnvel ekki hver Sandhóla- Pétur var og kalla Tóníó Kröger hrútleiðin- lega bók má eiga von á ýmsu. En nú er ég far- inn að svara þessari ágætu stétt fólks, og það hef ég aldrei gert áður, svo það er best að hætta hér. Samt væri gaman ef sú nýbreytni væri tekin upp að farið væri að ritdæma þær bækur sem liggja fyrir, en ekki alltaf biðja um eitthvað annað.“ Þú segir Hótelsumarið líka fyrri skáldsög- unum, en mér finnst margt talsvert ólíkt, hvað varðar frásagnarháttinn, framvinduna og söguheiminn. Þá er þetta ólík persónusköpun. „Það má vera að hún fari nær einhverju sem við getum fallist á að kalla skáldsögu en hinar fyrri þrjár,“ segir Gyrðir og kímir. „En ég fann nú ekki neinn ríkjandi mun á því þegar ég var að skrifa hana. En þetta kann að liggja í því að auðvitað breytast menn með tímanum að vissu marki. Ég er farinn að nota gleraugu við lestur og skriftir, sem er skýrasta dæmið um að maður er ekki ungskáld lengur, og þá fara hlutirnir að horfa svolítið öðruvísi við!“ Gæði lesenda skipta máli Getur verið að afstaðan sé að verða afslapp- aðri eftir að þú náðir fertugsaldrinum? „Ég er ekki frá því að eitthvað hafi gerst. Maður gengur í gegnum sömu tímabil and- legra breytinga með aldrinum og hver annar. Rithöfundar eru mestanpart ekkert frá- brugðnir því fólki sem ekki skrifar. Ég held að það sé mikill misskilningur að rithöfundar séu einhver sérstakur þjóðflokkur sem hefur eng- in líkindi við annað fólk.“ Í eldri bókunum er oft sem þrúgandi þungi liggi undir yfirborðinu en hann er síður til staðar í þeim nýrri. „Það getur vel verið að eitthvað sé breytt í því, meiri ró á yfirborðinu. En sjálfum finnst mér þetta nú ekki hafa breyst mjög mikið, þannig lagað. Mér finnst meiri þungi í báðum þessum bókum sem komu í ár en margir tala um. Flestir virðast sjá aukinn „léttleika“ en það er kannski bara þessi eilífi munur á því hvernig höfundurinn sjálfur og lesandinn skilja verkið. Ég er ekkert að segja að mín skynjun sé neitt rétthærri en lesandans. Bók- in er komin út, og er úr mínum höndum þann- ig séð. Hverjum lesanda er auðvitað frjálst að túlka hlutina eins og honum sýnist, og svo er stundum gott að túlka bara ekki neitt. Það eru svo margar leiðir við lestur bókar; lestur er alltaf bundinn af persónuleika viðkomandi, hvernig móttökutæki hans eru.“ Þú gefur oftar og meira út en flestir höf- undar, en engu að síður kýstu að halda þér til hlés og ert sjaldan reiðubúinn í spjall þegar fjölmiðlarnir banka upp á. „Mér þykir auglýsingamennska í kringum höfunda vera farin að ganga mjög út í öfgar. Bækurnar eiga að vera aðalatriðið og þær eiga að geta staðið fyrir sínu máli sjálfar. Ef þær geta það ekki er eitthvað mikið að. Þetta teng- ist líka því sem ég sagði, að það er bjargföst trú mín að rithöfundar séu ekkert merkilegri en annað fólk. Ég kann ekki vel við það and- rúmsloft sem er orðið í kringum útgáfuna núna. Það er mikill munur á þessu til hins verra, frá því ég byrjaði að gefa út.“ En rithöfundurinn sinnir einmanalegu starfi og sagt hefur verið að loksins þegar hann hafi lokið verki, þá finni hann sig knúinn til að stökkva út á torg og hrópa. Kann það að vera ein ástæðan fyrir viðtalagleði höfunda, eða er ástæðan aukin pressa útgefenda? „Ég hugsa að að einhverju leyti sé pressan frá útgefendum, en höfundur á ekki að láta markaðinn teyma sig of langt. Það er hættu- legt að fá sölutölur á heilann. Tilhneigingin verður sterkari með hverju árinu að líta á bók- ina sem hverja aðra markaðsvöru, og það get ég aldrei sætt mig við. Þrátt fyrir allt á hún að vera annað og meira. Þetta er sjálfsagt mjög gamaldags hugmynd hjá mér, en ég get ekki vikið frá henni. Nú hefur maður hvað eftir annað séð yf- irlýsingar frá útgefendum þar sem talað er leynt og ljóst með þeim hætti að samhengi sé milli vinsælda og gæða; þeir höfundar sem seljist mest séu bestir. Þetta er viðhorf sem mér finnst að ætti að gera útlægt. Auðvitað er ekkert samhengi þarna. Vinsælar bækur geta verið mjög góðar, sömuleiðis bækur sem ekki eru vinsælar, eins og allir vita. Þetta lýtur öðr- um lögmálum. Sama gildir um verðlaun í bók- menntaheiminum. Mér finnst alltof mikil áhersla lögð á að það sé samhengi milli verð- launa og gæða bóka. En það er reyndar ekkert séríslenskt fyrirbrigði, þetta sést úti í heimi á nákvæmlega sama hátt. Í raun leikur snobbið þarna stórt hlutverk, því miður.“ Segir þú, sem hefur unnið til flestra verð- launa sem rithöfundur getur unnið til hér. „Já,“ segir Gyrðir og glottir. „En ég hef samt þessa skoðun. Enda get ég ekki séð að það sé neinn munur á þeim bókum mínum sem hafa fengið verðlaun og hinum. Það sama gild- ir um höfunda sem hafa ekki fengið nein verð- laun; þeir eru ekki lakari fyrir það.“ Í þessu samhengi má vitna í nýleg skrif í tímaritinu Skýjum. Þar segir: Gyrðir hefur lent í þeirri fáránlegu stöðu að vera margverð- launaður og líklega einhver áhrifamesti rithöf- undur þjóðarinnar um þessar mundir, á sama tíma og bækur hans seljast lítið. Unga kyn- slóðin liggur í Gangandi íkorna og fleiri bókum Gyrðis, en þegar kemur að jólamarkaði er eins og þjóðin glati allri fótfestu og hafi í raun meiri áhuga á kjaftasögum en skáldskap. Hvað segirðu um þetta? „Ég er nú að heyra þetta í fyrsta sinn. En ég hef alltaf verið sáttur við þann hóp sem ég hef haft. Yfirleitt held ég að þessar lausamáls- bækur mínar hafi verið að fara í þetta 6–700 eintökum, ljóðabækurnar 3–400 geri ég ráð fyrir, og ég held að það sé vel viðunandi. „Gæði“ lesenda skipta máli líka. Það getur verið betra fyrir höfunda að hafa 500–1000 áhugasama lesendur heldur en 5000 sem lesa bara af því bók hefur verið mikið í fjölmiðlum. Ef lesendahópur minn á að stækka, þá verður það bara að gerast á mínum eigin forsendum. Ég fer ekki að breyta mínum aðferðum til samræmis við einhverja tilhneigingu í sam- félaginu, heldur verður áhugi á þeim þá að aukast sjálfkrafa og af eðlilegum ástæðum. Ef það gerist hins vegar ekki, þá er það allt í lagi. Ýmsir góðir höfundar hafa þurft að búa við minni lesendahóp en ég. Einhver sagði að einn góður lesandi væri nóg, og svo framarlega sem sá lesandi er ekki höfundurinn sjálfur held ég að það fari nálægt sannleikanum! Í það minnsta verður höfundurinn að reyna að hugsa ekki of mikið um þessa hluti, og það er reyndar alveg bannað meðan hann er að skrifa.“ Morgunblaðið/Einar Falur „Ég heyrði haft eftir Bill Holm, þegar einhver sagði honum hvað ég hefði skrifað margar bækur, að ég hlyti að vera geðbilaður. Ég mótmæli því ekki!“ segir Gyrðir Elíasson sem er hér að störfum. efi@mbl.is LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. DESEMBER 2003 5 „Sjáðu rauða húsið þarna!“ Ég sé það, ég sé það. Þarna ólst ég upp, þarna óttaðist ég lífið. Innan við stofugluggann sést einhver ganga um. Vonandi er það ekki ég. AFTUR Á BERNSKU- SLÓÐUM

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.