Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Síða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. JANÚAR 2004 herrar og embættismenn gerðu sér fulla grein fyrir því, að nýtt opinbert hneyksli kynni aftur að leiða til uppreisnar. Þrýst- ingur á Wagner og velgjörðarmann hans konunginn magnaðist svo, að í árslok 1865 neyddist Wagner til að yfirgefa borgina. Þar með voru óperuhúsáformin í raun dauð. Fullur vonbrigða sneri Lúðvík II baki við Münchenarbúum og byggði síðar öll skrauthýsi sín eins og hallirnar í Neuschw- anstein, Herrenchiemsee og Linderhof langt í burtu frá borginni og vanþakklátum íbúum hennar. Semper var á hinn bóginn látinn halda áfram hönnun óperuhússins næstu tvö árin, en sökum hinnar hörðu opinberu gagnrýni var hvað eftir annað frestað að hefja bygg- ingarframkvæmdir. Árið 1868 var svo kom- ið, að Semper sá sig tilneyddan til að kæra konunginn vegna vangoldinnar þóknunar, enda gerði hann sér orðið ljóst, að ekkert yrði af byggingunni. En skömmu eftir að óperuhátíðarhúsið í Bayreuth, hlöðuhofið svokallaða, var byggt árið 1876, kemst Wagner svo að orði í bréfi til Sempers: „Enda þótt leikhúsið sé gróft og ólistrænt er það engu að síður byggt samkvæmt þínum hugmyndum.“ Síðara hirðleikhúsið í Dresden (Semperóperan) Eins og áður segir brann fyrra hirðleik- húsið í Dresden árið 1869, og í kjölfar mik- illar undirskriftasöfnunar var Semper falið að hanna og byggja nýtt leikhús. Ekki voru þó liðin nema sex ár, síðan götuvirkjasmið- urinn Semper var náðaður í Saxlandi. En endursköpun vakti engan veginn fyrir Semper, heldur nýsköpun, sem væri í sam- ræmi við þróun hans sjálfs sem listamanns, tæki tillit til breyttra aðstæðna við Zwinger- torg og bæri vott um dýpri skilning á þróun byggingarlistar í aldanna rás. Semper flutti því bygginguna nokkru aft- ar miðað við fyrri stað, til þess að sýn yrði ekki byrgð að neinu leyti á langhlið ný- byggðs listaverkasafns við Zwinger-torg og bjó svo til enn annað torg, svo að leikhúsið fengi notið sín eins og stórkostleg leikmynd frá Saxelfi séð. Í fyrra hirðleikhúsinu verður hálfhringslögun áhorfendarýmisins fyrst og fremst að teljast hafa haft hagnýtt gildi, en nú leggur Semper enn meiri áherslu á það en í hönnun Münchenarhússins, að af leik- húsinu sjálfu sjáist, að það sé staður listanna. Á sama hátt og sjónum er beint að leiksviðinu hið innra skal sjónum beint að útliti hússins hið ytra. Samspil boga og hálf- hrings er höfuðeinkenni á útliti bygging- arinnar, og eru allir hlutar hennar felldir að því samspili, enda hefur það orðið ímynd leikhússins í heild. Vínarborg Árið 1869 kallaði Franz Joseph I Austur- ríkiskeisari Gottfried Semper til þess að vera til ráðuneytis við skipulagningu á hirð- safnahúsunum í Vín. Semper var þá talinn „okkar mesti núlifandi arkitekt“. Þetta mikla verkefni varð til þess, að hann sagði prófessorsstöðu sinni í Zürich lausri árið 1871 og fluttist til Vínar. Á nákvæmum uppdráttum Sempers getur að líta víðáttumikið keisaratorg, sem nýlagt Hringstrætið gengur þvert í gegnum. Við torgið standa bæði hirðsafnahúsin hvort andspænis öðru og tengjast með sigurbog- um tveimur skeifulaga glæsibyggingum, sem hásætissalurinn stendur þvert fyrir endann á og tengir saman. Þannig opnast keis- arahöllin með sínum skeifulaga byggingum út að torginu, þar sem saga náttúru og listar á að verða alþjóð sýnileg með hirðsöfnunum tveimur. Hásætissalur keisarans, sem er táknrænn fyrir ríkisvaldið, er þungamiðja torgsins alls. Semper tókst ennfremur að telja keis- arann á að reisa nýtt hirðleikhús. Honum til aðstoðar við hönnunina var fenginn ungur arkitekt frá Vín, Carl Hasenauer, en það reyndist mikið óheillaráð. Semper sá ekki við undirróðri aðstoðarmannsins og varð loks árið 1877 að láta öll verkefnin af hendi við þrjátíu árum yngri aðstoðarmanninn. Cosima Wagner, eiginkona Richards Wagn- er, komst enda svo að orði í dagbók sinni: „Aumingja Semper […], byggir núna fyrir þetta ríki og fer í hundana fyrir bragðið.“ Við upphaf byggingarframkvæmdanna mátti þegar vera ljóst, að keisaratorginu yrði aldrei lokið. En það var ekki fyrr en rétt fyrir upphaf heimsstyrjaldarinnar fyrri, að Franz Joseph keisari I jarðaði í elli sinni þau stórkostlegu áform, sem þeir Semper höfðu fóstrað fjörutíu árum áður, og skrifaði því til staðfestu á gögnin: „Ad acta!“ Áform- in höfðu farið út um þúfur sökum utanað- komandi andstöðu, óheyrilegs kostnaðar og breyttra aðstæðna, – austurríksa keisara- dæmið hafði lifað sjálft sig. Engu að síður skildi Semper eftir sig í Vín fleiri minnisvarða um arkitektúr 19. aldar. Hirðleikhúsið (nú Burgtheater), sem var opnað 1888, sækir ýmsar lausnir til upp- drátta Sempers af óperuhúsunum í Dresden og München, en Semper varð þó að taka fullmikið tillit til sjónarmiða Hasenauers, sem aukinheldur gerði breytingar á húsinu til hins verra eftir andlát Sempers. Enn- fremur nýtur framhlið hússins sín engan veginn vegna þess hve lóðin er grunn, og áhorfendarýmið er hefðbundnara en í Dres- denar- og Münchenarhúsunum. Í annan stað hlýtur bygging Sempers, sem hýsir lista- sögusafnið og opnuð var 1891 að honum látnum, að teljast sögulegt dæmi um heild- stætt listaverk á sviði arkitektúrs, málara- listar og höggmyndalistar. Síðustu þremur árum ævinnar eyddi Semper á ferðalögum, og dvaldist hann fyrst og fremst í Feneyjum og Róm, þar sem hann lést hinn 15. maí 1879 í faðmi vina sinna úr listamannastétt. Mikilvægi Gottfrieds Sempers Enda þótt ekki hafi verið fjallað um nánd- ar nærri öll verk Gottfrieds Sempers í þessu stutta yfirliti yfir ævi hans og störf verður þó reynt hér að draga saman nokkrar nið- urstöður. Þegar framlag Sempers til byggingarlist- arinnar er metið verður fyrst og fremst staðnæmst við þrjá þætti í lífsverki hans, sem þyngst vega í sögulegu tilliti: Í fyrsta lagi var Semper mesti arkitekt 19. aldar af kynslóðinni á eftir Karl Fried- rich Schinkel. Má hér einkum nefna bygg- ingar við Zwinger-torg, Semperóperuna og Brühl-stallana í Dresden, sem telja verður með fegurstu og merkustu menningarminj- um frá 19. öld. Í öðru lagi endurnýjaði Semper arkitektúr leikhúsa og óperuhúsa í samvinnu við vin sinn Richard Wagner. Sést ómetanlegt framlag Sempers hvað best af því, að í Evr- ópu einni hafa verið byggð meira en 70 leik- og óperuhús eftir fyrirmynd hirðleikhúsanna í Dresden, Richard Wagner-hátíðarhússins í München og hirðleikhússins í Vín. Fráhvarf frá svala- og stúkuleikhúsi, hringleikhús í staðinn, gryfja fyrir hljómsveitina, myrkvun áhorfendarýmisins, í stuttu máli sagt: Það er Semper og Wagner að þakka, að fundnar voru arkitektónískar lausnir á vandanum við að færa upp hið heildstæða listaverk óperu. Í þriðja lagi var Semper frjór kenninga- smiður í arkitektúr og menningarfræðum. Frá sjónarhóli nútímamanns kann pólykrómíudeilan að virðast vera úrelt aka- demísk umræða, og samanburðarlíffræði Cuviers hefur farið halloka fyrir þróunar- kenningu Darwins. En kenning Sempers um fjögur frummótíf byggingarlistarinnar og kenning hans um klæðningu bygginga hafa fengið fjölmarga fylgismenn á 20. öld og hafa reynst ótrúlega lífseigar. Áhrif og viðtökur Sempers á 19. og 20. öld Alls kyns misskilningur og útúrsnúningur setur svip sinn á viðtökur á lífsverki Gott- frieds Semper. Ástæðan fyrir því kann að vera sú, að hann lét ekki eftir sig neitt sam- stætt kenningakerfi. Höfuðkenning hans, kenningin um klæðningu bygginga, m.ö.o. að í arkitektúr sé smíð (konstrúksjón) bygg- ingar upphaflega aðgreind frá klæðningu eða hjúp hennar, er engu að síður talin hafa rutt brautina fyrir nútíma arkitektúr. Sem sporgöngumenn má nefna Bandaríkjamenn- ina Louis Sullivan og Frank Lloyd Wright. Sullivan, sem var upphafsmaður hins svo- kallaða Chicago-skóla í arkitektúr, þýddi höfuðrit Sempers Der Stil in seinen tec- hnischen und tektonischen Künsten á ensku, og tókst hann þráfaldlega á hendur að gera arkitektúr með textílum svip að veruleika, að reisa „walls like oriental rugs“. Wright var nemandi Sullivans, og byggði hann í Kaliforníu sex hús úr svonefndum „textile blocks“, þ.e. holum stórum steinsteypustein- um með skreytingum eftir frumbyggja Kali- forníu, og styrkti hann steinana með stáli og hellti í þá steinsteypu og óf þá þannig sam- an. Hann sagðist enda vinna eins og vefari – „like a weaver“. Fleiri arkitektar hafa sótt til klæðning- arkenningar Sempers eins og Josef Plecnik og aðrir nemendur Austurríkismannsins Ottos Wagners. Sýning á verkum Sempers Í tilefni af tveggja alda afmæli Gottfrieds Sempers hafa arkitektúrsöfn og -stofnanir tækniháskólanna í München og Zürich efnt til sýningar á verkum hans og samhliða henni gefið út veglegt rit. Var sýningin opin sumarmánuðina júní til ágústloka 2003 í Pinakothek der Moderne í München, en stendur yfir frá 1. nóvember 2003 til 25. jan- úar 2004 í Museum für Gestaltung í Zürich. Getur þar að líta uppdrætti og módel af nán- ast öllum verkum Sempers, og hefur sumt af því aldrei komið fyrir almenningssjónir áð- ur. Gerð er grein fyrir kenningarsmíði Sempers á lífsleiðinni, en ævi hans er skipt með táknrænu götuvígi í tímabilið fyrir og eftir útlegðina í London. Loks má geta þess, að veggir í sýningarhúsnæðinu eru málaðir í litum – í litaskala Le Corbusiers, sem var ákafur stuðningsmaður pólýkrómíu á 20. öld. Óhætt er að segja, að löngu hafi verið tímabært að heiðra minningu Gottfrieds Sempers, eins merkasta arkitekts og menn- ingarfrömuðar 19. aldar. Sýningin ásamt rit- inu um hann – að ógleymdum sjónvarpsþátt- um og tímaritsgreinum – gerir það með verðugum hætti. Höfundur er arkitekt í München og vinnur nú að doktorsritgerð um nýja byggingarlist á Íslandi á millistríðsárunum. Eidgenössische Technische Hochschule (ETH), tækniháskólinn í Zürich (1858–1868). Hirðleikhúsið í Vín (1869–1888), nú Burgtheater. Aðalinngangur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.