Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.2004, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.2004, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. MAÍ 2004 3 H.C. Andersen hefði orðið tvö hundruð ára á næsta ári og verður efnt til mikilla hátíða- halda í Danmörku. Jónína Ósk- arsdóttir rýnir í nýjar og gamlar þýð- ingar á ævintýrum Andersens en þær eru afar misjafnar og sumar ekki boðlegar að mati greinarhöfundar. Út með ruslið, eða hvað? spyr Þorvaldur Gylfason í grein þar sem hann ræðir hlut afþreyingar- menningar í ríkisreknum menning- arstofnunum á Íslandi svo sem leik- húsunum og ríkissjónvarpinu. Alþýðumenning á Íslandi 1830–1930 nefnist nýútkomið rit í ritstjórn Inga Sig- urðssonar og Lofts Guttormssonar. Sig- urður Gylfi Magnússon gagnrýnir ritið harðlega fyrir að sniðganga stóran hluta rannsókna á þessu sviði, þar á meðal á þriðja þúsund útgefinna blaðsíðna hans sjálfs. Sigurður Gylfi telur ritið dapran vitnisburð um óvönduð fræði. Svava Jakobsdóttir lést fyrir skömmu en verk hennar lifa með okkur. Pétur Már Ólafsson skrifar um leikritið Lokaæfingu og skáldsöguna Leigjandann sem eiga brýnt erindi við samtímann, að mati greinarhöfundar. FORSÍÐUMYNDIN er af hluta verks eftir Erlu Þórarinsdóttur er nefnist Corpus lucis sensitivus/ anima (2003) en Erla sýnir nú á Kjarvalsstöðum. Ljósmynd: Þorvaldur Örn Kristmundsson. Þ egar José Luis Roderiguez Zapatero tók við embætti for- sætisráðherra á Spáni fyrir nokkrum vikum lýsti hann því yfir að stjórn hans ætlaði að skera upp herör gegn ofbeldi sem konur sæta á heimilum sínum á Spáni. Hann lýsti því yfir að ofbeldi gegn konum væri þjóðar- skömm. Samkvæmt þeim tölum sem hann nefndi hafa um 600 konur látist á undan- förnum átta árum vegna ofbeldis maka eða sambýlismanna og talið er að um tvær millj- ónir kvenna búi við heimilisofbeldi. Mér segir svo hugur um að áratuga barátta kvennahreyfinga á Spáni gegn kynbundnu ofbeldi sé loks að skila sér og það svona rækilega. Ég hef ekki séð neina greiningu á kjósendum Sósíalista á Spáni en mér kæmi ekki á óvart þótt konur væru mjög fjöl- mennar í þeim hópi og flokkurinn því að svara kröfum kvenna um nauðsynlegar að- gerðir. Yfirlýsing Zapatero vakti athygli rit- stjórnar Morgunblaðsins sem fjallaði um hana í leiðara. Þar kom fram að þetta væru ótrúlega háar tölur og spurt var hvort verið gæti að Spánverjar væru eitthvað verri í þessum efnum en aðrar þjóðir en jafnframt hvort við ættum kannski að líta í eigin barm varðandi frekari aðgerðir til verndar þeim konum sem búa við ofbeldi. Íbúar Spánar eru um 41 milljón. Ef við gefum okkur að konur séu helmingur íbú- anna þýðir talan sem nefnd var hér að ofan að um það bil 10% af öllum konum búi við heimilisofbeldi. Ef miðað er við fullorðnar konur er hlutfallið mun hærra. Samkvæmt skýrslu frá Spáni sýndi rannsókn sem náði yfir árin 1999–2001 að rúmlega 9% kvenna yfir 18 ára aldri viðurkenndu að hafa sætt ofbeldi af hálfu maka eða kærasta og að rúmlega 70 konur að meðaltali létu lífið ár hvert eftir misþyrmingar sömu aðila. Stjórnvöld líta greinilega svo á að ástandið sé mun alvarlegra en þessar tölur sýna. Samkvæmt margítrekuðum rannsóknum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og fjölda annarra stofnana verður um þriðj- ungur kvenna í heiminum fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tíma á ævinni. Um fjórð- ungur kvenna í heiminum býr við heimilis- ofbeldi. Könnun sem gerð var í Svíþjóð fyrir nokkrum árum sýndi að allt að 40% kvenna töldu sig hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi en sú könnun var reyndar gagnrýnd fyrir of víða skilgreiningu á ofbeldi. Ljóst er að stríðsátök og það ástand sem skapast í lok styrjalda eða vopnaðra átaka auka ofbeldi gegn konum til muna og þarf ekki annað en að minna á fréttir frá Írak þar sem konur hafa vart þorað út fyrir dyr mánuðum sam- an. Tölurnar frá Spáni eru því alls ekki hærri og reyndar lægri en annars staðar í heiminum, séu þær marktækar. Tölurnar um dauða kvenna eru hins vegar sláandi enda sjaldgæft að slíkar staðreyndir séu dregnar fram. Það er ákaflega erfitt að meta umfang heimilisofbeldis vegna þess hve dulið það er, hve mikil skömm fylgir því og hve djúpar og sögulegar rætur kynbundið ofbeldi á í menningu og valdakerfum (kynjakerfum) þjóða um allan heim. Löggjafinn, lögregla, trúarbrögð og kirkjur héldu löngum hlífi- skildi yfir ofbeldismönnum og enn gengur illa að fá ráðamenn og almenning til að horf- ast í augu við þetta hrikalega og óþægilega vandamál og grípa til nauðsynlegra að- gerða. Því telst það til tíðinda þegar ríkis- stjórn setur baráttu gegn kynbundnu of- beldi efst á sína dagskrá. Það gefur von um breytta tíma og sýnir að það þarf þekkingu, baráttu og pólitískan vilja til að taka á svo alvarlegum málum sem snerta líf og heilsu fjölmargra kvenna og barna. Það var upp úr 1980 sem athygli kvenna- samtaka fór að beinast æ meir að ofbeldi gegn konum sem sérstöku viðfangsefni á leið kvenna til sjálfstæðis og frelsis. Á kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin var í Nairobi í Kenýa árið 1985 var ofbeldi gegn konum orðið aðalmálið og segja má að það hafi verið efst á baráttulist- anum æ síðan. Sameinuðu þjóðirnar tóku málið alvarlega og þarf ekki annað en að skoða heimasíður UNIFEM og WHO til að sjá hve mikil áhersla er lögð á að draga úr ofbeldi gegn konum enda gríðarlegur heil- brigðisvandi. Árið 1993 samþykktu Samein- uðu þjóðirnar sérstaka yfirlýsingu um af- nám ofbeldis gagnvart konum sem m.a. Íslendingar hafa staðfest þótt þess sjái lítt stað í umræðum hér á landi eða í nýbirtri framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum. Fyrir tæpum áratug var gerð könnun á umfangi heimilisofbeldis hér á landi. Hún sýndi að heimilisofbeldi var ákaflega svipað og í þeim löndum sem við berum okkur sam- an við, jafnvel ívið meira en t.d. í Danmörku. Í kjölfarið voru nefndir settar á laggir sem komu með tillögur til úrbóta og var sumum þeirra hrint í framkvæmd. Á síðasta ári var birt samnorræn könnun sem leiddi í ljós að ofbeldi gegn konum virtist vera meira hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Ekkert bendir til þess að dregið hafi úr ofbeldi gegn konum eða að það hafi breyst að öðru leyti en því að meira ber á hópnauðgunum en áð- ur. Stöðugt koma fram ný dæmi um kyn- ferðislega misnotkun á börnum, einkum stúlkubörnum, sem auðvitað eru angi af sama meiði. Nýlega kynnti Kvennaathvarfið í Reykjavík ársskýrslu sína fyrir síðasta ár. Þar kom fram að fleiri konur dvöldu í at- hvarfinu en árið áður eða 73 konur með 59 börn. Alls leituðu 388 konur á aldrinum 13 ára til áttræðs til athvarfsins, nokkrar þeirra oftar en einu sinni. Á þeim 12 árum sem Neyðarmóttaka vegna nauðgunarmála hefur starfað hafa meira en eitt þúsund manns leitað til hennar, bæði karlar og kon- ur. Það er því ljóst að kynbundið ofbeldi er verulegt hér á landi. Ýmis kvennasamtök sem vinna að baráttu gegn kynbundnu of- beldi og afleiðingum þess hafa margbent á nauðsyn nýrrar könnunar á umfangi ofbeld- is gegn konum en ekki síður á nauðsynlegar lagabreytingar sem tryggja rétt þeirra sem sæta ofbeldi. Það er því verk að vinna á Ís- landi rétt eins og á Spáni og þar þurfa að koma að verki þeir sem best þekkja til mála, ekki síst kvennasamtök. Spurningin er hve- nær við fáum stjórnvöld sem beita sér gegn þeirri þjóðarskömm sem ofbeldi gegn kon- um er á Íslandi. MAÐUR LÍTTU ÞÉR NÆR RABB K R I S T Í N Á S T G E I R S D Ó T T I R krast@simnet.is JÓHANNES ÚR KÖTLUM TAL VIÐ SPÓA Ég átti í morgun tal við spakan spóa, sem spígsporaði um þýfðan sinuflóa og var að flauta fjörugt ástarstef og föndra við sitt langa og bogna nef. Hann sagði, að hvergi væri betra að vera né viturlegra hreiður sitt að gera en hér á þessum hlýja og frjálsa stað, og hjartanlega vall hann upp á það. Ég grét af öfund, vildi verða spói og vildi að landið yrði tómur flói, og vildi elska og syngja í sinu þess, – þá sagði spóinn: Jæja, vertu bless! Jóhannes úr Kötlum (1899–1972) var skáld. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 1 9 . T Ö L U B L A Ð - 7 9 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N EFNI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.